11.7.06

Hróaskeldumyndirnar mínar. þið verið að ýta hægramegin á myndina til að fletta. bróa myndir & ása myndir & heklu myndir.

Vá ég er ekki að trúa að þetta sé búið.
Á köflum mjög ósanngjarnt en samt ótrúlegt. Ég er enn ekki að ná því að ég hafi farið.
Ég veit ekki hvernig ég á að reyna koma þessu frá mér. En ferðasögur eru algjör nauðsyn.
Ég vissi óskaplega takmarkað þarna á þriðjudeginum þegar við fórum út. Ég var svona semi búin að pakka og vildi bara að klukkan yrði flug og að við færum. Ótrúlegt en satt þá var ég ekki búin að kúka á mig af spenning.
Drukkum á karólínu áður en við fórum, drukkum á flugvellinum, drukkum í flugvélinni. Flest okkar voru orðin vel full á leiðinni út og þar var sungið eins og í skólaferðalagi í 5. bekk, sem var gaman. Skil samt ekki enn afhverju okkur var ekki hent út á ferð. Þegar við komum til DK þá vissi enginn neitt hvað við ættum að gera. Við vissum ekkert hvaða lest við ættum að taka eða hvað við ættum að gera, en þá kom gammeldansk til sögunnar, sá ógeðslegi drykkur en hann bragðaðist eins og ís í kjarnaskógi á góðum degi. Þar tók Eyþór (semí kæró ferðarinnar) nokkra vel valda slagara eins og, I wish you were here, mausslagara & Barfly. Þetta er súrasta moment sem ég hef átt. Sátum öll í ruglinu á lestarteinum og sungum og trölluðum. Tókum svo lest inní Roskilde á fyrsta farrými. Einhverra hluta vegna var það ekki vel séð og við áttum víst ekkert heima þar (sem ég btw skil hreinlega ekki) Þegar við komum á svæðið sjálft, eftir skæl, væl, ves og kortrugl þá tjölduðum “við” í rassagati í myrki og héldum áfram að syngja. Þá nótt sofnaði undirrituð kl.9 um morgunin með rödd á við viskíróna.
Daginn eftir fórum ég, Hekla og Dagný og gistum á gistiheimili Halldóru huggulegu. Tókum strikið í einhverju móki og ég vildi ólm kaupa ógeðslega ljóta skyrtu á Örnu Dís, sem betur fer töldu stelpurnar mig af því.
Fyrstu tónleikarnir okkar voru Guns ´n Roses. Axel Rose lét bíða eftir sér og maður var orðin nett pirripú en þegar kappinn mætti og öskraði “DO YOU KNOW WHERE THE FUCK YOU ARE” þá var allt pirr fokið. Þeir tóku alla slagarana og þá komu nokkur tár. Versta hugmynd ferðarinnar var að fara af þeim tónleikum á Sigurrós. Ég er ekki mikill aðdáandi þeirra og seinsofnaði í kjöltunni á Bróa. Við vöknuðum þegar fólk var farið að traðka á okkur til að komast í burtu. Gott múv.
Föstudagurinn var hress. Horbjóðslega mikil sól og ég reifaði mig eins og araba. Sem var mjög notalegt. Mestu vonbrigði Keldunnar var Bob Dylan. Hann var ömó.
Við fórum svo á Morrissey, Kashmir (nei þeir tóku ekki Victoria), Streets (þar sem ég tróðs næstum undir en þá kom herra hero aka Eyþór og bjargaði mér) Scissor sisters sem voru alveg hreint gegggjuð og eitthvað fleira.
Þessi dagur var vírd. Það var lítið af böndum sem maður var spenntur fyrir en samt voru Deftones, Tool. Kanya West sem var mjög ágætur, hann tók slagara eins og take on me og crasy.. þá var sungið. Eins og oft vildi vera í þessari ferð.
Sunnudagurinn var sko hell erfiður.
Það voru svo mörg bönd sem manni langaði svo að sjá. Við komumst yfir alveg ótrúlega margt eins og, Strokes, Arctic Monkeys, Franz Ferdinand, Placebo, Wolfmothers og svo meistara meistaranna Roger Waters. Eftir að kappinn var búin að performa dark side of the moon þá fannst manni maður bara mega deyja. Hann átti Kelduna.
Hann var aðal númerið og lokaði hátíðinni með flugeldum og þvílíku sjóvi. Ég skældi af mér andlitið þegar I wish you were here kom, hringdi í Elías & Örnu Dís og söng fyrir þau og svo sameinaðist ég 80þús manns þegar hann tók The wall. Hringdi svo í pabba í Money og sagðist elska hann. Held að gamli refurinn hafi öfundað mig aðeins, heh.
Þetta var rosssssssalegt. Ég tók líka helling af videoum á þessum tónleikum. Sem er ansi gaman að horfa á núna.
Í einhverju óðagoti sváfum við 2 tíma og drulluðum okkur svo kl. 5 eða 6 um morgunin inní Köben til að bíða þar á lestastöðini til 11 þá fórum við á gistiheimilið í LANG þráða sturtu. Ég hef aldrei verið jafn drullug en hef engu að síður aldrei verið jafn sátt.
Svo tókum við Fisketorve & strikið eins og maraþonhlauparar.

Þessi ferð var YNDISLEG út í eitt. Frábær í alla staði. En hún hefði aldrei verið svona æðisleg hefði ég ekki verið með svona huggulegum hóp. Takk bebein mín. Þó helst takk til Heklu, Helenu & Dagný.
Pælið í því, í viku vorum við á skralli og látum og engin meiddist eða var drepinn (þó nokkrir hafi nú samt “drepist” heh)
Við stóðum í því alla ferðina að finna nikkneim yfir allan andskotann. Það var ógeðððslega fyndið og þóttum við með þeim fyndnari á svæðinu.
Mér er meira en ógeðslega mikið illa við hita og mér til ánægju var 30 stiga hiti þarna allan tíman. Ég svitnaði eins og grís á launum og hlaut viðurnefnið Blingbert sveitti.
Það var líka ansi fyndið þegar búið var að versla og átti að fara pakka ofan í tösku. Þá stóð ég eins og leikskólakrakki og kom engu ofan í tösku. Þá tóku sig saman 4 vaskar hendur og pökkuðu fyrir mig (kiss Dagný&Hekla)
Ég er svo innilega elskulega þakklát litla manninum mínum að hafa peppað allt uppí mér að fara og hafa bekkað mig öpp þegar ég hætti við að fara út (sem var kannski svona 987sinnum). Váá.. þetta var ævintýri sem verður að endurtaka sig. Ég er sammála öllum.. einu sinni farið þú getur ekki hætt. Keldan verður árleg. Elías kemur auðvita með næst og Dísin líka. Vííí. Árlega famelíuferð á Kelduna, ekki slæmt það.

Mestu vonbrigði: Bob Dylan
Skæl: Guns, placebo, Roger Waters & Eyvör. Taxi þegar komið var til DK. Hekla & Dagný á Strikinu
Orð ferðarinnar: vandræðalegt, kjullubangsi, lulli, sjonni beibílof, awkward, tentarar, blautþurkkur, tjékk it bæ, boddy holly, bókasafi
Setningar: This is actually awkward. Hárið á mér er eins og bókasafi. Hvar er bjórinn? Hvar er Eyþór? Ertu með dagskránna? Vandró
Mest á óvart: Eyvör, að hafa ekki hitt alla sem ég þekkti þarna, hvað þetta er ógeðslega stórt
Best: ískalt jarðaberja romm krap, Heitur bjór, tekíla sönnræs, rúnstykki á morgnana, sólarvörn, molarnir mínir sem ég fann, roggi vatn, ástarklósettið mitt, HM, súkkulaðikakan sem ég borðaði yfir þýskaland-argentína, ískalt vatn, samlokurnar í Tuborgtjaldinu, myndavélin mín,
Ógeð: gammeldansk og molarnir með norskum skapahárum, blauta ostalyktin þegar maður labbaði inn á svæðið, pissulyktin. Prikið.
Svikari: Dagný lovebird
Tentarar: Dagný&Brói og Frosti&Hjördís
Nafn: Blingbert hinn sveitti, Mölnir, dagfinnur frændi & hekill frændi
Fyndnast: Það þarf að laga laga laga laga hann Braga, bókasafinn, Hekla. Ég og Dagný í singstar, fólk á sýru, kyssusagan hans Ragga, gaurinn sem lét mig taka hvítabjörn í fæðingu á ensku og var svo íslenskur. Kvartbuxurnar hans Binna.
Sögur: Helena á þynnkudögum
Leiðindi: að bíða eftir öllum, týna einhverjum, pirringur á flugvellinum, að vera með rang pin númer á visakortinu,
Öskur: The wall, HEKLA??!!! (á guns) Þórrrrrrgnýr & Arnar lilli beibílof,
Spurning: Hvar eru allir vinir mínir? (Frosti að drepast út í sólini einn morgunin)
Bjargvættur: Fannar með varasalvan, visakortið mitt eftir hátíðina
Munaðarlaus: Viktotría
Auglýsing: Dressman
Hrotur: Eyþór. Fannar kom líka stekur inn á 10mín fresti
“Legg”: Binni (krakkhó) & Frosti í sólinni
Prik: Kókaínhóran á Café Victoria
Tuð: Helena að tala um Guns tónleikana
Lag: Barfly með Jeff Who og auðvita mörg önnur

..jæja nú er ég loksins búin að henda þessu öllu inn og nú vill ég að allir sem eiga hlut að máli og allir hinir (sem eru 185) taki sig saman í andlitinu og kommentið. ég hef ekki beðið um komment síðan í 5bekk. heheh.
NJÓTIÐ þess að skoða og lesa.
góððððða nótt.

27.6.06

slef slef slef slefbert..
ég er reddí.
í dag er 27júní. það þýðir að það er hróaskeldudagur..
veit ekki alveg hvað ég er að fara gera. ég veit ekkert um kelduna nema að ég ætla að sjá ýmislegt skemmtilegt og hafa ótrúlega ógeððððslega skemmtilegt. og það nægir mér.
ég er ekki búin að prumpa á mig og ekki kúka.
hvað er að ske?
ég er að fara á kelduna. æ jáh!
dóh.
hehehehhehe..
karólína eða brói?
elska ykkur...
hugsið skemmtilega til mín á föstudagin kl. hálf10 því þá verð ég á dylan.og margt margt margt fleira.. æææææ!!!! húrrrrrrrrah.

23.6.06

Á kelduna kerling nú glaðbeytt hún fór
þar kneifaði ölið & brosti
Hún ætlaði alltaf er yrði hún stór
& skildi eftir karlinn í losti.
höf. m+p

heheh.. þeim fannst mjög mikilvægt að henda fram einn góðri stöku í tilefni þess að ég sé að fara á keldunu. Afhverju? veit ekki. heheh. yndin.
Mikil gleði þegar brói sýndi mér þessa veðurspá.
með sól í hjarta og söng og gleði.
búin að kaupa tjald þannig það vantar bara að það sé komin þriðjudagur. ég veit ekkert hvað ég á að taka með mér. þarf faglega aðstoð.
tendamamma spurði hvort ég væri eitthvað lasin því ég leit úr eins og aska. ég snaraði mér í einn ljósatíma er og núna lít ég út fyrir að hafa verið á mæorka í 5vikur. sjitt hvað tendgó eru skítbrún.
nú kúra þau feðgin saman uppí rúmi og ég er á leið í klippingu. það verður sko eitthvað skemmtilegt gert. ég hef aldrei hugmynd um hvað ég ælta að gera. segir bara eitthvað, stutt, sítt, blátt, raka og snoða. sumir pæla geðveikt í því hvernig þeir láta klippa sig. eru með kannanir á síðunum sínum. flott.

15.6.06

ég hélt að jörðin væri kúla, ég hélt að ást myndi aldrei fúna.
þar til ég las það um daginn að ALLT SEM ÞÚ LEST ER LÝGI.


ég hreinlega veit ekki hvernig mér líður.
ég er spennt en samt ekki. hlakkar til en samt ekki. veit ekki.. en samt ekki.
líður pínu eins og 6ára gelgju í unglingafýlukasti (ekki ég)
einu sinni tók ég dramaköst. en eiginlega ekki lengur. nema þegar ég var ólétt og missti af meðgöngujóganu mínu. það var hræððððilegt og þá var sko skælt.
ég var líka einu sinni 15ára gelgja en ég er það ekki lengur. ég er 21árs gelgja, sem er miklu betra (: heh.
ææ eitthvað nostalgíjukast í gangi. en samt ekki í mér.

en ég er ógssssilega hress.
fer á kelduna eftir 12daga. ég elska þegar fólk segir að það sé gott hjá mér að ég sé að fara út. hata þegar fólk horfir á mig, snýr sér við og hringjir í barnavermdarnefnd.
lokaði í búðini í dag og opna á morgun. allir velkomnir.
FRÚIN Í HaMABOrG.. ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR HRAÐAR. góð auglýsing.
er að fara trúlofast á laugadagin, held ég. ef kúlurass finnur jakkaföt. nei fokked up.
ellen vinkona er sveitt á maganum að kaupa barnaföt á Lotta litla. veit ekki. gunnar er að koma með þau í kvöld. veit enn minna.

það er eitt satt í þessu blogg. ég er hætt að skoða blogg. ég nenni því ekki lengur. þannig að ég veit eigiinlega ekkert hvað ég á að gera í tölvuni ef ég er ekki að skoða blogg. ég skil ekki hvað kom yfir mig. kannski OF mikil bloggskoðun? gæti verið.
get ekki stoppað við lengur. þarf að nota únakí gáfur mínar og láta fólkið sem stormar inní strax koma með góðgæti fyrir mig. haldiði að það takist?
fylgist með í ágústlok.


homm át.

12.6.06

MYNDIR MYNDIR MYNDIR

ég fæ eitthvað á heilan og segi það bara út í eitt. hvað er það? ég get aldrei sparað setningarnar. ég segi þær út í eitt, allir fá leið á þeim og ég æli á þær.
gaman.
ég fór allavegna í skemmtilegasta partí ársins um helgina. stebbi var að útskrifast úr háskólanum um helgina og sló upp garðpartíi. það var sko allt sem ekta garðpartí þarf að hafa. bjór, bolla, gítar, söngbækur, gleði gleði gleði gleði. var að dansað og sungið og farið í handahlaup fram á rauða nótt. þegar rauð nóttin kom var mér rænt. já ég lýg ekki til um það, mér var rænt.
haldið var á mér niður í bæ og á stað sem ber klámfengið nafn.. rocco. ekki stoppuðum við þar lengi. allir voru sveittir og öllum var heitt og allir voru þvoglumæltir svo við lísi fórum heim. með langloku og kókómjólk.
vorum ótrúlega fesk og hreinsuðum eins og frelsað fólk í kjarnaskógi í gær.

það er alþjóðlegur inni kúrudagur í dag. rigning og rok.
ég var ekki með neitt bragað í allan gærdag. skil ekki alveg. ég nennti þá ekkert að vera borða neitt. ég hefði alveg geta étið skít afþví ég myndi ekkert finna neitt bragað. pant gera það næst þegar ég verð bragðlaus.
núna eru 2vikur í kelduna og ekkert djamm þanga til. ekki það að það sé eitthvað erfitt. ætla að vinna og reyna losna við kvefið.
það er helling af hrossaflugum heima hjá mér? afhverju? sofa hrossaflugur á veturnar og vakna um miðajn maí?
ég fer í klippó 23. sko ég stóð við mitt samkomulag. góð með mig.
ég held að litla barnið mitt muni slá met í áhorfi á HM í sumar. pabbi hennar er í þessum skirfuðu orðum að fræða barnið um aukaspyrnur og víti. og um hverjir séu náttúlega bestir. hverjir eru ömurlegir og hverjir ekki. hún hefur mikin á huga á þessu (finnst pabba hennar) og klappar og klappar eins og hún eigi lífið að leysa. og gefur auðvita fæf all over. það kæmi mér lítið á óvart ef ég kæmi að þeim vera búin að raða upp seríosi eins og í auglýsinguni. með carlsberg húfur og lager bjór.

velllóóó..
lalalalal

1.6.06

takk fyrir ammókveðjurar. ég þakka. nennti ekki að senda öllum þessum geðveika fjölda (í alvöru) sms tilbaka. þannig hér með. takk. æ það eru náttúrlega fáir sem þekkja þetta ógeðslega poppúlar líf eins og ég lifi. þannig. æ.
búin að setja inn myndir frá Því í afmælinu. það var fámennt en einstaklega góðmennt. einkendist af laugahúmor og sögum og egilstaðabúm. ég hef lengi safnað þeim að mér. enda koma mínir lang besti vinur frá egilstöðum. elsk elsk.
glatt var á hjalla og allir gengu hægt um gleðinar dyr (eins og marg var búið að lofa) fórum í bæin með einstaklega múdí leigubílstjóra. það var sko engin þossi þá. æ hvar var eidi þá? ég átti 73kr sem hann vildi ekki þiggja og varð pist off og við fórum. ég veit ekki í hvernig stemmara ég var. ég var svöng og þyst og þreytt með súkkulaði í tönnunum, HÆJJJ ÁTTU SÚKKULAÐI? strákarnir dróu, í gjörsamlega orðsins fyllstu merkingu, okkur dagný inná vélsmiðjuna þar sem ég gat ekki pissað því ég hló svo mikið (enn með súkklaði verksmiðju í tönnunum) og spilaði geimundur valtýr fiskin minn og þá fórum við. takk og bless.
nætursalan var góð. ljótar mægður að vinna en gerðu heimsins besta búger. og ég tímdi ekki að gefa elías þef af honum. haha.

uh vitiði að það eru 23dagar í kelduna.
ég fæ sting og hroll niður eftir öll þegar ég hugsa um það. ég trúi ekki að ég sé að láta vera að þessu. ég, Viktoría Jóhannsdóttir er að fara á hróaskeldu. draumur minn frá blautu barnsbeini. og núna, orðin mamma og ansi viðruleg þá ætla ég að skella mér. mér finnst ég eiga gott skilið.

besta símtal laugadagsins var frá önnu margreti. við töluðum um sæta stráka, blautt prump júravísonpartí á skagaströnd bekkindadays og gullkúk. heh. ekkert fyndara.

jæjajæja.. gaman að þessu.
ég heyri í ykkur seinna.

27.5.06

ég á afmæli í dag.
ég er 21ára.
gleðilegt afmæli Viktoría.
sjáumst í kvöld....

22.5.06

óó já.. nýjar myndir. þær eru óafsakanlegar. þetta er um það bil bara myndir af mér og dagný. í alskyns vitleysu. afhverju? ég veit ekki. var að fara í gengum þetta og komast að því að við dagný erum næstum kærustur. það er allt í lagi. því elías er í föstu sambandi við stefán. allt í lagi. ok.
hef líka tekið eftir því að ég er alltaf með þema myndir. einu sinni var ég alltaf með tungan út úr mér á öllum myndum alltaf. einu sinni var það undirhökufelarin og núna er það kjötsvipur sem aldrei fyrr. á öllum þessum myndum er ég með sama lúkkið. sem er töff. hehhe.
það verður allavegana ekki af manni tekið. maður missir ekki kúlið.
ég fékk hvítan pels með hettu í vinnuni. og það þurfti að taka fæðingu hvítabjarnar á hverju horni. allt kvöldið. við dagný sungum ó maría með tregafullum rómi og dönsuðum sem aldrei fyrr við stupit girls með pink. hekla blæddi skot og við drukkum. ví gaman.

en talandi um djamm (eins og maður geri ekkert annað) þá er auððvita afmælið um næstu helgi. komin með smá 5ára fíling í mig. kemur engin í afmælið mitt? gleyma allir afmælinu mínu? blablabla. æ þið vitið. en endilega komið. ég er ekki með VIP lista og vill bara að sem flestir komi og gleðjist og dansið með mér. líka þú já. endilega. víh. ég er ekki mikil "fáiði ykkur heimalagaða kökur sem ég var 13tíma að búa til týpa"
ógeðslega veður og allt í snjó (sjá myndirnar) tók myndir af svölunum hjá okkur og það er allt í snjó. ógeð? já.
ég er búin að hætta 112 sinnum við að fara á kelduna. og núna er ég er ég alveg hætt við. afhverju? jú skiljanlega af því Skin kemur ekki. hvað er það ógeðslega hommalegt? hún er stjarnan mín. hverjum er ekki sama þó einhver finnskur flautuleikari eða einhver skíta dj beili. en kommmon.. ekki skin. ég er með 8 tár og skelfingarsvip og leið í sálini minni.
heimska hróaskelda.

fokk it

óó já.. nýjar myndir. þær eru óafsakanlegar. þetta er um það bil bara myndir af mér og dagný. í alskyns vitleysu. afhverju? ég veit ekki. var að fara í gengum þetta og komast að því að við dagný erum næstum kærustur. það er allt í lagi. því elías er í föstu sambandi við stefán. allt í lagi. ok.
hef líka tekið eftir því að ég er alltaf með þema myndir. einu sinni var ég alltaf með tungan út úr mér á öllum myndum alltaf. einu sinni var það undirhökufelarin og núna er það kjötsvipur sem aldrei fyrr. á öllum þessum myndum er ég með sama lúkkið. sem er töff. hehhe.
það verður allavegana ekki af manni tekið. maður missir ekki kúlið.
ég fékk hvítan pels með hettu í vinnuni. og það þurfti að taka fæðingu hvítabjarnar á hverju horni. allt kvöldið. við dagný sungum ó maría með tregafullum rómi og dönsuðum sem aldrei fyrr við stupit girls með pink. hekla blæddi skot og við drukkum. ví gaman.

en talandi um djamm (eins og maður geri ekkert annað) þá er auððvita afmælið um næstu helgi. komin með smá 5ára fíling í mig. kemur engin í afmælið mitt? gleyma allir afmælinu mínu? blablabla. æ þið vitið. en endilega komið. ég er ekki með VIP lista og vill bara að sem flestir komi og gleðjist og dansið með mér. líka þú já. endilega. víh. ég er ekki mikil "fáiði ykkur heimalagaða kökur sem ég var 13tíma að búa til týpa" svo ég veit ekki með möns. er samt að spá.
ógeðslega veður og allt í snjó (sjá myndirnar) tók myndir af svölunum hjá okkur og það er allt í snjó. ógeð? já.
ég er búin að hætta 112 sinnum við að fara á kelduna. og núna er ég er ég alveg hætt við. afhverju? jú skiljanlega af því Skin kemur ekki. hvað er það ógeðslega hommalegt? hún er stjarnan mín. hverjum er ekki sama þó einhver finnskur flautuleikari eða einhver skíta dj beili. en kommmon.. ekki skin. ég er með 8 tár og skelfingarsvip og leið í sálini minni.
heimska hróaskelda.

fokk it

17.5.06

hææææææææ, áttu mömmu?

ég er að fara til reykjó á morgun. ég er að fara læknast (í orðsins fylstu nei, en þið fattið) flýg eldsnemma og kem heim í kvöldmat. og júró teiti. annars er ég mjög óspennt yfir þessu. held að hún raðskíti uppá bak og komi eins og sannur íslendingur heim aka með skottið á milli lappana.
er er að fylla pottan minn af nýjum góðum lögum. leiðó að vera alltaf einn í flugvél og hafa ekki tónlist, það er útilokað.
en það er STÓR frétt. ég er búin að fá vinnu. og það enga smá vinnu sko, í frúnni í hamborg. þið sem eruð ekki nógu töff og vitið ekkert. þá er frúin í hamborg aka spúnik, dead og naked ape. og svo er helling af gömlu dóti. antík. óóóó já ég er í paradís og himnaríki saman. sem er æði. ég elska að dúllast þarna. ég var ekki einu sinni stressuð að sækja um vinnu og hvað þá að mæta í fyrsta skipti. og það er alveg afrek útaf fyrir sig, því ég er stressklessa. en þetta bara feels like home. algjörlega. elsk elsk elsk elsk elsk.
líka gott að komast aðeins út. elías er byrjaður í fæðó, þannig við erum bæði heima. óþarfi að plokka augun úr hvort örðu. heh.

æ ég er hress. sumarið er held ég komið.
eitt sem gleður óneitandlega.. fyrir utan bestu vinnu í geimi (glætan að ég fái einhvertíman pening í hendur.. tek þetta allt út í fötum.. en ekki hvað) en það er jújú ansi stutt í kelduna. meðan við að maður byrjaði að telja þegar það voru 150dagar eða eitthvað álíka. 38dagar. það er ekki lengi að líða.
mig er farið að langa mikið á blö. ansk. bíllin er í tómu fokki.
gulrætur og kók? það er klárlegt trend

9.5.06

ég veit ekki hvernig ég er.
það er komið vor. vorið er ekki mitt uppáhaldstímabil. því jú ég er tvíburi og eins og sönnum tvíbura sæmir hef ég ævintýraþrá eins og harry potter á góðum degi. ég vill bara fara. skilja við allt og alla og fara. þannig er ég á vorin. eins og lamb eða kálfur sem Þarf að komast út. gera eitthvað. en um fram allt að vera frjáls eins og fuglin. og eins og hver maður veit þá er það hægara sagt en gert.
vorin er voða flott. gott veður og kósíheit. grillveisla í bakgarðinum. en ég verð eins og ég hreinlega veit ekki hvað.
og talandi um að vita ekkert. þá hef ég ekki enn ákveðið hvað ég ætla að kjósa. samt held ég að ég sé ákveðin.
kosningar puff.. ég á líka afmæli 27maí og það er nú merkilegra en kosningar.

það verður semí tvítugsaafmæli hjá mér 27maí í trölla 804.

ég hef allavegna talað við einhverja og á eftir að tala við einhverja. vonandi komast allir og þá verður sko dansað. rokkprik fyrir mér að eiga afmæli. en ekki hvað? ég nenni samt ekki að grilla eða eitthvað svoleiðis leim. það er ekki töff að borða og fara svo að djamma. nei það veit hver maður.

jæja lifið í lukku en ekki krukku.


30.4.06

afhverju? hann er ekki að djóka. sjitturinn. hann er náttúrlega eitthvap geðveikur. fann þetta á netinu og ætla núna að stökkva fram af svölunum, því lífi mitt er ónýtt. þessi maður eyðilagði það. ekki það að þetta sé gott lag fyrir. en þetta setti puntin yfir ið.
þetta minnir á söngvakeppni framhaldsskólana bekkindadays. heheheh.. já þið vitið.
ég var ótrúlega reið og leið eitthvað illa. en núna er ég glöð. afhverju? því þetta fífl er svo heimsk og það gleður. hahahh. það þarf lítið til að gleðja mann. hehe.
ætla að fá mér jalapenó og mangó ost og kalla á einhver sem er að fara í strax búðina og biðja sá hinn sama um að kaupa kók handa mér og koma með upp til mín. því jú ég er föst heima. heh.. myndiði ekki redda því fyrir mig?

ég er enn úr sambandi útaf hún er að spila. og ég sé hana með mínum augum. með mínum báðum augum. mig dreymdi ahna oft (enda ekki skrítið, hún var alltaf það síðasta sem ég sá þegar ég sofanði) hún kom semsagt í afmælið mitt og við sungum saman. hún sat á rúminu hjá mér og talaði við mig.
ég elska hana.


hmm..

29.4.06

ógeðis akureyri.
það er alltaf vondt veður hér. ALLLTAF. vindós city hvað!!!!
það er gjörsamlega alltaf vindur hér.
þegar maður þarf að setja barnið í skjól, svo það fjúki ekki út í veður og vind þá er mér allri lokið.
hversu mikið sökkar það? jú mikið rétt laxmaður.. MJÖG MIKIÐ.
ég kem frá Blönduósi. þar er alltaf vindur. en núna hef ég búið á Ak. í 2 eða 3 ár og það er stanslaust vondt veður. nei ég man eftir sólarglætu og stillu í veðri þegar við bjuggum upp í furulundi 2004. muniði? heh.
já ég er pirripú út í veður & vind.

en kannski að þessi dagur endi vel. hann byrjaði nú reyndar kósí. vaknaði með drottninguni kl. 6 (hress.. heldur betur) við lögðum okkur svo aftur um 9 og þegar ég vaknaði aftur kl. hálf 11 þá voru þau feðgin búin að útbúa morgunverðarhlaðborð. grafin lax og ristaðar beyglur. (þetta er svona. í gær tannburstaði ég mig 4 sinnum og lagði mig frá 13:51 til 19: 22, gelgjublogg.. só.. fokk jú).
ég hvet alla til að lesa þetta og þetta. kommon.. 12km? er það nóg til að fá fólk til að stroka dósina út? nei held ekki.
talandi um blönudós. ég er staðráðin í að fara á matur&menning í sumar. djamma með gömlum vinum & kunningjum. veit bara ekkert hvernær það er. vona að það sé ekki þegar ég er á kelduni.
ogggg talandi um kelduna (; þá er draumurinn að rætast. eins og fólk man þá var ég mesti skunk anansie fan í geimi. elska þau. þó aðalega skin.. ég var með allt herbergið mitt veggfóðrar í myndum og plagötum af þeim. og hvað haldiði.. hún verður á hróaskeldu. ég á gjörsamlega eftir að líða útaf þegar kellan mætir á svið. líka snildin ein.. í bland við sóló frá henni þá eru gömul og góð skunk lög. sjitt, hún er náttúrlega bara svölust.

jæja ætla að fara í smá laugardagssnúning með örnu dís & heklu.
7mánaða og hefur farið í nokkrar kaffihúsferðir.. heh. hipp og kúl krakki.
EKKI VERA ARTÍ FARTÍ.. BJÓDDU ÖRNU DÍS Í PARTÍ.

Eftirlýsing:
Getur einhver sagt mér eða getur gefið þig fram elsku Sandra Björg Sigurjónsdóttir.
Ég hef verið að hugsa svo mikið um þig og eitthvað spá í hvar í heimageiminum þú ert eða hvað hefur orðið um þig.

komma svo.

22.4.06

afhverju lekur hor?
ef einhvern hefur svar við þessari spurningu þá má endilega láta mig vita.
eða.. afhverju hnerrar maður?
boðar ekki ógjæfu að hnessa 11 sinnum í röð? ég held það.
elías er eins og ekkja sem misst hefur alla 15 mennina sína, það lekur svo úr augunum á honum og nefinu, barnið er með vískírödd á við 19 róna á GÓÐUM degi og ég hnerra eins og hérastubbur bakari (það sagði embla frænka allavegana) hressandi heimilislíf.
páskarnir voru góðir. djamm. já. kannski. þetta talar sínu máli. takk dagný. ég tók hvort sem helmingin af þessum myndum. fór á hjálma. hundddleiðó. kann ekkert af örðum diskinum þeirra og þá var ég bara dauðadæmd. ekki nógu artífartí að taka lög af fyrsta diskinum, neineinei.
búin að fara til rvk og vopnaf. hellings flandur á manni.
keypti eitt & annað í rvk. td. geggjó kjól í kolaportinu.

mánuður í afmælið mitt. sem er 27maí.. ef þú ert froðuhaus og vissir það ekki.
kosingahelgina. gæri ekki beðið um betri helgi, nema helgina fyrir, því þá er júró. en við komust hvort sem er ekkert upp úr forkeppnini þannig að það verður ekkert stuð. ég ætla að halda uppá afmælið mitt og dansa polka með sjerrí í höndini.
viltu vera memm?

..ætla ná í dagný í vinnuna.


bekkindadays.. þá var maður HRESS. heh. þetta er svo bara ég!

6.4.06

5.4.06

ég þoli ekki hvað ég á marga vini/félga/kunningja (ég nota orðið vinur eða vinkona eki oft, enda á það ekki við alltaf) sem ég hjálpa og styð og dansa með en þegar ég þarf hjálp og stuðing og öxl til að skæla á þá eru allir "bissí" eða bara ekki bissí. æ. ó. eða kannski að ég leit ekki eftir hjálpinu. en ef þetta eru vinir manns þarf maður þá endilega að biðja um hjálp og öxl?
hvað er líka málið með að fólk kemur ekki heimsókn. það heyrðist ekki lengur að dyrabjöllu sé hringt. nema það séu börn að safna á ýmindaða tombólu eða þýskur skiptinemi að selja "heimatilbúnar teikningar".
tímin er svo dýrmætur og við alltaf að drífa okkur. engin má missa af þessu og hinu. ræktin, sund, út að hlaupa, leikhús, skóli, vinna, útlönd, djammið (sem tekur nú oft ágætan toll af vinskap og heimsku), allir með tölvurnar kurrandi og marrin yfir sér allan daginn út & inn, allir verða að fá meiri pening, útsala hér og útsala þar, flottir bílar, flott föt og allur þessi pakki, þið kannist við þetta sjitt.
þið eruð öll ofdekruð, sjálfsumglöð, sjálfhverf og full af drulluskít.
það eru svo margir sem hafa gengið sinn veg (ævi sína) algjörlega hnökralaust. ekki þekki ég þann veg en þegar erfingin situr og nagar mæliskeiðar og heddfón og kúkar.. ó já þetta allt í einu, geriði þið betur, þá er hnökralaustlíf ryk í mínum augun.

ég veit það reyndar að ég er ekki hress, ég er þreytt og langar í gimmið (því ég er offffur hædrósíköttuð)
mús er líka helþroskaheft, illa skökk og hlýðir mér als ekki (þá er ég að tala um tölvumúsina)
páskaR SMáskar..
ætla brjóta saman þvott, skella í lagköku, viðra sængurfötin og dansa með mittissvuntu við erlu þorsteinsdóttir (jú þetta er auðvita dulítil kaldhæðni, því hvað er betra en kaldhæðni á miðvikudegi)

?!?!

3.4.06

Allir saman nú..
Það eru bara nokkrir dagar í frægu borgarferðina okkar. Mig hlakkar enn mikið til. Já ég er kannski eins og lítið barn að bíða eftir jólunum. Einföld sál.
Annars er allt við það sama. Allir eiturhressir og fara stækkandi (þá meina ég auðvita og aðallega barnið). Ræktin er tekin með trompi samt ekki jafn miklu trompi og blessuð mágkona mín, enda er ég ekki að fara keppa í fitness. Ég ætla bara að standa á áhorfendapöllunum með spöld og öskur að vopni.

Apríl verður skrítin mánaður. Mikið að gerast, Rvk, páskar, fitness, borða.. en engin mamma. Mikið á ég eftir að sakna hennar. En það verður enn betra að fá hana heim aftur.

Tvö banaslys á Kárahnjúkum. Hmm.. ég set spurningamerki við þetta allt saman. Innst inni er ég Vinstri græn. Talandi um grænt.. helv. snjórin er að sökkva öllum Eyjafiðrum í einum bita. Heimsku páskar. Það er alltaf snjór á páskunum.

Mér líður ekki eins og ég eigi að skrifa blogg. En samt finnst mér ég verða koma einhverju út.

Allt sem þú lest er lygi..

24.3.06

já ég veit það er pirrandi að setja inn texta.
en ef eitthvað í heiminum er satt þá er það þessi texti. og ef dóttir minni verður kennt eitthvað (sem ég ætla nú rétt að vona) þá er það að forðast það að verða svona pía.

Stupid girl, stupid girls, stupid girls
Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl

Go to Fred Segal, you'll find them there
Laughing loud so all the little people stare
Looking for a daddy to pay for the champagne
(Drop a name)
What happened to the dreams of a girl president
She's dancing in the video next to 50 Cent

They travel in packs of two or three
With their itsy bitsy doggies and their teeny-weeny tees
Where, oh where, have the smart people gone?
Oh where, oh where could they be?

Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, I don't wanna be a stupid girl

(Break it down now)
Disease's growing, it's epidemic
I'm scared that there ain't a cure
The world believes it and I'm going crazy
I cannot take any more
I'm so glad that I'll never fit in
That will never be me
Outcasts and girls with ambition

That's what I wanna see
Disasters all around
World despaired
Their only concern
Will they **** up my hair

Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, I don't wanna be a stupid girl

[Interlude]
Oh my god you guys, I totally had more that 300 calories
That was so not sexy, no
Good one, can I borrow that?
[Vomits]
I WILL BE SKINNY

(Do ya thing, do ya thing, do ya thing)
(I like this, like this, like this)
Pretty will you **** me girl, silly as a lucky girl
Pull my head and suck it girl, stupid girl!
Pretty would you **** me girl, silly as a lucky girl
Pull my head and suck it girl, stupid girl!

Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, stupid girl!

Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, I don't wanna be a stupid girl

Pink-Stupid girls

það er árið 2006 en ég þekki samt fullt af svona stelpum. hversu fokking sorglegt er það? ef eitthvað í heminum er sorglegt þá eru það þessar týpur. þetta fær mig til að orga og garga og berja hnefanum í borðið.
þetta fær mig líka næstum því til að hætta í ræktini. heheh. nei en þið skiljiði hvað ég meina, er það ekki?
allvegana.. dóttir mín verður ekki ein af þessum svísum. það er bara þannig. sama hvað hún gerir, segjir, vill, ætlar að vera þegar hún verður stór.. þá verður hún ekki þessi svísa.
elska ykkur.
verið góð við ykkur sjálf og standið með ykkur sjálfum, því ef þið gerirð það ekki, hver gerir það þá?

þ t n r bnm m ui vfgghgh
frá dísini minni til ykkar. EKKI VERA GOD DAMH HEIMSK. þó aðalega þið stelpur.
kommma svo

22.3.06




þá dregur maður kaldan hausin upp úr sandinum.




helgin var góð. einkendis af heklu & dagný.
sem er mjöggg gott.
dansað? já það held ég nú..
fór á mestu kvöl & pínu árshátíð sem um getur. oj oj oj oj. en við daggoz vorum OFUR svalar og lékum þema á myndum. fórum svo á barin í boði mömmu & pabba. hahahahah.
elskulegt..
ég kann akkúrat ekkert á þetta.
en það er ágætt.
nenni ekki að reyna laga þetta.
nenni þessu ekki.

14.3.06

í dag eru 25 dagar í að við förum suður.
ég hef ekki stigið fæti í víkina síðan ío maí á síðasta ári. það er hneyklanlegt. við ætlum að fljúga (því hver leggur í það að keyra með 5mánaða dís í 5tíma, allavegna ekki við). ég ætla að versla mér eitt & annað. ætlum að gista hjá írisi frænku og kannski eina nótt í þorlákshöfn, því jújú það er aðal ástæða ferðarinar. harpa frænka er að fara fermast.

ég held að ég heimsins mesti beiler. hekla.. bekkmíöp. en jæja.. gömul kona getur ekki skemmt sér um og of. ..eððða sjáum hvað setur.
ég er alveg sjúk í netverslanir. ég elska að versla á netinu. gera það bara ekki nógu oft. oh. hversu flottir eru þessir? eða þessir?.
talandi um kaup. þá fór ég á flómarkað rauðakrissin á laugadaginn. sjittturinn titturinn. aldrei hef ég komist í jafn geðsjúka gullkistu og þessa. ég missta allt sem ég átti og dó. flóin opnaði kl. 10.00 og ég mætti stundvíslega því ég hafði það á tilfinninguni að fleira fólki myndi láta sjá sig. og ég hafði heldur betur á réttu að standa. ég var í svo þvílíku gransi-leitar-elskulegu-flómarkaðs-stuði að það var ekki venjulegt. ég var sveitt og öll þvöl eins og fíknilyfjasjúklingur á sunnudegi þegar ég kom heim með góssið. x2 kápur (mokka jakk og fína hvíta kápu) x2 svört, loðin inní stígvél (eldgömul, var meira að segja ofan í þeim eldgamall Tími 16ára og gamal sykurpoki) x7 pör af dansskóm (jahh ekki veitir af í safnið), kjól, x2 boli, x2 töskur, x2 loð húfur, pils og buxur. allt þetta á 1500kr. kl. 6 sama dag hringdi ég í heklu og sagði henni frá þessu og ég var enn jafn æst yfir þessu öllu sammen. þeir sem mig þekkja vita það ég get verið ansi æst yfir ýmsum hlutum. heh. sorrí gæs. en því miður runnu mér úr greipum hvítur fléttuskór og leirtau (sem ég hef svo sem ekkert að gera við en það var heldur betur snoturt).

..á meðan þessi bloggfærsla hefur verið rituð hef ég meðan annars: svæft örnu dís, klætt örnu dís, skipta á henni, gengið frá hreinum þvotti, talað við ásgeir í hálftíma, búið um rúmið, kysst efingjan um 500 sinnum ca. sungið og stigið 3 dansspor.
aldrei í mínu lífu hélt ég að ég ætti eftir að segja þetta. en það er gott að vakna snemma.
núna er ég komin í ruglið.
seih seih bíja lof.
guðfinnur.. ertu dáin? ég hef ekki hitt þig í marga daga. lúsgeir.