var að setja inn myndir síðan um helgina. fluttingurinn í Höfn. það er svo æðislega æðislegt þarna. yndislegt. þegar maður kemur inn lekur maður eiginlega niður eins og smjör, það er svo friðsælt og góður andi í þessu húsi. gömlu er eiginlega búin að koma sér fyrir. mamma þarf samt alltaf að raða uppá nýtt og setja allt á 50 staði áður en hluturinn fer á "sinn rétt stað". heh. bara stuð. en ég er eiginlega bara búin að hangsa í höfn síðan um helgina og efast um að ég muni gera neitt annað. tumi bróðir er líka ofsa kátur með fluttingin fyrir utan smá stress, ælu og gelgjustæla. hann var í pössun hjá okkur elíasi áður en mamma og pabbi komu, þegar þau voru að klára að þrífa og vesenast á blö. og hann er orðin rúmlega 1árs og það þýðir á hundamáli að hann er gelgja. gelgja = graður. hann er eiginlega ofsalega ótrúlega mikil graðfoli. við vorum að labba niðrí bónus og ég missti hann inní garð hjá tík á lóðarí.. yeah, þið getið rétt ýmindað ykkur. ég fer ekkert séstaklega hratt yfir í þessu ástandi og ræð hvort sem er ekkert við 30kg fullvaxin labrador í bóner. en það reddaðist og hann fékk ekki sínu fram.. bara skamm frá mér. heh. svo fávituðumst við elías með dýrið á "hundasvæði" þar sem auðvita voru fullt af tíkum og alltof mikið af látum og veseni.. god. tumi var á fullu að leika við einhvern annan hund sem eigandi kallaði alltaf "hund" sem var semsagt nafnið á hundinum, svo ég pældi ekkert meira í því. en neinei.. þá var þetta tík. hver er svo heimskur að skýra tíkina sína hund? god. stubit hundafólk. en allt er gott sem endar vel og hann fékk ekki að ríða. hann hefur aldrei fengið að ríða og mamma segir að ef hann prófar það aldrei þá veit hann ekkert hvað það er og veit ekki af hverju hann er að missa. uuuh. já.
en annas höfum við það gott. við elías erum að fara suður á föstud. (geððvekt snemma, ohh nenni ekki snemma) kíkjum aðeins í borgina í búðir og förum svo yfir á hellu því þar býr lítil 4ára kóngur.. Aron Frosti. hann verður 4ára 10júlí og þá er partí. við verðum þar fram á þriðjud. vonandi verður stuð. ætlum að fara í sund og eh að hangsa hér og þar um suðurlandið með litla kóngurinn með okkur. svo förum við suður á mánud. því ég þarf til augnlæknis.. búin að draga það ansi lengi. sykursýki, meðganga og augu. ójájá.. allt má nú finna til að skoða og tjékka og atast í.
ég hlakka til að losna við nábítin þegar drottingin kemur í heimin. hell yes. og verkina í rifbeinunum (; sem gera iðulega vart við sig á kvöldin. en lagast alltaf þegar ég leggst uppí. sem er gott. ég er að lesa da vincie lykil, og þykir góð.
er ekki spuring um að skella sér á egilstaði eh í sumar? til hrafndísar? haa? hvernig sándar það hrafndísin mín sæl? en elías segir að við megum bara fara þegar hann er að vinna. sem er samþykkt. að gera eh úr þessu sumri. ekki er gott verður hér á ak. ónei. þoka og mígandi riging.. það hefur ekki rignt svona í 30ára var sagt í fréttunum. og ekki ljúga þær.
ó rigbeinin fríð.. mélbrjótast bráðum.. lalallalalala.
friends að byrja á sikus.
lattttter.
drottingin kveður með góðu sparki og boxi og djöfulgangi.
lovlííí.
5.7.05
27.6.05
var að setja kúluhlass myndir inn. ég held að ég líti hlussulega út á myndum, en ég er ekki hlussuleg. ég er hot.. drop me like im hot. yeah.
er ekki búin að fara nema 2 á kaffihús í dag.. við sigga fórum í dag og aftur í kvöld með kiddu. sigga var að gef drottinguna sykursætt dress. tjékkið á mblogginu.
ég er auli. ég gleymdi símanum mínum í bílnum hjá siggu áðan. hringdi og hún kom með hann, ég fór niður á náttsloppnum einum fata, setti annan inniskóin minn fyrir lyftuhurðina til að halda, náði í síman og ætlaði að halda minni leið áfram. en neinei, þá fór lyftan ekkert af stað. hún var föst niðrí í svona 10mín.. ég nottlega búin að fykta í öllum god damh tökkunum en ekkert gekk. og ég kemst ekkert heim til mín nema taka lyfuna. því svo er bara brunastigi og þangað þarf maður að hafa lykla.. sem ég var auðvita ekki með. sá mig í anda sofa í ruzlageymsluna með pappakassa mér til hlýju, en það reddaðist.
ætla að setja eh sætt í videoið og borða ostapopp.
góððððða nótt..
og munið að skilja eftir ykkur ummerki.. því god knows.. like me (maður er að brillera í enskunu, yes) að það koma yfir 100manns í innliti/útlit á þessari síðu.
og já ég veit að það hafa verið gerð mistök með að segja að þetta sé stelpa og svo er það strákur.. en eins og ég þá fer ég svo oft í sónar og fæ alltaf að vita að það sé drotting, þannig að ég treysti þessu.
og auððvita er þetta drotting, hver ætti annas að nota allt drottingadótið sem dýrið hefur fengið og við höfum keypt. hahaha sæi það að í anda ef það kæmi lítil pjakkur.. hann þyrfti að ganga í kjólum og bleikum dressum fyrstu ár ævi sinnar. það væri fyndið.
...eða ekki!!
22.6.05
SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ ó jááá ég er komin í 6vikna sumarfrí. 22júní - 5ágúst. yeahh
embla skildi nú ekki um daginn. við elías vorum eh (einu sinni sem oftar) að spá í nöfn og eh.. og ég spurðu emblu hvort hún vissi ekki eh gott nafn á litlu drottinguna.. hún bara: já, silvía nótt. ég bara.. wahhh? hún skildi ekkert í okkkur að vilja ekki skýra barnið eftir þessari líka pæju. hún er kappi, jájá en að skýra barnið eftir henni.. néhh, ælti það. sigga vinkona hótaði líka að berja í borðið ef við færum eftir þessu, og hver vill að sigga fari að beita ofbeldi? ekki ég. seisei neih.
en enn er ég voðalega upptekin að þessu furðuverki sem vex innra með mér. enda er sá tími sem það sparkar og rassakastar sem allra mest. og það er eh svo notalegt. ég er farin að lesa aðeins fyrir það (yes ég er kreisí) og þegar ég byrja að lesa þá byrjar ballið.. ég hef greinilega svona líka hvetjandi rödd. heh. og á enda sprettinum mun ég eflaust geta sett seríosskál á bumbuna og kjamsað á. það væri nokkuð magnað. og það fer að líða að því að ég setji inn nýjar dráttkúlumyndir. því jújú alltaf stækkar þessi kúluhrúga. ég er líka aðeins farin að kjaga. mér finnst það doltið fyndið. ég líkist doltið guðrúni minni íslenskukennara í grunnskóla. hún var eðall. já maður verður ósköp afmyndaður svona í ástandinu, en um fram allt er maður sætur. sem betur fer er ég ekki enn komin með bjúg. nema þanna nokkra daga um daginn, þegar ég var eins og geld grísamamma, með bjúg í andlitinu og fingurnar á mér voru eins og hnullafeitar pulsur.. eða rúllupylsa. það var ekki svo fallegt, en ég losaði mig við bjúgin með 8lítrum af vatni og skemmtun.
ég er leið á nokkrum spuringum:
*er alveg eðilega hvað þú ert með stóra kúli? svar: JÁ.
*verður barnið þitt ekki þvílíkt stórt? svar: nei ekki ef ég hugsa vel um sykursíkina og allt fer vel.
*heldur að þú farir aftur að vinna eftir sumarfrí? svar: ég veit það ekki, ætla að sjá til hvernig ég verð þá.
og þegar fólk byrjar að segja mér einhverjar horror sögur af fæðingum og börnum. NEI TAKK ÉG VILL EKKI HEYRA NOKKURN SKAPAÐAN HRÆRANDI HLUT UM ÞAÐ. NEI NEI NEI.
það eru 50-70% líkur á því að ég verði tekin með keisara. því ég er með sykursíkini og það er oft svo mikið álag á líkaman að þeir hætta ekki á að láta sykursjúkar konur fæða sjálfar. við erum alveg sátt við það, enda ekkert undan því að kvarta. en nei þá fæ ég að heyra sögur eins og: þú færð ekki sömu tilfinnginu f. barinu þínu þegar þú ert tekin með keisara, því þú færð bara hreint og fínt barn uppí hendurnar, eftir enga vinnu. (uhh ég gekk með það í 9mánuði) ég skil ekki hvað fær fólk til að kjafta um þetta við mig, kasólétta kjéllinguna, viðkvæma as hell (skælir yfir öllu og með hjartað í buxunum all day long, alltaf yfir öllu, er nógu peranojuð yfir að þetta gangi ekki og öllu þessu) ég barasta skil það ekki. svo ef þú hefur einhverja horror fæðingasögur og eh þá máttu halda þér saman og geyma hana inní þér. ég vill ekki heyra hana núna eða seinna.
takk fyrir það.
og núna er næstum bráðum bara vika í að mamma og pabbi og tumi flytji. við skellum okkur á dósina laugad. eftir viku (2júlí) pökkum í bíl og tökum loka hönd fyrir pleisið og svo verður flutt í höfn. gvöððð ég get ekki beðið. það verður svooo vonerfúl. víhh.
munið svo að tjékka alltaf reglulega á mblogginu. því ég skelli oft inn myndum.
góða nótt.
moms and the queen of all
19.6.05
god ó god. ég nenni engan vegin að bíða í 3 og hálfan mánuð í viðbót. ónei. við erum búin að vera á vopnaf. (og erum enn) um helgina og við erum búin að vera snuddast helling með 2mánaða pattorm, hana elísu hrönn og manni langar svo að fá litla barnið sitt strax. ég vildi ekki fara frá þeirri litlu.. æææ. fyndið samt. um leið og ég tók hana þá byrjaði drotting í bumbuni minni að sparka og spraka. smá öfund í gangi? heh. og svo í dag þegar ég var að snúllast með litlu byrjaði drottingin aftur.
swweeeettt.
núna er ég bara að hugsa um bleyjur, prump, hor og smábörn.. fun fun fun.
13.6.05
vaknaði í morgun, var alveg sjúr á að ég ætti að mæta í sjúkóþjálfun kl. 12.. ég fór, og beið og beið og eftir 40mín, snjáldraðist ég nú til að spyrja hvort tjélling sem nuddar mig væri í ansk. ekki við, sagði til nafn og mér var tilkynnt að ég ætti að mæta kl. hálf2. fór heim og beygð mig niður og reif uppáhald einu kvart buxurnar mínar (sem ég passa í) stórt gat á bossanum. þetta er bara afþví ég á ekki að beygja mig í bakinu, heldur hnánum.. blehhh. ekki get ég sagt að gamanið hafi gert góða hluti á þessu. þar með hófst pirrings dagurinn.
fór með siggu á kaffihús, sem var nærinandi og hollt. slúðrandi gott alveg hreint.
og nú skín sólin í augun á mér. og ég nenni ekki að færa mig.
þarf að formata tölvuna. hef verið að vakan upp við martöð um að það harði diskurinn hrynju og ég sitji í skítnum. sem er ekki notalegt.
vann 3vaktir um helgina. var dúlítið þreytt og dauð í líkamanum. gamla feita fólk. (seisei, nú er maður byrjaður með kjaft) og fer svo að vinna á 17júní (embla blöndal er á leiðini í skúðgöngu en kallar það alltaf fermingarveilsu, ekki veit ég afhverju, og hún neitar að hlusta á að þetta heiti skrúðganga) ætlum svo að kíkja á vopnaf. um helgina. fun fun fun slappelsis fun.
svo á ég bara 3vaktir eftir þá er maður mættir í sömmervíkeisjón. sem verður ljúft. ætla ekki að gera neitt séstakt. förum jú suður þegar aron litli frosti á afmæli og verðum í einhverntíma. og svo ætlum við með emblu á vopnaf. svo ætla ég að hanga með mömmu og tuma og pabba á höfn.
en litla kvikindiskötturinn sem vex inní mér er búin að finna pissublöðruna mína og hefur mikið gaman að því að dangla í hana. var í röðini í bónus í dag og þá byrjaði dýrið að dangla, og ég bara neii, hélt í smá tíma að ég væri búin að pissa á mig.. það hefði reyndar verið doltið gaman. en núna vakir drotting alltaf lengur og lengur og hreyfir sig meira og meira. skemmtir sér við að stækka uppá við og ýtir doltið svolitið í rifbeinin á mér í leiðini. sem er sárt. en maður er kappi.
brói, forsti og raggi voru sammála um það um helgina og ég væri bara búin að fitna svona mikið, að ég væri sko ekkert ólétt, því þeir lái allir með krumlurnar á bumbuni á mér og barnið skarkaði ekkert í þá. sögðu líka að ég væri ýmindarveik, sækkó. (pæliðð í sækó) og þá fundu þeir þetta bara út. thanks!! neih.
ææ.. setti nokkrar bévítans myndir. als ekki spennó. en samt.
Sweetness, sweetness I was only joking when I said
I'd like to smash every tooth in your head
Oh, sweetness, sweetness I was only joking when I said
By rights you should be bludgeoned in your bed
And now I know how joan of arc felt
Now I know how joan of arc felt
As the flames rose to her roman nose
And her discman started to melt
Bigmouth la da dum da da
Bigmouth la da da da
Bigmouth strikes again
And i've got no right to take my place
In the human race
Oh
Bigmouth la da dum da da
Bigmouth la da da da bigmouth strikes again
And I've got no right to take my place
In the human race.
rassgatist svo í háttin kettlingarnir ykkar.
langar einhvern til að leigja af mér föt í 4-5mánuði? heh.. það væri fyndið að leigja fötin sín. hahaha..
ef þiðð akynjið biturð í þessu bloggi, þá eruðu blind og heimsk.
heheh.. því ég er glöð í bragð.
hell yeah
6.6.05
cancelaði læknana í rvk. já. ég nennti ekki og langaði ekki og þar fram eftir götunum. og hana nú.
ég elska elías eitthvað svo ótrúlega mikið þessa dagana. ég elska hann alltaf en enn meira og alltaf meira og meira, eitthvað sem ég hélt að væri ekki hægt. ég elska að elska hann. litla barnið okkar er örugglega farið að elska hann líka, því við höfum saknað hans ógurlega. hann kemur til okkar í fyrramáli og vekur okkar. ljúffffft. hann er þá á leið sinni suður á iron maden og kemur svo um nóttina og lúrir hjá okkur og svo förum við heim á akureyrina.
ég hef heft það gott á dósini (fyrir utan söknuð og ást) viðð mamma erum búnar að kappast doltið í dag, pakka niður gömlu dóti, henda og messast. ég hitti bæði sylvó og önnu, það var gott. og líka annað fólk. kíkti á bakken og tónleika. barnið hoppaði hæð sína (25cm eða eh álíka) þegar metallica smellir byrjuð að hjóma frá metal sveitini death trap.. frekar fyndið. segið svo að börn kunni ekki gott að meta. ekkert helv. birgitta haukdal og sjitt ass. heh.
en áfram heldur stuðið.. ég ætla að hlunkast í bælið með allt mitt afurtask og halda áframa ð lesa ævisögu KK, því hún er sneld.
að elska einhvern er svooo gott. allavegana að elska einhvern eins og elías.
Viktoría ástsjúka og ástfangna upp fyrir bumbu og litla buddan ;*
30.5.05
það er klessukisi í garðinum hjá mér.. mjög svo skemmtilegt lag sem frúin á móti kendi mér, lærði það víst í leikskólanum.
ójæja. takk fyrir allar afmæliskveðjur.. klapp á bossan frá mér og takk fyrir elskulegar kveðjur með drottinguna. takktakk.
afmælið var bara mjög gott. var bara ó rólegheitunum allan daginn, komu nokkrir gestir og ég bauð uppá krásir og með því. fékk mjög sætar og góðar gjafir, og ég var bara fullkomnlega ánægð með þetta allsaman. elsku mamma kom auðvita til mín.. pabbi var fastur á austurlandinu í tölvuveseni, óheppin hann að missa af partíiinu, og hann fær engan afgang, því það var engin, fórmeð restina í vinnuna daginn eftir og það var allt.. ALLLT ALLT klárað á innan við 5mín. heh.. enda var þetta allt svo gott.
búin að lækka við mig vinnu, komin í 40% sem þýðir 2vaktir í viku. það er gott. hvíli mig vel á milli og mæt eiturhress á mínarvaktir.
mamma og pabbi flyja svo í júlí á höfn sem er á móti á ak. það er æðislegt hús. lítið gamalt sveitakot. frekar yndislegt og ég tilkynnti gömlu það að ég kæmi með mitt hafurtask og vildi mitt herbergi og þessháttar.. óóójáh. ég ætla að búa þarna með annan fótin og hálfa bumbuna. heh. hlakka allavegna mikið til að fá þau á eyrina.
ég ætla meira að segja að vera á dósini um næstu helgi. kem eflaust á fimmtud. nenni ekki að hanga ein heima. elías að vinna, ásgeir í rvk, harpa að vinna og eh. maður verður víst að njóta þess að dvelja á heiðarbrautini, því hver veit hvernær verður kemur þangað næst. ætla líka að hitta, rut, önnu og sylvíu mína. mjög langt síðan ég hef hitt pakkið mitt og hlakka til.
var að fá bikínið (loxins) frá hm.. og nú verður legið í sundi. víh.
fór líka í listfléttuna og fékk mér rosalega flotta mynd eftir línu rut. það kom skrítin svipur á elías þegar ég sýndi honum hana, honum fannst hún eh fríkí. heh.
svo er það rvk eftir viku. enn einu sinni. ekki svo mikið stuð, eða jújú. fer 7. og elías fer á iron og ég kem svo aftur heim 9. því ég er að fara til læknis.
talandi um það.. ég ferð á morgun til tannlæknis, svo klippingu,(ég er að verða snarrrrgeðveik á skíta hárinu á mér, langar í eh gott hár, ég er eins og ég hafi verið á sörvævoreyju í 39daga) svo ljósmóðir. (þetta er dagurinn á morgun) fer ég á fimmtud. til ingvar (sykursýkislæknis) og það er eins gott að hann verði ekki með neitt rugl, þoli ekki þegar læknar segja: þetta er mjög gott, en það gæti samt verið betra. stundum veit maður ekki hvað þeir halda að maður sé, einhver vél kannski? ó ég ætla ekki að vera með kjaft.
stundum æsi ég mig svo mikið yfir t.d. helv. tölvuni og einhverju sem ekki virkar að í orðsins fylstu merkiinu held ég að ég missi legvatnið. það væri það, það væri það.
var að setja inn nokkrar myndir.
en annas ætla að fara elda.. gartíneraður steinbítur, besta salatið ala viktoría og karteflur í ofni ala viktoría.
sækkks.
klessukisinn kveður..
27.5.05
þá er maður orðin 20ára!!
hafði hugsað mér að halda öðvísi uppá það en á þennan hátt er það líka notalegt.. mjög svo eiginlega bara. ég er reddí með bakkelsi og meðððíð. búin að bjóða í smá teiti, kaffiboð.. virðulegt.
litla drottingin sparkar og sparkar og á það til að láta öllum illum látum, en.. það er bara notalegt. ég finn þannig ekkert fyrir því. allavegna ekki á slæman hátt.
en ég ætla ekki að hafa þetta lengra.
óska ykkur öllum góðan 27maí dag.. því það er jú besti dagurinn ;)
25.5.05
Og hvað haldiði.. það kúrir lítil stelpa í bumbunni minni. Stelpa stelpa stelpa stelpa. þetta fengum við að vita í gær. stelpa. við vorum í sónar. og spurðum, konan sagði að það væri nú mjög greinilegt að þetta væri lítil dama. stelpa. og hefði ég verið hjá læknin mínum eða einhverstaðar annastaðar hefði ég ælt og kafnað og dansað. við fengum auðvita bæði tárin í augun og gátum ekki hætt að brosa. stelpa. stelpa. stelpa.
allat gekk vel. stelpan okkar er með fullkomið hjarta og allt í besta lagi. og allt fullkomið, enda ekki við örðu að búast. þetta er nú dóttir okkar. stelpa.
óóó jæja. ætlaði bara að láta vita. mbloggið kjánir ykkar.
svo er auðvita 20ára afmæli eftir 2daga. afmælinu aflýst, nánar auglýst síðar.
takktakk.
Viktoría mamma.. með drotttingu í mallanum.
19.5.05
ÉG:
* hef það mjög gott eftir að ég lét barna mig (hhahhah)
* sykur á það til að leika á mig og vera með stæla, þá líður mér illa því mér finnst ég svíkja litla ófædda barnið mitt, því ég deili með því líkama (þið skiljið)
* ef ég er oft há í blóðsykri getur barnið skaddast
* sé enn eftir að hafa ekki farið á placebo tónleikana seinasta sumar
* ætla einhvertíman á kelduna (ÉG ÆTLA)
* ætla að halda smá afmælispartí
* er búin að segja elíasi hva við ætlum að gera um helgina (sumarbústaður, bláa lónið í mývó, út að borða, leti og kósíheit)
* horfi alltaf á aðþregdar eiginkonur, elska þær
* er ekki aðþrengd eiginkona.. heh
* fór á mugison í gær (var komin á það að kalla að elías væri bara vinur minn og ég ætlaði með mugga heim, því god damh hot fox)
* var að fá fullt af óléttufötum frá hönnu (takktakk)
* hlusta enn oft á elsku skunk anansie
* dreymdi einu sinni þvílíkt margar nætur skin singer inda skunk
* ég dáði hana og dýrkaði
* allt herbergið mitt var í plagötum bara með henni
* finnst enn doltið erfit að hlusta á picking on me lagið með skunk
* það á sér langa sögu (sylvía lind og margt fl.)
* en ég elska það lag samt
* það segir svo margt sem ég ekki gat sagt þá
* enn er ég ekki búin að ákveða hvað ég ætla að vera þegar ég verð stór
* og það er bara vika í það
* Má til Með að Muna ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór!
* því það er jú bara vika í það
* ég er að lækka vinnuna niðrí 40%
* ætla að vanda mig að nota líkaman rétt
* á víst bara einn (svind)
* á litla bubbótta vinkonu sem er að fara til DK á morgun (tussssa)
* fer í sumarfrí 22júní til 31júlí
* finnst doltið leiðó að ég komist ekki nein af pilsunum mínum (því ég er svo mikil pilsnatjélling)
* mamma ætlar samt að sauma á mig nokkur (sem er maggggnað)
* djammaði ógggislega mikið seinasta sumar með siggu og kiddi (sjittt)
* er skítdrullu sama þótt íslenska skíta lagið komst ekki áfram
* hverjum er ekki sama um júró?
* fokk júró
* þetta skemmtir mér á góðum dögum
* talandi um skemmtun.. víhh
* finnst geðððveikt leiðinlegt að fara sofa
* hlakka alltaf til að vakna aftur
* er að fara í vorgleði á vökuvöllum á morgun (grillaðar pulsur)
* reyni að koma mér aldrei í óþægilear aðstæður
* t.d. að tala við fólk sem ég þekki ekki
* það er hræðilegt
* og ég hræðist það (heimskulegt)
* í dag hlusta ég á: bítlana, incubus, skunk anansie, hljóma, michael jackson, mugison, madonnu, placebo, kk, bang gang, emmu tott (stolið frá mugi)
* en á morgun getur það verið eh allllt annað
* finnst beautiful með c. aguilera alltaf jafn flott (textin)
* felli nokkur tár við það
* fæ oft kökk í hálsin við ýmis sniðug tækifæri
* og það fer ekki minnkandi með ástandinu
* því jú, ég er í ástandinu, lét barna mig og þar við situr
* geri grín af sjálfri mér, enda er það nauððsynlegt
* ásrottensen bróðir segir að ég sé alveg eins og mamma þegar ég er eh að tala
* er búin að hanga með rottusen bróðir í allan dag
* hann kann EKKI að gera múnvok
* en það kann ég hinsvegar
* það var þvílíkt mikið af ofur svölu artí vonabí fartí fólki á muggí í gær
* hló innra með mér og óskaði að sigga væri þarna með mér
* sakna stundum tímans á laugum
* magga vinkona er orðin 20ára í dag
* ætla að fara búa til lista með lögum og minningum
* haldiði að það sé ekki sjálfur billie jean sé á rúv - óstöðvandi tónlist
* þarf reyndar að vakna snemma á morgun
* sjúkraþjálfun - killerkreisíness
* veit að barnið okkur verið ofdrekaður RJÓMAKÖTTUR
* litla dýrið gaf okkur fokk merki í sónarnum
* alexsander var búin að mæla allt og skoða í svona 10mín og tók svo sónarin af og ég spurði hvort það væri strákur eða stelpa og það leið ekki 5sek og þá var dýrólfur búin að snúa sér í litla sjaldböku og við sáum ekkert
* litla dýrið
* strax byrjað að láta illa
* finnst þetta samt svo fyndið, alveg eins og það heyrði í okkur og gaf svo frá sér svona rottuhljóð eins og rottu frændi þess.. heheh
* bless.
Blackbird singing in the dead of night
Take these broken wings and learn to fly
17.5.05
anda inn anda út. sjitt hvað tölvur, ipod, heddfónar, sjónvörp, dvdspilara, video, græjur og alskyns forrit í ansk. tölvun geta gert mann geðððsjúkan. anda inn anda út. ef ég hefði leyft sjálfri mér að ráða þá væri fullt af góssi á götuna fyrir framan svalirnar hjá mér. ég var að spá í að taka eitt "stinni í alltáhreinu" kast og henda þessu drasli öllu, ÖLLU.. út. en ég róast. enda setti ég bara micheael jackson, billie jean í og tók nokkur spor.. yeahh og það eins gott að ég skellti mér líka í apótekið í morgun og fékk mér þetta líka róandi fína te. svo gott þegar maður kemur heim af kvöldvakt og getur ekki sofanað alveg strax eða eh. og svo held ég að boxaradýrið hafa gott að slaka stundum á. heh. búri litli þessa vikuna. en annnas er bara stuðð í tröllagilinu.
skelltum okkur í 70ára afmæli hjá ömmu svövu um helgina. hún varð 70ára 10maí. 50árum eldri en ég. afmælið var haldið uppí áfangafelli og komum við þangað á laugad. og sváfum eina nótt. mjög kósí. tók fullt af myndum.
svo styttist í sörvævorvíkend. næsta helgi. enn veit elías ekki neitt.. múhahahah. það er reyndar vinnupartí á föstud. grill og djamm. ætla að fara, því elías er ekki búin að vinna fyrr en um 9 eða eh. hekzl? right? dagný? right? haah? það er snilld á þessum djömmum með þessum elsku bestu kellum mínum. eins og í hríey seinast, sjitt það var gaman. allar tjéllingar orðnar vel í glasi og það var dansað og sungið.
frúinn á móti ætlar að fá að krassa hér í nótt því foreldraskammirnar hennar eru að fara á húsó í fyrramáli fyrir allar aldir. og ég ætla að skutla henni í leikskólan í fyrramáli og sækja hana. og gæta hennar, seisei jáh. og á morgun er mugison tónleikar á græna hattinum, ekki lætur maður sig vanta þangað. glætan félagi. og svo förum við í 20vikna sónar á morgun, þá fáum við að vita hvort það er strákur eða stelpa (ég vill engin komment á það) við ákvöðum að fá að vita kynið, ekki það að það skipti einhverju eða eh og ekki af forvitni eða neitt. ok? víhh. og svo í næstu viku er það borg dauðans í þvílíka rannsóknir, en það verður stuð. og ikea, já, smáró? já, og fleira. það væri nú kannski ekkert verra ef maður myndi kannski rekast á önnu mína og sylvíu mína og kannski ástó maríu. haa? mölli?
uhh svo er það nottlega það að ég verð 20ára eftir 10daga.. 27maí. wúhhhhhúh.
æ. ætla að fara út og gera eh.
Viktoría.. með snappakeis í maganum.
(hlutaði á maus, einu sinni sem áður.. og spáði uppá nýtt í textanum í kristalsnótt)
haltu þér fastar í mig,
við erum ekki enn fulkomlega samvaxin.
haltu þér fastar í mig,
og ég skal reyna að hafa vit fyrir okkur báðum.
ég skal gefa þér gull, silfur og völuskrín.
gefa þér allt og alla sem þarfnast þín,
ég myndi gefa þér allan heiminn, (væna)!
ef þú næðir utan um hann.
haltu þér fastar í mig,
kysstu mig fljótt haltu í mér síðasta andanum.
en ef þú sleppir, missir takið,
verður það sem hamarshögg á kristalnóttu.
þar sem flísar fljúga og sökkva í augun sem blóðtár.
og ef þú vilt þá skal ég ljúga að þér:
" já ,ef þú vilt þá skal ég standa hér kyrr
og eitt, já aðeins eitt, ég vil aldrei enda aleinn ".
hertu tak þitt á mér,
því ég get enn andað með herkjum.
hertu tak þitt á mér,
það er ekki auðvelt að fella saman lungu.
en hér er lífið sem ég þráði, hér er allt það sem ég dái,
skildu mig eftir einan,
skildu mig eftir einan vina, inn í kristalnótt.
9.5.05
lukka lukka lukka. var að fá sendinguna frá HM. víííhh. pantaði mér, óléttubuxur (þvílíkar góðar, mjúkar og víðar) 2 góða mama boli, gulan og túris, sumarlega, bikíní (fyrst maður er nú einu sinni feitur og er með ástæðu afhverju maður er feitur, því ekki að sýna það. ekki fer ég í bikíní venjulega..neineinei) þvílíkt gæalega smekkbuxur á litla grís, mjögg flotta samfellu með kraga og 2 litla sæta bangsimon náttgalla, og geððveikt flottan bol, sumarlega auðvita. nú á ég fullt af fötum, allavegna þanga til ég fer næst suður, hehehe. elías pantaði sér líka 4 boli. allt passaði og allir ánægðir. ég er meira að segja búin að þvo allt sem við fengum, ætla sko strax að byrja nota það. og óóó gvöðð hvað þetta voru sæt föt á litla búra. með vissu millibili þá nennir maður ekki að bíða í 4mánuði til viðbótar, en maður hefur ekkert séstakt val. heh. en maður hefur gaman að þessu. seiseijáh.
var líka að setja inn nýjar myndir. endddilega tjékk it.
...but.. lattterr!!!
8.5.05
Mikið hvað skapið í manni getur stundum stokkið og hoppar upp og niður. sama hvort maður sé óléttur eða ekki. en dagurinn í dagur hefur verið frábært. vaknaði og fór í jólahúsið með emblu, ásgó og kidda og co, alltaf sami friðurinn og róinn sem yfir mann færist þegar maður stígur þarna inn. ég er ekki að kidda ef ég myndi skipta um vinnu þá myndi ég sækja um þarna, ég kem líka svo oft að kallinn þekkir mig, og finnst ég örugglega jólaleg (kannski bara álfaleg) en það er eh svo rólegt þarna og maður verður eh svo afslappaður og sæll. og það á vel við mig. (; svo skrapp ég í búðir. það er leynivinavika í vinnuni og ég er að missa mig í sjopperingum f. það. voða stuð í þessari vinnu. svo er djamm hjá okkur 20maí. grill og bús. en ég er að fara í sörvævorvíkend með elíasi. (ekki dirty weekend eins og móðir mín vildi halda) (segi ykkur seinna, því hann má ekkert vitia, sööpræs)
ég keypti mér voðððalega snoturt blóm í blómaval og var að umpotta og læti. eða hella moldinu yfir í pott, voða djobb eh. heh. samt doltið fríkí blóm, held að það éti mig einn dagurinn. verði því að því. því eflaust er ég seigur biti. en mjúk undir tönn, seiseijáh. en nú sit ég hér við karólínu mínu og hlusta á emiliönu torrini, næs. er að fara elda voða girnó. beyglur með rjómaosti, kjúklingabringu og grænmeti, hjómar vel en ég veit ekki hvernig bragðast. vonandi vel. les þetta hjá henni guffu og þetta hljómaði eh svo vel.
er að vinna á afmælinu mínu, morgumvakt og neyðððist til að koma með krásir og fleira, spá í betty köku og sukksalat og pestó og gott brauð, og eh svol. sull. muniðð að ég verð 20ára 27maí.. haaa?
skemmtilegar lesingar.
10maí verður amma svava 70ára og næsta helgi verður afmælisveisla hjá gömlu uppí áfengisfelli. þannig að þá verður djamm á manni.
og bráðum einhvertíman koma nýjar bumbumyndir. því ég stækka og stækka. ótrúlegt alveg hreint.
en jæjaaa.. svo veit ég að litlum laumulesurunum á þessari síðu. endilega veriði svo væn að rita til mín nokkur orð. haa? ég veit hverjir þið eruð. haaa? svooo? kommmma svoo..
Hver er sá veggur víður og hár gulur rauður grænn og blár gerður að meistarans höndum???
29.4.05
23:10 á föstudagskvöldi.
og frú Guðrún Viktoría Jóhannsdóttir er að baka köku með bumbuna útí loftið, heheheh. jáá ég lýg því ekki, húsið er fullt af kökuangan og kósíheitum. sei ég hélt að þessi dagur myndi ekki renna upp (allavegna ekki næstu 50árin) en neinei hann er komin og ég nýt hans í botn. já ég nýt hans í BOTN.
ég er ekki búin að vera neitt sérlega spræk, sykurinn var í fokki (en ekkert sem skaðar litla búran okkar) og eh voðalega sérlega skemmtilegt vesen á mér, sem betur fer á ég lítin skítin mann sem fylgir mér hvert fótspor og treður uppí mig sykur við góðð tækifæri, heh. en eins og ég hef margtoft sagt þá væri ég löngu og þá meina ég LÖNGU dauð ef elías væri ekki við hliðina á mér. takk rjómaköttur.
en annas er lífið svona ljúfurinn og ljósini fylgir skuggi (gleymið því ekki)
stundum finnst mér vinnan erfið. ég hélt að ég myndi ekki í þessu lífi viðurkenna það. ég er afar stolt manneskja. þó ég sé 1 í sykri (sem er mjög látt) og ólétt þá læt ég engan segja mér að setja niður, slapp af og fá mér sykur. gvöð hvað maður getur verið vangefin stundum. verð að droppa þessu. slapp af.
nágrannar mínir eru að flytja og ég gekk upp 8hæðir áðan, ég varð ansi móð. ég hef lítið þol. (sko ég er að viðurkenna)
en heii heii heii.. heheheh.. ég fann fyrsta sparkið á þriðjudagurinn seinasta. lagðist uppí rúm eftir mjög dramtíststelulagatónlistarkrakkasskvöld (við ásgó komumst inní tölvu hjá einhverjum í blokkini og náðum okkur í hellings hellings tónlist) og ég var aðeins að miss mig yfir þessu öllu saman og var doltið spennt (var með spenntan magan í 2klukkutíma) svo lagðist ég uppí rúm og slappaði af, og þá kom gott spark frá master búra, hah. elías lá svo með höndina á mallanum og þá kom auðvita ekkert aftur, auðvita ekki. það var annas mjög yndilega að finna aðeins fyrir þessu.
maí verður undir lagður í lækna, neih kannski ekki alveg. 18maí förum við í 20vikna sónar. 24maí förum við suður í 20vikna sónar (jáá aftur) og hjartasónar á litla krílið. 9júní fer ég suður í alsherjar læknistjékk, sykurtjékk og það sem því fyglir, augnlæknis (mjög vandlega fylst með sykursjúkum konum á meðgöngu varðandi augu) og eh fleira skemmtilegt. 7júní fer elías á Iron Maiden. og við ætlum eh að tjékk á barnadóti og eh, skoða og kanna og svona, ekki seinna vænna, hehe. neihh. bara svona skoða og eh.
eruðu ekki alltaf dugleg við að skoða mbloggið mitt? ég hendi oft inn myndum þar.. svoo? koma svo? haa?
en annas kveð ég bara á þessu lovlí föstudagskvöldi, ég syngjandi jólasöngva og bakandi, nokkuð nett á því. amma og afi úr kóp eru hér á akureyrinni, grill og allur pakkinn annað kvöld og ég býð í köku og kaffi.
húrra..
dingúlbells dingúlbells dingúl alll the veiiihh.. lalallalalalaa..
ég hlakka til jólana.
24.4.05
Gleðilegt sumar og sól í heiði. það er allavegna svoleiðis hér á akureyrinni. þvílíkt gott veður og blíða.. lovlí.
héðan er annas allt flott að frétta. ég stækka og stækka, ég held með hverjum deginum. ég vona að ég stækki nú ekki og stækki í 5mánuði í viðbót, hmm.. ég yrði þá ansi stór, ef það verður svoleiðis þá neyðist elías til að ganga með mig um í hjólburum eða kranabíl, sjáum til sjáum til.
um daginn hringdi ég skælandi í mömmu og sagði henni að ég passaði ekki í neitt af pilsunum mínum eða neitt, og mamma sagði að mér hefði verið nær að vera að þessu fikti.. hehe ég hélt að hún vissi að þetta barn eingetið. öshh já.
voandi eru allir byrjaðir að safna péning fyrir afmælið mitt. því það er eftir akkúrat 30daga.
óskalisti:
nudd eða eh kósí í abaco
eh úr body shop
sebastian sjampó og hárnæringu
peninga (oggg nóg af þeim)
góða labbiskó (puma, nike)
og fleira og fleira.
heheheh (;
* mamma og pabbi fara svo að snjáldrast á eyrina. mánaðarmót maí-júní. og þá verður dansað.
* mér finnst alltídralsi þátturinn ömurlegur.
* nýjasta sirrýauglýsing er crap.
* við vorum að kaupa okkur gasgrill. (og erum búin að grilla allt, heh)
* við ætlum að fá að vita hvort kyn barnið er.
* það mun verða eftir ca. 3vikur
* ég er komin 17vikur á leið.
* ég var að pnata helling uppúr HMlistanum, óléttuföt og smá af barnafötum (;
* ég er ekki enn farin að finna hreyfingu, en það fer að koma
* ég skrapp til dúnu í vikuni, duggggnaður
* ég er að taka mig á í göngutúrum
* ég pantaði mér meira að segja bikiní, þvílíka gella.. eiginlega félegi
* ég fæ 5-6vikur í sumarfrí. 26júní-31júlí
* þetta er ég og litla barnið mitt þessa vikuna
* ég skoða stundum umræður á barnalnd.is og sjitt ass sækó.
* ég reyni að drekka 50lítra af vanti á dag, það tekst ekki oft.
* við fórum á "pakkið á móti" í gær, það var fínt
* ...mér leiðist
var að setja inn myndir af kjarnaskógsferð í dag. mikið stuðððð.
og núna er ég búin að setja inn teljara.. svo ég sé hvað koma margir á dag.. og það koma slatti helvíti margir á dag.. þannig sýnið kurteisi.
þaðð þýðir ekkert annað
17.4.05
óóó komiððði sæl.
takk fyrir öll sætu kommentin. takk takk.
lítið að frétt af manni. ég hef það flott. líður vel. nema í fokking morgun. átti að fara á morgunvakt í morgun, vakti í alla nótt útaf helvítis partí í þessari helvítis sudda homma píku blokk.. stál og hnífur, gítarstemma í einni íbúð, búmmbúmmpartí í næstu og þýsk þjóðlaga músík í þeirri næstu eða eh.. %#$%&$&$%$%"% semsagt ég stóð ekki undir sjáfri mér í morgun þegar ég vaknaði (eftir smáááá dott) ójæja, það verður víst að hafa það.
annas var þvílíkt af fólki í bænum um helgina. auðvita mætti ellen mín, var með henni alveg helling, (ég var aðððeins farin að sakna hennar, aðeins meira en aðeins kannski) svo kom týndi sonurinn og gladdi aldraða foreldra sína, svo er frú hrafndís með meiru búin að leika við mig í allan dag. semsagt ég hef haft nóggg af félagskap um helgina, ekki slæmt það. og svo var auððvita bæinn fullur af útmignum og útúrdrukknum smákrökkum. ojj. neihh svona segir maður ekki. en nokkri pissu eflaust á sig og voru með skítin uppá bak. allavegna þessar tussuR sem voru í pínupilsum og fleynum bolum í 10stiga frosti með sígó í annari og vúddís í hinni, reimda buffaloskó (reimda þá af mömmum sínum) með útivistarleyfi til 10. víhhhhah.
svo horfði ég á söngvakeppina, fékk pínu slæmt og vond flassbakk, sjitturinn titturinn. en gvöðð hva húsó gjéllurnar voru nettar á því. vefnarkennarinn sigfús. hehehhe ég hló ekkert smá af þeim, eða með þeim.
en það eru komnar feitabollurmyndir
njótið vel og lengi en ekki í buxnastengi.
hva get ég gert til að hefna mín á tussu nágrönnunum?!
10.4.05
Til lukku bæði Eygló frænka og Hanna & Halli með litlu dömurnar. Það er alltaf að gerast í þessum krílamálum hjá öllum. Ég er eiginlega komin á það að ég nenni ekki að bíða í 5mánuði til viðbótar.. heh. Ég á samt örugglega eftir að missa mig á mánud. þegar ég kem hjem á ak og fer og skoða þessi litlu kríli.
Á miðvikd. fórum við Elías í sónar hjá honum Alexsander og þá fengum við í 3sinn að sjá litla dýrið okkar. (ég var alveg eins og Rachel í Friends, skildi ekkert í myndini, nema þegar ég sá hryggin á greiinu hreyfast og þá var litla barnið að fetta sig og bretta. Þegar við vorum komin útí bíl langaði mig mest að fara skæla, afþví ég skildi ekki myndina, en elsku Elías skildi hana auðvita og sýndi mér hana. Það sést svo vel í hausin þarna vinstra megin og svo er stór bumba þarna uppí loftið hægra megin. Mjög skýr mynd ef maður fattar þetta, heheh) Við sögum samt bæði í kór "váá er það orðið svona stórt". Búið að stækka frekar mikið síðan við sáum það seinast. Ég verð í ströngu eftirlitli útaf sykursýkini og svoleiðis, þannig að við förum á 3-4vikna fresti í sónar og svo þegar nær dregur förum við á 2vikna fresti, en það er bara gaman. Hver segir að það sé ekki gaman að fara til læknist og stússast á sjúkrahúsnum? veihh ;/ Þetta er alltaf að venjast, Elías var t.d. ekkert stressaður og spenntur yfir því að vera á sjúkrahúsi, ahha? þetta er allt að koma hjá kallinum. Svo er ég líka komin með ljósmóðir, Elíasbet, hún er meistari. Þar fékk ég líka að heyra fallegasta hjartslátt í heimi, þvílíkt hraður (barnið er með 2sinnum hraðari hjartslátt en ég) og stekur.
bjútí fokking fúl.. heh, renndi alltíeinu yfir þennan pistil. fannst hann eh breyttur því se verið hefir. miss viktoría er ekki horfin þó það sé hún sé ekki kona einsömul, ekki halda það.. neinei, en ætli maður breytist ekki eh. og ég held að rottesen brós hafi haft rétt fyrir sér með "þú getur gleymt því hvernig bjór bragðast, gleymt því hvernig sjallinn lítur út að innan og gleymt því hvernig er að ganga í disel buxum" fyrst þótti mér það nú kannski ekkert alltof seif, en núna.. SÓ FOKKING VOTT!! i dont need beer, sjall or disel. víhh. ég er t.d. búin að gefa 2 af 10 disel buxunum mínum og losa mig við full af bolum sem voru og verða og eru alltof litlir á mig. jújú. ég hef ekki farið í gallabuxur síðan á 5-6viku. ég stækkaði eh svo fljótt. er komin með kúlu. elías þarf að fara mynda bumbuna svo við getum sett myndir inn, er það ekki nokkuð sneddí?
annnnas... var herrmundur elísen að gefa mér eitt
svona blátt kvikindi. ég kom heim á þiðjud.kv. eftir god damh boring kvöldvakt, engin heima. það var miði á borðinu með vísbeningu undir kodda, inní tölvuni var ein, inní spóluhulsti og svo inní glerskáp. ég talaði nottlega þvíííílíkt ótrúlega mikið við sjálfan mig (og kannski dýrisenin okkar) og ég missti saur, þvag, gall og slef.. eitt stykki miniiPod. ég vissi ekki alveg hvað var í gangi. ég hélt honum í lófa mér í svona klukkutíma og klappaði honum, skoaði hann svo aðeins meira og felldi eitt tár. svo kom herramaðurinn minn heim og þá var hann víst búin að vera dunda við þetta í einhvern þvílíkan tíma, panta frá bandaríkunum og redda og vesnast.. hehe.. algjört sugerlove. og auðvita tók ég hann með mér í rútuna á fimmtud. því ég var að koma á blö. mér fannst leiðin vera svona 5mín. ég var með 700lög inná honum og þetta er 4GB. óóóójá. ég er eiginlega alveg að missa í honum. hann er svo fallegur. svo létum við grafa attan á hann. Viktoría og Elías undir. fallegt fallegt.
kidda beibílove átti líka afmæli 7apríl, kjélling orðin 20ára. afmæli í gær, sem ég missti af. sorrí stína. hafði það gott og til lukku með afmælið.
en núna bíður mín kjúlli með meiru hjá mömms and daddy cool.
ak á morgun.
og enn er ég haldin mikilli bítlamania.. búin að finna minn besta bítil.
ringo bjútikvín.
7.4.05
Rjúfum Þögnina!
Arnarhóli 9 apríl klukkan 14:00
Við þekkjum of mörg einhvern sem hefur lifað af ofbeldi. Sum okkar betur en aðrir.
Við bjóðum þér að sýna samstöðu, sýna í verki að við tökum ekki lengur þátt í samsæri þagnarinnar. Ofbeldi þrífst í þögninni!
Komdu á Arnarhól með þinn bol, með eða án texta - við sköffum snúru og klemmur! Við hengjum upp bol fyrir okkur sjálf sem höfum lifað af ofbeldi og ef þú þekkir einhvern sem hefur lifað af ofbeldi getur þú hengt upp boli fyrir þau. Ef þú vilt segja frá einhverju er varðar ofbeldi, lesa ljóð eða stutta sögu, eða bara nafnið þitt til þess að rjúfa þögnina þá verður það í boði. Við styðjum þig í að gera það sem þú þarft til þess að rjúfa þögnina þína og sleppa skömmini sem við festumst í þegar við segjum ekki frá.
Við verðum líka með boli til sölu fyrir 1000 kr ef þið viljið styrkja málstaðinn.
Sýnum ábyrg viðbrögð við öllu ofbeldi - Þú átt valið - Okkar val, Rjúfum þögnina!
Ég kvet alla sem eru steaddir í Rvk og nágrenni að skella sér á Arnarhól 9apríl. Takið þátt og hengið einn bol fyrir mig.
bláttáfram.is
30.3.05

í dag lenti ég í fyndnu atviki. ég var að bíða eftir lyfunni minni.
það standa 4 stelpur á aldrinum 6-10ára og eru líka að bíða.
krakkagrís: áttu heima hérna?
ég: já
krakkagrís: á hvaða hæð?
ég: 8
(svo byrja þær eh að hvíslast á og horfa á mig.)
krakkagrís: ertu með barn í maganum?
ég: já
krakkagrís: hvað ertu gömul?
ég: 19ára að verða 20ára
krakkagrís: það sést geðveikt vel að þú sért með barn í maganum.
..sem betur fer kom lyftan mín loksins og ég komst í burtu frá þessari brjáluðu yfirheyrðsu.
hvað ef ég hefði bara verið búin að gæða mér á stóru og vænu páskaeggi? eða eh..
seisei.. krakkar nú til dags.
ég segi nú ekki annað..
heheheheheh...
en svona er þetta.
það er gaman að lífinu, þó að maður passi ekki í fötin sín og sé illa við morgna og líði stundum einkennilega. þetta er víst stuððððið.
ég elska manninn minn. því hann er langgggg bestur.
27.3.05
páska láskar. til lukku krukku.
við erum stödd á vopnaf. bjarki bró var að fermast í gær og við komum á föstud. langa. erum búin að vera hér í veislutilbúingu og veisluhöldum síðan við komum. ferming gekk vel, ég stóð í eldhúsinu eins og ráðskona (kannski að nafn maginnis) og vaskaði upp hvern diskin og glasið á fætur örðu og borðaði svona aðeins inná milli. svo þegar veislan var búin hjálpuðum við öll að opna pakkana og umslögin, heh. smá flassbakk síðan maður fermdist sjálfur. helvítis, ég fékk 103500kr í fermingagjöf, hvar er sá peningu? haa? einhverrr? það væri alveg næs að fá svona peningagjafir alltíeinu, uppúr þurru. maður ætti að drífa í giftingu. en eftir allt þetta stand var maður orðin dulítið lúin og komin með verki í móbakið og ég lá svo bara með annað augað opið í gærkvöldi. nokkuð gott. ég hef ekki enn smakkað páskaegg, þar sem er þessum páskum, en það gerir lítið til. ég hef hvort sem er ekki list á því. óneinei.
fór já suður þanna um daginn. ég hef aldrei komið eins vel út í sykrinum og allt var frábært. keypti sitt lítið að hverjum og var svo föst inda god damh city. en það var svosem ok.
harpa sæta sæta fitnessdrotting (hún er þanna í blá, nr. 3) var að keppa um helgina. því miður gátum við elías ekki horft á hana en ásgó brós tók þetta allt upp yfir okkur, sem betur fer. hún lenti í 4sæti sem er frábært. hinar sem unnu hafa svo mikla reynslu og þessháttar en harpa beibí kom sá og sigraði. það voru víst allir sammála um það þarna. ég er ekkert smááá stolt af henni. hlakka til á næsta ári þegar kella treður sér á pall og massar þetta upp. þannig ef einhver er með einhvern kjaft þá læt ég ekki pabba minn eða bróðir eða manninn minn eða en svoleiðis berja ykkur þá kemur bara harpa mágkona og kýlir ykkkur í klessu. og ómægod ef ég væri þið þá myndi ég ekki vera með nein kjaft, því kella er HELKÖTTTUÐ. passið ykkur bara. ég hef nefnilega lagt svoleiðis vitleysu á hilluna, í bili. hehehe.
ég er í örðu umhverfi en þegar ég blogga vanalega, þannig að þetta er ekki eins og "mitt".
borrrring as hell.