jæja.
nýjir tímar framundan... GÓÐIR tímar
þetta er rosalegt.
í dag flutti ég minn fyrsta fyrirlestur með Aflinu (systrasamtök stígamóta) á opnum dögum í MA. það var mikið upplifelsi. að tala út frá minni reynslu og minni sögu. og svona. og bara fá að koma fram og tala fyrir hönd (með þeim Söru & Önnu) Aflsins. ég var svo róleg og þetta tókst svo vel. ég svitnaði ekki einu sinni. minn fyrsti fyrirlestur og fyrsta skipti sem ég tala (í stórum hópi fólks sem ég ekki þekki) sem þolandi kynferðisofbeldis. vá. ég var svo ángæð. svo stolt.
ég er ekki enn komin niður á jörðina. sem er ágætt.
og þetta er ekki það eina.
í gær fékk ég líka í hendurnar dæluna mína (www.sykursjukir.is) þetta er lítur glæisleg út. það leikur allt við mig þessa dagana. og ekki skemmir fyirr að við elías erum að fara suður í viku. förum á morgun. lilli verður í orlofi (þó ekki eins og Stella) hjá ömmu sinni og afa og tuma frænda. það verður eflaust dekur út í geng. heh. við elías höfum líka gott að því að komast saman í smá orlof (aftur.. ekki eins og Stella) við höfum í mestalagi verið ein yfir helgi síðan dísin fæddist. þannig það er gúddd. en dælan er snild. það þýðir að ég mun aldrei þurfa að sprauta mig aftur. í dag sprauta ég mig 5-6sinnum á dag. en nónónó.. með dæluna verður þetta bara á 3daga fresti þá sem ég að skipta um slöngu og svona. vá. það er svoo spennandi allt núna.
ég er herra hressbert dagsins.
enda er það allt í lagi..
líka þegar lífið leikur svona við mann.
jæjaaaah.
góða nótt lömbin mín.
með sól í hjarta og söng á vörum við setjumst niður...
æ kommmmáááán!
nei.
æ.
gaman?
þið vitið..
samgleðjast..
eða? neh
13.3.07
19.2.07
mig langar að fara horfa á sex in the city.
þetta blogger er að raðskíta á sig.
mér finnst bollur vondar.
arna dís er með hita.
ég hata að vinna í 50% vinnu sem stubbur. OJ.
elías verður aðstoðar verslunarstjóri í bónus 1mars.
ég ætla að hætta vinna og fá mér pólskan mann til að þrífa og fara í handsnyrtingu.
er að fara panta far fyrir mig og heklu á kelduna.
ég hlakka til.
það verður gaman.
ójá.
það er of langt í það.
mér finnst það.
það er afmæli hjá krissu um helgina.
ég veit ekki hvort ég kemst.
læðan ringo star fæ pilluna á hverjum föstudegi.
ég sakna dagnýjar og heklu.
ég er að spá í að skeppa til perú í helgarheimsókn.
kemur.
tók stórt skref í gær með stinna.
þetta verður vikulegt hér eftir.
heldur betur kósí.
koma svo.
ætla í VMA næsta haust.
ætla í tónlisarskólan í söngnám næsta haust.
lokaþáttur american next top model er á miðvikudagin.
þá verður sukkað og trallað með sylvíu rún og elín maríu.
JÁH.
ekki segja mér hver vinnur því þá drep ég ykkur.
við fórum á svartan kött.
mjöggg gott.
mig vantar kjól.
og stígvél.
og er búin að gera dauðleit af stórum stórum kriglóttum gleraugum.
langar ofssalega mikið í svoleiðis.
fer vonandi suður sem allra fyrst til að fá insúlíndæluna.
er spennt.
stressuð.
en það verður örugglega mjög svo mikil bylting fyrir mig.
og þá þarf ég ekki lengur að sprauta mig 5+ sinnum á dag.
það verður rosssalegt.
þetta er leiðinlegt.
bæ.
er með 2 stórar rjómabollur í töskuni minni á leið heim.
þær eru ekki handa mér.
koss
6.2.07
if i told you things i did before
told you how i used to be
would you go along with someone like me
if you knew my story word for word
had all of my history
would you go along with someone like me
nei vitiði.. ég held ekki!
skiptir einhverju hvað gerðist eða hvað maður gerði?
24.1.07
| What Beatle are you? John Lennon You enjoy poetry, painting & a fine wine. A lover not a fighter. |
| Click Here to Take This Quiz Brought to you by YouThink.com quizzes and personality tests. |
18.1.07
aldrei að vanmeta Viktoríu.
ég er búin með 51einingu. geri aðrir betur á 2 árum. heheh.. ég hélt að ég væri kannski búin með 20 eða eitthvað en annað kom á dagin og allt í fríði.
ég ætla í VMA næsta haust. veit ekki alveg með það en það er eina leiðin til að komast í háskóla. hef hreinlega enga þonlinmæði á að bíða til 25ára. langar mest í heimi í guðfræði í háskóla íslands. það væri alveg ótrúlega mega spennandi og þar held ég að ég ætti heima.
hver flytur með mér suður?
en svo er það söngnám næsta haust með skólanum. afar spennandi einning. maður verður að æfa sig að tóna. heh.
spurning um að sleppa kelduni í ár og fara á love showið í las vegas, það væri eflaust ekki leiðinlegt. hver er geim?
þegar ég verð leið þá sekk ég í eitthvað. eins og í grunnskóla var það bubbi morthens sem áttu hug minn allan, þá meina ég vandræðalega allan og svo tóku bítlarnir við í seinni tíð. ekki er verra af hafa selskap af lennon, ringo, paul og harrison. ég væri samt meira til í að vera í las vegas "með þeim". æ. mæli sterklega að þið farið inná mæspeisið mitt og tjékkið á vidjóunum og laginu.. hafdís huld er góð.. ski jumper. ég er líka að elska togga. HOTTÍ.
svo er það brennivín og hákall um helgina á þorrablóti á dósini. hvernig endar það? jah það veit ég ekki en ég veit að það verður skrallandi pallandi stuð. ekki hægt að segja annað þegar eðal fólk mætir sama með sjúkkklega mikið brennivín og sússaða punga. hvað getur klikkað? þegar maður hugsar um það þá er eiginlega meira sem getur klikkað en hitt. en ég held í vonina um að það verði ekkert nema fun fun fun.
mætti inn linkum.. kæróið varð að fá speis.
jæja.. Séra Viktoría kveður.
6.1.07
4.1.07
jól og áramót. gleði gleði.
til hamingju með hátíðar og allt það át sem fór fram á þessum stutta tíma. en er þó ekki öllu loluð því þráttándin er eftir og það þýðir eitt. KALKÚNAVEISLA. magin minn er strax farin að væla eftir kalkún og finnst illa af sér vegið að fá ekki að éta eins og hann vill.
ekki það að ég sé súper fitt og sé að passa mataræðið neinei. ekki enn.
en það kemur. einn daginn.
er að fara fá sykurdælu sem er spennandi. þarf þá alltaf að vera með litla tölvu fasta í nærbuxunum mínum, sem er mjög fyndið. eða svona. semí.
jólin voru góð. nema ég er ein eftir. ein eftir spyrjiði.. já. dagný og hekla eru farnar útí lönd að skoða mannlífið. akureyri var greinilega of lítil fyrir okkar þrjár. ég sakna þeirra mikið og veit pínu ekki hvernig ég á að vera. býð eftir að auddi blö hringji í mig og öskri.. TEKIN og þær koma geðveikt hlæandi og pota í magna á mér og allt verður gott. en neihh. má til með að býða í rúmlega 3 mánuði.
ég hef djammað mikið.. kýs að ræða það ekkert frekar. (HÁÁÁ dramatísk) heh. nei. set inn myndir kannski seinna. tók 250 djammmyndir og vitleysu um jólin.
árið var gott hjá mér. alveg frábært.
fyrsta áfall.. pantaði miða og ferð á Hróaskeldu (og já það verður farið aftur í ár)
hélt uppá afmælið mitt..
fór á kelduna.. held að það þurfti ekki að ræða það neitt frekar,
eitt af bestu djömmum sumarsins var garðpartíð góða, gleymist seint..
fluttum úr trölló í skuggó og svo í snæjó og erum hér enn og líkar VEL.
ég hekla og dagný fóru og airwaves og það var í alla staði fráááábært.
arna dís byrjaði að labba og segja mamma og alskonar flottheit.
kynntist helling helling af nýja skemmtilegu fólki.
byrjaði að vinna í frúnni sem er yndislegt.
gerði allan fjandan með dagný og heklu.
29des djammið var líka eitt af þeim betri á árinu.
nei ég djammaði ekki bara þetta ár (þið hneyklunsargjarna fólk) en ég nenni ekki að..
ég fór í bónus
tannlæknis
keyrði í kjarnaskóg
fór í sund
og á flippdegi hjá mér fékk ég mér ís og það í brynju.
æ.. ég veit það eki. þetta var bara frábært ár og ég vona að það nýja verði það líka.
en það er svo sem allt undir mér komið hvernig þetta ár verður, eða það ekki málið?
eitt af því besta ég sem ég lærði á árinu er að gefa fokk í hvað örðum finnst. ég hef svo sem aldrei látið aðra segja mér fyrir verkum eða gefið því aum hvað aðrir segja en ég stóð við það allt árið að láta ekki aðra segja mér hvað mér ætti að finnst eða hvernig ég ætti að klæða mig eða hvað maður má þegar maður er foreldri eða hvað. þannig að ég vona að nýja árið hald eins áfram.
hápuntur ársins var án efa Hróaskelda og Airwaves. og það verðu endurtekið bæði.
æ.. þið vitið.
nýja árið verður gott ef maður vill það.
ætla taka makkarónuna inn úr vagninum og trallast með drall hingað og þangað.
takk fyrir að vera til vinir mínir allir saman.
ég á marga félaga og kunningja. gamla sem nýja og ætla reyna notið árið í að kynnast þeim aftur eða betur. þið skiljið..
ég er orðin væmó og er með flókið hár í gauðgötóttum lopasokkum.
kommmmmmmáááán.
11.12.06
Hvað finnst ykkur um þetta?
pabbi skirfaði frábæra grein um helv. tryggingarsukkið. anskotans vitleysingar.. eins karl faðir minn segir.. þar sem tryggingar snúast um peninga.
Ég á víst von á símtali frá herra. trygginaryfirmanni á morgun.
ég: leggðu bara 200þúskjell inn á mig og málið er dautt og nei ég fer þá ekki með þetta í blöðin.
tryggingarherra: já ok, ég geri það. takk. já. ok. takk. bless. þú ert best viktoría.
4.12.06
ææ.. það eru svo margir flækinskettir sem skoða þessa síðu.
þið hafið ekkert annað að gera.
DO IT!
elsk elsk
1.Nafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
29.11.06
Lög minningar..
Aint no Mountain high enough - Garvin Gay. Lagið okkar Elíasar
Beatles - BLACKBIRD. Sjálfan mig.
2 Unlimited - Svava frænka (örugglega fyrsta skipti sem ég kom við geisladisk, vó)
Jewel - Foolish game. Sylvía Rún
Smashing Pumkins - Mayones. Kristinn
Bang Gang - So alone. Lee Ann, Gæi, herbergið hennar Lee á mýró.
Black Eyed Peas. Þegar Arna Dís er mánaða gömul (hell já, þessu var blastað, þanga til barnið varð gettógörl)
Aerosmith - I Dont Wanna Miss A Thing. Kristófer (mæförst)
Blur. Addý
Bonnie Tyler. Mömmu&pabba
Bubbi Morthens. Þunglyndi í grunnskóla.
Coldplay - Clocks. Ásgeir bróðir & Kidda frænda
Coldplay - Fix You. Örnu Dís
Dido - Whiteflag. Þegar ég vann í nettó (OJJJJJJJJJJJ horbjóðis ógeð)
Cocorosie. Dagný BESTU vinkonu mína.
Ný dönsk. Klikk tímabil
KoRn. Þegar ég var í 8bekk og var alltaf með Kristófer & Frosta
Maus. Ásgeir bróðir og Vilhelm
Placebo - Bigmouth stikes again. Grænugötuna, systurnar, sumarið 03. GOOD TIMES
Placebo - Special need. Pétur Krisins. HEHEHHEHEH
Sheryl Crow - Strong Enough. Lagið okkar Frosta
Muse - Plug in baby. þegar frosti hringi í mig á Muse tónleikunum
Jeff who? - Barfly. BESTU vinkonur mínar (sumar 06)
Skunk Anansie. Hlustaði stanslaust á þau í langan tíma í grunnskóla. Var með allt herbergið þakið myndum af Skin.
Skunk Anansie - Picking on me. Líf mitt (Sylví Lind)
Skunk Anansie - Twisted. Slípóver með Dagrúni & Birnu
Slipknot - Wait and bleed. 8bekk
Gnarls Barkley - Crasy. Sumar 06. (Dagný)
Metric - Poster of a Girl. Airwaves. BEST
Pink - Stubit girls. Uppeldið á Örnu Dís
Alicia Keys - Fallin. Siggu hávaða, fyrstu önnina á Laugum
Pink Floyd – The Wall. Hróaskelda (ég að öskra)
Pink Floyd – Wish you where here. VÆLSKÆLGRENJ. Hróaskelda
Guns ´n roses - Paradis city. Sleðaball í Mývó
Incubus - Talk shows on mute. Þegar við fluttum á Akureyri (Björgvin)
Killers - Somebody told me. Sumarið 03. Sigga & Kristín Anna
Sólstrandargæjarnir - Sólstrandargæjarnir. Lee Ann í gamla húsinu á mýró. heh
Váá.. ég er með hnút í magnaum. Gaman að rifja svona upp.
ég á tvær BESTU vinkonur í heimi. ég er með tár í augunum núna. 3mánuðir er langur tími. en ég ætla ekki að skæla (ekki mikið) have the best time of your life. svo tökum við kelduna aftur á þetta. því eins og ég sagði, ef þið neitið að koma með þá drep ég ykkur og set í poka og fer með ykkur.
þannig.. lifandi eða dauðar? heh.
ÉG ELSKA YKKUR.. HEKLA & DAGNÝ.
22.11.06
borar þú í nefið?
jólin eru að koma og amma gaf mér sokka og kraga. núna er ég dúnungi í hlýju landi. eða svona þannig. það er hriklega kalt. hausin á mér fraus í svona 8sek um síðustu helgi (nei ég var ekki á LSD) hann tók svona breinfríser og stoppaði. ég sá ljósið og ljón. ég veit ekkert hvað gerðist meira. ég bara lá í snjónum og þefaði. en hann fór allur uppí nefið á mér.
núna neitar tryggingarfélagið að borða sjúkdómatrygginguna mína. ég fór að skæla. mér finnst það ósanngjarna og leiðinlegt. eða svona. óþarfi. ég varð allavegna sár.
vill einhver nýja deimían ræs diskin á 1500kr? ég hef aldrei hlustað á hann. hann er með innsigluni enn. endilega kauptu hann af mér og þá bæti ég við 340kr og kaupi mér besta disk allra tíma.
ó já.. MAGGA STÍNA SYGUR MEGAS. ég og arna dís elskum hann. má til með að muna setja hann á óskalistan hennar. æ krakkin alltaf eitthvað að tala um hvað hennar langar í í jólagjöf. svo er magga stína líka frænka mín.. ekki hefur kella langt að sækja hæfileikana. ég elska hana. og líka heiðu. æ.
ég grét líka um síðustu helgi (sívælandi kvikindi) því mikið langaði mig að vera á molanum. svona er þetta.
við hekill skrifuðum nöfn okkar í gestabók í ískáp í kjarnaskógi. og núna er ég ekki að ljúga. ég sver.
þegar ég var ólétt á hafði ég hug á að skíra barnið sem inni bumbu minni kúrði. lucy.
lucy elíasdóttir.
Lucy In The Sky With Diamonds.
maður læknast aldrei af bítlamaníu.
jæjaa..
ég er fer í hamborg (frúnna í hamborg)
vinnan kallar og kötturinn.
krakkinn sefur.
eðððða?
30.10.06
Ææ biggveifs er búið.
neh smá kidd.
elsku airwaves er því miður búið. þetta var rossssalega gaman. þetta kemst alveg svona smá í hálfkvist við hróaskeldu, eða þannig. stemmingin og bjórin, heh. samt var engin bjór drukkin, bara eplasnafs. flöskunum af snafsinum var stútað eins og vatni í dós. við vorum svo heppin að að ég á æðislega ömmu og afa og þau lánuði okkur íbúðina og við lögðum hana algjörlega undir okkur, í öllum orðum sagt.
tónleikarnir voru snild, allir sem einn. Biggi, tilly and the wall, jan mayan (já ég veit við vorum ekki þeir hressustu, kommon!!) the go! team, mugison, hjaltalín, hvítasti strákur á lífi, og margir margir margir fleiri. en þetta var eitt drallalalalala útí gegn.
keypti mér samt ekkert nema eplasnafs. og hvíta albúmið með bítlunum. ekkert til í þessari heimsku reykjavík.
hef aldrei séð eins mikið magn af artí liði. mjög skemmtilegt og litríkt, eitthvað fyrir mig. við dagný fórum líka í selebleik. 1 stig fyrir dagný og 10000 fyrir mig. æ þið vitið.. ég er hef bara svona hæfileika.
drykkur.. eplasnafs
vesen.. dagný að týna veskini sínu og deyja (en það fannst)
selebsegull.. VIKTORÍA (hvað get ég sagt?)
vírdó.. face hunter
fyndust.. gellan í röðini sem fannst við dagný leiðinlegast á jan mayan. herra alaska oldíið. the klooo.
ógeð.. dr mister & dópdrulli.is (horror útí gegn) líka gaurin sem reif í hárið og var með kjaft
best.. biggó. ben hnoðungi tilly and the wall
hobbiti.. hekill
verst.. pizza hut
fensí.. sjoppan
æla.. sunnudagurinn
tósted rugl.. egó í smáralind
öskur.. egó og poke a pal
lag.. poster of a girl
dans.. biggi og helga lúsí með rassadansin
setning.. égnenniþessuekkilengu (með kennslukonu áheyrslum) poster of a girl?
þetta var bara frábært. ég hef ekki skemmt mér svona vel síðan úti og auðvita var það með þeim, þessum litlu drullumöllum mínum.
svolítið leiðinlegt.. ég viðurkenni mig sigraða í þessu mynda inn settningu. ég hreinlega hef síró þolinmæði í það. en dagný er búin að setja inn myndir. mínar myndir eru næstum eins nema aððððeins fleiri myndir af ágústi bogasyni og fleirum. heh.
ég hljóma eins og gelgju í jarðaberjasjeik. en það er gott að vera kjáni eina helgi á ári.
nú ætla ég að fara í bað með súkkulaði, maus, og bóka! hljómar vel?
ást&elsk
16.10.06
stundum má satt kyrrt liggja.
það er ógeðslegt veður. ógeð segi ég.
mánudagur í dag og svo kemur fimmtudagur og þá förum við suður. ég hef ekki komið suður síðan á miðöld á man því engan vegin hvernig suðrið lítur út. nei ég grínast. hlakka mikið til að fara í medddíferd með rollunum.
ætla að versla og borða og fara í kolaportið. og á tónleikaaaa. og djamma. hljómar ekki svo illa.
ææ. þið þarna.
mér finnst margar sem heita kartín vera svona goððarar. ekki ykkur?
stundum vorkennir maður en ekki alltaf.
en á einhver kettling? okkur vantar. bara með 4 fætur og skott (má vera lítið) og með nef sem er blautt. óþægilegt að hafa það þurrt. ég hata ketti ennþá. eða kannski hef ég ekkert gefið þeim séns. allir eiga skilið séns. er það ekki anna margrét? en ég mun alltaf hata gúllas. því gef ég ekki séns.
verðum eiginlega að fá mannakött. því hann Á að ehita ringo star. eða svosem skiptir engu þó að það sé kona. han á samt að heita það. setjum ekki svoleiðis smáatri9ði fyrir okkur.
3.10.06
óóóó..
hvað er að mér?
mig langar í smáhund. rankaði við mér þegar ég var farin að skoða hundaföt.is. ég hlít að hafa fallið í dá í hálftíma. ég er að breytast í þessar blondí sterítýpur í þessu giljahverfi. lord ó fokking sjitt hvert er ég komin?
við erum allavegna flutt (50/50) í snægil. lokahönd verður langt á þetta skuggagilsdrall á mogun. ég er fegin að komast útúr þessari íbúð. fín íbúð. en nenni þessu ekki. fokking kjatææææði (es hörð tjikk) miklu stærri íbúð í snægilinu og flottari og sætari bestari. líka risssssa stór bjórpallur (sól) núna verður haldið grillpartí fyrir allan peningin.
er búin að panta mér miða á airwaves. hlakka mikið til. núna er komin svona semí keldu fílingur í kmig, planleggingjar og stelpurall. engir kæróar með í þessa ferð, no thank you. heh.
æ ætla setja sleif og bolta og skeið og hátalara og blóm ofan í kassa
28.9.06
við þurfum að flytja aftur.
hversu hressandi er það?
gaurin sem á íbúðina vill fá hana aftur. fokkedup gæ. nehh. við erum samt örugglega komin með aðra. vonandi. plís. nenni ekki að flytja. það er ekki það skemmtilegasta.
ég er komin í veifsgír. aka airwaves gír. langar mikið og er mikið að spá í að fara. langar mest að sjá bigga. því jújú, mí & biggi arrr læk tis. og svo líka, the go team, mugison, fræ, jenny wilson, gosthdigital, dikta, mr. silla & mongoose, hermigervil, daníel ágúst, jagúar, jeff who! dr. spock, jan mayen.. og fleiri. fyndið þegar maðu fer að skoða þetta svona, þá langar manni að segja allt. ég hef aldrei farið og ég held að það sé komin tími.
nenni samt ekki sveittu troðugstu fólki. það er ógeð. ég ver aldrei sveitt og ég treð mér aldrei neitt. ónei. heh.
hafiði pælt í...
gáfulegt.
yes.
jæja.
teik á tjillí onnnn the hillí.
verið ekki makkstressuð og æst og látið stjúka á ykkur kviðin
19.9.06
ég er undarleg.
ég þoli samt ekki fólk sem blóðsýgur mann af sjáfi. það er það leiðinlegasta sem ég veit. ég hef marga ókosti en þetta er ekki einn af þeim.
en ég á líka undarlegan gaur sem vill kaupa passat. hann og þetta. en ég ætla að tjékk it. og kaupa grænfóður til að fóðra tánna á mínu. mangó? ég ég fékk mér áðan. viltu?
ég er undarleg.
ég þoli samt ekki fólk sem blóðsýgur mann af sjáfi. það er það leiðinlegasta sem ég veit. ég hef marga ókosti en þetta er ekki einn af þeim.
en ég á líka undarlegan gaur sem vill kaupa passat. hann og þetta. en ég ætla að tjékk it. og kaupa grænfóður til að fóðra tánna á mínu. mangó? ég ég fékk mér áðan. viltu?
ég er undarleg.
ég þoli samt ekki fólk sem blóðsýgur mann af sjáfi. það er það leiðinlegasta sem ég veit. ég hef marga ókosti en þetta er ekki einn af þeim.
