ég veit ekki hvernig ég er.
það er komið vor. vorið er ekki mitt uppáhaldstímabil. því jú ég er tvíburi og eins og sönnum tvíbura sæmir hef ég ævintýraþrá eins og harry potter á góðum degi. ég vill bara fara. skilja við allt og alla og fara. þannig er ég á vorin. eins og lamb eða kálfur sem Þarf að komast út. gera eitthvað. en um fram allt að vera frjáls eins og fuglin. og eins og hver maður veit þá er það hægara sagt en gert.
vorin er voða flott. gott veður og kósíheit. grillveisla í bakgarðinum. en ég verð eins og ég hreinlega veit ekki hvað.
og talandi um að vita ekkert. þá hef ég ekki enn ákveðið hvað ég ætla að kjósa. samt held ég að ég sé ákveðin.
kosningar puff.. ég á líka afmæli 27maí og það er nú merkilegra en kosningar.
það verður semí tvítugsaafmæli hjá mér 27maí í trölla 804.
ég hef allavegna talað við einhverja og á eftir að tala við einhverja. vonandi komast allir og þá verður sko dansað. rokkprik fyrir mér að eiga afmæli. en ekki hvað? ég nenni samt ekki að grilla eða eitthvað svoleiðis leim. það er ekki töff að borða og fara svo að djamma. nei það veit hver maður.
jæja lifið í lukku en ekki krukku.
9.5.06
30.4.06
afhverju? hann er ekki að djóka. sjitturinn. hann er náttúrlega eitthvap geðveikur. fann þetta á netinu og ætla núna að stökkva fram af svölunum, því lífi mitt er ónýtt. þessi maður eyðilagði það. ekki það að þetta sé gott lag fyrir. en þetta setti puntin yfir ið.
þetta minnir á söngvakeppni framhaldsskólana bekkindadays. heheheh.. já þið vitið.
ég var ótrúlega reið og leið eitthvað illa. en núna er ég glöð. afhverju? því þetta fífl er svo heimsk og það gleður. hahahh. það þarf lítið til að gleðja mann. hehe.
ætla að fá mér jalapenó og mangó ost og kalla á einhver sem er að fara í strax búðina og biðja sá hinn sama um að kaupa kók handa mér og koma með upp til mín. því jú ég er föst heima. heh.. myndiði ekki redda því fyrir mig?
ég er enn úr sambandi útaf hún er að spila. og ég sé hana með mínum augum. með mínum báðum augum. mig dreymdi ahna oft (enda ekki skrítið, hún var alltaf það síðasta sem ég sá þegar ég sofanði) hún kom semsagt í afmælið mitt og við sungum saman. hún sat á rúminu hjá mér og talaði við mig.
ég elska hana.
hmm..
29.4.06
ógeðis akureyri.
það er alltaf vondt veður hér. ALLLTAF. vindós city hvað!!!!
það er gjörsamlega alltaf vindur hér.
þegar maður þarf að setja barnið í skjól, svo það fjúki ekki út í veður og vind þá er mér allri lokið.
hversu mikið sökkar það? jú mikið rétt laxmaður.. MJÖG MIKIÐ.
ég kem frá Blönduósi. þar er alltaf vindur. en núna hef ég búið á Ak. í 2 eða 3 ár og það er stanslaust vondt veður. nei ég man eftir sólarglætu og stillu í veðri þegar við bjuggum upp í furulundi 2004. muniði? heh.
já ég er pirripú út í veður & vind.
en kannski að þessi dagur endi vel. hann byrjaði nú reyndar kósí. vaknaði með drottninguni kl. 6 (hress.. heldur betur) við lögðum okkur svo aftur um 9 og þegar ég vaknaði aftur kl. hálf 11 þá voru þau feðgin búin að útbúa morgunverðarhlaðborð. grafin lax og ristaðar beyglur. (þetta er svona. í gær tannburstaði ég mig 4 sinnum og lagði mig frá 13:51 til 19: 22, gelgjublogg.. só.. fokk jú).
ég hvet alla til að lesa þetta og þetta. kommon.. 12km? er það nóg til að fá fólk til að stroka dósina út? nei held ekki.
talandi um blönudós. ég er staðráðin í að fara á matur&menning í sumar. djamma með gömlum vinum & kunningjum. veit bara ekkert hvernær það er. vona að það sé ekki þegar ég er á kelduni.
ogggg talandi um kelduna (; þá er draumurinn að rætast. eins og fólk man þá var ég mesti skunk anansie fan í geimi. elska þau. þó aðalega skin.. ég var með allt herbergið mitt veggfóðrar í myndum og plagötum af þeim. og hvað haldiði.. hún verður á hróaskeldu. ég á gjörsamlega eftir að líða útaf þegar kellan mætir á svið. líka snildin ein.. í bland við sóló frá henni þá eru gömul og góð skunk lög. sjitt, hún er náttúrlega bara svölust.
jæja ætla að fara í smá laugardagssnúning með örnu dís & heklu.
7mánaða og hefur farið í nokkrar kaffihúsferðir.. heh. hipp og kúl krakki.
EKKI VERA ARTÍ FARTÍ.. BJÓDDU ÖRNU DÍS Í PARTÍ.
Eftirlýsing:
Getur einhver sagt mér eða getur gefið þig fram elsku Sandra Björg Sigurjónsdóttir.
Ég hef verið að hugsa svo mikið um þig og eitthvað spá í hvar í heimageiminum þú ert eða hvað hefur orðið um þig.
komma svo.
22.4.06
afhverju lekur hor?
ef einhvern hefur svar við þessari spurningu þá má endilega láta mig vita.
eða.. afhverju hnerrar maður?
boðar ekki ógjæfu að hnessa 11 sinnum í röð? ég held það.
elías er eins og ekkja sem misst hefur alla 15 mennina sína, það lekur svo úr augunum á honum og nefinu, barnið er með vískírödd á við 19 róna á GÓÐUM degi og ég hnerra eins og hérastubbur bakari (það sagði embla frænka allavegana) hressandi heimilislíf.
páskarnir voru góðir. djamm. já. kannski. þetta talar sínu máli. takk dagný. ég tók hvort sem helmingin af þessum myndum. fór á hjálma. hundddleiðó. kann ekkert af örðum diskinum þeirra og þá var ég bara dauðadæmd. ekki nógu artífartí að taka lög af fyrsta diskinum, neineinei.
búin að fara til rvk og vopnaf. hellings flandur á manni.
keypti eitt & annað í rvk. td. geggjó kjól í kolaportinu.
mánuður í afmælið mitt. sem er 27maí.. ef þú ert froðuhaus og vissir það ekki.
kosingahelgina. gæri ekki beðið um betri helgi, nema helgina fyrir, því þá er júró. en við komust hvort sem er ekkert upp úr forkeppnini þannig að það verður ekkert stuð. ég ætla að halda uppá afmælið mitt og dansa polka með sjerrí í höndini.
viltu vera memm?
..ætla ná í dagný í vinnuna.
bekkindadays.. þá var maður HRESS. heh. þetta er svo bara ég!
6.4.06
5.4.06
ég þoli ekki hvað ég á marga vini/félga/kunningja (ég nota orðið vinur eða vinkona eki oft, enda á það ekki við alltaf) sem ég hjálpa og styð og dansa með en þegar ég þarf hjálp og stuðing og öxl til að skæla á þá eru allir "bissí" eða bara ekki bissí. æ. ó. eða kannski að ég leit ekki eftir hjálpinu. en ef þetta eru vinir manns þarf maður þá endilega að biðja um hjálp og öxl?
hvað er líka málið með að fólk kemur ekki heimsókn. það heyrðist ekki lengur að dyrabjöllu sé hringt. nema það séu börn að safna á ýmindaða tombólu eða þýskur skiptinemi að selja "heimatilbúnar teikningar".
tímin er svo dýrmætur og við alltaf að drífa okkur. engin má missa af þessu og hinu. ræktin, sund, út að hlaupa, leikhús, skóli, vinna, útlönd, djammið (sem tekur nú oft ágætan toll af vinskap og heimsku), allir með tölvurnar kurrandi og marrin yfir sér allan daginn út & inn, allir verða að fá meiri pening, útsala hér og útsala þar, flottir bílar, flott föt og allur þessi pakki, þið kannist við þetta sjitt.
þið eruð öll ofdekruð, sjálfsumglöð, sjálfhverf og full af drulluskít.
það eru svo margir sem hafa gengið sinn veg (ævi sína) algjörlega hnökralaust. ekki þekki ég þann veg en þegar erfingin situr og nagar mæliskeiðar og heddfón og kúkar.. ó já þetta allt í einu, geriði þið betur, þá er hnökralaustlíf ryk í mínum augun.
ég veit það reyndar að ég er ekki hress, ég er þreytt og langar í gimmið (því ég er offffur hædrósíköttuð)
mús er líka helþroskaheft, illa skökk og hlýðir mér als ekki (þá er ég að tala um tölvumúsina)
páskaR SMáskar..
ætla brjóta saman þvott, skella í lagköku, viðra sængurfötin og dansa með mittissvuntu við erlu þorsteinsdóttir (jú þetta er auðvita dulítil kaldhæðni, því hvað er betra en kaldhæðni á miðvikudegi)
?!?!
3.4.06
Allir saman nú..
Það eru bara nokkrir dagar í frægu borgarferðina okkar. Mig hlakkar enn mikið til. Já ég er kannski eins og lítið barn að bíða eftir jólunum. Einföld sál.
Annars er allt við það sama. Allir eiturhressir og fara stækkandi (þá meina ég auðvita og aðallega barnið). Ræktin er tekin með trompi samt ekki jafn miklu trompi og blessuð mágkona mín, enda er ég ekki að fara keppa í fitness. Ég ætla bara að standa á áhorfendapöllunum með spöld og öskur að vopni.
Apríl verður skrítin mánaður. Mikið að gerast, Rvk, páskar, fitness, borða.. en engin mamma. Mikið á ég eftir að sakna hennar. En það verður enn betra að fá hana heim aftur.
Tvö banaslys á Kárahnjúkum. Hmm.. ég set spurningamerki við þetta allt saman. Innst inni er ég Vinstri græn. Talandi um grænt.. helv. snjórin er að sökkva öllum Eyjafiðrum í einum bita. Heimsku páskar. Það er alltaf snjór á páskunum.
Mér líður ekki eins og ég eigi að skrifa blogg. En samt finnst mér ég verða koma einhverju út.
Allt sem þú lest er lygi..
24.3.06
já ég veit það er pirrandi að setja inn texta.
en ef eitthvað í heiminum er satt þá er það þessi texti. og ef dóttir minni verður kennt eitthvað (sem ég ætla nú rétt að vona) þá er það að forðast það að verða svona pía.
Stupid girl, stupid girls, stupid girls
Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Go to Fred Segal, you'll find them there
Laughing loud so all the little people stare
Looking for a daddy to pay for the champagne
(Drop a name)
What happened to the dreams of a girl president
She's dancing in the video next to 50 Cent
They travel in packs of two or three
With their itsy bitsy doggies and their teeny-weeny tees
Where, oh where, have the smart people gone?
Oh where, oh where could they be?
Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, I don't wanna be a stupid girl
(Break it down now)
Disease's growing, it's epidemic
I'm scared that there ain't a cure
The world believes it and I'm going crazy
I cannot take any more
I'm so glad that I'll never fit in
That will never be me
Outcasts and girls with ambition
That's what I wanna see
Disasters all around
World despaired
Their only concern
Will they **** up my hair
Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, I don't wanna be a stupid girl
[Interlude]
Oh my god you guys, I totally had more that 300 calories
That was so not sexy, no
Good one, can I borrow that?
[Vomits]
I WILL BE SKINNY
(Do ya thing, do ya thing, do ya thing)
(I like this, like this, like this)
Pretty will you **** me girl, silly as a lucky girl
Pull my head and suck it girl, stupid girl!
Pretty would you **** me girl, silly as a lucky girl
Pull my head and suck it girl, stupid girl!
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, stupid girl!
Maybe if I act like that, that guy will call me back
What a paparazzi girl, I don't wanna be a stupid girl
Baby if I act like that, flipping my blonde hair back
Push up my bra like that, I don't wanna be a stupid girl
Pink-Stupid girls
það er árið 2006 en ég þekki samt fullt af svona stelpum. hversu fokking sorglegt er það? ef eitthvað í heminum er sorglegt þá eru það þessar týpur. þetta fær mig til að orga og garga og berja hnefanum í borðið.
þetta fær mig líka næstum því til að hætta í ræktini. heheh. nei en þið skiljiði hvað ég meina, er það ekki?
allvegana.. dóttir mín verður ekki ein af þessum svísum. það er bara þannig. sama hvað hún gerir, segjir, vill, ætlar að vera þegar hún verður stór.. þá verður hún ekki þessi svísa.
elska ykkur.
verið góð við ykkur sjálf og standið með ykkur sjálfum, því ef þið gerirð það ekki, hver gerir það þá?
þ t n r bnm m ui vfgghgh
frá dísini minni til ykkar. EKKI VERA GOD DAMH HEIMSK. þó aðalega þið stelpur.
kommma svo
22.3.06



þá dregur maður kaldan hausin upp úr sandinum.


helgin var góð. einkendis af heklu & dagný.
sem er mjöggg gott.
dansað? já það held ég nú..
fór á mestu kvöl & pínu árshátíð sem um getur. oj oj oj oj. en við daggoz vorum OFUR svalar og lékum þema á myndum. fórum svo á barin í boði mömmu & pabba. hahahahah.
elskulegt..
ég kann akkúrat ekkert á þetta.
en það er ágætt.
nenni ekki að reyna laga þetta.
nenni þessu ekki.
14.3.06
í dag eru 25 dagar í að við förum suður.
ég hef ekki stigið fæti í víkina síðan ío maí á síðasta ári. það er hneyklanlegt. við ætlum að fljúga (því hver leggur í það að keyra með 5mánaða dís í 5tíma, allavegna ekki við). ég ætla að versla mér eitt & annað. ætlum að gista hjá írisi frænku og kannski eina nótt í þorlákshöfn, því jújú það er aðal ástæða ferðarinar. harpa frænka er að fara fermast.
ég held að ég heimsins mesti beiler. hekla.. bekkmíöp. en jæja.. gömul kona getur ekki skemmt sér um og of. ..eððða sjáum hvað setur.
ég er alveg sjúk í netverslanir. ég elska að versla á netinu. gera það bara ekki nógu oft. oh. hversu flottir eru þessir? eða þessir?.
talandi um kaup. þá fór ég á flómarkað rauðakrissin á laugadaginn. sjittturinn titturinn. aldrei hef ég komist í jafn geðsjúka gullkistu og þessa. ég missta allt sem ég átti og dó. flóin opnaði kl. 10.00 og ég mætti stundvíslega því ég hafði það á tilfinninguni að fleira fólki myndi láta sjá sig. og ég hafði heldur betur á réttu að standa. ég var í svo þvílíku gransi-leitar-elskulegu-flómarkaðs-stuði að það var ekki venjulegt. ég var sveitt og öll þvöl eins og fíknilyfjasjúklingur á sunnudegi þegar ég kom heim með góssið. x2 kápur (mokka jakk og fína hvíta kápu) x2 svört, loðin inní stígvél (eldgömul, var meira að segja ofan í þeim eldgamall Tími 16ára og gamal sykurpoki) x7 pör af dansskóm (jahh ekki veitir af í safnið), kjól, x2 boli, x2 töskur, x2 loð húfur, pils og buxur. allt þetta á 1500kr. kl. 6 sama dag hringdi ég í heklu og sagði henni frá þessu og ég var enn jafn æst yfir þessu öllu sammen. þeir sem mig þekkja vita það ég get verið ansi æst yfir ýmsum hlutum. heh. sorrí gæs. en því miður runnu mér úr greipum hvítur fléttuskór og leirtau (sem ég hef svo sem ekkert að gera við en það var heldur betur snoturt).
..á meðan þessi bloggfærsla hefur verið rituð hef ég meðan annars: svæft örnu dís, klætt örnu dís, skipta á henni, gengið frá hreinum þvotti, talað við ásgeir í hálftíma, búið um rúmið, kysst efingjan um 500 sinnum ca. sungið og stigið 3 dansspor.
aldrei í mínu lífu hélt ég að ég ætti eftir að segja þetta. en það er gott að vakna snemma.
núna er ég komin í ruglið.
seih seih bíja lof.
guðfinnur.. ertu dáin? ég hef ekki hitt þig í marga daga. lúsgeir.
8.3.06
þá er það ákveðið. ég er sultuhundur 2006. ekki veit ég afhverju eða hvurs vegna, það er bara þannig.
já þið lásuð rétt í seinasta bloggi. mí is góing. yes. ég er enn að þurrka af mér svitan og vitleysuna. ég er búin að borga allt og allt er þannig séð reddí. nema það er ekki komin apríl eða maí eða júní. þannig. en jæja.. vonum að það verði fljótt að líða.
ég ætla að versla mér eitthvað. við hekla ætlum að kíkja í þessar margrómuðu sekkendhand búðir í köben. en þarf samt að senda völu matt email um hvað þær heita.
JÁ.
ég hef líka ákveðið (ekki spyrja afhverju) að fara ekkert í klippingu (sem eg þarf að borga fyrir) fyrr en 2-3vikum fyrir kelduna.
þið sem mig þekkja, vitið að ég klippingusjúklingur. en ég skal kannski standa við þetta.
ég var að byrja á góðri bók. móðir í hjáverkum. þvílíkur glamúr.
við ásgeir erum að spá í að afra á blö á luagdaginn. bara svona túr. ekkkii gista. bara kíkja á liðið. það verður vonandi kósí. allir að mæta á dósina.
svo erum við elías að fara í skírn í hrísey á sunnudaginn hjá gunnari pál & berglindi . eða nei, ekki hjá þeim heldur litla stráknum þeirra. vonandi verður yndislegt veður og þá er svo fallegt í hrísey.
en jæja. ég er farin að sofa ekki seinni en 10 á kvöldin. því jú krakkinn vaknar snemma en snemmt. sei.
gúdd næt.
3.3.06
á ég að segja ykkur mestu gleðifréttir (frá því að drottning mætti á pleisið)
ÉG ER AÐ FARA Á HRÓASKELUDU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
í gær kl. 18:00 fór ég í "djöfull langar mig á hróaskeldu, get ég farið. ég er mamma. má maður þá fara. djöfull langar mig ógeðððlega mikið" og í morgun kl. 10:00 var ég búin að panta flug fyrir bæði mig og heklu og panta miðan fyrir jújú mig og heklu. og búin að borga. HELL YEAH!!
ég er strax komin með niðurgang og æludrullu af spenningi.
jih.
stella í orlofi HVAÐ?
23.2.06
Hvað finnst ykkur um auglýsingarnar frá blátt áfram?
..endilega tjáið ykkur.
17.2.06
Ég sakna:
*Siggu hávaða
*Önnu Margrétar & Sulvíu Rún
*Heiðarbraut 2 (samt myndi ég sakan m+p meira ef þau byggju ekki hér)
*Reykjarvík (ógeðis langt síðan ég hef farið)
*Fullt af fötum sem ég hef gefið, og langar í núna
*Lauga
..hóst já. mér datt þetta bara í hug þegar ég skrapp að pissa áðan.
Djamm í kvöld. já hvað haldiði.. Það er ruglið á manni (; við hekla ætlum að skella okkur út í óvissuna. óli palli er að spila á amor og eitthvað drasl á dátanum. annars veit ég ekkert hvað við ætlum að gera.
arna dís er farin að vakna á ÓKRISTILEGUM tíma og þarf að draga alla með sér í vitleysuna. það er ekki alltaf gaman. en ég er hress. heh. spurning um að fara taka rautt eðalgingsen. nei kannski ekki alveg. ég legg mig ekki einu sinni með henni þegar hún sofnar aftur. þá er ég kannski ekkert svo þreytt.
ég elska bloggið hennar Olgu. ekki veit ég afhverju eða hvers vegna elska líka pink floys.. þó aðalega i wish you where here.
ég á líka mjögg elskulega nágranna. í gær þegar ég var búin að lesa endddalaust mikið í englum & djöflum (sem er btw enddalaust spennó) þá slökkti ég ljósið og þá heyrði ég þennan líka hávaða. einhver fokker að missa vitið á rafmagnsgítar. ég bara húrra! ég sá ragga fyrir mér á stofugólfinu og krissu slammandi í takt. eftir spjall við herra ragnar (nágranna minn) þá komumst við að því að ekki voru þetta þau. það er svo mikið að fokkers fokkerum í þessari blokk. kommon. sei.
ég hata þegar fólk sem ég er fastagestur á bloggum hjá er ekki búin að blogga. þá kalla ég það tussur og öllum illum nöfnum. það er kannski ekki fallegt.
ég elska líka jóga með björk og enn og aftur elska ég alltaf blackbird. ég er búin að heita blackbird á msn í 2ár. það er skrítið. stunda kalla ég líka örnu dís blackbird. ég gerði líka listaverk með blackbird textanum á.
vá hvað hún er flott. dísess.
jæja ætlum niðrí te&kaffi og fá okkur almennilegt kaffi. ríkið? já held það.
13.2.06
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævinna:
Unglingavinnan á dósini (en ekki hvað?)
Sjúkrahúsið á Blö. (þar skreindi ég minn fyrst rass)
Nettó (horbjóður frá helvíti)
Hlíð (líf & fjör)
Fjórar Bíómyndir sem ég held upp á:
Anchorman (bestaaa mynd í geimaheimi)
My best friend wedding
Bridget Jones diary
Dalalíf-Með allt á hreinu-Stella í orlofi
Fjórir Sjónvarpsþættir sem mér líka:
Sex in the city
Friends
Desperatehouse wives
Fréttir
Fjórar síður sem ég nota daglega:
Barnaland
Femin
Amor-Kaffiak-Sjallinn
Topshop.com (nýjasta æðið)
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt:
Danmörk x2
Mallorca
Ísland þvert & endilangt
Fernt Matarkyns sem ég held upp á:
Soðin fiskur
Kjúklingabringur
Ostatartaletturnar mínar
Chilli-rifsberja bollurnar hennar mömmu
Fjórir drykkir sem mer þykir góðir
Vatn
Pepsi max
Kaffi
Trópí
Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
Orlando með Elías, Hörpu & Ásgeiri
Heiðarbrautini okkar hjá m+p (ef þau byggju þar ennþá)
Feneyjum með Elías (því þar ætlar hann að biðja mín.. heh)
Á skrallinu með Heklu (og öllum hinum, yes yes) næsta laugadag.. ví.
uhh þetta var einstaklega leiðinlegt. en það er hinsvegar als ekki leiðinlegt að skoða topshop síðuna.
gimmið gengur vel. ég er hress. allir eru hressir.
já ég ætla að panta mér upp úr HM listanum. og það núna.
sóóó long FOKKFEIS
8.2.06
Jæja ákvað að setja inn eldgamlar myndir. Hef alltaf haft þessar myndir inn í tölvuni hjá mér. Ekki er maður mikið breyttur síðan í 8bekk (jé ræt)ógeðslega gaman að fara í gegnum þessar myndir og skoða. þvílíkt hvað maður hefur breyst.. þetta er náttúrlega aðalega myndir af mér (jösSS) en það er bara þannig.
muniði eftir 100listunum sem tröllreið öllum bloggum 2003? allir að skrifa svona 100 hluti um sjálfan sig. það afnnst mér sniðugt. ég save minn og á hann.. spuring um að skella honum inn við gott tækifæri.
spá í að fara sofa.
látið heyra í ykkur kúkalabbar..
31.1.06
gleði gleði. aðþrengdar eiginkonur (ég er það) er að byrja aftur, hversu mikil snild?
talandi um snild. júrólagið hennar silvíu nótt er lord dem snild. tremma töff. líka snild að þetta hafi "lekið óvart á netið". ég sett það beint í ipodinn og lærði textan á mínótú og fór með þetta í gimmið og dansaði glimmerdansin á milli magaæfingina.
já gimmið er víst komið inná mitt bissí dagsplan. ekki kvarta ég því jújú ég ætla að komast á forsíður séð & heyrt og hér & nú.. "hún var 100kg og orðin 20kg núna, á mánuði" "eftirsóttasta módel ársins" "bjútíkvín of aLL" ..sjáiði þetta ekki fyrir ykkur? hélt það.
djammið var tekið um helgina. jah eða nei. fór til öbbu & auðar, fór svo í afmæli til elsu guðný (til hammó) þar mættu trabant í partí og sungu afmælissöng og létu ekki eins og trabant eiga að gera. drukku hóflega (ekki eins og ég) og töluðu fallega. en viddi var samt í rauðu leðurbuxum sínum, ægilega smart. svo fórum við aðeins á kaffi ak (hahaha) og svo hófst rökræður milli okkar dúnu um að sjallan vs. oddvitan. trabant vann og ég skellti mér oddvitan í nafni elsu guðný og fékk ókeypis inn og vældi út tikket fyrir hekil frænda líka. jösss. eftir að hafa látið einhvern strák skutla mér upp í þorp til að sækja heklu, segið svo að maður geri ekki allt fyrir vini sína. dj Hermigervill spilaði artífartí tóna og ég leit á klukkuna og þá var hún 2 þannig að ég fór heim. þannig endaði sú sjóferð. ekki veit ég afhverju. fór samt í strax og keypti nammi, það var helling að gera þarna um HÁnótt.. seisei.
hvað er þetta með mig og leigubílstjóra? ég þarf ALLTAF að segja "herra leigubílstjóri" og ég þarf ALLLTAF að spyrja þá að einhverjum leiðinlegum spurningum. já ég þessi skemmtilega.
netið er að skíta upp á bak.
blessó
19.1.06
Eitt þykir mér alltaf jafn gaman, það er það að skoða kaffiak síðuna. Afhverju? Jú.. það er alveg einstaklega skrítið fólk sem sækir þennan stað (finnst mér) þetta eru tælendingar, offitusjúklingar, ástsjúkar mellur, háskólapakk (sem er stórrrskrítið upp til hópa) elddddgamalt fólk og fleiri.. fleiri eins og ég og þú. Í þau fáu skipti sem ég hef skransað inn á þennan stað þá er eitthvað allt svo oldís þarna. Tónlistin (ég tek það fram að mér þykir gömul tónlist als ekki leiðinleg, en svona 90' "rokkvælgól" er borrring) allir að leita að að ríða og allir eitthvað svo sjálfhverfir. En ég þarf kannski bara að kynna mér þetta pleis betur, hef svo sem aldrei djammað almennilega þarna, eða svona. En um fram allt þá skoða ég myndir hjá þeim alltaf, og þykir það hell gaman. Æ þið skiljið. Annars finnst mér gaman að vera þar sem skemmtilegt fólk er aka vinir mínir og fólk sem ég þekki. Eins og t.d. um helgina. Þá skelltum við heklz star okkur á fyllerí með meiru. Það var dámmsamlega gaman. Ég var í eldddd gömlum loðbomsum (kuldaskóm af gömlum manni sem lá í gilinu á leiðini niður í bæ, hann vildi endilega lána mér stígvélin) sem eru mín uppáhaldsstígvél og í egals bolnum hennar Heklu og dansaði eins og kúlið hefði aldrei inn um mínar varir farið. Á meðan fermingasystur og bræður gátu varla hreyft sig að ótta að missa þetta NÝfundna kúl. sjitt þetta var svo gaman. Ég geri grín af svona fólki. Það getur ekki dansað, það getur ekki sleppt sér og misst sig því það er svo hrætt við að aðrir halda að það sé "ekki kúl". Ég misst það aftur og aftur og naut mín í botn. Þannig á það að vera. Við Hekla gátum kannski sjáfum okkur um kennt, við vorum náttúrlega á hipp&kúl staðnum Amor. Það eru bara glimmerdrottningar & teppahommar (finni nótt, hell yeah). Reyndar var bolurinn svolítið stuttur á mig og ég var alltaf að toga hann niður, það var kannski ekki svo kúl. Bumban farin að vella út um allt og allir drukkna. Nei ég segi svona.
Er það djellípartí hjá meistara Guðfinnu & herramanninum Baldvini á laugardaginn? Sjáum til sjáum til. Fyrir utan að ég hef átt í miklli tilvistarkreppu í sambandi við "að vera mamma, barn, út að skemmta sér, fólk, álit annara rugl" þá fer Elías líka að vinna kl. 8 á sunnudagsmorgunum. hmm. Jæja þetta ræðst allt saman.
Bóndadagurinn á morgun, hvað skal gera?
Ég og Guðfinna fórum í sund í dag.. þvííílíkt gott. Ég hef heldur aldrei verið jafn lengi í sundi. Og til að toppa alla mína gleði þessa daga þá kom nýju HM listinn, jissssúss minn og guð hvað ég varð glöð. Ahhh that make my day.. week & month even year. Nei kannski ekki alveg.
Segum þetta gott í bili.
hefur ekkert annað að gera?
Ásgeir, Harpa & Embla Blöndal koma líka heim á Laugadaginn, jih hvað ég hlakka til.
Vikoría Jóhannsdóttir aka Toría Gloría.
17.1.06
1. Hver ertu?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það?
7. Lýstu mér í þremur orðum?
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkir þú mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað að segja mér eikkað en ekki getað sagt það?
11.1.06
ég ætla ekki að ræða DV í þessu bloggi.
það er í manni janúar þunglyndi. sjitt. ég er að skíta uppá bak. það vantar fleiri búðir á ak. ég arkaði í bæin með pokked fúll off kas (segi það nú ekki alveg) og ætlaði að kaupa mér smá gleði. keypti, eldhúsborð, 4 eldhússtóla, peysu, body skrúbb, expressókaffi, gloss, kamb og sitthvað fleira. gleðin lét samt á sér kræla. oh. ætlaði í heimsókn til ragnars. en nei, hann var ekki heima. ég þoli ekki janúar. ég var líka svona í fyrra.
mataræðið gengur vel hjá mér. eitt lítið rokkprik yfir því.
rjómakettirnir (aka nágrannarnir aka ásgeir & harpa) eru út í orlando núna. sökkers. nei. ég öfunda þau eiginlega alveg hell mikið. fékk sms frá kvikindunum í dag "blabla vorum að vakna blabla erum að fara í mollið blabla erum svo að fara í sólbað blabla" fokkfeis. nei oki. róleg. vonandi skemmta þau sér ógó mikið. veit líka að þegar þau koma heim þá verður annar í jólum hjá okkur. húrrí. sakna líka emblu. það er svo ofur rólegt hérna í tröllagilinu núna. BORING.
heyrðu mig nú. ég er nú kannski ekki alveg á svona miklum blús. þetta eru örlitlar ýkjur. já meira segja nokkuð miklar.
ég var hjá mömmu og pabba um daginn. og ég og mamma sitjum inn í stofu og svo heyrist allt í einu í Silvíu Nótt frami í eldhúsi. "ætlaru ekki að svara í síma, skiluru, símin er að hringja skillur, hallló" eh svona sjitt. ég vara "waaaaaw? haldiði að pabbi sé þá ekki með einhverja voðalega silvíu night hringingu. lord. heh.
gleymdi líka að segja frá 2005 að auðvita fluttu mamma og pabbi og tumi á akureyri. það var stórrrr viðburður.
jæja.. mín er vænst inn í bóli.
GUÐFINNA.. HVAR ERTU ÞEGAR MAÐUR ÞARF Á ÞÉR AÐ HALDA? sömmmmin þín.