29.11.06

Lög minningar..

Aint no Mountain high enough - Garvin Gay. Lagið okkar Elíasar
Beatles - BLACKBIRD. Sjálfan mig.
2 Unlimited - Svava frænka (örugglega fyrsta skipti sem ég kom við geisladisk, vó)
Jewel - Foolish game. Sylvía Rún
Smashing Pumkins - Mayones. Kristinn
Bang Gang - So alone. Lee Ann, Gæi, herbergið hennar Lee á mýró.
Black Eyed Peas. Þegar Arna Dís er mánaða gömul (hell já, þessu var blastað, þanga til barnið varð gettógörl)
Aerosmith - I Dont Wanna Miss A Thing. Kristófer (mæförst)
Blur. Addý
Bonnie Tyler. Mömmu&pabba
Bubbi Morthens. Þunglyndi í grunnskóla.
Coldplay - Clocks. Ásgeir bróðir & Kidda frænda
Coldplay - Fix You. Örnu Dís
Dido - Whiteflag. Þegar ég vann í nettó (OJJJJJJJJJJJ horbjóðis ógeð)
Cocorosie. Dagný BESTU vinkonu mína.
Ný dönsk. Klikk tímabil
KoRn. Þegar ég var í 8bekk og var alltaf með Kristófer & Frosta
Maus. Ásgeir bróðir og Vilhelm
Placebo - Bigmouth stikes again. Grænugötuna, systurnar, sumarið 03. GOOD TIMES
Placebo - Special need. Pétur Krisins. HEHEHHEHEH
Sheryl Crow - Strong Enough. Lagið okkar Frosta
Muse - Plug in baby. þegar frosti hringi í mig á Muse tónleikunum
Jeff who? - Barfly. BESTU vinkonur mínar (sumar 06)
Skunk Anansie. Hlustaði stanslaust á þau í langan tíma í grunnskóla. Var með allt herbergið þakið myndum af Skin.
Skunk Anansie - Picking on me. Líf mitt (Sylví Lind)
Skunk Anansie - Twisted. Slípóver með Dagrúni & Birnu
Slipknot - Wait and bleed. 8bekk
Gnarls Barkley - Crasy. Sumar 06. (Dagný)
Metric - Poster of a Girl. Airwaves. BEST
Pink - Stubit girls. Uppeldið á Örnu Dís
Alicia Keys - Fallin. Siggu hávaða, fyrstu önnina á Laugum
Pink Floyd – The Wall. Hróaskelda (ég að öskra)
Pink Floyd – Wish you where here. VÆLSKÆLGRENJ. Hróaskelda
Guns ´n roses - Paradis city. Sleðaball í Mývó
Incubus - Talk shows on mute. Þegar við fluttum á Akureyri (Björgvin)
Killers - Somebody told me. Sumarið 03. Sigga & Kristín Anna
Sólstrandargæjarnir - Sólstrandargæjarnir. Lee Ann í gamla húsinu á mýró. heh

Váá.. ég er með hnút í magnaum. Gaman að rifja svona upp.
ég á tvær BESTU vinkonur í heimi. ég er með tár í augunum núna. 3mánuðir er langur tími. en ég ætla ekki að skæla (ekki mikið) have the best time of your life. svo tökum við kelduna aftur á þetta. því eins og ég sagði, ef þið neitið að koma með þá drep ég ykkur og set í poka og fer með ykkur.
þannig.. lifandi eða dauðar? heh.
ÉG ELSKA YKKUR.. HEKLA & DAGNÝ.

22.11.06

borar þú í nefið?
jólin eru að koma og amma gaf mér sokka og kraga. núna er ég dúnungi í hlýju landi. eða svona þannig. það er hriklega kalt. hausin á mér fraus í svona 8sek um síðustu helgi (nei ég var ekki á LSD) hann tók svona breinfríser og stoppaði. ég sá ljósið og ljón. ég veit ekkert hvað gerðist meira. ég bara lá í snjónum og þefaði. en hann fór allur uppí nefið á mér.
núna neitar tryggingarfélagið að borða sjúkdómatrygginguna mína. ég fór að skæla. mér finnst það ósanngjarna og leiðinlegt. eða svona. óþarfi. ég varð allavegna sár.
vill einhver nýja deimían ræs diskin á 1500kr? ég hef aldrei hlustað á hann. hann er með innsigluni enn. endilega kauptu hann af mér og þá bæti ég við 340kr og kaupi mér besta disk allra tíma.
ó já.. MAGGA STÍNA SYGUR MEGAS. ég og arna dís elskum hann. má til með að muna setja hann á óskalistan hennar. æ krakkin alltaf eitthvað að tala um hvað hennar langar í í jólagjöf. svo er magga stína líka frænka mín.. ekki hefur kella langt að sækja hæfileikana. ég elska hana. og líka heiðu. æ.
ég grét líka um síðustu helgi (sívælandi kvikindi) því mikið langaði mig að vera á molanum. svona er þetta.
við hekill skrifuðum nöfn okkar í gestabók í ískáp í kjarnaskógi. og núna er ég ekki að ljúga. ég sver.
þegar ég var ólétt á hafði ég hug á að skíra barnið sem inni bumbu minni kúrði. lucy.
lucy elíasdóttir.
Lucy In The Sky With Diamonds.
maður læknast aldrei af bítlamaníu.
jæjaa..
ég er fer í hamborg (frúnna í hamborg)
vinnan kallar og kötturinn.
krakkinn sefur.
eðððða?

30.10.06

Ææ biggveifs er búið.
neh smá kidd.
elsku airwaves er því miður búið. þetta var rossssalega gaman. þetta kemst alveg svona smá í hálfkvist við hróaskeldu, eða þannig. stemmingin og bjórin, heh. samt var engin bjór drukkin, bara eplasnafs. flöskunum af snafsinum var stútað eins og vatni í dós. við vorum svo heppin að að ég á æðislega ömmu og afa og þau lánuði okkur íbúðina og við lögðum hana algjörlega undir okkur, í öllum orðum sagt.
tónleikarnir voru snild, allir sem einn. Biggi, tilly and the wall, jan mayan (já ég veit við vorum ekki þeir hressustu, kommon!!) the go! team, mugison, hjaltalín, hvítasti strákur á lífi, og margir margir margir fleiri. en þetta var eitt drallalalalala útí gegn.
keypti mér samt ekkert nema eplasnafs. og hvíta albúmið með bítlunum. ekkert til í þessari heimsku reykjavík.
hef aldrei séð eins mikið magn af artí liði. mjög skemmtilegt og litríkt, eitthvað fyrir mig. við dagný fórum líka í selebleik. 1 stig fyrir dagný og 10000 fyrir mig. æ þið vitið.. ég er hef bara svona hæfileika.

drykkur.. eplasnafs
vesen.. dagný að týna veskini sínu og deyja (en það fannst)
selebsegull.. VIKTORÍA (hvað get ég sagt?)
vírdó.. face hunter
fyndust.. gellan í röðini sem fannst við dagný leiðinlegast á jan mayan. herra alaska oldíið. the klooo.
ógeð.. dr mister & dópdrulli.is (horror útí gegn) líka gaurin sem reif í hárið og var með kjaft
best.. biggó. ben hnoðungi tilly and the wall
hobbiti.. hekill
verst.. pizza hut
fensí.. sjoppan
æla.. sunnudagurinn
tósted rugl.. egó í smáralind
öskur.. egó og poke a pal
lag.. poster of a girl
dans.. biggi og helga lúsí með rassadansin
setning.. égnenniþessuekkilengu (með kennslukonu áheyrslum) poster of a girl?

þetta var bara frábært. ég hef ekki skemmt mér svona vel síðan úti og auðvita var það með þeim, þessum litlu drullumöllum mínum.

svolítið leiðinlegt.. ég viðurkenni mig sigraða í þessu mynda inn settningu. ég hreinlega hef síró þolinmæði í það. en dagný er búin að setja inn myndir. mínar myndir eru næstum eins nema aððððeins fleiri myndir af ágústi bogasyni og fleirum. heh.
ég hljóma eins og gelgju í jarðaberjasjeik. en það er gott að vera kjáni eina helgi á ári.
nú ætla ég að fara í bað með súkkulaði, maus, og bóka! hljómar vel?
ást&elsk

16.10.06

stundum má satt kyrrt liggja.
það er ógeðslegt veður. ógeð segi ég.
mánudagur í dag og svo kemur fimmtudagur og þá förum við suður. ég hef ekki komið suður síðan á miðöld á man því engan vegin hvernig suðrið lítur út. nei ég grínast. hlakka mikið til að fara í medddíferd með rollunum.
ætla að versla og borða og fara í kolaportið. og á tónleikaaaa. og djamma. hljómar ekki svo illa.
ææ. þið þarna.
mér finnst margar sem heita kartín vera svona goððarar. ekki ykkur?
stundum vorkennir maður en ekki alltaf.
en á einhver kettling? okkur vantar. bara með 4 fætur og skott (má vera lítið) og með nef sem er blautt. óþægilegt að hafa það þurrt. ég hata ketti ennþá. eða kannski hef ég ekkert gefið þeim séns. allir eiga skilið séns. er það ekki anna margrét? en ég mun alltaf hata gúllas. því gef ég ekki séns.
verðum eiginlega að fá mannakött. því hann Á að ehita ringo star. eða svosem skiptir engu þó að það sé kona. han á samt að heita það. setjum ekki svoleiðis smáatri9ði fyrir okkur.

3.10.06

óóóó..
hvað er að mér?
mig langar í smáhund. rankaði við mér þegar ég var farin að skoða hundaföt.is. ég hlít að hafa fallið í dá í hálftíma. ég er að breytast í þessar blondí sterítýpur í þessu giljahverfi. lord ó fokking sjitt hvert er ég komin?
við erum allavegna flutt (50/50) í snægil. lokahönd verður langt á þetta skuggagilsdrall á mogun. ég er fegin að komast útúr þessari íbúð. fín íbúð. en nenni þessu ekki. fokking kjatææææði (es hörð tjikk) miklu stærri íbúð í snægilinu og flottari og sætari bestari. líka risssssa stór bjórpallur (sól) núna verður haldið grillpartí fyrir allan peningin.
er búin að panta mér miða á airwaves. hlakka mikið til. núna er komin svona semí keldu fílingur í kmig, planleggingjar og stelpurall. engir kæróar með í þessa ferð, no thank you. heh.
æ ætla setja sleif og bolta og skeið og hátalara og blóm ofan í kassa

28.9.06

við þurfum að flytja aftur.
hversu hressandi er það?
gaurin sem á íbúðina vill fá hana aftur. fokkedup gæ. nehh. við erum samt örugglega komin með aðra. vonandi. plís. nenni ekki að flytja. það er ekki það skemmtilegasta.
ég er komin í veifsgír. aka airwaves gír. langar mikið og er mikið að spá í að fara. langar mest að sjá bigga. því jújú, mí & biggi arrr læk tis. og svo líka, the go team, mugison, fræ, jenny wilson, gosthdigital, dikta, mr. silla & mongoose, hermigervil, daníel ágúst, jagúar, jeff who! dr. spock, jan mayen.. og fleiri. fyndið þegar maðu fer að skoða þetta svona, þá langar manni að segja allt. ég hef aldrei farið og ég held að það sé komin tími.
nenni samt ekki sveittu troðugstu fólki. það er ógeð. ég ver aldrei sveitt og ég treð mér aldrei neitt. ónei. heh.
hafiði pælt í...
gáfulegt.
yes.
jæja.
teik á tjillí onnnn the hillí.
verið ekki makkstressuð og æst og látið stjúka á ykkur kviðin

19.9.06

ég er undarleg.
ég þoli samt ekki fólk sem blóðsýgur mann af sjáfi. það er það leiðinlegasta sem ég veit. ég hef marga ókosti en þetta er ekki einn af þeim.
en ég á líka undarlegan gaur sem vill kaupa passat. hann og þetta. en ég ætla að tjékk it. og kaupa grænfóður til að fóðra tánna á mínu. mangó? ég ég fékk mér áðan. viltu?

ég er undarleg.
ég þoli samt ekki fólk sem blóðsýgur mann af sjáfi. það er það leiðinlegasta sem ég veit. ég hef marga ókosti en þetta er ekki einn af þeim.
en ég á líka undarlegan gaur sem vill kaupa passat. hann og þetta. en ég ætla að tjékk it. og kaupa grænfóður til að fóðra tánna á mínu. mangó? ég ég fékk mér áðan. viltu?

ég er undarleg.
ég þoli samt ekki fólk sem blóðsýgur mann af sjáfi. það er það leiðinlegasta sem ég veit. ég hef marga ókosti en þetta er ekki einn af þeim.

15.9.06

nýjar myndir.
síðan um versló, akureyrarvökuni & freyjulundu.. ví.
skemmtilegt.
leggið orð í belg.
hvaða belg spyrði kannski..

13.9.06

afhverju fer fólk á klám.is eða klám.com eða hvað þetta heitir allt. afhverju fer það ekki beint inná sjallinn.is? þetta er kidd. er það ekki?
allir ógeððslega sveittir með brjóst útum allt. jájá i know, ég var ekkert skárri. en það var árið 2001 eða eh!!!! fokk jú jú brestpípól.
það eru allir í flengum bolum með litlar handtöskur sem þær halda ógeððslega fast í og allir hinir í pólóbolum. húrra.
æ. pirripú.
en bara grín..

ég þurfti að kveikja öll ljós í hádeginu. hvers vegna? því það var svo dimmt úti. ég hélt að ég og drottningin værum eitthvað klikk og klukkan væri kannski bara 4 um nóttina en neinei.. hún var 11. hvaððððððða? haust? nei í alvöru.
ég man sko alveg hvar ég var 11sept 2001. ég man að við vorum nýbúin að labba upp þarna fjallið fyrir ofan Lauga. ég kom nirðrá dveg og var stórslösuð (eftir að hafa dottið í einhverjum gassagangi í berjaling) og þá var þetta í sjónvarpinu. konni kennari trúði okkur ekki og hélt að við værum með einhverja spólu í en neinei.. allt kreisí í bushworld.
ég nenni ekki að ræða þetta magnaða magna rall. ég hef ekkert fyglst þannig meðp þessu. enda get ég ekki vakað svona lengi. nó vei. ekki einu sinni þótt ég væri í þessum þætti (sem ætti miklu frekar að vera heldur en þessi magni) ég fór í prufuna fyrir þetta.

haldiði það?

5.9.06

nei þið enn hér!
og ég.
hvað er um að ske?
sumarið er búið og allt búið. nei nú lýg ég. ekki allt.
þetta sumar er búið að vera í einu orði sagt fokkes meiriháttar.
gerðu ekki mikið yfir utan hróaskeldu. vann mikið í frúnni og það var alveg skrall útaf fyrir sig. kynnist elsku anítu og sigga lús. það er stór plús við þetta sumar.
veturinn verður kaldur og örugglega með smávægilegum stór pirrining hér og þar.
ég verð að bvinna eitthvað á elló í rassgötunum þar (í orðsins fyllstu merkingu) og svo í frúnni héra og þar og svo verð ég líka að passa fyrir eddu björg leikonu. það verður bara spennó að vera sökkermom með 2 börn. húrra.
við erum meira að segja flutt. hvað haldiði.. það er ekkert trölló lengur nú er það skuggó. skuggagil 8 íbúð 301.. þér er boðið í partí. nýr heimasími 461774. call me.
er að fara setja inn myndir frá því í ágúst. það var skrall. skemmtilegar myndir. en þær eru eitthvað að ekki að flýta sér við að koma inn.

ég kann orðið ekki að skrifa blogg.

ég játa mig samt aLgjörlega sigraða í mæspeishommadrallinu. ég var búin að úthúða þessu ógeði svo mikið. en í dag elska ég þetta. elska elska elska.maður verður húkt. en eins og við hirlekar komumst að.. húkt á hverju? kommentum frá örðum? hverju? sjitt hvað maður er oftar en ekki veruleika firrtur.
kókpöffs í hádeginu og mæspeis í millibita.
ég er orðin hell köttuð. nei það er lýgi í mér. ég hef aldrei verið jafn bústin og ég er. þessvegna bakaði ég hollasta spelt fræabrauð og bleytti og sauð og vesnaði með kjúklingabaunir. æ þið vitið. það er þessi tími ársins.

ég læt mig..
af?
mér?

24.7.06

ég er eins og spíttrassgat með ofvirkni og rafmagnsstraum.
ég er búin að taka hillusamstæðuna og hillur og skenk (hversu ljótt orð er það) og mála allt og bera á furubreytingarolíuefni og mála allt tekk brúnt. er með eldgamalt veggfóður sem amma og afi hans lísa áttu og svo gullmálingu. hvernig lít ég út? jú mikið rétt er með málingu á rassinum og í hárinu, uppínefinu og undir hendini og er þyrst og þreytt og aktív og geðveik. búin að fara 110 ferðir uppí bíkó því ég kaupi alltaf einhverjum ponsu litlar dollur af málingu því þetta er ekki framleitt í stærri dollum. nei viktoría, als ekki kaupa nokkrar í einu. nei als ekki. farðu frekar 115 ferðir á dag. já. gott hjá þér.

er verslunarmannihelgin bara fyrir 15ára gelgjur?

ég ætla ekki á sigurrós, hvorki á halastjöruni né í ásbyrgi. því jú, ég á rúm heima hjá mér sem ég get lagt mig í.
okkar vantar þvottavél og ísskáp. láttu mig hafa þinn og ekkert múður. ahh.. dagný þurktu nú ekki að sparka í síðuna á mér núna. ég er hörð.
það er sama fólkið sem fer í svona krús með skemmtiferðaskipum. allt sama fólkið. á sama aldri, sömu fötunum, með sama hárið og er eins.
ég er kannski ekki hress akkúrat núna.
keypti mér samt kjólabol og grískavinnumannasandala á flómarkaði áðan. það er gleði.
tjékkk it.. bæ.

11.7.06

Hróaskeldumyndirnar mínar. þið verið að ýta hægramegin á myndina til að fletta. bróa myndir & ása myndir & heklu myndir.

Vá ég er ekki að trúa að þetta sé búið.
Á köflum mjög ósanngjarnt en samt ótrúlegt. Ég er enn ekki að ná því að ég hafi farið.
Ég veit ekki hvernig ég á að reyna koma þessu frá mér. En ferðasögur eru algjör nauðsyn.
Ég vissi óskaplega takmarkað þarna á þriðjudeginum þegar við fórum út. Ég var svona semi búin að pakka og vildi bara að klukkan yrði flug og að við færum. Ótrúlegt en satt þá var ég ekki búin að kúka á mig af spenning.
Drukkum á karólínu áður en við fórum, drukkum á flugvellinum, drukkum í flugvélinni. Flest okkar voru orðin vel full á leiðinni út og þar var sungið eins og í skólaferðalagi í 5. bekk, sem var gaman. Skil samt ekki enn afhverju okkur var ekki hent út á ferð. Þegar við komum til DK þá vissi enginn neitt hvað við ættum að gera. Við vissum ekkert hvaða lest við ættum að taka eða hvað við ættum að gera, en þá kom gammeldansk til sögunnar, sá ógeðslegi drykkur en hann bragðaðist eins og ís í kjarnaskógi á góðum degi. Þar tók Eyþór (semí kæró ferðarinnar) nokkra vel valda slagara eins og, I wish you were here, mausslagara & Barfly. Þetta er súrasta moment sem ég hef átt. Sátum öll í ruglinu á lestarteinum og sungum og trölluðum. Tókum svo lest inní Roskilde á fyrsta farrými. Einhverra hluta vegna var það ekki vel séð og við áttum víst ekkert heima þar (sem ég btw skil hreinlega ekki) Þegar við komum á svæðið sjálft, eftir skæl, væl, ves og kortrugl þá tjölduðum “við” í rassagati í myrki og héldum áfram að syngja. Þá nótt sofnaði undirrituð kl.9 um morgunin með rödd á við viskíróna.
Daginn eftir fórum ég, Hekla og Dagný og gistum á gistiheimili Halldóru huggulegu. Tókum strikið í einhverju móki og ég vildi ólm kaupa ógeðslega ljóta skyrtu á Örnu Dís, sem betur fer töldu stelpurnar mig af því.
Fyrstu tónleikarnir okkar voru Guns ´n Roses. Axel Rose lét bíða eftir sér og maður var orðin nett pirripú en þegar kappinn mætti og öskraði “DO YOU KNOW WHERE THE FUCK YOU ARE” þá var allt pirr fokið. Þeir tóku alla slagarana og þá komu nokkur tár. Versta hugmynd ferðarinnar var að fara af þeim tónleikum á Sigurrós. Ég er ekki mikill aðdáandi þeirra og seinsofnaði í kjöltunni á Bróa. Við vöknuðum þegar fólk var farið að traðka á okkur til að komast í burtu. Gott múv.
Föstudagurinn var hress. Horbjóðslega mikil sól og ég reifaði mig eins og araba. Sem var mjög notalegt. Mestu vonbrigði Keldunnar var Bob Dylan. Hann var ömó.
Við fórum svo á Morrissey, Kashmir (nei þeir tóku ekki Victoria), Streets (þar sem ég tróðs næstum undir en þá kom herra hero aka Eyþór og bjargaði mér) Scissor sisters sem voru alveg hreint gegggjuð og eitthvað fleira.
Þessi dagur var vírd. Það var lítið af böndum sem maður var spenntur fyrir en samt voru Deftones, Tool. Kanya West sem var mjög ágætur, hann tók slagara eins og take on me og crasy.. þá var sungið. Eins og oft vildi vera í þessari ferð.
Sunnudagurinn var sko hell erfiður.
Það voru svo mörg bönd sem manni langaði svo að sjá. Við komumst yfir alveg ótrúlega margt eins og, Strokes, Arctic Monkeys, Franz Ferdinand, Placebo, Wolfmothers og svo meistara meistaranna Roger Waters. Eftir að kappinn var búin að performa dark side of the moon þá fannst manni maður bara mega deyja. Hann átti Kelduna.
Hann var aðal númerið og lokaði hátíðinni með flugeldum og þvílíku sjóvi. Ég skældi af mér andlitið þegar I wish you were here kom, hringdi í Elías & Örnu Dís og söng fyrir þau og svo sameinaðist ég 80þús manns þegar hann tók The wall. Hringdi svo í pabba í Money og sagðist elska hann. Held að gamli refurinn hafi öfundað mig aðeins, heh.
Þetta var rosssssssalegt. Ég tók líka helling af videoum á þessum tónleikum. Sem er ansi gaman að horfa á núna.
Í einhverju óðagoti sváfum við 2 tíma og drulluðum okkur svo kl. 5 eða 6 um morgunin inní Köben til að bíða þar á lestastöðini til 11 þá fórum við á gistiheimilið í LANG þráða sturtu. Ég hef aldrei verið jafn drullug en hef engu að síður aldrei verið jafn sátt.
Svo tókum við Fisketorve & strikið eins og maraþonhlauparar.

Þessi ferð var YNDISLEG út í eitt. Frábær í alla staði. En hún hefði aldrei verið svona æðisleg hefði ég ekki verið með svona huggulegum hóp. Takk bebein mín. Þó helst takk til Heklu, Helenu & Dagný.
Pælið í því, í viku vorum við á skralli og látum og engin meiddist eða var drepinn (þó nokkrir hafi nú samt “drepist” heh)
Við stóðum í því alla ferðina að finna nikkneim yfir allan andskotann. Það var ógeðððslega fyndið og þóttum við með þeim fyndnari á svæðinu.
Mér er meira en ógeðslega mikið illa við hita og mér til ánægju var 30 stiga hiti þarna allan tíman. Ég svitnaði eins og grís á launum og hlaut viðurnefnið Blingbert sveitti.
Það var líka ansi fyndið þegar búið var að versla og átti að fara pakka ofan í tösku. Þá stóð ég eins og leikskólakrakki og kom engu ofan í tösku. Þá tóku sig saman 4 vaskar hendur og pökkuðu fyrir mig (kiss Dagný&Hekla)
Ég er svo innilega elskulega þakklát litla manninum mínum að hafa peppað allt uppí mér að fara og hafa bekkað mig öpp þegar ég hætti við að fara út (sem var kannski svona 987sinnum). Váá.. þetta var ævintýri sem verður að endurtaka sig. Ég er sammála öllum.. einu sinni farið þú getur ekki hætt. Keldan verður árleg. Elías kemur auðvita með næst og Dísin líka. Vííí. Árlega famelíuferð á Kelduna, ekki slæmt það.

Mestu vonbrigði: Bob Dylan
Skæl: Guns, placebo, Roger Waters & Eyvör. Taxi þegar komið var til DK. Hekla & Dagný á Strikinu
Orð ferðarinnar: vandræðalegt, kjullubangsi, lulli, sjonni beibílof, awkward, tentarar, blautþurkkur, tjékk it bæ, boddy holly, bókasafi
Setningar: This is actually awkward. Hárið á mér er eins og bókasafi. Hvar er bjórinn? Hvar er Eyþór? Ertu með dagskránna? Vandró
Mest á óvart: Eyvör, að hafa ekki hitt alla sem ég þekkti þarna, hvað þetta er ógeðslega stórt
Best: ískalt jarðaberja romm krap, Heitur bjór, tekíla sönnræs, rúnstykki á morgnana, sólarvörn, molarnir mínir sem ég fann, roggi vatn, ástarklósettið mitt, HM, súkkulaðikakan sem ég borðaði yfir þýskaland-argentína, ískalt vatn, samlokurnar í Tuborgtjaldinu, myndavélin mín,
Ógeð: gammeldansk og molarnir með norskum skapahárum, blauta ostalyktin þegar maður labbaði inn á svæðið, pissulyktin. Prikið.
Svikari: Dagný lovebird
Tentarar: Dagný&Brói og Frosti&Hjördís
Nafn: Blingbert hinn sveitti, Mölnir, dagfinnur frændi & hekill frændi
Fyndnast: Það þarf að laga laga laga laga hann Braga, bókasafinn, Hekla. Ég og Dagný í singstar, fólk á sýru, kyssusagan hans Ragga, gaurinn sem lét mig taka hvítabjörn í fæðingu á ensku og var svo íslenskur. Kvartbuxurnar hans Binna.
Sögur: Helena á þynnkudögum
Leiðindi: að bíða eftir öllum, týna einhverjum, pirringur á flugvellinum, að vera með rang pin númer á visakortinu,
Öskur: The wall, HEKLA??!!! (á guns) Þórrrrrrgnýr & Arnar lilli beibílof,
Spurning: Hvar eru allir vinir mínir? (Frosti að drepast út í sólini einn morgunin)
Bjargvættur: Fannar með varasalvan, visakortið mitt eftir hátíðina
Munaðarlaus: Viktotría
Auglýsing: Dressman
Hrotur: Eyþór. Fannar kom líka stekur inn á 10mín fresti
“Legg”: Binni (krakkhó) & Frosti í sólinni
Prik: Kókaínhóran á Café Victoria
Tuð: Helena að tala um Guns tónleikana
Lag: Barfly með Jeff Who og auðvita mörg önnur

..jæja nú er ég loksins búin að henda þessu öllu inn og nú vill ég að allir sem eiga hlut að máli og allir hinir (sem eru 185) taki sig saman í andlitinu og kommentið. ég hef ekki beðið um komment síðan í 5bekk. heheh.
NJÓTIÐ þess að skoða og lesa.
góððððða nótt.

27.6.06

slef slef slef slefbert..
ég er reddí.
í dag er 27júní. það þýðir að það er hróaskeldudagur..
veit ekki alveg hvað ég er að fara gera. ég veit ekkert um kelduna nema að ég ætla að sjá ýmislegt skemmtilegt og hafa ótrúlega ógeððððslega skemmtilegt. og það nægir mér.
ég er ekki búin að prumpa á mig og ekki kúka.
hvað er að ske?
ég er að fara á kelduna. æ jáh!
dóh.
hehehehhehe..
karólína eða brói?
elska ykkur...
hugsið skemmtilega til mín á föstudagin kl. hálf10 því þá verð ég á dylan.og margt margt margt fleira.. æææææ!!!! húrrrrrrrrah.

23.6.06

Á kelduna kerling nú glaðbeytt hún fór
þar kneifaði ölið & brosti
Hún ætlaði alltaf er yrði hún stór
& skildi eftir karlinn í losti.
höf. m+p

heheh.. þeim fannst mjög mikilvægt að henda fram einn góðri stöku í tilefni þess að ég sé að fara á keldunu. Afhverju? veit ekki. heheh. yndin.
Mikil gleði þegar brói sýndi mér þessa veðurspá.
með sól í hjarta og söng og gleði.
búin að kaupa tjald þannig það vantar bara að það sé komin þriðjudagur. ég veit ekkert hvað ég á að taka með mér. þarf faglega aðstoð.
tendamamma spurði hvort ég væri eitthvað lasin því ég leit úr eins og aska. ég snaraði mér í einn ljósatíma er og núna lít ég út fyrir að hafa verið á mæorka í 5vikur. sjitt hvað tendgó eru skítbrún.
nú kúra þau feðgin saman uppí rúmi og ég er á leið í klippingu. það verður sko eitthvað skemmtilegt gert. ég hef aldrei hugmynd um hvað ég ælta að gera. segir bara eitthvað, stutt, sítt, blátt, raka og snoða. sumir pæla geðveikt í því hvernig þeir láta klippa sig. eru með kannanir á síðunum sínum. flott.

15.6.06

ég hélt að jörðin væri kúla, ég hélt að ást myndi aldrei fúna.
þar til ég las það um daginn að ALLT SEM ÞÚ LEST ER LÝGI.


ég hreinlega veit ekki hvernig mér líður.
ég er spennt en samt ekki. hlakkar til en samt ekki. veit ekki.. en samt ekki.
líður pínu eins og 6ára gelgju í unglingafýlukasti (ekki ég)
einu sinni tók ég dramaköst. en eiginlega ekki lengur. nema þegar ég var ólétt og missti af meðgöngujóganu mínu. það var hræððððilegt og þá var sko skælt.
ég var líka einu sinni 15ára gelgja en ég er það ekki lengur. ég er 21árs gelgja, sem er miklu betra (: heh.
ææ eitthvað nostalgíjukast í gangi. en samt ekki í mér.

en ég er ógssssilega hress.
fer á kelduna eftir 12daga. ég elska þegar fólk segir að það sé gott hjá mér að ég sé að fara út. hata þegar fólk horfir á mig, snýr sér við og hringjir í barnavermdarnefnd.
lokaði í búðini í dag og opna á morgun. allir velkomnir.
FRÚIN Í HaMABOrG.. ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR HRAÐAR. góð auglýsing.
er að fara trúlofast á laugadagin, held ég. ef kúlurass finnur jakkaföt. nei fokked up.
ellen vinkona er sveitt á maganum að kaupa barnaföt á Lotta litla. veit ekki. gunnar er að koma með þau í kvöld. veit enn minna.

það er eitt satt í þessu blogg. ég er hætt að skoða blogg. ég nenni því ekki lengur. þannig að ég veit eigiinlega ekkert hvað ég á að gera í tölvuni ef ég er ekki að skoða blogg. ég skil ekki hvað kom yfir mig. kannski OF mikil bloggskoðun? gæti verið.
get ekki stoppað við lengur. þarf að nota únakí gáfur mínar og láta fólkið sem stormar inní strax koma með góðgæti fyrir mig. haldiði að það takist?
fylgist með í ágústlok.


homm át.

12.6.06

MYNDIR MYNDIR MYNDIR

ég fæ eitthvað á heilan og segi það bara út í eitt. hvað er það? ég get aldrei sparað setningarnar. ég segi þær út í eitt, allir fá leið á þeim og ég æli á þær.
gaman.
ég fór allavegna í skemmtilegasta partí ársins um helgina. stebbi var að útskrifast úr háskólanum um helgina og sló upp garðpartíi. það var sko allt sem ekta garðpartí þarf að hafa. bjór, bolla, gítar, söngbækur, gleði gleði gleði gleði. var að dansað og sungið og farið í handahlaup fram á rauða nótt. þegar rauð nóttin kom var mér rænt. já ég lýg ekki til um það, mér var rænt.
haldið var á mér niður í bæ og á stað sem ber klámfengið nafn.. rocco. ekki stoppuðum við þar lengi. allir voru sveittir og öllum var heitt og allir voru þvoglumæltir svo við lísi fórum heim. með langloku og kókómjólk.
vorum ótrúlega fesk og hreinsuðum eins og frelsað fólk í kjarnaskógi í gær.

það er alþjóðlegur inni kúrudagur í dag. rigning og rok.
ég var ekki með neitt bragað í allan gærdag. skil ekki alveg. ég nennti þá ekkert að vera borða neitt. ég hefði alveg geta étið skít afþví ég myndi ekkert finna neitt bragað. pant gera það næst þegar ég verð bragðlaus.
núna eru 2vikur í kelduna og ekkert djamm þanga til. ekki það að það sé eitthvað erfitt. ætla að vinna og reyna losna við kvefið.
það er helling af hrossaflugum heima hjá mér? afhverju? sofa hrossaflugur á veturnar og vakna um miðajn maí?
ég fer í klippó 23. sko ég stóð við mitt samkomulag. góð með mig.
ég held að litla barnið mitt muni slá met í áhorfi á HM í sumar. pabbi hennar er í þessum skirfuðu orðum að fræða barnið um aukaspyrnur og víti. og um hverjir séu náttúlega bestir. hverjir eru ömurlegir og hverjir ekki. hún hefur mikin á huga á þessu (finnst pabba hennar) og klappar og klappar eins og hún eigi lífið að leysa. og gefur auðvita fæf all over. það kæmi mér lítið á óvart ef ég kæmi að þeim vera búin að raða upp seríosi eins og í auglýsinguni. með carlsberg húfur og lager bjór.

velllóóó..
lalalalal

1.6.06

takk fyrir ammókveðjurar. ég þakka. nennti ekki að senda öllum þessum geðveika fjölda (í alvöru) sms tilbaka. þannig hér með. takk. æ það eru náttúrlega fáir sem þekkja þetta ógeðslega poppúlar líf eins og ég lifi. þannig. æ.
búin að setja inn myndir frá Því í afmælinu. það var fámennt en einstaklega góðmennt. einkendist af laugahúmor og sögum og egilstaðabúm. ég hef lengi safnað þeim að mér. enda koma mínir lang besti vinur frá egilstöðum. elsk elsk.
glatt var á hjalla og allir gengu hægt um gleðinar dyr (eins og marg var búið að lofa) fórum í bæin með einstaklega múdí leigubílstjóra. það var sko engin þossi þá. æ hvar var eidi þá? ég átti 73kr sem hann vildi ekki þiggja og varð pist off og við fórum. ég veit ekki í hvernig stemmara ég var. ég var svöng og þyst og þreytt með súkkulaði í tönnunum, HÆJJJ ÁTTU SÚKKULAÐI? strákarnir dróu, í gjörsamlega orðsins fyllstu merkingu, okkur dagný inná vélsmiðjuna þar sem ég gat ekki pissað því ég hló svo mikið (enn með súkklaði verksmiðju í tönnunum) og spilaði geimundur valtýr fiskin minn og þá fórum við. takk og bless.
nætursalan var góð. ljótar mægður að vinna en gerðu heimsins besta búger. og ég tímdi ekki að gefa elías þef af honum. haha.

uh vitiði að það eru 23dagar í kelduna.
ég fæ sting og hroll niður eftir öll þegar ég hugsa um það. ég trúi ekki að ég sé að láta vera að þessu. ég, Viktoría Jóhannsdóttir er að fara á hróaskeldu. draumur minn frá blautu barnsbeini. og núna, orðin mamma og ansi viðruleg þá ætla ég að skella mér. mér finnst ég eiga gott skilið.

besta símtal laugadagsins var frá önnu margreti. við töluðum um sæta stráka, blautt prump júravísonpartí á skagaströnd bekkindadays og gullkúk. heh. ekkert fyndara.

jæjajæja.. gaman að þessu.
ég heyri í ykkur seinna.

27.5.06

ég á afmæli í dag.
ég er 21ára.
gleðilegt afmæli Viktoría.
sjáumst í kvöld....