1.6.03

Næturvakt #2
Kl. er 4 og þessi nótt er búin að vera fljót að líða.. ég er ekki eins þreytt og lúin eins og seinustu nótt og ég hef það bara fínt. Ég kom illa upplögð og í mjög vondu skapi á vaktina en það er allt lagað, það er lítil (oggg jáá, hún er miklu minni en ég, hún er höfðinu minni, ég tilkynnti henni það áðan að ég væri mjög hamingjusöm yfir því að loksins að hitta einhvern sem er eldri en ég og minni) og dúllulega kona sem ég er að vinna með og hún er mjögg góð!
Það er býsssssna mikið kenderí í bænum núna.. Sjómannadagsgleði, ball og læti sko! Ég var alveg að láta undan og bugsast af bjór og vitleysu.. langaði svo að fara á ball og djamma áðan.. *pufff* nee nee.. svo er kallinn bara mættur til vinnu eins og heiðvirtur borgari! Var að tala við Elías og hann var VEL í glasi, byrjaður að syngja og bara.. stuð stuð stuð! Heh, endlaust fyndið að heyra hann syngja, hann og Pétur Kristins.. múhahahah!
Svo eru það Ýdalir um næstu helgi.. fyrsta Ýdala ballið, Í svörtum fötum *dæs* æ rilí lúkkking for túúúú.. allir sem ætla að mæta, tilkynna koma sína á messagesinu, ætla ekki annas allir að mæta? haa? waa? yeahh..
Núna er ég búin að vera í Tetres í sonna hálftíma.. við erum búnar að þvo allt sem þvo þarf og núna eru 3tímar í heimferð og ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér.. hmm!! Maður má ekki fara heima, afþví það er önnur kona að passa gamla fólkið og maður þarf að hjálpa til við það!!
Ég er enn að reyan bögglast í þessu hotmail drazli!! þetta er ekkkert að ganga hjá mér!
Ég er að spá í að leggja mig í klukkutíma eða tvo.. *geisp*

31.5.03

Geisssssssssp!
Ég er á næturvakt, kl. er 5, ég er að æla og skíta á mig af þreytu, get ekki hugsað um annað en rúmið mitt.. langar mjögggg mikið að stinga bara af og fara hjem, en það víst má ekki! Er búin að sofa 3tíma í dag.. vorum að keppa við Hött í kvöld, fyrsti leikurinn.. hann fór 3-0 fyrir Hetti, við vorum ekkert góðar og vorum ekki að gera okkar besta, ég hefði alveg eins geta verið að éta skítin úr sjálfri mér.. daaa! þetta var algjör brandari! Yeahhhh.
Ég er að vera nett biluð á þessari helvítis tölvu hérna í vinnuni, hún vill ekki hleypa mér inná hotmailið mitt og ég á fullt af mail og myndum og rugi.. And btw, þeir sem voru að djamm og djúsa á útskirftardæminu þanna um seinsutu helgi, þá er ég að fara setja inn myndir af því öllu saman í næstu viku, þegar pabbi verður búin að senda mér diskin með öllum myndunum *dæs* ég er líka að fara fá tölvuna mín og ökusírteinið mitt.. víííí!
Kl. er núna 05.46 !!!! *geiiiisssssppppp*

27.5.03

Takk allir sem hafa óskað mér til hamingju með afmælið ;* love ya all! Ég er fyrsta daginn minn í vinnunni, svaka stuððð! Ég er víst að fara keppa leik með Einhverja á Föstudaginn, gegn Hetti (ég held að þetta verði einhver brandari sko) og þá nótt byrja ég á næturvöktum að þvo! Mér hlakkar ekkert of mikið til þess.. en ææ, það reddast! Tölvan mín kemur í vikunni, þá lofa ég að vera duglegari að skirfa.. því mér finnst ég eiginlega vera að stelast sonna í vinnuni ;/ samt er ég það ekkert, allt fólkið er sofandi og kellingarnar eru bara í kafféé.. Allavegna, þanga til næsta..
ÉG ER ORÐIN 18.. wúhú! ég er samt ekki farin að finna neinn rosalega mun á mér, ég hef alltaf komist inná þá staði sem ég vill, þannig að það breytist ekkert, en núna má ég spila í spilakössum, án þess að vera stelast og taka riskííí áhættu! MÚHAHAH.. daaaa! Spilakassinn er BESTI vinur minn! lalalalla *Búdrýindi*