22.12.02

Þá er maður í aðeins betra skapi en í gær.. (: sofanði ekki fyrr en kl.7 í morgun, las eins og mongó og horfði á full af friens í tölvunni.. voða gaman, soo var ég vakin með LÁTUM í morgun.. (eða kl. hálf 4) heh, þá voru þessir blessuðu foreldrar mínir að taka til.. jólahreingerning og ekkert nema bara læti í þeim! *pufff* Gunna frænka og Svenni aparass eru víst að koma í mat og ég neyðist til að klæða mig, ég lít víst út eins og bleikursjeik.. í mínum fínu bleikustu náttfötum geimsins.
en jæja, ég kíkti inná síðuna hans Trausta sem er btw alveg brilliant (ég er sko STÆÐSTU sponserinn hans) og fann þar myndir í massavís.. þetta eru Jóndi, Ási og Raggi og Jóndi fulli og Ragnar og Ásgrímur og svo er það hún Hanna mín þökkum Trausta fyrir þetta fína myndasjó.. en þaa eru víst komnir gestir í mat.. og ég verð að klæða mig! ef einhverjum þykir vænt um elías og vill sjá hann attur þá eru seinustu forvöl núna, hann er að deyja! múhahahhaha! GOTT Á ÞIG litla kvikindið mitt (:

*dæs* hææ! komin heim úr rvk, var svo sem ágætt.. fékk úlpu eða jakka eða hvað þetta er, 3 boli og e-h dótaríí.. fór ekki á Coldplay, doltið fegin, því Anna sagði að þetta hef'ði ekkert verið voða spes, samt alltaf upplifun..! ég gerði voða lítið í bænum, jú fór í ljós og var að passa Emblu og setti met í að fara í Smáralind, þessa 3daga fór ég 5-6 sinnum í Smáralind.. verulega gaman! or not, þessi djö. búlla! fer í taugarnir á mér, það fer reyndar allt í taugarnar á mér þessa dagana, ég er eitthvað voðalega pirruð! ..svo varist mig, þeir sem það geta! (: ég hitti Konnan minn og það er alltaf gaman, mikið á ég ettir að sakna hans eftir áramót ;/ *væl* ..ég gerði díl þig hann, hann ætlar að lofa að vera alltaf jafn sætur, hehe , svo var ég líka með Siggunni, lúri heima hjá henni og var mjög stillt (var ekki með neina loftfimleika)

hehe lærðu að blóta á öllum skítatungumálum í heimi doltið sneddí ...ég hef so skít ekkert að gera!

er einhver á austurleið 28-29.des? kannski til vopnafjarðar eða laugar eða eitthver áleiðis á vopnafjörð.. því jújú, ég ætla einmitt að eyða áramótunum 2002-2003 á mesta menningarpleisi í öllum heimi, VOPNAFIRÐI! hehe, bara snilldin ein, hlakka soo mikið til að hitta elsku elsku elsku ástin mína, ég er farin að sakna þín sooooooo mikið ;/
svo gerði ég víst díl við jóu gella á vopnaf. að láta hana hafa PC tölvuna mína og ég fæ 3 Blush flöskur frá henni.. heh, mjöggg góður díll (: en það verður jammað og júzað á vopnafirði um áramótin!
en jæja.. farin að gera e-h annað.. video og tölvast í ferðatölvunni frekar.. *geisp*
luv ya all.. ! (",)

19.12.02

Jæja.. ég er alveg crasy!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! öll mín skólaár hef ég sætt mig vel og ágætlega við 2 í einkun, það fannst mér ekkert skrírið að fá, en núna er ég BRJÁLUÐ! ég var að fá einkunirnar mínar.. kay, Stæ193 5 (MJÖG GOTTT) dan193 6 (gáfuðust) Íþr101 7 (auðvita) Fél103 7 (snillingur af guðsnáð) Ísl102 8 (átti að fá 9, en skilaði ekki ritgerð) og svo er það martöð lífs míns, ens102 2 (mér ekkkert nema vel í öllu prófinu og bara.. ég skil þetta ekki) ansk. hafi það! ég er soo að vona að Kristjana hafi litið vitlaust á þetta og bara.. æææ! ég hlít að hafa náð ensku.. anskotinn hafi það! en jæja jæja.. ! ekki eins og ég hafie kki sitið í sama áfanganum tvisvar..!
blehhh.. en ekkert sneddí búið að gerast, sótti Guðrúni Tinnu litlu frænku á leikskólan, var með hana í smátíma, sömdum nokkur jólalög og sugum eins og stungir grísir, svaka stuð, lásum skógarlíf bókin og horfðum á Lion King.. !

Kl. hálf 10 í fyrrmálið fer ég til Rvk. ég er því miður ekki að fara á Coldplay, samt veit ekki, gæti endað sollis ef ég finn mér engin föt, á allvegna peing og marr sér bara til! en aðalega er ég að fara kaupa mér föt, ég á EKKKKERT af fötum og sárvantar föt, annas myndi ég ekki lifa jólin af.. því jólkötturinn tekur jú fólk sem á ekki ný föt, og ekki vill ég lenda í klónum á ketti.. (mín versta martöð) svo ég verð að kaupa mér föt (já elías, ég veit hvað u ert að hugsa, ÉG VERÐ) og soo er ég að fara hitta írisi frænku og ásgeir og emblu og hörpu! og gretti og siggu og kannski konnsantínuz... daaaaaaaaaaaaaa!

im bored!.. heh snilld!
jæja borg óttasn í fyrramálið, ég kveð!

17.12.02

Einhverjir tæknilegir örðugleikar með spjallið en ég er að vinna í því að reyna að laga það....verður komið upp vonandi í kvöld.

Elías

16.12.02

Baldur sæti
Jóhann nagli
takk fyrir takk, þetta fann ég sjálf og gerði sjálf! ...stoltust af sjálfri mér! (:

Hááádííí parners! *japlágrasstrái*
Í dag eru 4ár síðan ég fékk sykursýki! mér finnst eins og þetta hafi gerst í gær, ég man öll smá smá smá smá aðrtiði, stór merkilegt.. (: 100ár í viðbót þá losna ég kannski við þetta, því þá verð ég dauð! Fun Fun Fun..

Takk elsku Elías minn fyrir að setja inn spjallið, eina sem ég geri á þessari síðu er að rita einhverja vitleysu, sem ég veit ekki hvort einhver lesi einu sinni! eða jú ég setti inn linkana hjá Kidda og Ottó.. hehe dúleg! en elskurnar mínar, verið alveg svakalega duleg við að setja inn spjall og kommenta, því það er bara soo gaman!

Ég var í klippingu+strípum.. ég er með klippingu eins og ENGIN annar í öllum geimnum er með og ljósar og rauðar stípur.. fullt af þeim! heh, ég er doltið í því að vera örrvísi en aðrir en þetta er alveg drullu kúl og ég er svaka ánægð með þetta allt saman! og soo mætti ég með nýju fínu klippinguna mína og fór til tannlæknis (hélt samt að ég væri komin til Afríku, ekkert nema blóm og attur blóm og apiköttur á þessari tannlæknastofu) og vitið hvað, ég er með skemmda tönn!!! ): ): og ég gekk með skottið á milli lappana frá tannza, leið eins og óþekkum krakka! *suss&sveii* en það er lítið að gera í því, nema mæta til tannza á fimmtud. kl.10!

ÆÆ, það eru svo margir sem ætla ekki að koma aftur eftri áramót, t.d minn einkasonur (sem ég btw gleymdi að kveðja, ég fékk tár í augun og sting í magan (í alvöru) þegar ég fattaði það) ég veit ekki alveg hvernig ég á að lifa þetta af án hans ;/ ég mun sakan mín meira en allt elsku elsku bestaskinnið mitt! og soo kemur Konnantínuz ekki attur.. the black man is gone!.. *væl* og Ási minn (sem er eiginmaðurinn minn, giftum okkur eina fallega sumarnótt á ircinu, hann er bangsi bestaskinn og er á lausu, og ég mæli með honum, hann er með hendurnar mínar, ég ælta aða uppstoppa þær þegar hann er dáinn) Grétar SPIDERMAN og Jóhann HARÐNAGLI ætla heldur ekki að koma, ææ! *tár* ..ég mun sakna þeirra alveg svakalega mikið, þeir eru uppáhöldin (segir marr uppáhöld?) mín, og ég elska ykkur *kiss&knús* (grétar, nú er ég að segja fallegt um þig) hvað á ég að gera þegar ég hef ekkert að gera? koma til Eskifjarðar.. ? og uppáhalds manneksjan mín verður ekki hjá mér á næstu önn, Maggan mín! *væl&háskæl* og ekki Björgvin! ..fool! hvað er að fólki? Laugar er besta pleis í öllum heimi, svo er ég líka þar? hvað er málið? það er kannski málið.. heh!
Jæja.. spá í að kíkja eitthvert með Jónu.. örugglega í rassgat! víííí..
érr ekki búin að fá einkunar mínar! spá í að tjékka á þeim (: