15.12.05

var að spá í að skipta um blogg. en vegna miklar pressu frá dúddanum þá held ég þessari bara. hef verið með hana í 3-4ár. pælið í því. já pælum aðeins í því.
þá er des. uppbótin komin og allir sérdeilis glaðir yfir því. ég gæti keypt mér nýja myndavél eða föt. kannski maður kaupi sér djammgalla fyrir helgina. partí partí. ég vona bara að það verði gaman. lofiði ekki hörku stemmara?
ég er svo gráðug þessa dagan. mig langar bara í osta, pestó, fetaost, tebleron, súkkulaði og eitthvað ógeð. ég er rosssaleg.
ef þetta er ekki besta í geimi. eða das sjitt. jih ég skammaðist mín fyrst til að skoða blogg sem ég kannast ekkert við. en núna stend ég upp og viðurkenni.
HÆ ÉG HEITI VIKTORÍA OG ÉG ER BLOGGSJÚKLINGUR! koma svo.. ég veit að margir sem skoða þetta blogg eru líka bloggsjúklingar. kommmma svoo, standið upp og viðurkennið þessa sýki. þetta er ekki forvitni, eða ég held ekki. þetta er bara eithvern fíkn. eða eitthvað.
ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það "hvað eigum við að borða?" ég spyr elías að þessu svona 3 á dag og hann spyr mig að þessu svona 3 á dag. ég er ekki að kidda. og svo vitum við aldrei neitt. "nei hvað langar þig í, nei en þig"? lalala. óþolandi.
ætla ekki allir að djamma um helgina?
kv. sokkermom

7.12.05

jólin jólin, jólin koma brátt.
ég er ekki jólabarn. ég fæ aldrei fiðring og sting í mallan út af jólnum. veit ekki afhverju það er. mér finnst gaman á jólnum en verð ekkert ofur spennt. það er líka kannski allt í lagi. ég er nú samt byrjuð að skrifa jólakort. ætlum að senda öllum ættingjum og vinum sem hafa hitt og sent litlu snúlluni gjafir og það eru sko mjög margir. og auðvita er verður mynd af litla kappanum. en ekki hvað? (;

svo 17des ætlum við að djamma. þá verður sálin í sjallanum (sem mér finnst ekkert spes, en ef ég þekki akureyringa rétt þá verða allir að djamma þá) og við ætlum meira að segja að halda partí. og ykkur er boðið. þá er elías líka búin í prófum og þá getum við djammað saman. arna dís verður í pössun hjá ásgeiri og hörpu. ég kvíð kannski smá yfir því, en það reddast.
við höfum aldrei haldið almennilega partí hérna í tröllagilinu. má bara til með að muna að láta nágrannana (upp, niðri og til hliðar) vita að þessu partíi. mér finnst það lámarks kurteisi að tala við nágrannan og segja þeim frá þessu. við erum líka svo ótrúlega heppin með það að eiga alveg yndilega nágranna.
ellen pellen ætlar meira að segja að koma á ak og djamma með okkur þessa helgi. mikið hlakkar mig til. víííí. parrrrrrrrtí.
mamma er að gera geððveikt flotta lopapeysu á mig.
lilja systir hörpu er að fara klippa og lita okkur elías á eftir. húrrí.
æ já.

28.11.05

blogg smogg.
búin að skreyta aðeins í tröllagilinu, smá smá. þarf fleiri seríur.
skrítið.. það kemur alltaf steikanslaukslykt af mér þegar ég hef verið að bardúsa eitthvað með kaffikönnuna okkkar. það er einkennilegt. má til með að muna að kanna það.
ég kíkti út um helgina.
já nú glenniði upp glirnurnar. já ég kíkti á lífið. fór í jólahlaðborð hjá vinnuni og kíkti svo með guðfinnu og kreisí baldvin (ágætist grei, fínasta skinn) út. fórum á kaffi ak, sem var verið að opna eftir breytingar og þar var fullt af fríu áfengi í boði, en samt varð ég ekkert full, sem er einkennilegt. en við guðfinna vorum bara skolli hressar eða kannski bara tremma töff. við fórum nú samt bara heim um 1 eða 2 leitið. og daginn eftir var ég ekkert þunn eða eftir mig. húrrí.
var að skoða kaffi
ak síðuna
og djöfull er til mikið af öglí fólki. oj. ég er náttúrlega alveg tremma kúl.. ógggislega töff. æ þið vitið.

jólagjafalitli 2005:

digital myndavél
nikita peysu
nikita bol
rauða nike skó
renda hettapeysu nike
jonh lennon best of diskinn (working class hero - the definitive lennon)
lennon ævisöguna
gimmföt (nei ég vill ekki latexgalla með glimmeri, eða.. jú. nei)
og munið að það er best að STICK TO THE LIST!!!! nei bara.

það er partí á fimmtudag. batselorpartí + ástarfleygspartí. mikið hlakkar í mér. helst af því að elskulegur ástarpungs ragnar kemur í sjónvarpinu. dúna ætlar að mæta í partí. og arna dís auðvita. ekki má gleyma henni.
jæja svefn.

16.11.05

Hvurning datt mér í hug að ætla í aðhald í byrjun aðventurnar? Já hvurning? Sei ég veit það ekki. En nú er ég hætt við aðhald fram yfir nýja árið. Þá skal skunda til ræktar og heilsusamlegs lífernis. Sé fram á að áramótaheitið verði "aldrei aftur nammi og fara í ræktina 3 á dag." Nei anskotin hafi það, bull og vitleysa.
Annars er gott að frétt af Toríu. Hætt með ungan á brjósti (þoldi ekki andstyggðar móðurmjólkina sem ég hafði upp á að bjóða) og hún dafnar vel og er að verða ansi pattaraleg, eins og hún á að vera. Maður getur þá kannski farið að fara eitthvað út, kaffihús eða eitthvað. Langar ógurleg á kaffihús eða í sund. Sund, hvað er það? Keypti mér allavegana sundbol í dag. Og hann er ekki ljósblár og gegnsær (eins og bikínið mitt í sumar.)
Kíkti í bæinn í dag. Fékk mér auðvita cappuccino og röltu mér svo í Bókval og hékk þar í klukkustund eða svo, las næstum alla Jonh Lennon ævisögu og Ojbarasta vastu að freta Fróði? Sú bók er náttúrlega ein sú besta og það er bókað mál hver fær hana í jólagjöf frá hverjum. Semsagt Embla frænka frá mér. Ég komst líka að því, mér til miklar skelfinar að mig langar í nokkrar flíkur úr ógeðis búlluni Centro. Já ég skammast mín og ég veit ekki hvort ég muni láta undan því og fá mér þessar flíkur því ég þoli ekki þessa búð. Oj. Sé til sé til. Ég þoli ekki þessa búllu því, manni er aldrei boðið góðan daginn þegar maður kemur þarna inn og svo er ógeðis fólk að vinna þarna sem heldur að það sé gebba kúl því það á þessa búð eða what ever. Svo syngur beyglan við afgreiðsluborðið með Sálini. Sjá frekari röfl frá mér um þetta í Velvakandi einhvertíman í sumar. Og já ég sendi bréf í Velvakandi. Velvakandi er líka fyrir tremma trendí fólk eins og mig.

Spurning er, á maður að skella sér á Hjálma, 10des? Fyrsta djammið? Spurning um að gera þetta bara almennilega og halda kannski teiti bara og eitthvað. Ha? Hvernig líst mönnum á það?
Það er annars jólahlaðborð hjá vinnuni 25nóv, damh ég hlakka til. Það var svo hriklega gott í fyrra og verður vonandi enn betra núna. Svo er síðbúin jólabröns með jólabjór og látum á laugadaginn hjá mömmu og pabba. Jólabjórskynning eins og fólk vill kalla það.
Núna er komin háttatími. Elías situr fyrir framan sjónvarpið eins og krakkagrís á aðfangadagskvöld, hann fékk 6 þætti úr nýju Lost seríuni. Spennó spennó.
Ælta aftur í bæin á morgun og verlsa eitthvað, buxur og eitthvað. Vill einhver koma með mér?

Silvía Nótt,
Sofðu rótt,
í alla nótt,
að eilífðu,
AMEN.




Ætlar einhver að reyna að segja mér að þið séuð ekki pínu skotin í henni?

9.11.05

hvaðððða haldiði. ég brann svo eftir þennan ógeðis ljósatíma sem ég skellti mér í um daginn að ég fékk bólgur á milli brjóstana og flagnaði og svo eru núna eins og fullt af litlum bitum á milli brjóstana á mér. ógeð ógeð ógeð. hvað segir þetta manni? æ ég veit það ekki. kannski að þegar maður hefur ekki farið í ljós í ár að fara þá ekki í túrbó bekk. og það stóð líka útum allt "nýjar perur, notið sólarvörn" en nei. kappin ég notaði auðvita ekki sólarvörn, það er bara fyrir aumingja. sé eftir því að vera kappi, en maður verður að lifa með því.

7 hlutir sem ég vil gera áður en ég dey:
Eignast sex in the city seríurnar (allar)
Fá sixpekk á magan
Búa í útlöndum
Gifta mig
Syngja fyrir framan fólk
Byrja spila fótbolta aftur
Fara á Hróaskeldu

7 hlutir sem ég get:
Knúsað og kysst Örnu Dís endalaust
Sungið
Horft á sex in the city í 4tíma samfleytt
Gert góðan mat
Tekið til í tíma & ótíma
Klórað og pínt bróðir vor
Verið kærulaus

7 hlutir sem ég get ekki:
Sungið fyrir framan fólk
Verið mjög þolinmóð
Hugsað allt til enda
Látið vaða yfir mig
Djammað á láu nótunum
Drukkið malibú
Stokkið upp í flugvél og farið til Indlands

7 frægir sem heilla:
Thierry Henry
Villi naglbítur
Freddie Ljungberg
Seth í O.C.
Gísli Marteinn (ekki spyrja mig afhverju)


7 orð sem ég segi oftast:
Fokk
Sjitt
Elías
Viltu rétt mér þetta?
Æla
Hvað eigum við að hafa í matin?

vægast sagt leiðinlegt.
svo er það edith phiff á föstudagskvöldið með frúð Guðfinnu Árna. við ætlum á lakkskóm með ahndtöskur, eða ekki.
æ ég veit ekkert.
guðfinna sendi mér link á frekar merkilega síðu.
maður gæti alveg misst sig og pantar á dísina nokkra sæta búninga.

25.10.05

heyr heyr.
haldiði að maður hafi ekki gerast eðalgæra og skellt sér í ljós. mikið er það ógeðis leiðinlegt helvíti. afsakið. það er frekar óspennandi. og það þar sem ég verð eyrðarlausari en fló á skinni með gyllinæð þá er þetta ekki skemmtileg athöfn. en þetta er gott og ég verð ofur hot af þessu. BJÚTÍ IS PEIN.
komst líka að því að ég passa ekki í kjólin sem ég ætlaði að vera í í skírnini. brjóstin full af mjólk og ekkert kemst utan um kellu. það er ástand á manni. þannig að ég NEYÐIST til að kaupa mér eitthvað nýtt. andstyggilegt. ha? já. NEI. komst sem betyr fer í dökkbláa pilsið sem ég keypti útí DK og svo er moms að prjóna fyrir mig mjög svo töff ermar. eða hvað þetta heitir. ég vona að ég finni mér allavegna einhvern bol. það var annas að opna mjög flott búð hérna á ak. fórum í hana á föstudaginn, ég keypti mér meira að segja ógissslega töff jakka skilluru. þetta er búð sem saman stendur af, deres, smash og retro. smash.. ahhhh. ég hef verlað ansi ansi mikið þar í gengum tíðan. og munið eftir jónas á milli. heh.
annas er ég að skella mér í klippó og litun á morgun. það verður gott. og gaman. er búin að vera mjólka mig eins og belja í dag. til að eiga nóg handa þeim feðginum á morgun. og svo erum við að fara í leikhús á fimmtudagskvöldið og þá þarf að mjólka sig. amman og afinn ætla að gæta litla ungans. ég fæ effffflaust taugaáfall. nei ég er búin að róast mikið.
let do somthing.
bye.

19.10.05

óó já. 19okt 2005. það þýðir aðeins eitt. við elías erum búin að vera saman í 4ár í dag. það er ansi gott afrek. og hugsa ég að við eigum eftir að lifa 100ár í viðbót saman. seiseibíja já.
í morgun fórum við og hittum prestin. lukkuleg með okkur. nei við vorum ekki að gifta okkur. vorum að funda um skírn hjá litla boltanum. mjög skrítið að segja nafnið svona upphátt við einhvern annan en elías. en það hjómaði mjög vel eins og við var að búast. lee vinkona mín verður svo 20ára 29okt. og er manni boðið til gleði. en því miður getum við ekki mætt. við eigum inni hjá henni djamm. ég býst fastlega við að hún komi einhvertíman á ak og eldi fyrir okkur svínarif. er það ekki? ójú.
djöfull er ég að spá í að for real núna að baka muffins betty kökur. er það ekki málið? í svona rigningu og grásleppuveðri? samt er gott veður.
ég er með varaþurrk.
ég er búin að horfa á 5seríur af sex inda city mjög skömmum tíma. ég er farin að spara mér þætti núna. ég sest alltaf þegar ég er að gefa rjómakettinum fyrir framan tv og set einn þátt á. enda held ég að ekkert 3vikna barn hafi horft á eins marga sexindacity þætti. og ég er ekki frá því að barnið kannast við lagið. heh.
hversu flókin síða er þetta? fokk.og þessi? jah fokk.

rúnk.
* ég er með samvaxnar tær. á örðum fætinum (vinsti hægri, hver veit hvor er hvað) tásurnar hliðina á stóru tá (hver veit hvað tærnar heita, eða heita þær eitthvað?) og þar við hliðina á eru saman. já ég er frík. só vott.

* þegar ég var í 10bekk var ég ekkert séstaklega ánægð með bekkinn minn og mína bekkjarfélaga, hafði svo sem aldrei verið það.
ok ok. við stálum semsagt miklum péningum úr bekkjarsjóðinum. þennan digga sjóð átti að nota til að fara í eitthvað ferðalag, sem ég ætlaði hvort sem er aldrei með í, því ég vildi ekkert fara með þessum bannsettu krökkum neitt. við keyptum helling af áfengi (þá meina ég hellling hellling þegar maður er 15ára krakki, 4 koskenkova pela, 3 kippur af bjór og helling af pizzum og ógeðis fæðu, sólgleru, bangsímon reglhlífum og brúsum (jah nú til að setja áfengið í) geisladiskum, og ég held að við höfum öll alltaf verið með 5000kjéll inná símunum okkar, ef ekki meira og ýmislegt nauðsynlegt fleira. allt komst þetta náttlega upp, eins og við er að búast og þurfum við að skila áfenginu (já eða mamma þurfi að fara með það, minnir mig.) og við fengum EKKI að fara með í ferðina. ég skammast mín ekki fyrir þetta. ég viðurkenni það. lee ann litla fékk taugaáfall af góðum toga. æ. ok. þetta var ljótt af okkur. já ég viðurkenni það. og finnst mér við þetta allt saman mjög leiðinlegt að hafa sært guðrúnu elsku besta kennaran minn. hún var amma mín og hjálpaði mér í gengum þennan hræðilega tíma sem 8 9 og 10bekkur var. þetta var bekkindadays.

* fyrsti strákurinn sem ég kyssti var gauti. í kofanum á leikskólanum á blö. húrra. rut var með mér. og já gerði bókstaflega allt með rut bekkindadays.

* þegar ég var 8ára þá var ég brúðamey hjá frænku minni. ég var með frænku minni sem er ansi mikil stelpa, þá meina ég svona, bleikt, barbí, blóm og dansi dans ég var/er meira svona blátt, fótboti dansi dans. ég vildi helst ekki vera í þessum voðððalegu hvítu blúndukjólum sem mig klæaði undan og gat varla hreyft mig í en ég varð og neyddist til. í miðri athöfinu þá sofnaðu ég í kirkjutröppunum fyrir framan alla í kirkjuni. afa á þetta á video.

* fyrsta fyllleríið mitt var heima hjá svövu frænku. ég held ég hafi drukkið 1 glas af malibú. alltaf þegar ég heyri "stúlkan mín" með skímó þá hugsa ég um mig í lazyboy stólnum hans geira frænda.. skælandi því ég saknaði kristó sem mikið (bekkindadyas kæró)
..þetta var rúnkið. það sýnst um að segja það heimskulega sem maður gerir, eða fyrsta stákin sem maður kyssti, eða uppáhaldslitl eða eitthva kjánalegt sem maður hefur gert. ég rúnka.. vóva, ástu maríu, lee & eve.

þetta blogg tók ekki nema 5tíma. á meðan: eina kúkableyja, smá hugg, skæl, væl, klapp, kossar, snudda, piss, samloka með kæfu og kókómjólk, chatt við guðfinnu um trúlofun, skipt um batterí í myndavélini og síðan en ekki síst hugsaði ég til baka um hversu horror unglingur ég var. ég vill eki að dóttir mín verði eins og ég var. má til að að muna að fela allir drykkjumyndir af mér áður en dóttir mín lærir á tölvur. og biðja sjallan.is að taka allar ógeðis myndirnar af mér út. heh.
má til að fara gera salat með kvöldmatnum.
uh. já.

16.10.05

* ég get als ekki sett sturtuhausin á standin, ég verð alltaf að halda á honum þegar ég er í sturtu. veit hreinlega ekki afhverju í anskotanum.

* ég get ekki borðað, banana, gúrku, sveppi (nema steikta), tómat, melónu, greip eða anananas og als ekki gúllas.

* ég gæti als ekki búið á vopnafirði.

* ég gæti aldrei verið einhvern ákveðin týpa. ég er týpa. ég er ekki eins og neinn annar en ég er samt engin ákveðin týpa. ég gæti aldrei verið þessi "MAtýpa" eða "atrífartítýpa" "gallerígella" eða neitt því ég myndi ekki geta haldið mig bara í diselbuxum og magabol eða í stigapoka og sitthvorum skónum úr spútnik. ég veit aldrei hvernig ég vakna á morgun og hvernig týpa ég vill vera þanna daginn.

* ég held að ég geti ekki ákveðið hvað ég vill vera þegar ég verð stór.

þarf að kaupa mér föt fyrir skírnina. veit ekki hvað. en pisl og stígvél freista mín. mig langar að komast í Zöru.
við elías erum búin að vera saman í 4ár á næsta fimmtudag. ójáh. það er ansi langur tími. en góððður tími. og besti tími í heimi er akkúrat núna.
símin minn er komin af silent. þannig að ef þú ert heppin þá svara ég kannski núna.

7.10.05

fiskibollur í dós með bökuðum baunum. elías enn í ræktini. ég er svöng. kisi sefur vært. ég ætla að leggja mig. afmæli á morgun. á 8000kr gjarfabréf í abaco. veit ekki hvað ég ætla eyða því í. ég er hætt að leka eins og verðlauna belgja. enn er samt nóg mjólk. elías var tekin af lögguni. skuld uppá 15þús. ekki slæmt það. júúú. þarf að fara í búð að kaupa pakka handa emblu. er að spá í að baka betty súkkulaðisprengjubombu möffins. kjams. loksins komin númerabirting á síman hjá okkur. ég er enn með gemmsan minn á silent. nenni eki að spá í hann. er að skirfa allt niður sem ég borða. hvert korn. gaman. við elías eigum miða á fullkomið brúðkaup 27okt. leikhús leikhús. ég þarf víst að fara í krabbameinsskoðun. þarf að hringja þarna til þeirra. má til að muna. ég þarf að komast í sturtu. strax.
nenni eki að bíða lengur.

ÉG Á FALLEGASTA BARN Í GEIMINUM.

23.9.05

klukk segir siggoz.

* ég er að gera nágranna mína snar geðveika á joga með björk (rípít í græjunum) heh

* ég þoli ekki (þá meina ég hata) þegar ég er í bíl og þegar græjurnar eru stilltar á oddatölu. það bara má ekki, það er bannað. það má bara vera slétt tala. og ég finn það á mér ef það er ekki.

* ég er vanafastari en skrattinn sjálfur. ég sit alltaf á sama stað, sama glas. þegar ég er í tölvuni er allt eins raðað upp, fyrst MSN, svo síðan mín og má koma eh annað, ég vaska alltaf sama dótið upp fyrst. geng alltaf eins frá þvottinum.. og svona mætti lengi lengi telja.

* ég held að ég hafi ekki eignast neina nýja vini síðan á laugum því ég er svo hrædd við höfnun. nema ég beit í mig og tussaðist til að kynnast Guðfinnu & Heklu (og ekki sé ég eftir því)

* ég hlakka svolítið til að fara út að skemmta mér í pilsunum mínum, bolnum mínum með allt dótið mitt sem hefur rykfallið í 9mánuði. jih. gallapilsin mín. og fara verlsa eftir meðgönguna. mig vantttar svooo mikið!!!! (;

..ég klukka, dagný, aha hópin eins og hann leggur sig, evu litlu, svövu frænku & ellen.

ég er að fara partíast á morgun. vildi svo skemmtilega til að gellurnar úr vinnuni ætla að hittast og djamma eh og haldiði að það þýði að halda partí án mín, óneinei. þannig að ég ætla að mæta og djamma ansi vel áður maður gerist virðuleg móðir. heh. fyndið. skrítið.
ég og elías hrukkið svolítið í kút í gærkvöldi. vorum að fara sofa, aðeins að kúrast og svo allt í einu heyrist í elías "sjitt, það er bara vika í að hún komi" hversu ógnvekjandi er það? jafn ógnvekjandi og það verður eflaust yndilegt. æ. ó. (;
annas snjóar bara hérna á eyrini. elías telur það ekki ráðlagt að ég labbi í vinnuni til mömmu. það er reyndar ansi langt. þannig að hann ætlar að skutla mér hálfa leið. heh, ég er eins og gamalmenni.
ég vaknaði í morgun við að litlir fætur (báðir) voru búnir að troða sér TROÐA SÉR, undir rifbeinin á mér og ýttu þar og djöfluðust. litla ljónið.

19.9.05

Jæja.. drottningin er komin með síðu. allt er gott að frétta.
hress. ójá. þreyta. ójá.
..later
back.
sörvæfor byrjað. aumingja karlpéningurinn í þessu. æ. heh. OC í eh líka svo horbjóðis leiðinlegt. eða kannski ekki leiðinlegt (ég er ekki að segja að ég horfi ekki á það) en það er eh svooo.. hmm.. óáhugavert. antm stendur nú samt fyrir sínu. það er best. best.
annas er maður bara eins og fýsibelgur. það er eins og ég hafi gleypt glerkúlu og kúldast með hana í magnaum í 16ár. 11dagar í ljónið. ég gruna hana um að vera orðin 25merkur ef ekki stærri. og við elías erum alveg viss um að hún komi bara 30. og það þurfi að ná henni út með valdi. heh. með valdi segi ég.
við fórum á bubba á fimmtud. eina sem ég sagði í 2tíma var "DJÖFULL ER HANN HOT" já kóngurinn klikkaði ekki. ég var reyndar með ógeðis verki alla tónleikana (samdrætti skrammdrætti og eh rugl) en maður lætur það ekki trufla sig. svo fór auðvita að leka úr brjóstunum á mér eins og litlum rakka. heh. æ maður er hot. það verður ekki af manni tekið. en annas stóð kallinn fyrir sínu og ég var ekki með handáburð á höndum, þannig að ég lét það vera að henda mér uppá svið og koma við hann. það má bíða betri tíma.
fengum sætan pakka frá miss maginnis æðisleg föt.. bleik bleik bleik. heh. bara sætt. takk elsku rúsína.
við erum búin að ákveða að vera á ak um jólin og vopnaf. um áramótin. ætlum að vera hjá m+p+tuma á aðfangadag og ætlum svo að svo að vera hérna í tröllagilinu á jóladag og elda okkur eh fansí og flott og hafa það notó. fara svo á annan í jólum á vopnaf. við töluðum svo mikið um jólin í gærkvöldini að ég varð enn jólaglaðari. alla meðgönguna hefur valla mátt minnast á jólin þá hef ég skælt (dont ask me why) en mig er farið að hlakka svo til. búin að plana smá og svona. ansi verða þetta samt skrítin jól. góð en skrítin. það verður náttúrlega lítil drottning. ég verð ekki á heiðarbrautini. ég og elías verðum fyrstu jólin okkar saman. og allt verður nýtt. nema það verða auðvita rjúpur. húrrra!! ég hlakka svooo til, ég hlakka alltaf svooo til.
keypti mér tvo nýja diska á laugag. bob marley og björk. ahh. homogenic. back inda days þá átti ég hann. hann hefur glatast. hann er enn jafn geðsjúkur. og ekki klikkar jóga. lord. einss hátt og maður kemst í grjæunum eða ipodnum eða tölvuni. sjitt. bara gott. við björk vorum einu sinni sagðar líkar. ekki leiðum að líkjast. ég á líka mynd af okkur saman. ég er svona 5-6ára. kappalegt. og ekki er leiðinlegt að hlusta á bob í góðum chill gír. þegar maður er að keyra eða eh að stússast. rennur vel í geng.

endilega verið duleg að skoða síðuna hjá litla ljóninu. ætlum að vera duleg við að setja nýtt og nýtt inná hana. og laga hana og snyrta.
Valkyrjan eða kjarnakvedið eða fávitin kveður.. heh.

held að þessi texti segi meira en margt. allavegna verður hann kveðja mín í kvöld. hversu gott er að eiga sitt jóga? ég á minn. mikið er það notalegt.

All these accidents,
That happen,
Follow the dot,
Coincidence,
Makes sense,
Only with you,
You don't have to speak,
I feel.

Emotional landscapes,
They puzzle me,
Then the riddle gets solved,
And you push me up to this

State of emergency,
How beautiful to be,
State of emergency,
Is where I want to be.

All that no-one sees,
You see,
What's inside of me,
Every nerve that hurts,
You heal,
Deep inside of me, oo-oohh,
You don't have to speak,
I feel.

14.9.05

Smá fréttir.
Fórum í skoðun í dag. Það er semsagt ákveðið að drottingin komi 30sept. ef hún verður ekki komin sjálf. Þá verð ég sett af stað eða tekin með keisara. Ég er komin 39vikur og 1dag 30sept. og þá á hún víst bara að koma. Pælið í því, það eru aðeins 16dagar í hana, í mesta lagi, top. En auðvita er í lagi ef ég fer sjálf af stað. En þeir ætla ekki að sækja hana fyrr. Lungun í börnum hjá sykursjúkum konum eru lengur að þroskast en hjá örðum, þannig að þeir hætta ekki á það. En annas er hún alveg tilbúin. Hún er orðin rúmar 14merkur núna og á eftir að stækka meira. Ég er enn að stækka. Jáá.
Hormónarnir eru komnir á gott skrið líka. Ég er doltill kjökruskælupúki. En það er allt í lagi, því ég hef ansi góða öxl að skæla á. Elías er eins og klettur við hliðina á mér. Ég elska þig.

Við ætlum að kaupa okkur aftur áskrifarkort í leikhúsið. Ætlum á, litlu hryllingsbúðina, fullkomið brúðkaup, belgíska kongó og örugglega Edith Piaf. Maður er ansi flottur á því. Það er svo hátíðlegt og yndilegt að fara í leikhús.
Við æltum líka að fara opna barnalandssíðu, það verður ágætt svo fólk geti fylgst með drottinguni.
Æltum líka kannski að fara á Bubba tónleika á morgun.
Eva dúlla var að senda okkur pakka. Þvílíkt sætan mjúkan bangsa, snúllu bol og bleika Nike peysu. Ekkert smá sykursætt. Takk fyrir það elskan.
Ég er líka ný klippt. Lilja klippti mig á laugadagskvöldið. Aðeins síðara örðu megin, stutt, sítt, smá lokkur. Samt ekkert ofur fríkað.. ekkert eins og seinasta sumar, en samt flott. Stutt hár er best. Það er ég. Mér sýndist ég samt sjá grátt hár þegar ég var að tannbursta mig áðan, hmmm? Má til með að muna tjékka á því betur.
Ég er að lesa allt eftir Isabel Allende. Búin með, Hús andana & Ást & skuggar og er að lesa Eva Luna núna. Ótrúlega spennó og duló bækur. En ég er nú meiri, ég ætlaði sko að lesa allar kvennspæjarabækurnar í sumar en lenti bara í einhverju allt örðu. Búin að lesa allt annað en þær. Er bara búin að lesa Kvennspæjarastofan nr. 1. Verð að fara í bókasafnið og sitja um þessar bækur. Eða bara kaupa þær í kiljum. Það er ekki svo dýrt. Mig langar líka mjög í Englar & djöflar og Móðir í hjáverkum.
Ég er líka með allar 6 seríurnar af Sex & the city. Er búin að vera horfa á þetta með smá stoppum í mánuð. Ansi eru þetta góðir þættir. Ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta endar (og nei ég vill ekki vita það.) Elías horfir líka með mér. Heh.. Já hann er ansi óléttur með mér. (; sætamúsin. Neih honum finnst þetta þvílíkt gaman.

EKKI GERA EKKI NEITT!
..góða nótt.

11.9.05

9/11.. úhh. bandaríkjamenn smjandaríkapenn.
og nei hún er ekki komin. ég er orðin másandi blásandi óþolimóð (já ég viðurkenni það hér með) ég nenni ómögulega að vera ólétt lengur og langar að fá hana til mín. núna. NÚNA. komin 37vikur. það er nú ansi langt gengið. haa? alveg nóg? já. en nei sú litla er ekki sammála og ætlar effflaust að taka allan sinn tíma. auðvita er það gott að hún komi ekki of fljótt og svoleiðis. en ég nenni ekki að bíða. núna má t.d. elías taka við. það væri ágætt. nei annas ég er salí róleg.
erum samt búin að gera nokkrar tilraunir til að fá hana í heimin. á föstud.kvöldið tókum við klukkutíma gönguferð. lögðum bílnum hjá bautunum og fórum upp kirkjutröppurnar (jú það var ansi erfitt en það hafðist) fórum hjá MA og svo niður einhvern klöngursstíg hjá brynju og hjá leikhúsinu og aftur að bílnum. (GÓÐ SAGA VIKTORÍA.. GÓÐÐÐ SAGA) en ekkert gerðist og svo var kjarnaskógur tekin í dag en.. nei. hún lætur ekki plata sig, þessi litla dama.

ó. það var sunnudagskvöldkaffi hjá okkur áðan. sunnudagskvöldkaffi eru ansi notaleg kvöld. við fjölskyldan hittumst (ég, elías, harpa, ásgeir, mamma, pabbi & tumi) og drekkum kaffi og spjöllum. ég bjó til ansi góð horn.

4dl. spelt
75gr. brætt smjörlíki
2tsk. vínsteinslyftiduft
1 1/4dl. mjólk
& ofin á 175g.
ansi gott að setja kúmen í þau. og búraost og skinku.

þetta er ansi auðveld uppskirft og mjögg holl og góð.
ég er ansi mikið að skoða drals úr þessari búð núna. langar í svona antistress barbapabba. kaupi hann á fimmtud. þá fæ ég útborgað, í seinasta skipti frá Hlíð. svo fær maður næst bara fæðingarorlofspéning. veit ekki alveg hvað það verður mikið á mánuði. hmm. kannski að maður tjékki á því.
what ever.
hef ekkert að segja.
góða nótt.
sendið mér "afstað" strauma.

6.9.05

nehh hún er ekki komin.
en það styttist í kellu. 2-3vikur í mestalagi. ég fer enn stækkandi og þríf enn meira. það er rétt sem Dagrún segir, börn hafa ekki gott að því að vera í of hreinu umhverfi og ég vill ekki að barnið mitt verði síveikt því það er svo hreint heima hjá því. en ég get ekki hætt. þetta er eins og einhver fíkn. ég hef alltaf verið iðin eins og lús við þrif og takitil en núna er hámark hámarkana. vest að ég bý ekki enn með bósó.
nábíturinn er búin að gera sig ansi heimakomin í mér og angrar mig. ég sef vel. ég er enn ekki komin með nein slit (7, 9, 13) ég finn reyndar dálítið til þegar ég fer í göngur en ég reyni samt að sleðast áfram, þó það sé ekki nema hring í kringum blokkina.
gvöðð, ellen vinkona sendi okkur æðisleg föt. hún missti sig aðeins í HM í svíþjóð. jihh ekkert smá bleik dress og kjóll og 2 bolir og húfa og klútur og æðislegustu sokkar í heimi. ég sem hélt að mitt barn myndi ekki klæðast bleiku. en ég hafði ansi rangt fyrir mér. ætli þetta verði ekki lítil sykurpúði. með kolsvart hár eins mamman. og enn er erum við ekki búin að finna neitt nafn. við erum ekki einu sinni komin með smá hugmynd. og ég er ekki að kidda ykkur. en það kemur, það kemur. einhverjar uppástungur?
annas gengur allt sinn vanagang.

en haldiði að ég hafi ekki farið á djammið á föstud. fórum fyrst til bróa. þar sátum við, brói, kjartan, elías, raggi og bósó. mikið var spajallað um lauga (í denn) og ýmislegt sem als ekki er við hæfi að rita hér. svo fórum við niðrí bæ. á amor var haldið. ég hef ekki komið þar inn síðan þetta var svona voðððalega hip & kúl djammstaður. mér fannst þetta allt svo fyndið. allir geððveikt svalir. dansandi eins og fávitar (ég er ekki svona þegar ég er full) og allir að reyna við alla og reyna eins og reynir sem fær ekki neitt. ó lord. elías greiið var edrú og svo alltíeinu bara blind fullur, svo við fórum heim um 2. gaman að koma aðeins út. við ætluðum meira segja að kíkja á pál beibí óskar, my one and only. en það kostaði eftir kl. 1 þannig við hættum við. ég er samt viss um að palli hefur saknað mín.
ég og guðfinna ætlum að draga heklu með á kaffihús en kellan svarar ekki. ætla að reyna aftur. er hjá moms & daddy cool og er að fara horfa á mausTV sem er músasjónvarpið. affffar spennó. embla kallar.
AMERICAN NEXT TOP MODEL byrjar náttúrlega á morgun og ég get ekki beðið.
ég fór með myndir í framköllun í gær, þarf að sækja þær. svo á ég von á gestum, guðfinna og stella ætla að kíkja í tröllagilið.
lattttterrr.

1.9.05

Var að setja inn nýjar myndir.
Ef ég var einhver tíman stór og sver, þá er það ekkkkert meðan við núna. ég hef náð takmarkinu.. að setja glas á bumbuna og drekka, ÁN ÞESS AÐ NOTA HENDURNAR. yes im like pheobe, reyndar get ég ekki sett skál og borðar en glas er gott. ég nota mér þetta óspart. skoðið bara myndirnar, við þurftum auððvita að taka mynd af þessu.
já er ansi lukkuleg með mig bara.
læknunum líst vel á allt. hún er víst eh aðeins yfir meðanlagi í mælinum, en ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af.
fórum á vopnaf. á sunndu. og komum heim á þriðjud. aftur. ansi gott. fengum full af fötum lánað hjá Eygló og erum búin að fá vögguna. ég ég komst að því að elías er ekkert skárri en ég með að sofa í örðum rúmum en okkar. hann er gamall þetta litla skinn. hann hefur alltaf sagt að sér sé alveg sama hvar hann sofi en það er ekki rétt.
hann var líka að skipta úr rekstarfr. yfir í markaðfr. (bæði á viðskiptarsiði) og það gerir það að verkum að hann útskirfast því miður ekki næsta vor, heldur næsta haust, semsagt eftir ár. en það er bara eins og það er og ekkert við því að gera.
allt í einu byrjaði ég að þrífa og þrífa eins og óður maður með hundaæði í hádeginu.. og var að enda núna. 4tímar af þrifum.. allt ansi hreint og fínt. það var skúrað, þukkað af, klósettið tekið eins og það leggur sig, skáparnir í eldhúsinu, hendt ýmsu dralsi, moppað, ryksugað, bakaraofin tekin í gegn, pússað.. og bara name it. ég er alveg komin í þennan "hreiðrunargír" það er víst þannig að þegar lítið er eftir að meðgönguni, þá byrja mömmurnar að missa sig í þrifum og veseni og ég er illa haldin af þessu rugli. ásgeir bróðir komin hérna yfir áðan og skammaði mig og dró mig niður af eldhúsinnréttinu (já ok, ég var komin uppá koll og uppá eldhúsbekkinn að fara laga til uppá einhverju rugli) kallinn var bara reiður og sagði mér að hætta þessari vitleysu.. hvaða hvaða. (; ég hlýddi nú samt. og skondraðist niður.
við erum að fá stöð2 & sýn í dag.
svo fór ég í ökumat um daginn. og já bósó ég fæ að halda bílprófinu. einu fyrirmælin sem elías setti mér áður en ég fór út voru þau, að ég ætti ekki að keyra eins og ég keyri venjulega. og ég gerði það og kallinn var ansi lukkulegur með mig. sagði reyndar að ég tæki forstjórabeyjur og hugsaði lítið um hægriréttinn. en það hefur ekki sakað hingað til.
jæjaaa.. ætla með elías í verslunarferð.
takk fyrir öll kommentin, þetta gladdi mitt hnullastóra hjarta.
Frú Hnullabolti kveður.

21.8.05

jahh hver skollinn.
ég er að springa.
ég er orðin bústnari en vel troðin pylsa, eða kona slátrars, eða gyltu mamma gengin 18mánuði. já ég er sver eins og við var að búast. það er orðin ansi strembið að hreyfa sig um í rúminu. þyrfti nauðsynlega að komast á silkilak eða snúnislak (öllu ganni sleppt) og enn fer ég mér ekki hratt yfir. ég get ekki farið í eins langar göngur og ég gerði. því annas tæki það mig allavegna nokkra daga og ég yrði eins og hvalur á góðum degi. ég er farin að fá góðððða krampa í magan (sem er eðililegt) og fæ oft yfir daginn samdráttarverki (sem er líka eðilegt). fyrst þegar ég fékk samdráttarverki og ég var eitthvað að segja siggu vinkonu frá því þá sagði ég "æ, ég svona sinadrátt í barnið" hún horfði á mig eins og ég væri kiðlingur með 18 fætur og sagði mér að þetta væri ekki sinadráttur í barinu heldur samdráttarverkur. já maður getur verið ansi gáfulegur. komin með smá bjúg. búin að þyngjast um 10kg (sem telst víst ekki mikið) hef ekkert fitnað sjálf. 7 9 13.
..og svona líða dagarnir hjá mér. bara 4-5vikur eftir (sykursjúkar konur eru aldrei látnar ganga fram yfir, og eftir 5vikur verð ég komin 39vikur og fer ekki lengra en það) húrra.

Annas vorum við Elías að koma úr 6ára afmæli hjá Hugrúni. Við vorum fávitarnir sem mættum ekki með afmælisgjöf. Allt Elíasi að kenna.
Helgina leið sem aldrei fyrr. Fóru í grillgleði hjá Bónus uppí Kjarna í gærkvöldi. Þar var drukkið og dansað. Setti inn nokkrar myndir.
LORD LORD LORD LORD LORD LORD LORD.. AMERICAN NEXT TOP MODEL er að fara byrja 7sept. jihhhh.. ég fer yfir um. missi vatnið og fæði. þetta eru fréttir sem ilja manni um hjarta rætur.
vill einhver vera með mér í svona antm klúbb?
Bylja var að einast lítil prins. Við vorum ömurleg og fórum ekki til þeirra (ekki spyrja afhverju, því ég veit ekki afhverju) vorum samt búin að kaupa sæta gjöf, sem ég ætla að setja í póst á morgun.
Elíasi finnst ég pæla alveg hrikalega mikið í öllu í sambandið við þessa ófæddu drottingu. Ég vill hafa allt tilbúið. Allt frá vagn til þvottapoka, er það óeðilegt? Nei ætli það. Okkur vantað orðið eiginlega ekkert. Búin að kaupa allt sem kaupa þarf, nema bílstólin (eggið) sem mammz og daddy cool ætla að gefa okkur, svo ætla Linda & Bjarni að lána okkur ömmustól og svo fáum við eitthvað í láni hjá Lilju systir Hörpu. Það er betra (eða mér finnst það) að hafa bara allt reddí. Ég er ekki þessa afslappaða týpa, þannig að það er betra að hafa hlutina bara á hreinu. Það flækir ekkert (;
Sultupulsa
Ætla að skreppa niður til Péturs og tjékk á hvað hann hefur bitastætt að segja mér.

16.8.05

DRULLUKAKA.
veit ekki hvort það óléttan eða hvað en þá var ég með kökk í hálsinum út allan kastljósþáttinn áðan. ég finn til með jóni ásgeir og jóhannesi. þetta eru menn sem hafa gert meira fyrir ísland en nokkur annar. og alveg er ég viss um það að jóhannes er maður sem hefur unnið yfir öllu því sem hann á. þetta eru heiðarlegir menn. jón ásgeir hafi svör við öllum spuringun sem snáldurspúkin sigmar lagði fyrir hann. auðvita var hann stessaður en hann svari öllu. skýrt og skilmerkilega.
ef elías hefði verið með síma hjá guðfaðirnum þá hefði ég hringt í hann og sagt honum að ég myndi elska hann. og ekki hikað við það.
drullukaka segi ég og skirfa.
en annas er stuð í tröllagilinu. rigning og rigning. sem er ágætt. þá vaxa blómin. og hver vill ekki að þau vaxi? (like i give a flying fuck)
mig langar ógeðððslega mikið í súkkulaði. það kemur mjög sjaldan fyrir að mig langi virkilega í nammi, en núna.. hmm.
elías er að læra fyrir upptökuprófin sín tvö og er þá búin að vinna á daginn kl. 2 sem er mjög skrýtið, því oftast er hann frá 8-8 á virkum dögum. og ég er ein heima ð dúllast og sniglast eh.
á morgun er sónar.. ví. maður verður ekki leiður á þeim læknistímum. núna förum við vikulega í sónar. og eruði að fatta eitt, það eru kannski 5-6vikur í drottinguna? sjibbbbí.
ætla að hita mér kaffi og fara mála.
drotting hiksar á ykkur. eða kannski er hún að hvæsa. gæti verið gæti verið.

14.8.05

ég tók svo STÓRT skref í dag.. á minn mælikvarða.
ég hef verið að veltast um með heimskulega spuringu inní mér lengi. loksins lét ég verða að því að spyrja manneskjuna. og það var ekkert svo hræðilegt eftir allt saman, og hún drap mig ekki að hrækti á mig. víh.
(nei ég var ekki að biðja elías um að gifast mér)
mér líður eins og ég sé 100kg léttari (ekki það að ég fari hraðar yfir eða geti hlaupið eins og fætur toga, ég silast ennþá, heh)
vona bara að það verði eh úr þessu og ég leyfi mér að vera ég sjálf og leyfi henni að kynnast MÉR. því ég er ósköp ágæt. (;
ég ætla.. ég ætla.. hjálpa mér sjálf því það gerir það engin fyrir mig.
einmannaleiki kemur aðeins innan frá. maður verður að gera eh í honum sjálfur.
núna hlakka ég baraaa til..

drotting hefur það auðvita mjög gott. reynir stundum að troða sér leið útúr maganum með bakinu á sér, þá getum við talið rifbeini hennar, sem er gaman.
jæja svef.
og þú.. TAKK. þér finnst það kannski lítið, en fyrir mér.. (;
(; (; (; (; (; (; (;

11.8.05

..og það styttist.
sumarið að verða búið (eins og ég hef óskað frá því í janúar) og það þýðir aðeins eitt, að drotting fer að láta sjá sig. við elías erum alveg handviss um að hún komi aðeins á undan tilsettum tíma sem er 5okt. það er svosem allt næstum reddí. veit einhver um einhvern sem vantar að losna við ömmustól? svo vantar okkur bara bílstól sem m+p ætla að gefa okkur, annas er allt að verða komið. og já ég er skipulögð og vill hafa allt reddí þegar svona eðal drotting mætir á staðin. það þýðir ekkert annað.
allavegna var ég að setja inn nýjar myndir. bumbumyndir, fiskidagurinn miklu & sköpunar-listar-málingar-trölladeig-litir og allur pakkinn. óó já. sko, við fórum í yndislega jólahúsið á sunnud. með tengdó. og þar sá ég engla úr trölladeigi og fannst allt í einu tilvalið að ég færi að gera og mála trölladeig. svo auðvita skellti ég bara í það og keypti mér svo litli og er búin að gera nokkur kvikindi og mála. þetta er ekkert smá gaman og svo gott að dundast við þetta. ég verð neflilega að hætta að skipuleggja allan daginn hjá mér, fara þetta og fara hitt. þessa viku hef ég rétt skroppið í 2 læknistíma og svo annas bara verið heima. er farin að leggja mig á daginn og ég verð miklu fríksari og betri af smá leggi. og svo dunda ég að mála og vesenast eh. og vitiði meira að segja hvað? sumir halda að blóðþrýsturinn verði eh betri þegar maður er súper lús og ofur chillaður, en neinei það er bara rugl. því annas væri minn blóðþrýstingur einhverstaðar háflæskæ (því ég er ekki sú afslappaðast eða mest rólegast í bransanum) en hann er það ekki og hefur aldrei verið. ég er alltaf alveg akkúrat. meira að segja stundum of lá en öllum er sama á meðan hann verður ekki of hár.
við förum suður 30ágúst. ég ætla sko að panta flug um morguni og helst heim í hádeginu. nenni ekki að vera fyrir sunnan að vesenast eh. erum að fara aftur í hjartaómskoðun á drottinguni (það var samt allt í standi seinast, þeir vilja bara vera alveg 100% vissir) og svo þarf ég aftur til auglæknis. og enn og aftur.. mikið verð ég fegin þegar ég verð búin að eiga og þá verður ekki þetta lækna ves. en það er gott að vel sé fylgst með manni. ég er líka heppin hversu gott fólk ég er með í þessu öllu saman.
við elías erum að spá í að fara í ferðalag um helgina. fara á laugad. með tjald og nýja skó í ásbyrgi sem á víst að vera eh voða bjútí. hef aldrei komið þar. sjáum til hvað verður úr þessu. annas langar okkur líka að fara í hrísey og borða í brekku og hafa það rómó. allavegna þá er elías í fríi um helgina og við ætlum að gera eh, ef elías ógeðslega þreytti og leta hefur orku. seihh seihh.
ó vell.. verð að fara gera mig redddí fyrir Desperate Housewives
og ég er Bree Van De Kamp

5.8.05

alltaf jafn gott að koma á bókasafnið og hanga. að hanga á bókasöfnum er gott. kíkja í tölvuna, kíkja á síður sem ég kemst ekki á heima, (útaf einhverju fokki) skoða allt hitt fólkið, lesa alskonar blöð, kíkja í bækur sem maður nennir samt ekki að taka, liggja í sófanum, skoða barnabækurnar og bara hangsa. gúdd gúdd.
það er líka oft svo að gott að komast í annað umhverfi og blogga. heh.
og næstum.. bara næstum var ég búin að gleyma hvað er gott að hlusta á xið. hvað er að mér? hvernig gat ég næstum gleymt? sjitt.. freysinn á aldrei eftir að fyrirgefa mér. hver man ekki þá daga þegar ég seldi emblu blöndal á flómarkað freysa? hahah, það var frekar fyndið. hringdi einhverjir gæar næstu klukkutíma og spurði um verð og annað. þá var ég hætt við að selja hana því þá var hún orðin þæg og góð aftur. hvaaa.. hún var að garga og öskra og eh slæmt, og auðvita vorum við frænkur að hlusta á xið og flómarkaður stóð sem hæðst. kommmon, hún bauð uppá þetta. en djöfull er xið samt breytt. einhverjar skímó auglýsingar og pottþétt 30, whattt? ekki var þetta svona backindadays. óíneih.
litla stýrið er að hætta á naustatjörn leikskólanum sínum og fara á leikskólanum sem er fyrir neðan okkur. fór með ís og læti í leikskólan í dag, frekar spennó. reyndar ótrúlega sniðugt að það má ekki koma með neitt nema íspinna þegar maður er að hætta eða þegar maður á afmælis. finnst það ekkert smá sniðugt. ótrúlega ósanngjarnt ef þeir sem eiga kannski fátæka foreldra og geta ekki komið með þvílíkar kökur og pizzur og læti, þannig að það er bara það sama á alla. sem er gott.
er aðeins alltaf að skoða síður eins og móðurást.is & ólivía & óliver þvílíkt hvað er hægt að kaupa handa litlu barni. ég veit alveg að það er margt og mjög mikið þarna mjög óþarfa dót en ansi væri gaman ef maður ætti 98537957937987349þúsund mikla péninga að geta keypt bara allt. en eins og mamma segir alltaf þegar einhver er geðveikt ríkur, ætli hann sé eh hamingjusamari? neh og ég efast um það. eða ég veit það. ég er hamingjusöm nákvæmlega eins og lífið er akkúrat núna. ég t.d. ekki fyrir því um versló að langa djamma og eh. sem er skrítið, því ég var búin að ýminda mér að mig myndi langa fá mér bjór og djamma, en mig langaði það ekkert. fór 2 í bæin og fór svo bara heim um 2 leitið og það var bara gaman.
maður getur samt veri ansi klikkaður. maður á það til að detta í það að hugsa allt það vesta, þið vitið og þegar maður er ófríksur þá er getur maður dottið inní ansi slæma hugsun um að allt gangi á aftur fótunum og allt það. en ef ég dett inní þetta ástand, þá tek ég oft upp sitja guðs englar (eftir guðrúni helgadóttur) og les aðeins fyrir drottinguna, finn hana sparka og ólmast og þá hætti ég að hugsa svona. og ég syng líka oft fyrir hana, því það er mjög sniðugt að þegar ég er ein heima eða elías sofnaður við hliðina á mér, og ég byrja að ræða við litlu snúllu eða lesa fyrir hana þá verður allt brjál og hún ólmast og rassgatast eins og ég veit ekki hvað. en það er líka mjög fyndið að þegar hún er sparka og það er einhver í kringum mig annan er elías, og ég ætla að leyfa þeim að finna þá hættur hún um leið og þær hendur er mættar. reyndar hefur pabbi, mamma og harpa fengið að finna, en ekki ásgeir eða tengdó eða embla. og eins og ásgeir hefur oft reynt að ýta í hana og bögga hana svo hún fari að sparka, ó nei maður lætur ekki plata sig. einhverig held ég að þeyya verði ansi fyndin karekter. og voandi verður hún með hárið sem fæddist með. og allt bendir til að litla drottingin verði vog.

óó.. jæja. tímin í tölvuni er að verða búin. ætla að fara snúllast um bókasafnið. og bíða eftir að lee mæti á pleisið, held að við ætlum á kaffihús. enda er ég að deyja úr koffínskorti.
hehe.. xið: fyrst var það páll óskar, rottweiler og svo hreimur.. árni jonsen er eins og xið, þolir engan viðbjóð.
HAHAHAHAHHAHAh..