14.3.06

í dag eru 25 dagar í að við förum suður.
ég hef ekki stigið fæti í víkina síðan ío maí á síðasta ári. það er hneyklanlegt. við ætlum að fljúga (því hver leggur í það að keyra með 5mánaða dís í 5tíma, allavegna ekki við). ég ætla að versla mér eitt & annað. ætlum að gista hjá írisi frænku og kannski eina nótt í þorlákshöfn, því jújú það er aðal ástæða ferðarinar. harpa frænka er að fara fermast.

ég held að ég heimsins mesti beiler. hekla.. bekkmíöp. en jæja.. gömul kona getur ekki skemmt sér um og of. ..eððða sjáum hvað setur.
ég er alveg sjúk í netverslanir. ég elska að versla á netinu. gera það bara ekki nógu oft. oh. hversu flottir eru þessir? eða þessir?.
talandi um kaup. þá fór ég á flómarkað rauðakrissin á laugadaginn. sjittturinn titturinn. aldrei hef ég komist í jafn geðsjúka gullkistu og þessa. ég missta allt sem ég átti og dó. flóin opnaði kl. 10.00 og ég mætti stundvíslega því ég hafði það á tilfinninguni að fleira fólki myndi láta sjá sig. og ég hafði heldur betur á réttu að standa. ég var í svo þvílíku gransi-leitar-elskulegu-flómarkaðs-stuði að það var ekki venjulegt. ég var sveitt og öll þvöl eins og fíknilyfjasjúklingur á sunnudegi þegar ég kom heim með góssið. x2 kápur (mokka jakk og fína hvíta kápu) x2 svört, loðin inní stígvél (eldgömul, var meira að segja ofan í þeim eldgamall Tími 16ára og gamal sykurpoki) x7 pör af dansskóm (jahh ekki veitir af í safnið), kjól, x2 boli, x2 töskur, x2 loð húfur, pils og buxur. allt þetta á 1500kr. kl. 6 sama dag hringdi ég í heklu og sagði henni frá þessu og ég var enn jafn æst yfir þessu öllu sammen. þeir sem mig þekkja vita það ég get verið ansi æst yfir ýmsum hlutum. heh. sorrí gæs. en því miður runnu mér úr greipum hvítur fléttuskór og leirtau (sem ég hef svo sem ekkert að gera við en það var heldur betur snoturt).

..á meðan þessi bloggfærsla hefur verið rituð hef ég meðan annars: svæft örnu dís, klætt örnu dís, skipta á henni, gengið frá hreinum þvotti, talað við ásgeir í hálftíma, búið um rúmið, kysst efingjan um 500 sinnum ca. sungið og stigið 3 dansspor.
aldrei í mínu lífu hélt ég að ég ætti eftir að segja þetta. en það er gott að vakna snemma.
núna er ég komin í ruglið.
seih seih bíja lof.
guðfinnur.. ertu dáin? ég hef ekki hitt þig í marga daga. lúsgeir.

8.3.06

þá er það ákveðið. ég er sultuhundur 2006. ekki veit ég afhverju eða hvurs vegna, það er bara þannig.

já þið lásuð rétt í seinasta bloggi. mí is góing. yes. ég er enn að þurrka af mér svitan og vitleysuna. ég er búin að borga allt og allt er þannig séð reddí. nema það er ekki komin apríl eða maí eða júní. þannig. en jæja.. vonum að það verði fljótt að líða.
ég ætla að versla mér eitthvað. við hekla ætlum að kíkja í þessar margrómuðu sekkendhand búðir í köben. en þarf samt að senda völu matt email um hvað þær heita.
JÁ.

ég hef líka ákveðið (ekki spyrja afhverju) að fara ekkert í klippingu (sem eg þarf að borga fyrir) fyrr en 2-3vikum fyrir kelduna.
þið sem mig þekkja, vitið að ég klippingusjúklingur. en ég skal kannski standa við þetta.
ég var að byrja á góðri bók. móðir í hjáverkum. þvílíkur glamúr.
við ásgeir erum að spá í að afra á blö á luagdaginn. bara svona túr. ekkkii gista. bara kíkja á liðið. það verður vonandi kósí. allir að mæta á dósina.
svo erum við elías að fara í skírn í hrísey á sunnudaginn hjá gunnari pál & berglindi . eða nei, ekki hjá þeim heldur litla stráknum þeirra. vonandi verður yndislegt veður og þá er svo fallegt í hrísey.
en jæja. ég er farin að sofa ekki seinni en 10 á kvöldin. því jú krakkinn vaknar snemma en snemmt. sei.
gúdd næt.

3.3.06

á ég að segja ykkur mestu gleðifréttir (frá því að drottning mætti á pleisið)
ÉG ER AÐ FARA Á HRÓASKELUDU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
í gær kl. 18:00 fór ég í "djöfull langar mig á hróaskeldu, get ég farið. ég er mamma. má maður þá fara. djöfull langar mig ógeðððlega mikið" og í morgun kl. 10:00 var ég búin að panta flug fyrir bæði mig og heklu og panta miðan fyrir jújú mig og heklu. og búin að borga. HELL YEAH!!
ég er strax komin með niðurgang og æludrullu af spenningi.
jih.
stella í orlofi HVAÐ?

23.2.06

Hvað finnst ykkur um auglýsingarnar frá blátt áfram?
..endilega tjáið ykkur.

17.2.06

Ég sakna:

*Siggu hávaða
*Önnu Margrétar & Sulvíu Rún
*Heiðarbraut 2 (samt myndi ég sakan m+p meira ef þau byggju ekki hér)
*Reykjarvík (ógeðis langt síðan ég hef farið)
*Fullt af fötum sem ég hef gefið, og langar í núna
*Lauga
..hóst já. mér datt þetta bara í hug þegar ég skrapp að pissa áðan.

Djamm í kvöld. já hvað haldiði.. Það er ruglið á manni (; við hekla ætlum að skella okkur út í óvissuna. óli palli er að spila á amor og eitthvað drasl á dátanum. annars veit ég ekkert hvað við ætlum að gera.
arna dís er farin að vakna á ÓKRISTILEGUM tíma og þarf að draga alla með sér í vitleysuna. það er ekki alltaf gaman. en ég er hress. heh. spurning um að fara taka rautt eðalgingsen. nei kannski ekki alveg. ég legg mig ekki einu sinni með henni þegar hún sofnar aftur. þá er ég kannski ekkert svo þreytt.

ég elska bloggið hennar Olgu. ekki veit ég afhverju eða hvers vegna elska líka pink floys.. þó aðalega i wish you where here.
ég á líka mjögg elskulega nágranna. í gær þegar ég var búin að lesa endddalaust mikið í englum & djöflum (sem er btw enddalaust spennó) þá slökkti ég ljósið og þá heyrði ég þennan líka hávaða. einhver fokker að missa vitið á rafmagnsgítar. ég bara húrra! ég sá ragga fyrir mér á stofugólfinu og krissu slammandi í takt. eftir spjall við herra ragnar (nágranna minn) þá komumst við að því að ekki voru þetta þau. það er svo mikið að fokkers fokkerum í þessari blokk. kommon. sei.
ég hata þegar fólk sem ég er fastagestur á bloggum hjá er ekki búin að blogga. þá kalla ég það tussur og öllum illum nöfnum. það er kannski ekki fallegt.
ég elska líka jóga með björk og enn og aftur elska ég alltaf blackbird. ég er búin að heita blackbird á msn í 2ár. það er skrítið. stunda kalla ég líka örnu dís blackbird. ég gerði líka listaverk með blackbird textanum á.
vá hvað hún er flott. dísess.
jæja ætlum niðrí te&kaffi og fá okkur almennilegt kaffi. ríkið? já held það.

13.2.06

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævinna:
Unglingavinnan á dósini (en ekki hvað?)
Sjúkrahúsið á Blö. (þar skreindi ég minn fyrst rass)
Nettó (horbjóður frá helvíti)
Hlíð (líf & fjör)

Fjórar Bíómyndir sem ég held upp á:
Anchorman (bestaaa mynd í geimaheimi)
My best friend wedding
Bridget Jones diary
Dalalíf-Með allt á hreinu-Stella í orlofi

Fjórir Sjónvarpsþættir sem mér líka:
Sex in the city
Friends
Desperatehouse wives
Fréttir

Fjórar síður sem ég nota daglega:
Barnaland
Femin
Amor-Kaffiak-Sjallinn
Topshop.com (nýjasta æðið)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt:
Danmörk x2
Mallorca
Ísland þvert & endilangt

Fernt Matarkyns sem ég held upp á:
Soðin fiskur
Kjúklingabringur
Ostatartaletturnar mínar
Chilli-rifsberja bollurnar hennar mömmu

Fjórir drykkir sem mer þykir góðir
Vatn
Pepsi max
Kaffi
Trópí

Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna:
Orlando með Elías, Hörpu & Ásgeiri
Heiðarbrautini okkar hjá m+p (ef þau byggju þar ennþá)
Feneyjum með Elías (því þar ætlar hann að biðja mín.. heh)
Á skrallinu með Heklu (og öllum hinum, yes yes) næsta laugadag.. ví.

uhh þetta var einstaklega leiðinlegt. en það er hinsvegar als ekki leiðinlegt að skoða topshop síðuna.
gimmið gengur vel. ég er hress. allir eru hressir.
já ég ætla að panta mér upp úr HM listanum. og það núna.
sóóó long FOKKFEIS

8.2.06

Jæja ákvað að setja inn eldgamlar myndir. Hef alltaf haft þessar myndir inn í tölvuni hjá mér. Ekki er maður mikið breyttur síðan í 8bekk (jé ræt)ógeðslega gaman að fara í gegnum þessar myndir og skoða. þvílíkt hvað maður hefur breyst.. þetta er náttúrlega aðalega myndir af mér (jösSS) en það er bara þannig.
muniði eftir 100listunum sem tröllreið öllum bloggum 2003? allir að skrifa svona 100 hluti um sjálfan sig. það afnnst mér sniðugt. ég save minn og á hann.. spuring um að skella honum inn við gott tækifæri.
spá í að fara sofa.
látið heyra í ykkur kúkalabbar..

31.1.06

gleði gleði. aðþrengdar eiginkonur (ég er það) er að byrja aftur, hversu mikil snild?
talandi um snild. júrólagið hennar silvíu nótt er lord dem snild. tremma töff. líka snild að þetta hafi "lekið óvart á netið". ég sett það beint í ipodinn og lærði textan á mínótú og fór með þetta í gimmið og dansaði glimmerdansin á milli magaæfingina.
já gimmið er víst komið inná mitt bissí dagsplan. ekki kvarta ég því jújú ég ætla að komast á forsíður séð & heyrt og hér & nú.. "hún var 100kg og orðin 20kg núna, á mánuði" "eftirsóttasta módel ársins" "bjútíkvín of aLL" ..sjáiði þetta ekki fyrir ykkur? hélt það.
djammið var tekið um helgina. jah eða nei. fór til öbbu & auðar, fór svo í afmæli til elsu guðný (til hammó) þar mættu trabant í partí og sungu afmælissöng og létu ekki eins og trabant eiga að gera. drukku hóflega (ekki eins og ég) og töluðu fallega. en viddi var samt í rauðu leðurbuxum sínum, ægilega smart. svo fórum við aðeins á kaffi ak (hahaha) og svo hófst rökræður milli okkar dúnu um að sjallan vs. oddvitan. trabant vann og ég skellti mér oddvitan í nafni elsu guðný og fékk ókeypis inn og vældi út tikket fyrir hekil frænda líka. jösss. eftir að hafa látið einhvern strák skutla mér upp í þorp til að sækja heklu, segið svo að maður geri ekki allt fyrir vini sína. dj Hermigervill spilaði artífartí tóna og ég leit á klukkuna og þá var hún 2 þannig að ég fór heim. þannig endaði sú sjóferð. ekki veit ég afhverju. fór samt í strax og keypti nammi, það var helling að gera þarna um HÁnótt.. seisei.
hvað er þetta með mig og leigubílstjóra? ég þarf ALLTAF að segja "herra leigubílstjóri" og ég þarf ALLLTAF að spyrja þá að einhverjum leiðinlegum spurningum. já ég þessi skemmtilega.
netið er að skíta upp á bak.
blessó

19.1.06

Eitt þykir mér alltaf jafn gaman, það er það að skoða kaffiak síðuna. Afhverju? Jú.. það er alveg einstaklega skrítið fólk sem sækir þennan stað (finnst mér) þetta eru tælendingar, offitusjúklingar, ástsjúkar mellur, háskólapakk (sem er stórrrskrítið upp til hópa) elddddgamalt fólk og fleiri.. fleiri eins og ég og þú. Í þau fáu skipti sem ég hef skransað inn á þennan stað þá er eitthvað allt svo oldís þarna. Tónlistin (ég tek það fram að mér þykir gömul tónlist als ekki leiðinleg, en svona 90' "rokkvælgól" er borrring) allir að leita að að ríða og allir eitthvað svo sjálfhverfir. En ég þarf kannski bara að kynna mér þetta pleis betur, hef svo sem aldrei djammað almennilega þarna, eða svona. En um fram allt þá skoða ég myndir hjá þeim alltaf, og þykir það hell gaman. Æ þið skiljið. Annars finnst mér gaman að vera þar sem skemmtilegt fólk er aka vinir mínir og fólk sem ég þekki. Eins og t.d. um helgina. Þá skelltum við heklz star okkur á fyllerí með meiru. Það var dámmsamlega gaman. Ég var í eldddd gömlum loðbomsum (kuldaskóm af gömlum manni sem lá í gilinu á leiðini niður í bæ, hann vildi endilega lána mér stígvélin) sem eru mín uppáhaldsstígvél og í egals bolnum hennar Heklu og dansaði eins og kúlið hefði aldrei inn um mínar varir farið. Á meðan fermingasystur og bræður gátu varla hreyft sig að ótta að missa þetta NÝfundna kúl. sjitt þetta var svo gaman. Ég geri grín af svona fólki. Það getur ekki dansað, það getur ekki sleppt sér og misst sig því það er svo hrætt við að aðrir halda að það sé "ekki kúl". Ég misst það aftur og aftur og naut mín í botn. Þannig á það að vera. Við Hekla gátum kannski sjáfum okkur um kennt, við vorum náttúrlega á hipp&kúl staðnum Amor. Það eru bara glimmerdrottningar & teppahommar (finni nótt, hell yeah). Reyndar var bolurinn svolítið stuttur á mig og ég var alltaf að toga hann niður, það var kannski ekki svo kúl. Bumban farin að vella út um allt og allir drukkna. Nei ég segi svona.

Er það djellípartí hjá meistara Guðfinnu & herramanninum Baldvini á laugardaginn? Sjáum til sjáum til. Fyrir utan að ég hef átt í miklli tilvistarkreppu í sambandi við "að vera mamma, barn, út að skemmta sér, fólk, álit annara rugl" þá fer Elías líka að vinna kl. 8 á sunnudagsmorgunum. hmm. Jæja þetta ræðst allt saman.
Bóndadagurinn á morgun, hvað skal gera?
Ég og Guðfinna fórum í sund í dag.. þvííílíkt gott. Ég hef heldur aldrei verið jafn lengi í sundi. Og til að toppa alla mína gleði þessa daga þá kom nýju HM listinn, jissssúss minn og guð hvað ég varð glöð. Ahhh that make my day.. week & month even year. Nei kannski ekki alveg.
Segum þetta gott í bili.
hefur ekkert annað að gera?
Ásgeir, Harpa & Embla Blöndal koma líka heim á Laugadaginn, jih hvað ég hlakka til.
Vikoría Jóhannsdóttir aka Toría Gloría.

17.1.06

1. Hver ertu?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu af hverju þú valdir það?
7. Lýstu mér í þremur orðum?
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkir þú mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað að segja mér eikkað en ekki getað sagt það?

11.1.06

ég ætla ekki að ræða DV í þessu bloggi.
það er í manni janúar þunglyndi. sjitt. ég er að skíta uppá bak. það vantar fleiri búðir á ak. ég arkaði í bæin með pokked fúll off kas (segi það nú ekki alveg) og ætlaði að kaupa mér smá gleði. keypti, eldhúsborð, 4 eldhússtóla, peysu, body skrúbb, expressókaffi, gloss, kamb og sitthvað fleira. gleðin lét samt á sér kræla. oh. ætlaði í heimsókn til ragnars. en nei, hann var ekki heima. ég þoli ekki janúar. ég var líka svona í fyrra.
mataræðið gengur vel hjá mér. eitt lítið rokkprik yfir því.
rjómakettirnir (aka nágrannarnir aka ásgeir & harpa) eru út í orlando núna. sökkers. nei. ég öfunda þau eiginlega alveg hell mikið. fékk sms frá kvikindunum í dag "blabla vorum að vakna blabla erum að fara í mollið blabla erum svo að fara í sólbað blabla" fokkfeis. nei oki. róleg. vonandi skemmta þau sér ógó mikið. veit líka að þegar þau koma heim þá verður annar í jólum hjá okkur. húrrí. sakna líka emblu. það er svo ofur rólegt hérna í tröllagilinu núna. BORING.
heyrðu mig nú. ég er nú kannski ekki alveg á svona miklum blús. þetta eru örlitlar ýkjur. já meira segja nokkuð miklar.
ég var hjá mömmu og pabba um daginn. og ég og mamma sitjum inn í stofu og svo heyrist allt í einu í Silvíu Nótt frami í eldhúsi. "ætlaru ekki að svara í síma, skiluru, símin er að hringja skillur, hallló" eh svona sjitt. ég vara "waaaaaw? haldiði að pabbi sé þá ekki með einhverja voðalega silvíu night hringingu. lord. heh.
gleymdi líka að segja frá 2005 að auðvita fluttu mamma og pabbi og tumi á akureyri. það var stórrrr viðburður.
jæja.. mín er vænst inn í bóli.
GUÐFINNA.. HVAR ERTU ÞEGAR MAÐUR ÞARF Á ÞÉR AÐ HALDA? sömmmmin þín.

8.1.06

til hamingju með jól & nýja árið. takk fyrir gamla.
jólin búin og áramótin líka og þrettándin og allur pakkinn.
ég þoli ekki blogg sem eru svona "jih ég borðaði svo mikið, jih ég hafði það svo gott um jólin og eh".
2005: ólétta útí eitt. barn. bjúgur. læknisheimsóknir uppá næstum hvern dag. gleði. hamingja. grátur. labbitúrar. svefn. latibær. raunveruleikaþættir. sjónvarp. tölvan. blogg. sjitt.. já ég nenni þessu nú eiginlega ekki.
nýtt ár. ný manneskja. er það ekki málið á öllum áramótum? sjáum hvað setur.
mæli með grænum kosti bókini. algjör fokkes snild.
fokk.
ps. ég þoli heldur ekki þegar fólk afsakar sig á blogginu ef það hefur ekki skrifað lengi. og líka þegar svona fólk er að skrifa um vini sína og segir alltaf þetta "ég elska hann geggjó mikið" þoli ekki þegar fólk notar orðið elska, þegar það meinar það kannski ekkert.

20.12.05

Haldið að ég sé ekki búin að setja inn nýjar myndir. ansi langt síðan maður hefur gert það. helling helling af partí myndum síðan á laugadaginn.
það var helvíti gaman (má til með að muna að setja ekki tilkynningu um partí á heimasíðuna mína, því það lesa hana margir, hehe) og mikið stuð. það var auððvita hell mikið af fólki inda sjall en það var gaman samt. mér fannst það allavegna. þó að sumir hafi ekki skemmt sér eins vel. hann eyddi víst öllu ballinu í að leita af mér. heh. æ. greiið.
en ég veit nú ekki hvort maður fari að djamma eh á næstunni. ég varð samt ekkert þunn á sunnudaginn (sem er jákvætt) ég missti reyndar alveg röddina, en hún er svona að skríða saman aftur.
líka svoo fyndið hvað maður verður alltaf svakalega vinsæll þegar maður heldur partí og eh. heh. æ elskulega fólk.

heh. ég er búin að vera hérna í tölvuni og arna dís að vokra át í gimminu sínu (leikteppi með hangandi dót yfir sér) og svo lít ég á kellu og þá er hún búin að snúa sér. með rassin útí loftið og sefur. heh. litli kappinn minn.
í gær vaknaði ég (eins og aðra daga) og fattaði að ég átti eftir að kaupa allar jólagjafinrar og skirfa jólakort, þrífa, kaupa jólanammi og baka. en hvað gerði ég? ég tók þessu með starki ró og keypti jólaöl og tobleron. ví. elías og ég ætlum að fara í bæin í dag eða á morgun og verlsa. svo höfum við farið 4 síðustu ár út að borða fyrir jólin, spurning hvort við gerum það ekki bara í dag eða morgun.
en jæjaaa.. ætla að borða á meðan dýrólfur sefur.
love and kisses.
vikkozzz night

15.12.05

var að spá í að skipta um blogg. en vegna miklar pressu frá dúddanum þá held ég þessari bara. hef verið með hana í 3-4ár. pælið í því. já pælum aðeins í því.
þá er des. uppbótin komin og allir sérdeilis glaðir yfir því. ég gæti keypt mér nýja myndavél eða föt. kannski maður kaupi sér djammgalla fyrir helgina. partí partí. ég vona bara að það verði gaman. lofiði ekki hörku stemmara?
ég er svo gráðug þessa dagan. mig langar bara í osta, pestó, fetaost, tebleron, súkkulaði og eitthvað ógeð. ég er rosssaleg.
ef þetta er ekki besta í geimi. eða das sjitt. jih ég skammaðist mín fyrst til að skoða blogg sem ég kannast ekkert við. en núna stend ég upp og viðurkenni.
HÆ ÉG HEITI VIKTORÍA OG ÉG ER BLOGGSJÚKLINGUR! koma svo.. ég veit að margir sem skoða þetta blogg eru líka bloggsjúklingar. kommmma svoo, standið upp og viðurkennið þessa sýki. þetta er ekki forvitni, eða ég held ekki. þetta er bara eithvern fíkn. eða eitthvað.
ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það "hvað eigum við að borða?" ég spyr elías að þessu svona 3 á dag og hann spyr mig að þessu svona 3 á dag. ég er ekki að kidda. og svo vitum við aldrei neitt. "nei hvað langar þig í, nei en þig"? lalala. óþolandi.
ætla ekki allir að djamma um helgina?
kv. sokkermom

7.12.05

jólin jólin, jólin koma brátt.
ég er ekki jólabarn. ég fæ aldrei fiðring og sting í mallan út af jólnum. veit ekki afhverju það er. mér finnst gaman á jólnum en verð ekkert ofur spennt. það er líka kannski allt í lagi. ég er nú samt byrjuð að skrifa jólakort. ætlum að senda öllum ættingjum og vinum sem hafa hitt og sent litlu snúlluni gjafir og það eru sko mjög margir. og auðvita er verður mynd af litla kappanum. en ekki hvað? (;

svo 17des ætlum við að djamma. þá verður sálin í sjallanum (sem mér finnst ekkert spes, en ef ég þekki akureyringa rétt þá verða allir að djamma þá) og við ætlum meira að segja að halda partí. og ykkur er boðið. þá er elías líka búin í prófum og þá getum við djammað saman. arna dís verður í pössun hjá ásgeiri og hörpu. ég kvíð kannski smá yfir því, en það reddast.
við höfum aldrei haldið almennilega partí hérna í tröllagilinu. má bara til með að muna að láta nágrannana (upp, niðri og til hliðar) vita að þessu partíi. mér finnst það lámarks kurteisi að tala við nágrannan og segja þeim frá þessu. við erum líka svo ótrúlega heppin með það að eiga alveg yndilega nágranna.
ellen pellen ætlar meira að segja að koma á ak og djamma með okkur þessa helgi. mikið hlakkar mig til. víííí. parrrrrrrrtí.
mamma er að gera geððveikt flotta lopapeysu á mig.
lilja systir hörpu er að fara klippa og lita okkur elías á eftir. húrrí.
æ já.

28.11.05

blogg smogg.
búin að skreyta aðeins í tröllagilinu, smá smá. þarf fleiri seríur.
skrítið.. það kemur alltaf steikanslaukslykt af mér þegar ég hef verið að bardúsa eitthvað með kaffikönnuna okkkar. það er einkennilegt. má til með að muna að kanna það.
ég kíkti út um helgina.
já nú glenniði upp glirnurnar. já ég kíkti á lífið. fór í jólahlaðborð hjá vinnuni og kíkti svo með guðfinnu og kreisí baldvin (ágætist grei, fínasta skinn) út. fórum á kaffi ak, sem var verið að opna eftir breytingar og þar var fullt af fríu áfengi í boði, en samt varð ég ekkert full, sem er einkennilegt. en við guðfinna vorum bara skolli hressar eða kannski bara tremma töff. við fórum nú samt bara heim um 1 eða 2 leitið. og daginn eftir var ég ekkert þunn eða eftir mig. húrrí.
var að skoða kaffi
ak síðuna
og djöfull er til mikið af öglí fólki. oj. ég er náttúrlega alveg tremma kúl.. ógggislega töff. æ þið vitið.

jólagjafalitli 2005:

digital myndavél
nikita peysu
nikita bol
rauða nike skó
renda hettapeysu nike
jonh lennon best of diskinn (working class hero - the definitive lennon)
lennon ævisöguna
gimmföt (nei ég vill ekki latexgalla með glimmeri, eða.. jú. nei)
og munið að það er best að STICK TO THE LIST!!!! nei bara.

það er partí á fimmtudag. batselorpartí + ástarfleygspartí. mikið hlakkar í mér. helst af því að elskulegur ástarpungs ragnar kemur í sjónvarpinu. dúna ætlar að mæta í partí. og arna dís auðvita. ekki má gleyma henni.
jæja svefn.

16.11.05

Hvurning datt mér í hug að ætla í aðhald í byrjun aðventurnar? Já hvurning? Sei ég veit það ekki. En nú er ég hætt við aðhald fram yfir nýja árið. Þá skal skunda til ræktar og heilsusamlegs lífernis. Sé fram á að áramótaheitið verði "aldrei aftur nammi og fara í ræktina 3 á dag." Nei anskotin hafi það, bull og vitleysa.
Annars er gott að frétt af Toríu. Hætt með ungan á brjósti (þoldi ekki andstyggðar móðurmjólkina sem ég hafði upp á að bjóða) og hún dafnar vel og er að verða ansi pattaraleg, eins og hún á að vera. Maður getur þá kannski farið að fara eitthvað út, kaffihús eða eitthvað. Langar ógurleg á kaffihús eða í sund. Sund, hvað er það? Keypti mér allavegana sundbol í dag. Og hann er ekki ljósblár og gegnsær (eins og bikínið mitt í sumar.)
Kíkti í bæinn í dag. Fékk mér auðvita cappuccino og röltu mér svo í Bókval og hékk þar í klukkustund eða svo, las næstum alla Jonh Lennon ævisögu og Ojbarasta vastu að freta Fróði? Sú bók er náttúrlega ein sú besta og það er bókað mál hver fær hana í jólagjöf frá hverjum. Semsagt Embla frænka frá mér. Ég komst líka að því, mér til miklar skelfinar að mig langar í nokkrar flíkur úr ógeðis búlluni Centro. Já ég skammast mín og ég veit ekki hvort ég muni láta undan því og fá mér þessar flíkur því ég þoli ekki þessa búð. Oj. Sé til sé til. Ég þoli ekki þessa búllu því, manni er aldrei boðið góðan daginn þegar maður kemur þarna inn og svo er ógeðis fólk að vinna þarna sem heldur að það sé gebba kúl því það á þessa búð eða what ever. Svo syngur beyglan við afgreiðsluborðið með Sálini. Sjá frekari röfl frá mér um þetta í Velvakandi einhvertíman í sumar. Og já ég sendi bréf í Velvakandi. Velvakandi er líka fyrir tremma trendí fólk eins og mig.

Spurning er, á maður að skella sér á Hjálma, 10des? Fyrsta djammið? Spurning um að gera þetta bara almennilega og halda kannski teiti bara og eitthvað. Ha? Hvernig líst mönnum á það?
Það er annars jólahlaðborð hjá vinnuni 25nóv, damh ég hlakka til. Það var svo hriklega gott í fyrra og verður vonandi enn betra núna. Svo er síðbúin jólabröns með jólabjór og látum á laugadaginn hjá mömmu og pabba. Jólabjórskynning eins og fólk vill kalla það.
Núna er komin háttatími. Elías situr fyrir framan sjónvarpið eins og krakkagrís á aðfangadagskvöld, hann fékk 6 þætti úr nýju Lost seríuni. Spennó spennó.
Ælta aftur í bæin á morgun og verlsa eitthvað, buxur og eitthvað. Vill einhver koma með mér?

Silvía Nótt,
Sofðu rótt,
í alla nótt,
að eilífðu,
AMEN.




Ætlar einhver að reyna að segja mér að þið séuð ekki pínu skotin í henni?

9.11.05

hvaðððða haldiði. ég brann svo eftir þennan ógeðis ljósatíma sem ég skellti mér í um daginn að ég fékk bólgur á milli brjóstana og flagnaði og svo eru núna eins og fullt af litlum bitum á milli brjóstana á mér. ógeð ógeð ógeð. hvað segir þetta manni? æ ég veit það ekki. kannski að þegar maður hefur ekki farið í ljós í ár að fara þá ekki í túrbó bekk. og það stóð líka útum allt "nýjar perur, notið sólarvörn" en nei. kappin ég notaði auðvita ekki sólarvörn, það er bara fyrir aumingja. sé eftir því að vera kappi, en maður verður að lifa með því.

7 hlutir sem ég vil gera áður en ég dey:
Eignast sex in the city seríurnar (allar)
Fá sixpekk á magan
Búa í útlöndum
Gifta mig
Syngja fyrir framan fólk
Byrja spila fótbolta aftur
Fara á Hróaskeldu

7 hlutir sem ég get:
Knúsað og kysst Örnu Dís endalaust
Sungið
Horft á sex in the city í 4tíma samfleytt
Gert góðan mat
Tekið til í tíma & ótíma
Klórað og pínt bróðir vor
Verið kærulaus

7 hlutir sem ég get ekki:
Sungið fyrir framan fólk
Verið mjög þolinmóð
Hugsað allt til enda
Látið vaða yfir mig
Djammað á láu nótunum
Drukkið malibú
Stokkið upp í flugvél og farið til Indlands

7 frægir sem heilla:
Thierry Henry
Villi naglbítur
Freddie Ljungberg
Seth í O.C.
Gísli Marteinn (ekki spyrja mig afhverju)


7 orð sem ég segi oftast:
Fokk
Sjitt
Elías
Viltu rétt mér þetta?
Æla
Hvað eigum við að hafa í matin?

vægast sagt leiðinlegt.
svo er það edith phiff á föstudagskvöldið með frúð Guðfinnu Árna. við ætlum á lakkskóm með ahndtöskur, eða ekki.
æ ég veit ekkert.
guðfinna sendi mér link á frekar merkilega síðu.
maður gæti alveg misst sig og pantar á dísina nokkra sæta búninga.

25.10.05

heyr heyr.
haldiði að maður hafi ekki gerast eðalgæra og skellt sér í ljós. mikið er það ógeðis leiðinlegt helvíti. afsakið. það er frekar óspennandi. og það þar sem ég verð eyrðarlausari en fló á skinni með gyllinæð þá er þetta ekki skemmtileg athöfn. en þetta er gott og ég verð ofur hot af þessu. BJÚTÍ IS PEIN.
komst líka að því að ég passa ekki í kjólin sem ég ætlaði að vera í í skírnini. brjóstin full af mjólk og ekkert kemst utan um kellu. það er ástand á manni. þannig að ég NEYÐIST til að kaupa mér eitthvað nýtt. andstyggilegt. ha? já. NEI. komst sem betyr fer í dökkbláa pilsið sem ég keypti útí DK og svo er moms að prjóna fyrir mig mjög svo töff ermar. eða hvað þetta heitir. ég vona að ég finni mér allavegna einhvern bol. það var annas að opna mjög flott búð hérna á ak. fórum í hana á föstudaginn, ég keypti mér meira að segja ógissslega töff jakka skilluru. þetta er búð sem saman stendur af, deres, smash og retro. smash.. ahhhh. ég hef verlað ansi ansi mikið þar í gengum tíðan. og munið eftir jónas á milli. heh.
annas er ég að skella mér í klippó og litun á morgun. það verður gott. og gaman. er búin að vera mjólka mig eins og belja í dag. til að eiga nóg handa þeim feðginum á morgun. og svo erum við að fara í leikhús á fimmtudagskvöldið og þá þarf að mjólka sig. amman og afinn ætla að gæta litla ungans. ég fæ effffflaust taugaáfall. nei ég er búin að róast mikið.
let do somthing.
bye.

19.10.05

óó já. 19okt 2005. það þýðir aðeins eitt. við elías erum búin að vera saman í 4ár í dag. það er ansi gott afrek. og hugsa ég að við eigum eftir að lifa 100ár í viðbót saman. seiseibíja já.
í morgun fórum við og hittum prestin. lukkuleg með okkur. nei við vorum ekki að gifta okkur. vorum að funda um skírn hjá litla boltanum. mjög skrítið að segja nafnið svona upphátt við einhvern annan en elías. en það hjómaði mjög vel eins og við var að búast. lee vinkona mín verður svo 20ára 29okt. og er manni boðið til gleði. en því miður getum við ekki mætt. við eigum inni hjá henni djamm. ég býst fastlega við að hún komi einhvertíman á ak og eldi fyrir okkur svínarif. er það ekki? ójú.
djöfull er ég að spá í að for real núna að baka muffins betty kökur. er það ekki málið? í svona rigningu og grásleppuveðri? samt er gott veður.
ég er með varaþurrk.
ég er búin að horfa á 5seríur af sex inda city mjög skömmum tíma. ég er farin að spara mér þætti núna. ég sest alltaf þegar ég er að gefa rjómakettinum fyrir framan tv og set einn þátt á. enda held ég að ekkert 3vikna barn hafi horft á eins marga sexindacity þætti. og ég er ekki frá því að barnið kannast við lagið. heh.
hversu flókin síða er þetta? fokk.og þessi? jah fokk.

rúnk.
* ég er með samvaxnar tær. á örðum fætinum (vinsti hægri, hver veit hvor er hvað) tásurnar hliðina á stóru tá (hver veit hvað tærnar heita, eða heita þær eitthvað?) og þar við hliðina á eru saman. já ég er frík. só vott.

* þegar ég var í 10bekk var ég ekkert séstaklega ánægð með bekkinn minn og mína bekkjarfélaga, hafði svo sem aldrei verið það.
ok ok. við stálum semsagt miklum péningum úr bekkjarsjóðinum. þennan digga sjóð átti að nota til að fara í eitthvað ferðalag, sem ég ætlaði hvort sem er aldrei með í, því ég vildi ekkert fara með þessum bannsettu krökkum neitt. við keyptum helling af áfengi (þá meina ég hellling hellling þegar maður er 15ára krakki, 4 koskenkova pela, 3 kippur af bjór og helling af pizzum og ógeðis fæðu, sólgleru, bangsímon reglhlífum og brúsum (jah nú til að setja áfengið í) geisladiskum, og ég held að við höfum öll alltaf verið með 5000kjéll inná símunum okkar, ef ekki meira og ýmislegt nauðsynlegt fleira. allt komst þetta náttlega upp, eins og við er að búast og þurfum við að skila áfenginu (já eða mamma þurfi að fara með það, minnir mig.) og við fengum EKKI að fara með í ferðina. ég skammast mín ekki fyrir þetta. ég viðurkenni það. lee ann litla fékk taugaáfall af góðum toga. æ. ok. þetta var ljótt af okkur. já ég viðurkenni það. og finnst mér við þetta allt saman mjög leiðinlegt að hafa sært guðrúnu elsku besta kennaran minn. hún var amma mín og hjálpaði mér í gengum þennan hræðilega tíma sem 8 9 og 10bekkur var. þetta var bekkindadays.

* fyrsti strákurinn sem ég kyssti var gauti. í kofanum á leikskólanum á blö. húrra. rut var með mér. og já gerði bókstaflega allt með rut bekkindadays.

* þegar ég var 8ára þá var ég brúðamey hjá frænku minni. ég var með frænku minni sem er ansi mikil stelpa, þá meina ég svona, bleikt, barbí, blóm og dansi dans ég var/er meira svona blátt, fótboti dansi dans. ég vildi helst ekki vera í þessum voðððalegu hvítu blúndukjólum sem mig klæaði undan og gat varla hreyft mig í en ég varð og neyddist til. í miðri athöfinu þá sofnaðu ég í kirkjutröppunum fyrir framan alla í kirkjuni. afa á þetta á video.

* fyrsta fyllleríið mitt var heima hjá svövu frænku. ég held ég hafi drukkið 1 glas af malibú. alltaf þegar ég heyri "stúlkan mín" með skímó þá hugsa ég um mig í lazyboy stólnum hans geira frænda.. skælandi því ég saknaði kristó sem mikið (bekkindadyas kæró)
..þetta var rúnkið. það sýnst um að segja það heimskulega sem maður gerir, eða fyrsta stákin sem maður kyssti, eða uppáhaldslitl eða eitthva kjánalegt sem maður hefur gert. ég rúnka.. vóva, ástu maríu, lee & eve.

þetta blogg tók ekki nema 5tíma. á meðan: eina kúkableyja, smá hugg, skæl, væl, klapp, kossar, snudda, piss, samloka með kæfu og kókómjólk, chatt við guðfinnu um trúlofun, skipt um batterí í myndavélini og síðan en ekki síst hugsaði ég til baka um hversu horror unglingur ég var. ég vill eki að dóttir mín verði eins og ég var. má til að að muna að fela allir drykkjumyndir af mér áður en dóttir mín lærir á tölvur. og biðja sjallan.is að taka allar ógeðis myndirnar af mér út. heh.
má til að fara gera salat með kvöldmatnum.
uh. já.