nehh hún er ekki komin.
en það styttist í kellu. 2-3vikur í mestalagi. ég fer enn stækkandi og þríf enn meira. það er rétt sem Dagrún segir, börn hafa ekki gott að því að vera í of hreinu umhverfi og ég vill ekki að barnið mitt verði síveikt því það er svo hreint heima hjá því. en ég get ekki hætt. þetta er eins og einhver fíkn. ég hef alltaf verið iðin eins og lús við þrif og takitil en núna er hámark hámarkana. vest að ég bý ekki enn með bósó.
nábíturinn er búin að gera sig ansi heimakomin í mér og angrar mig. ég sef vel. ég er enn ekki komin með nein slit (7, 9, 13) ég finn reyndar dálítið til þegar ég fer í göngur en ég reyni samt að sleðast áfram, þó það sé ekki nema hring í kringum blokkina.
gvöðð, ellen vinkona sendi okkur æðisleg föt. hún missti sig aðeins í HM í svíþjóð. jihh ekkert smá bleik dress og kjóll og 2 bolir og húfa og klútur og æðislegustu sokkar í heimi. ég sem hélt að mitt barn myndi ekki klæðast bleiku. en ég hafði ansi rangt fyrir mér. ætli þetta verði ekki lítil sykurpúði. með kolsvart hár eins mamman. og enn er erum við ekki búin að finna neitt nafn. við erum ekki einu sinni komin með smá hugmynd. og ég er ekki að kidda ykkur. en það kemur, það kemur. einhverjar uppástungur?
annas gengur allt sinn vanagang.
en haldiði að ég hafi ekki farið á djammið á föstud. fórum fyrst til bróa. þar sátum við, brói, kjartan, elías, raggi og bósó. mikið var spajallað um lauga (í denn) og ýmislegt sem als ekki er við hæfi að rita hér. svo fórum við niðrí bæ. á amor var haldið. ég hef ekki komið þar inn síðan þetta var svona voðððalega hip & kúl djammstaður. mér fannst þetta allt svo fyndið. allir geððveikt svalir. dansandi eins og fávitar (ég er ekki svona þegar ég er full) og allir að reyna við alla og reyna eins og reynir sem fær ekki neitt. ó lord. elías greiið var edrú og svo alltíeinu bara blind fullur, svo við fórum heim um 2. gaman að koma aðeins út. við ætluðum meira segja að kíkja á pál beibí óskar, my one and only. en það kostaði eftir kl. 1 þannig við hættum við. ég er samt viss um að palli hefur saknað mín.
ég og guðfinna ætlum að draga heklu með á kaffihús en kellan svarar ekki. ætla að reyna aftur. er hjá moms & daddy cool og er að fara horfa á mausTV sem er músasjónvarpið. affffar spennó. embla kallar.
AMERICAN NEXT TOP MODEL byrjar náttúrlega á morgun og ég get ekki beðið.
ég fór með myndir í framköllun í gær, þarf að sækja þær. svo á ég von á gestum, guðfinna og stella ætla að kíkja í tröllagilið.
lattttterrr.
6.9.05
1.9.05
Var að setja inn nýjar myndir.
Ef ég var einhver tíman stór og sver, þá er það ekkkkert meðan við núna. ég hef náð takmarkinu.. að setja glas á bumbuna og drekka, ÁN ÞESS AÐ NOTA HENDURNAR. yes im like pheobe, reyndar get ég ekki sett skál og borðar en glas er gott. ég nota mér þetta óspart. skoðið bara myndirnar, við þurftum auððvita að taka mynd af þessu.
já er ansi lukkuleg með mig bara.
læknunum líst vel á allt. hún er víst eh aðeins yfir meðanlagi í mælinum, en ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af.
fórum á vopnaf. á sunndu. og komum heim á þriðjud. aftur. ansi gott. fengum full af fötum lánað hjá Eygló og erum búin að fá vögguna. ég ég komst að því að elías er ekkert skárri en ég með að sofa í örðum rúmum en okkar. hann er gamall þetta litla skinn. hann hefur alltaf sagt að sér sé alveg sama hvar hann sofi en það er ekki rétt.
hann var líka að skipta úr rekstarfr. yfir í markaðfr. (bæði á viðskiptarsiði) og það gerir það að verkum að hann útskirfast því miður ekki næsta vor, heldur næsta haust, semsagt eftir ár. en það er bara eins og það er og ekkert við því að gera.
allt í einu byrjaði ég að þrífa og þrífa eins og óður maður með hundaæði í hádeginu.. og var að enda núna. 4tímar af þrifum.. allt ansi hreint og fínt. það var skúrað, þukkað af, klósettið tekið eins og það leggur sig, skáparnir í eldhúsinu, hendt ýmsu dralsi, moppað, ryksugað, bakaraofin tekin í gegn, pússað.. og bara name it. ég er alveg komin í þennan "hreiðrunargír" það er víst þannig að þegar lítið er eftir að meðgönguni, þá byrja mömmurnar að missa sig í þrifum og veseni og ég er illa haldin af þessu rugli. ásgeir bróðir komin hérna yfir áðan og skammaði mig og dró mig niður af eldhúsinnréttinu (já ok, ég var komin uppá koll og uppá eldhúsbekkinn að fara laga til uppá einhverju rugli) kallinn var bara reiður og sagði mér að hætta þessari vitleysu.. hvaða hvaða. (; ég hlýddi nú samt. og skondraðist niður.
við erum að fá stöð2 & sýn í dag.
svo fór ég í ökumat um daginn. og já bósó ég fæ að halda bílprófinu. einu fyrirmælin sem elías setti mér áður en ég fór út voru þau, að ég ætti ekki að keyra eins og ég keyri venjulega. og ég gerði það og kallinn var ansi lukkulegur með mig. sagði reyndar að ég tæki forstjórabeyjur og hugsaði lítið um hægriréttinn. en það hefur ekki sakað hingað til.
jæjaaa.. ætla með elías í verslunarferð.
takk fyrir öll kommentin, þetta gladdi mitt hnullastóra hjarta.
Frú Hnullabolti kveður.
21.8.05
jahh hver skollinn.
ég er að springa.
ég er orðin bústnari en vel troðin pylsa, eða kona slátrars, eða gyltu mamma gengin 18mánuði. já ég er sver eins og við var að búast. það er orðin ansi strembið að hreyfa sig um í rúminu. þyrfti nauðsynlega að komast á silkilak eða snúnislak (öllu ganni sleppt) og enn fer ég mér ekki hratt yfir. ég get ekki farið í eins langar göngur og ég gerði. því annas tæki það mig allavegna nokkra daga og ég yrði eins og hvalur á góðum degi. ég er farin að fá góðððða krampa í magan (sem er eðililegt) og fæ oft yfir daginn samdráttarverki (sem er líka eðilegt). fyrst þegar ég fékk samdráttarverki og ég var eitthvað að segja siggu vinkonu frá því þá sagði ég "æ, ég svona sinadrátt í barnið" hún horfði á mig eins og ég væri kiðlingur með 18 fætur og sagði mér að þetta væri ekki sinadráttur í barinu heldur samdráttarverkur. já maður getur verið ansi gáfulegur. komin með smá bjúg. búin að þyngjast um 10kg (sem telst víst ekki mikið) hef ekkert fitnað sjálf. 7 9 13.
..og svona líða dagarnir hjá mér. bara 4-5vikur eftir (sykursjúkar konur eru aldrei látnar ganga fram yfir, og eftir 5vikur verð ég komin 39vikur og fer ekki lengra en það) húrra.
Annas vorum við Elías að koma úr 6ára afmæli hjá Hugrúni. Við vorum fávitarnir sem mættum ekki með afmælisgjöf. Allt Elíasi að kenna.
Helgina leið sem aldrei fyrr. Fóru í grillgleði hjá Bónus uppí Kjarna í gærkvöldi. Þar var drukkið og dansað. Setti inn nokkrar myndir.
LORD LORD LORD LORD LORD LORD LORD.. AMERICAN NEXT TOP MODEL er að fara byrja 7sept. jihhhh.. ég fer yfir um. missi vatnið og fæði. þetta eru fréttir sem ilja manni um hjarta rætur.
vill einhver vera með mér í svona antm klúbb?
Bylja var að einast lítil prins. Við vorum ömurleg og fórum ekki til þeirra (ekki spyrja afhverju, því ég veit ekki afhverju) vorum samt búin að kaupa sæta gjöf, sem ég ætla að setja í póst á morgun.
Elíasi finnst ég pæla alveg hrikalega mikið í öllu í sambandið við þessa ófæddu drottingu. Ég vill hafa allt tilbúið. Allt frá vagn til þvottapoka, er það óeðilegt? Nei ætli það. Okkur vantað orðið eiginlega ekkert. Búin að kaupa allt sem kaupa þarf, nema bílstólin (eggið) sem mammz og daddy cool ætla að gefa okkur, svo ætla Linda & Bjarni að lána okkur ömmustól og svo fáum við eitthvað í láni hjá Lilju systir Hörpu. Það er betra (eða mér finnst það) að hafa bara allt reddí. Ég er ekki þessa afslappaða týpa, þannig að það er betra að hafa hlutina bara á hreinu. Það flækir ekkert (;
Sultupulsa
Ætla að skreppa niður til Péturs og tjékk á hvað hann hefur bitastætt að segja mér.
16.8.05
DRULLUKAKA.
veit ekki hvort það óléttan eða hvað en þá var ég með kökk í hálsinum út allan kastljósþáttinn áðan. ég finn til með jóni ásgeir og jóhannesi. þetta eru menn sem hafa gert meira fyrir ísland en nokkur annar. og alveg er ég viss um það að jóhannes er maður sem hefur unnið yfir öllu því sem hann á. þetta eru heiðarlegir menn. jón ásgeir hafi svör við öllum spuringun sem snáldurspúkin sigmar lagði fyrir hann. auðvita var hann stessaður en hann svari öllu. skýrt og skilmerkilega.
ef elías hefði verið með síma hjá guðfaðirnum þá hefði ég hringt í hann og sagt honum að ég myndi elska hann. og ekki hikað við það.
drullukaka segi ég og skirfa.
en annas er stuð í tröllagilinu. rigning og rigning. sem er ágætt. þá vaxa blómin. og hver vill ekki að þau vaxi? (like i give a flying fuck)
mig langar ógeðððslega mikið í súkkulaði. það kemur mjög sjaldan fyrir að mig langi virkilega í nammi, en núna.. hmm.
elías er að læra fyrir upptökuprófin sín tvö og er þá búin að vinna á daginn kl. 2 sem er mjög skrýtið, því oftast er hann frá 8-8 á virkum dögum. og ég er ein heima ð dúllast og sniglast eh.
á morgun er sónar.. ví. maður verður ekki leiður á þeim læknistímum. núna förum við vikulega í sónar. og eruði að fatta eitt, það eru kannski 5-6vikur í drottinguna? sjibbbbí.
ætla að hita mér kaffi og fara mála.
drotting hiksar á ykkur. eða kannski er hún að hvæsa. gæti verið gæti verið.
14.8.05
ég tók svo STÓRT skref í dag.. á minn mælikvarða.
ég hef verið að veltast um með heimskulega spuringu inní mér lengi. loksins lét ég verða að því að spyrja manneskjuna. og það var ekkert svo hræðilegt eftir allt saman, og hún drap mig ekki að hrækti á mig. víh.
(nei ég var ekki að biðja elías um að gifast mér)
mér líður eins og ég sé 100kg léttari (ekki það að ég fari hraðar yfir eða geti hlaupið eins og fætur toga, ég silast ennþá, heh)
vona bara að það verði eh úr þessu og ég leyfi mér að vera ég sjálf og leyfi henni að kynnast MÉR. því ég er ósköp ágæt. (;
ég ætla.. ég ætla.. hjálpa mér sjálf því það gerir það engin fyrir mig.
einmannaleiki kemur aðeins innan frá. maður verður að gera eh í honum sjálfur.
núna hlakka ég baraaa til..
drotting hefur það auðvita mjög gott. reynir stundum að troða sér leið útúr maganum með bakinu á sér, þá getum við talið rifbeini hennar, sem er gaman.
jæja svef.
og þú.. TAKK. þér finnst það kannski lítið, en fyrir mér.. (;
(; (; (; (; (; (; (;
11.8.05
..og það styttist.
sumarið að verða búið (eins og ég hef óskað frá því í janúar) og það þýðir aðeins eitt, að drotting fer að láta sjá sig. við elías erum alveg handviss um að hún komi aðeins á undan tilsettum tíma sem er 5okt. það er svosem allt næstum reddí. veit einhver um einhvern sem vantar að losna við ömmustól? svo vantar okkur bara bílstól sem m+p ætla að gefa okkur, annas er allt að verða komið. og já ég er skipulögð og vill hafa allt reddí þegar svona eðal drotting mætir á staðin. það þýðir ekkert annað.
allavegna var ég að setja inn nýjar myndir. bumbumyndir, fiskidagurinn miklu & sköpunar-listar-málingar-trölladeig-litir og allur pakkinn. óó já. sko, við fórum í yndislega jólahúsið á sunnud. með tengdó. og þar sá ég engla úr trölladeigi og fannst allt í einu tilvalið að ég færi að gera og mála trölladeig. svo auðvita skellti ég bara í það og keypti mér svo litli og er búin að gera nokkur kvikindi og mála. þetta er ekkert smá gaman og svo gott að dundast við þetta. ég verð neflilega að hætta að skipuleggja allan daginn hjá mér, fara þetta og fara hitt. þessa viku hef ég rétt skroppið í 2 læknistíma og svo annas bara verið heima. er farin að leggja mig á daginn og ég verð miklu fríksari og betri af smá leggi. og svo dunda ég að mála og vesenast eh. og vitiði meira að segja hvað? sumir halda að blóðþrýsturinn verði eh betri þegar maður er súper lús og ofur chillaður, en neinei það er bara rugl. því annas væri minn blóðþrýstingur einhverstaðar háflæskæ (því ég er ekki sú afslappaðast eða mest rólegast í bransanum) en hann er það ekki og hefur aldrei verið. ég er alltaf alveg akkúrat. meira að segja stundum of lá en öllum er sama á meðan hann verður ekki of hár.
við förum suður 30ágúst. ég ætla sko að panta flug um morguni og helst heim í hádeginu. nenni ekki að vera fyrir sunnan að vesenast eh. erum að fara aftur í hjartaómskoðun á drottinguni (það var samt allt í standi seinast, þeir vilja bara vera alveg 100% vissir) og svo þarf ég aftur til auglæknis. og enn og aftur.. mikið verð ég fegin þegar ég verð búin að eiga og þá verður ekki þetta lækna ves. en það er gott að vel sé fylgst með manni. ég er líka heppin hversu gott fólk ég er með í þessu öllu saman.
við elías erum að spá í að fara í ferðalag um helgina. fara á laugad. með tjald og nýja skó í ásbyrgi sem á víst að vera eh voða bjútí. hef aldrei komið þar. sjáum til hvað verður úr þessu. annas langar okkur líka að fara í hrísey og borða í brekku og hafa það rómó. allavegna þá er elías í fríi um helgina og við ætlum að gera eh, ef elías ógeðslega þreytti og leta hefur orku. seihh seihh.
ó vell.. verð að fara gera mig redddí fyrir Desperate Housewives
og ég er Bree Van De Kamp
5.8.05
alltaf jafn gott að koma á bókasafnið og hanga. að hanga á bókasöfnum er gott. kíkja í tölvuna, kíkja á síður sem ég kemst ekki á heima, (útaf einhverju fokki) skoða allt hitt fólkið, lesa alskonar blöð, kíkja í bækur sem maður nennir samt ekki að taka, liggja í sófanum, skoða barnabækurnar og bara hangsa. gúdd gúdd.
það er líka oft svo að gott að komast í annað umhverfi og blogga. heh.
og næstum.. bara næstum var ég búin að gleyma hvað er gott að hlusta á xið. hvað er að mér? hvernig gat ég næstum gleymt? sjitt.. freysinn á aldrei eftir að fyrirgefa mér. hver man ekki þá daga þegar ég seldi emblu blöndal á flómarkað freysa? hahah, það var frekar fyndið. hringdi einhverjir gæar næstu klukkutíma og spurði um verð og annað. þá var ég hætt við að selja hana því þá var hún orðin þæg og góð aftur. hvaaa.. hún var að garga og öskra og eh slæmt, og auðvita vorum við frænkur að hlusta á xið og flómarkaður stóð sem hæðst. kommmon, hún bauð uppá þetta. en djöfull er xið samt breytt. einhverjar skímó auglýsingar og pottþétt 30, whattt? ekki var þetta svona backindadays. óíneih.
litla stýrið er að hætta á naustatjörn leikskólanum sínum og fara á leikskólanum sem er fyrir neðan okkur. fór með ís og læti í leikskólan í dag, frekar spennó. reyndar ótrúlega sniðugt að það má ekki koma með neitt nema íspinna þegar maður er að hætta eða þegar maður á afmælis. finnst það ekkert smá sniðugt. ótrúlega ósanngjarnt ef þeir sem eiga kannski fátæka foreldra og geta ekki komið með þvílíkar kökur og pizzur og læti, þannig að það er bara það sama á alla. sem er gott.
er aðeins alltaf að skoða síður eins og móðurást.is & ólivía & óliver þvílíkt hvað er hægt að kaupa handa litlu barni. ég veit alveg að það er margt og mjög mikið þarna mjög óþarfa dót en ansi væri gaman ef maður ætti 98537957937987349þúsund mikla péninga að geta keypt bara allt. en eins og mamma segir alltaf þegar einhver er geðveikt ríkur, ætli hann sé eh hamingjusamari? neh og ég efast um það. eða ég veit það. ég er hamingjusöm nákvæmlega eins og lífið er akkúrat núna. ég t.d. ekki fyrir því um versló að langa djamma og eh. sem er skrítið, því ég var búin að ýminda mér að mig myndi langa fá mér bjór og djamma, en mig langaði það ekkert. fór 2 í bæin og fór svo bara heim um 2 leitið og það var bara gaman.
maður getur samt veri ansi klikkaður. maður á það til að detta í það að hugsa allt það vesta, þið vitið og þegar maður er ófríksur þá er getur maður dottið inní ansi slæma hugsun um að allt gangi á aftur fótunum og allt það. en ef ég dett inní þetta ástand, þá tek ég oft upp sitja guðs englar (eftir guðrúni helgadóttur) og les aðeins fyrir drottinguna, finn hana sparka og ólmast og þá hætti ég að hugsa svona. og ég syng líka oft fyrir hana, því það er mjög sniðugt að þegar ég er ein heima eða elías sofnaður við hliðina á mér, og ég byrja að ræða við litlu snúllu eða lesa fyrir hana þá verður allt brjál og hún ólmast og rassgatast eins og ég veit ekki hvað. en það er líka mjög fyndið að þegar hún er sparka og það er einhver í kringum mig annan er elías, og ég ætla að leyfa þeim að finna þá hættur hún um leið og þær hendur er mættar. reyndar hefur pabbi, mamma og harpa fengið að finna, en ekki ásgeir eða tengdó eða embla. og eins og ásgeir hefur oft reynt að ýta í hana og bögga hana svo hún fari að sparka, ó nei maður lætur ekki plata sig. einhverig held ég að þeyya verði ansi fyndin karekter. og voandi verður hún með hárið sem fæddist með. og allt bendir til að litla drottingin verði vog.
óó.. jæja. tímin í tölvuni er að verða búin. ætla að fara snúllast um bókasafnið. og bíða eftir að lee mæti á pleisið, held að við ætlum á kaffihús. enda er ég að deyja úr koffínskorti.
hehe.. xið: fyrst var það páll óskar, rottweiler og svo hreimur.. árni jonsen er eins og xið, þolir engan viðbjóð.
HAHAHAHAHHAHAh..
1.8.05
komnar inn nýjar myndir. hafnarpúkinn 2005 og eh úr bænum.
góð helgi að baki, sumir þreyttari en aðrir en allir hressir.
voandi gengur umferðin vel í dag og allt það.
við elías erum bara hérna í rólegheitunum, liggjum yfir video.
ég er samt að spá í að fara í gönguferð.
kúlan er orðin svo glerhörð að það er ekki nokkru lagi líkt.. og alltaf styttist þetta. sem er anssssi jákvætt (;
jæjaaa.. verið nú dugleg við að kommenta því ég er svo dugleg við að blogga.
mmmkayh
28.7.05
ahhhh.. alveg er það merkilegt með mig. alltaf á kvöldin eða næturnar fæ ég þá flugi í hausin að taka til í baðskápunum, henda gömlum ilmvötnum og kremum og drasli og ég dundast í því heillengi, gleymi mér bara. áðan þá allt í einu bara varð ég taka til í geymsluni aðeins.. lalalalah, ég fer eh aðeins inná bað, gramsa, róta, finn brúnnkukremið sem ég keypti einhvertíman í sumar og auðvita byrja ég að klína því og troða á mig alla.
..útkoman er semsagt sú að núna sit ég öll klístrug og auððvita klægjar mig ótrúlega (bara að því ég má ekki klóra mér) á nærbuxunum einum fata með bumbubelgin útí loftið, með hendurnar frá síðu, svo allt fari ekki í fokk og með tan all over. ef ég væri kallarnir.is þá bara ég tan vikurnar. hell yeh. ekki spuring. en það er gott að líta vel út. eins og tjéllingin.is segir.. tanið skapar manninn. eða what ever.
allavegna höfum við það gott. ég er hress. á það til að var doltið þreytt og dösuð, en hef samt ekkert orðin svona SÚPERÞREYTTVERÐAÐLEGGJAMIGALLTAFALLTSTAÐARSEFALLANDAGINN, sem betur fer. rifbeinin eru að molna eitt af örðu, sem hljómar jafn notalega og það er. nábítur hvaf alveg þegar ég fékk undra lyfið slippery elm í heilsuhúsinu (og það er ynndilegt að hafa engan nábít, i love it) og það tók mig ekki nema 40mín að labba niðrí bónus í dag. ég labba þangað á hverjum degi, því oftast fer elías á bílnum. það tekur mig kannski 15-20mín en í dag var það einstaklega erfitt. var með einhverjum verki (því drotting var á fúll svíg alla ferðina) og svo var líka offffsalega heitt (ég hata sól, hita og allt það ógggeðð) en ég komst, það er fyrir öllu. þurfti svo að snáldrast uppí vinnu, í hlíðina góðu. kíkti þar á gamla fólkið mitt, sem öllum fannst ég auðvita myndaleg og lúkking gúd (yes) þurfti að fá undirskriftir útaf fæðingarorlofinu mínu. sem mun
btw standa frá 01.10.05 - 01.09.06.. já maður er góður á því. ég vill ekki setja 6mánða barnið mitt til dagmömmu eða eh álíka, óneih. og svo fer elías í orflof frá júní-ágúst, semsagt næsta sumar.
við vorum að kaupa skipti-baðborð og barnavagn. ekkert smá gaman. þetta tvennt saman kostaði 72þús. ekki nema, heh. eins og maður myndi eyða ef við færum til eyja á þjóðhátíð eða eh. elías setti saman borðið, og það lúkkar vel. hæfir litum drottingum. og vagnin er auðvita eðalkerra, úr gulli. ég var líka að gramsa í gömlum fötum af frú emblu, fann þar helling. og svo fór ég og keypti bómullardress og sokkabuxur og eh. æ þetta er svo gaman, maður bara verður. það er doltið skrítið að versla för nr. 40. en óskaplega er það gaman. drottingin er byrjuð að hiksta inní mér, það er stórmerkilegt.
mikið er samt skrýrið að það séu bara 2mánuðir í að hún mæti. ég er komin 30vikur á leið. lord, þetta líður.. enda sem betur fer.
ææ.. er að skoða síður. þessi er ógggislega skotin í kærastunum sínum, sé mig í anda, 16ára á laugum að springa úr skotiníelíasveiki. heheh, ekki það að ég sé ekki svoleiðis ennþá. sakna hans við minnsta og elska hann meir og meir, sem ég he´lt þegar ég var 16ára að ekki væri hægt. hóst ..það er oft svo gaman að skoða síður hjá örðum.
jæja nú hlítur tanið að vera reddí.. nenni ekki að vaka lengur og vera lengur eins og strektur grís á staur, eða eins og í daglegu tali hjá herra bróðir mínum, strektur köttur. hann kallar mig þetta. alltaf. já.
þú þarf ekki að segja vinum þínum að þú elskir þá eins og einhver hommi, potaðu frekar í augun á þeim. það þýðir það sama
26.7.05
ég hef ekki hugmynd um hvað gerðist. var með fullt af nýjum myndum, t.d. frá egilsst. en allt í einu eru þær horfnar. veit ekki alveg.. skil ekki. en ok. setti allavegna inn myndir af íbúðini okkar og eh. vorum að breyta og aðeins að lagfæra. og svo allt úrsýnið okkar, það er nokkuð magnað.
allavegana.. þá skellti ég mér á egilsst. með öbbu á föstud. þetta hljómaði eh svo vel, heimsækja hrafndísi og grísling og bara chilla eh á austurlandinu, fara á tónleika með emiliönu torrini og eh. en það var ekkert spes. tónleikarnir voru alveggg geððveikir. voru á borgafirði, í einhverju elddgamalli bræðslu (bara eins og risa braggi) fullt af kertum og rómó. allir í lopapeysu með landa og bjór, nema ég og brói og frosti. ég var í rauða pönkararokkass kjólnum mínum og frúaríhamborgstígvélunum mínum og stráknar á bolnum með ekkert bús. en það var samt blanka logn og flottheit þannig að það var ekkert mál. emma tott var líka algjört yndi og æði. æððislegir tónleikar og ég saknaði elíasar ekkert smá, því það var svo kósí og rómó þanna. jii.
ég fer ekki aftur að vinna. þá er það ákveðið.
annas er ég hress. mér líður reyndar ekki vel akkúrat núna, þarf að fara sofa.
fór á flóamarkað í dag. keypti, piknik tösku, einn eyrnalokk, peysu og æææððislega kápu á drottinguna þegar hún verður svona 8ára. grænbláaljós, ullar sunnudagskápu. þvílíkt flotta.
..og eitt sem ég hef komist að á þessum 20árum mínum. ég skil ekki og nenni ekki að spá í fólki sem getur ekki anskotans til að spyrja kurteisislega: hvernig hefur það? (eins og það sé eh erfitt) fólk getur verið svo fokking mikilir fávitar. fólk sem maður heyrir sjaldan í og eh. æ. þetta fólk er sjálfselskt og HUNDleiðinlegt og auðvita mjöggg ljótt. oj.
já. hver sendi mér sms af netinu í gærnótt? haa?? skildi það allavegna ekki.
góða
nótt.
verið kurteis og góð.
og hvernig finnst ykkur svo kotið okkar?
17.7.05
nýjar bommsumyndir.
ef ég beyji mig (sjá) þá sést rassinn á drottinguni. heh.. sést samt ekki nógu vel á myndi. en þetta er frekar fríkí. en fyndið.
ég hélt að ég væri komin með þanna hæfileika að kúra útí sólin og láta mér líða vel og fá þá í leiðini smá lit. en nei. á miðvikudag var geggjað veður hérna og við mamma láum í steikjandi hita á höfn, það var voða kósí og merkilega var að ég nennti því alveg og varð ekkert eyrðarlaus eða neitt. en svo vaknaði ég á fimmtud. og var öll útitekin og með lit en auðvita er ég þá er komin með sólarofnæmi. kommmon.. hversu boring er það? það gæti samt bara verið á meðan ég er ófrísk, því ég hef aldrei verið með þetta áður. vona að þetta verði bara á meðan ég er ófrísk, nenni ekki að vera með sólarofnæmi, það er heimskulegt. eins og að vera með ofnæmi fyrir.. rúminu sínu eða sófanum eða sjónvarpinu. er semsagt með eh skemmtilegt sterakrem núna sem ég maka á mig.
svo var ég nú gáfuleg líka að troða hendini á mér uppí brennheitan ofnin í eldamennsku minni, bútur af hendini á mér er eins og austin powerskötturinn, ekki sætt. og vont. en ég lifi. (;
tumi bróðir er í pössun. mamma og pabbi skruppu í djammið á dósini um helgina. ég nennti ekki. er fegin. home sweet home. ég ætlast samt til að fá allt slúðrið beint í æð, ekki seinna en snemma á sunndu. mmkayh?
fórum á sin city áðan.. sjitt hva hún er mögnuð. litlu drottinguni leist samt ekkert á þetta fyrst, þvílíkt spörk og vesen á henni fyrst og svo róaðist hún. ætlaði með stákunum (elías, frosta, ragga bróa og einhverjum) á amor eftir bíó, en nennti ekki.. kom heim og fór með tumoz í göngutúr og svo sit ég hér og hann er að sleikja allan náttsloppin sem ég er í.. ekki hef ég hugmynd um afhverju? kannski er einhver matur á honum.. kæmi mér ekki á óvart.
birna vinkona var líka að eignast lítin kóng voðalega líkur mömmu sinni.. algjör dúlla. við mamma sendum þeim pakka. hlakka svo bara til að fá að sjá fleiri myndir af húninum.
ó jæja.. við tumi ætlum í háttinn.
vona að það verði ekki sól á morgun. og vona að það komi ekki meiri sól þetta sumarið. hahha.. það er heldur ekkert notalegt að vera alltaf heitt og með stóra bollu framan á sér.. nei ekki svo notó. þannig.. engin sól og ekkert vesen.
allir sammála? ..hélt það líka.
13.7.05
Colorful.. yes i´am.
setti inn myndir frá suðurförinni. ágætis skemmtun. það var mjög fínt fyrir sunnan. þetta gekk allt saman mjög vel og öllum leið vel og lalala. augnlæknirin sagði að það væri smá breytingar í augnbotinum hjá mér (því það er svo mikið blóðflæði um líkaman og til augnan) og hún vildi sjá mig aftur eftir 2mánuði. uhh.. jájá það verður ekkert mál. ég komin þá 36vikur á leið og að skella sér suður eins og kindin einar.. pís of keik. þurfum líka að fara í sekend tjékk á hjartanum á drottinguni og það er best að sameina þetta allt. veiih suður. *æl* nenntum ekkert að gera þar. verluðum smá. útsölur sem þýðir að það er ekkert til nema eh crap sjitt. en smá samt.
elías í fríi í dag. þinglýsa húsaleigusamingum og tjékka í dótakassan á barnavagna, skiptiborð (mjög séstakt sem fékkst ekki einu sinni f. sunnan, við viljum ekki hvítt plastbaðdrasl)
ansk. helv. ég brendi mig á ofinum. elías hljóp til og stakk hendina á mér undir ÍÍÍÍSSSkalt vatn og ég mátti ekki hreyfa hana þaðan í margar kvalafullar mínótur. núna er blettur á hendina á mér eins og austin powers köttur. sætt. nei. hvítt og rautt og ljótt. heimki ofn. hann lét mig reka hendina upp.
okkur hlakkar svo til að fara í sónar í næstu viku. það eru 2mánuðir síðan við fórum seinast. frekar langt á okkar mælikvarða. hlökkum til að sjá litlu dísina. en við hlökkum samt eiginlega meira til að hún mætir á svæðið.. það verður yndislegt. ég held að tumi bróðir eigi eftir að vera vermdarinn hennar. ég er alveg viss um það. embla sætabolla er búin að vera í rúma viku í burtu og kemur ekki heim fyrr en um helgina og ég er farin að sakna hennar svoooo!! ohh. hlakka til að fá hana heim og hörpu. svo skrapp hinn sæti bróðir minn sér til DK í viku með stelpuliðið sitt hjá þór. ég hjálpaði greinu nú að pakka saman oní tösku.. heh. hann er lítið skinn sem þarf að hugsa um. hann ætlaði víst að kaupa eh sætt á litlu frænku sína. eða hann sagði "ég kaupi þá eh fyndið" og ég efast ekki um að hann geri það. komi heim með bangsabúing eða hatt sem á stendur "frændi minn er sætastur" eða eh. óójá.
og svo þurfum við hrafndís að fara tjékk hvernær sé best fyrir mann að mæta. ég vill gott veður. búin að fá minn skammt af vondu verði fyrir sunnan. ojj bara.
það þarf víst að redda þessu
ég skoða þetta svona stundum.. heh
..og eitt er víst. það er blóðflæði um líkaman. því god hversu slæman hausverk getur maður fengið? átts. og svo má maður ekki taka neitt.
gulróta-sítrónu-elpa safi er gott.
maus.. er líka gott.
5.7.05
var að setja inn myndir síðan um helgina. fluttingurinn í Höfn. það er svo æðislega æðislegt þarna. yndislegt. þegar maður kemur inn lekur maður eiginlega niður eins og smjör, það er svo friðsælt og góður andi í þessu húsi. gömlu er eiginlega búin að koma sér fyrir. mamma þarf samt alltaf að raða uppá nýtt og setja allt á 50 staði áður en hluturinn fer á "sinn rétt stað". heh. bara stuð. en ég er eiginlega bara búin að hangsa í höfn síðan um helgina og efast um að ég muni gera neitt annað. tumi bróðir er líka ofsa kátur með fluttingin fyrir utan smá stress, ælu og gelgjustæla. hann var í pössun hjá okkur elíasi áður en mamma og pabbi komu, þegar þau voru að klára að þrífa og vesenast á blö. og hann er orðin rúmlega 1árs og það þýðir á hundamáli að hann er gelgja. gelgja = graður. hann er eiginlega ofsalega ótrúlega mikil graðfoli. við vorum að labba niðrí bónus og ég missti hann inní garð hjá tík á lóðarí.. yeah, þið getið rétt ýmindað ykkur. ég fer ekkert séstaklega hratt yfir í þessu ástandi og ræð hvort sem er ekkert við 30kg fullvaxin labrador í bóner. en það reddaðist og hann fékk ekki sínu fram.. bara skamm frá mér. heh. svo fávituðumst við elías með dýrið á "hundasvæði" þar sem auðvita voru fullt af tíkum og alltof mikið af látum og veseni.. god. tumi var á fullu að leika við einhvern annan hund sem eigandi kallaði alltaf "hund" sem var semsagt nafnið á hundinum, svo ég pældi ekkert meira í því. en neinei.. þá var þetta tík. hver er svo heimskur að skýra tíkina sína hund? god. stubit hundafólk. en allt er gott sem endar vel og hann fékk ekki að ríða. hann hefur aldrei fengið að ríða og mamma segir að ef hann prófar það aldrei þá veit hann ekkert hvað það er og veit ekki af hverju hann er að missa. uuuh. já.
en annas höfum við það gott. við elías erum að fara suður á föstud. (geððvekt snemma, ohh nenni ekki snemma) kíkjum aðeins í borgina í búðir og förum svo yfir á hellu því þar býr lítil 4ára kóngur.. Aron Frosti. hann verður 4ára 10júlí og þá er partí. við verðum þar fram á þriðjud. vonandi verður stuð. ætlum að fara í sund og eh að hangsa hér og þar um suðurlandið með litla kóngurinn með okkur. svo förum við suður á mánud. því ég þarf til augnlæknis.. búin að draga það ansi lengi. sykursýki, meðganga og augu. ójájá.. allt má nú finna til að skoða og tjékka og atast í.
ég hlakka til að losna við nábítin þegar drottingin kemur í heimin. hell yes. og verkina í rifbeinunum (; sem gera iðulega vart við sig á kvöldin. en lagast alltaf þegar ég leggst uppí. sem er gott. ég er að lesa da vincie lykil, og þykir góð.
er ekki spuring um að skella sér á egilstaði eh í sumar? til hrafndísar? haa? hvernig sándar það hrafndísin mín sæl? en elías segir að við megum bara fara þegar hann er að vinna. sem er samþykkt. að gera eh úr þessu sumri. ekki er gott verður hér á ak. ónei. þoka og mígandi riging.. það hefur ekki rignt svona í 30ára var sagt í fréttunum. og ekki ljúga þær.
ó rigbeinin fríð.. mélbrjótast bráðum.. lalallalalala.
friends að byrja á sikus.
lattttter.
drottingin kveður með góðu sparki og boxi og djöfulgangi.
lovlííí.
27.6.05
var að setja kúluhlass myndir inn. ég held að ég líti hlussulega út á myndum, en ég er ekki hlussuleg. ég er hot.. drop me like im hot. yeah.
er ekki búin að fara nema 2 á kaffihús í dag.. við sigga fórum í dag og aftur í kvöld með kiddu. sigga var að gef drottinguna sykursætt dress. tjékkið á mblogginu.
ég er auli. ég gleymdi símanum mínum í bílnum hjá siggu áðan. hringdi og hún kom með hann, ég fór niður á náttsloppnum einum fata, setti annan inniskóin minn fyrir lyftuhurðina til að halda, náði í síman og ætlaði að halda minni leið áfram. en neinei, þá fór lyftan ekkert af stað. hún var föst niðrí í svona 10mín.. ég nottlega búin að fykta í öllum god damh tökkunum en ekkert gekk. og ég kemst ekkert heim til mín nema taka lyfuna. því svo er bara brunastigi og þangað þarf maður að hafa lykla.. sem ég var auðvita ekki með. sá mig í anda sofa í ruzlageymsluna með pappakassa mér til hlýju, en það reddaðist.
ætla að setja eh sætt í videoið og borða ostapopp.
góððððða nótt..
og munið að skilja eftir ykkur ummerki.. því god knows.. like me (maður er að brillera í enskunu, yes) að það koma yfir 100manns í innliti/útlit á þessari síðu.
og já ég veit að það hafa verið gerð mistök með að segja að þetta sé stelpa og svo er það strákur.. en eins og ég þá fer ég svo oft í sónar og fæ alltaf að vita að það sé drotting, þannig að ég treysti þessu.
og auððvita er þetta drotting, hver ætti annas að nota allt drottingadótið sem dýrið hefur fengið og við höfum keypt. hahaha sæi það að í anda ef það kæmi lítil pjakkur.. hann þyrfti að ganga í kjólum og bleikum dressum fyrstu ár ævi sinnar. það væri fyndið.
...eða ekki!!
22.6.05
SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ SUMARFRÍ ó jááá ég er komin í 6vikna sumarfrí. 22júní - 5ágúst. yeahh
embla skildi nú ekki um daginn. við elías vorum eh (einu sinni sem oftar) að spá í nöfn og eh.. og ég spurðu emblu hvort hún vissi ekki eh gott nafn á litlu drottinguna.. hún bara: já, silvía nótt. ég bara.. wahhh? hún skildi ekkert í okkkur að vilja ekki skýra barnið eftir þessari líka pæju. hún er kappi, jájá en að skýra barnið eftir henni.. néhh, ælti það. sigga vinkona hótaði líka að berja í borðið ef við færum eftir þessu, og hver vill að sigga fari að beita ofbeldi? ekki ég. seisei neih.
en enn er ég voðalega upptekin að þessu furðuverki sem vex innra með mér. enda er sá tími sem það sparkar og rassakastar sem allra mest. og það er eh svo notalegt. ég er farin að lesa aðeins fyrir það (yes ég er kreisí) og þegar ég byrja að lesa þá byrjar ballið.. ég hef greinilega svona líka hvetjandi rödd. heh. og á enda sprettinum mun ég eflaust geta sett seríosskál á bumbuna og kjamsað á. það væri nokkuð magnað. og það fer að líða að því að ég setji inn nýjar dráttkúlumyndir. því jújú alltaf stækkar þessi kúluhrúga. ég er líka aðeins farin að kjaga. mér finnst það doltið fyndið. ég líkist doltið guðrúni minni íslenskukennara í grunnskóla. hún var eðall. já maður verður ósköp afmyndaður svona í ástandinu, en um fram allt er maður sætur. sem betur fer er ég ekki enn komin með bjúg. nema þanna nokkra daga um daginn, þegar ég var eins og geld grísamamma, með bjúg í andlitinu og fingurnar á mér voru eins og hnullafeitar pulsur.. eða rúllupylsa. það var ekki svo fallegt, en ég losaði mig við bjúgin með 8lítrum af vatni og skemmtun.
ég er leið á nokkrum spuringum:
*er alveg eðilega hvað þú ert með stóra kúli? svar: JÁ.
*verður barnið þitt ekki þvílíkt stórt? svar: nei ekki ef ég hugsa vel um sykursíkina og allt fer vel.
*heldur að þú farir aftur að vinna eftir sumarfrí? svar: ég veit það ekki, ætla að sjá til hvernig ég verð þá.
og þegar fólk byrjar að segja mér einhverjar horror sögur af fæðingum og börnum. NEI TAKK ÉG VILL EKKI HEYRA NOKKURN SKAPAÐAN HRÆRANDI HLUT UM ÞAÐ. NEI NEI NEI.
það eru 50-70% líkur á því að ég verði tekin með keisara. því ég er með sykursíkini og það er oft svo mikið álag á líkaman að þeir hætta ekki á að láta sykursjúkar konur fæða sjálfar. við erum alveg sátt við það, enda ekkert undan því að kvarta. en nei þá fæ ég að heyra sögur eins og: þú færð ekki sömu tilfinnginu f. barinu þínu þegar þú ert tekin með keisara, því þú færð bara hreint og fínt barn uppí hendurnar, eftir enga vinnu. (uhh ég gekk með það í 9mánuði) ég skil ekki hvað fær fólk til að kjafta um þetta við mig, kasólétta kjéllinguna, viðkvæma as hell (skælir yfir öllu og með hjartað í buxunum all day long, alltaf yfir öllu, er nógu peranojuð yfir að þetta gangi ekki og öllu þessu) ég barasta skil það ekki. svo ef þú hefur einhverja horror fæðingasögur og eh þá máttu halda þér saman og geyma hana inní þér. ég vill ekki heyra hana núna eða seinna.
takk fyrir það.
og núna er næstum bráðum bara vika í að mamma og pabbi og tumi flytji. við skellum okkur á dósina laugad. eftir viku (2júlí) pökkum í bíl og tökum loka hönd fyrir pleisið og svo verður flutt í höfn. gvöððð ég get ekki beðið. það verður svooo vonerfúl. víhh.
munið svo að tjékka alltaf reglulega á mblogginu. því ég skelli oft inn myndum.
góða nótt.
moms and the queen of all
19.6.05
god ó god. ég nenni engan vegin að bíða í 3 og hálfan mánuð í viðbót. ónei. við erum búin að vera á vopnaf. (og erum enn) um helgina og við erum búin að vera snuddast helling með 2mánaða pattorm, hana elísu hrönn og manni langar svo að fá litla barnið sitt strax. ég vildi ekki fara frá þeirri litlu.. æææ. fyndið samt. um leið og ég tók hana þá byrjaði drotting í bumbuni minni að sparka og spraka. smá öfund í gangi? heh. og svo í dag þegar ég var að snúllast með litlu byrjaði drottingin aftur.
swweeeettt.
núna er ég bara að hugsa um bleyjur, prump, hor og smábörn.. fun fun fun.
13.6.05
vaknaði í morgun, var alveg sjúr á að ég ætti að mæta í sjúkóþjálfun kl. 12.. ég fór, og beið og beið og eftir 40mín, snjáldraðist ég nú til að spyrja hvort tjélling sem nuddar mig væri í ansk. ekki við, sagði til nafn og mér var tilkynnt að ég ætti að mæta kl. hálf2. fór heim og beygð mig niður og reif uppáhald einu kvart buxurnar mínar (sem ég passa í) stórt gat á bossanum. þetta er bara afþví ég á ekki að beygja mig í bakinu, heldur hnánum.. blehhh. ekki get ég sagt að gamanið hafi gert góða hluti á þessu. þar með hófst pirrings dagurinn.
fór með siggu á kaffihús, sem var nærinandi og hollt. slúðrandi gott alveg hreint.
og nú skín sólin í augun á mér. og ég nenni ekki að færa mig.
þarf að formata tölvuna. hef verið að vakan upp við martöð um að það harði diskurinn hrynju og ég sitji í skítnum. sem er ekki notalegt.
vann 3vaktir um helgina. var dúlítið þreytt og dauð í líkamanum. gamla feita fólk. (seisei, nú er maður byrjaður með kjaft) og fer svo að vinna á 17júní (embla blöndal er á leiðini í skúðgöngu en kallar það alltaf fermingarveilsu, ekki veit ég afhverju, og hún neitar að hlusta á að þetta heiti skrúðganga) ætlum svo að kíkja á vopnaf. um helgina. fun fun fun slappelsis fun.
svo á ég bara 3vaktir eftir þá er maður mættir í sömmervíkeisjón. sem verður ljúft. ætla ekki að gera neitt séstakt. förum jú suður þegar aron litli frosti á afmæli og verðum í einhverntíma. og svo ætlum við með emblu á vopnaf. svo ætla ég að hanga með mömmu og tuma og pabba á höfn.
en litla kvikindiskötturinn sem vex inní mér er búin að finna pissublöðruna mína og hefur mikið gaman að því að dangla í hana. var í röðini í bónus í dag og þá byrjaði dýrið að dangla, og ég bara neii, hélt í smá tíma að ég væri búin að pissa á mig.. það hefði reyndar verið doltið gaman. en núna vakir drotting alltaf lengur og lengur og hreyfir sig meira og meira. skemmtir sér við að stækka uppá við og ýtir doltið svolitið í rifbeinin á mér í leiðini. sem er sárt. en maður er kappi.
brói, forsti og raggi voru sammála um það um helgina og ég væri bara búin að fitna svona mikið, að ég væri sko ekkert ólétt, því þeir lái allir með krumlurnar á bumbuni á mér og barnið skarkaði ekkert í þá. sögðu líka að ég væri ýmindarveik, sækkó. (pæliðð í sækó) og þá fundu þeir þetta bara út. thanks!! neih.
ææ.. setti nokkrar bévítans myndir. als ekki spennó. en samt.
Sweetness, sweetness I was only joking when I said
I'd like to smash every tooth in your head
Oh, sweetness, sweetness I was only joking when I said
By rights you should be bludgeoned in your bed
And now I know how joan of arc felt
Now I know how joan of arc felt
As the flames rose to her roman nose
And her discman started to melt
Bigmouth la da dum da da
Bigmouth la da da da
Bigmouth strikes again
And i've got no right to take my place
In the human race
Oh
Bigmouth la da dum da da
Bigmouth la da da da bigmouth strikes again
And I've got no right to take my place
In the human race.
rassgatist svo í háttin kettlingarnir ykkar.
langar einhvern til að leigja af mér föt í 4-5mánuði? heh.. það væri fyndið að leigja fötin sín. hahaha..
ef þiðð akynjið biturð í þessu bloggi, þá eruðu blind og heimsk.
heheh.. því ég er glöð í bragð.
hell yeah
6.6.05
cancelaði læknana í rvk. já. ég nennti ekki og langaði ekki og þar fram eftir götunum. og hana nú.
ég elska elías eitthvað svo ótrúlega mikið þessa dagana. ég elska hann alltaf en enn meira og alltaf meira og meira, eitthvað sem ég hélt að væri ekki hægt. ég elska að elska hann. litla barnið okkar er örugglega farið að elska hann líka, því við höfum saknað hans ógurlega. hann kemur til okkar í fyrramáli og vekur okkar. ljúffffft. hann er þá á leið sinni suður á iron maden og kemur svo um nóttina og lúrir hjá okkur og svo förum við heim á akureyrina.
ég hef heft það gott á dósini (fyrir utan söknuð og ást) viðð mamma erum búnar að kappast doltið í dag, pakka niður gömlu dóti, henda og messast. ég hitti bæði sylvó og önnu, það var gott. og líka annað fólk. kíkti á bakken og tónleika. barnið hoppaði hæð sína (25cm eða eh álíka) þegar metallica smellir byrjuð að hjóma frá metal sveitini death trap.. frekar fyndið. segið svo að börn kunni ekki gott að meta. ekkert helv. birgitta haukdal og sjitt ass. heh.
en áfram heldur stuðið.. ég ætla að hlunkast í bælið með allt mitt afurtask og halda áframa ð lesa ævisögu KK, því hún er sneld.
að elska einhvern er svooo gott. allavegana að elska einhvern eins og elías.
Viktoría ástsjúka og ástfangna upp fyrir bumbu og litla buddan ;*
30.5.05
það er klessukisi í garðinum hjá mér.. mjög svo skemmtilegt lag sem frúin á móti kendi mér, lærði það víst í leikskólanum.
ójæja. takk fyrir allar afmæliskveðjur.. klapp á bossan frá mér og takk fyrir elskulegar kveðjur með drottinguna. takktakk.
afmælið var bara mjög gott. var bara ó rólegheitunum allan daginn, komu nokkrir gestir og ég bauð uppá krásir og með því. fékk mjög sætar og góðar gjafir, og ég var bara fullkomnlega ánægð með þetta allsaman. elsku mamma kom auðvita til mín.. pabbi var fastur á austurlandinu í tölvuveseni, óheppin hann að missa af partíiinu, og hann fær engan afgang, því það var engin, fórmeð restina í vinnuna daginn eftir og það var allt.. ALLLT ALLT klárað á innan við 5mín. heh.. enda var þetta allt svo gott.
búin að lækka við mig vinnu, komin í 40% sem þýðir 2vaktir í viku. það er gott. hvíli mig vel á milli og mæt eiturhress á mínarvaktir.
mamma og pabbi flyja svo í júlí á höfn sem er á móti á ak. það er æðislegt hús. lítið gamalt sveitakot. frekar yndislegt og ég tilkynnti gömlu það að ég kæmi með mitt hafurtask og vildi mitt herbergi og þessháttar.. óóójáh. ég ætla að búa þarna með annan fótin og hálfa bumbuna. heh. hlakka allavegna mikið til að fá þau á eyrina.
ég ætla meira að segja að vera á dósini um næstu helgi. kem eflaust á fimmtud. nenni ekki að hanga ein heima. elías að vinna, ásgeir í rvk, harpa að vinna og eh. maður verður víst að njóta þess að dvelja á heiðarbrautini, því hver veit hvernær verður kemur þangað næst. ætla líka að hitta, rut, önnu og sylvíu mína. mjög langt síðan ég hef hitt pakkið mitt og hlakka til.
var að fá bikínið (loxins) frá hm.. og nú verður legið í sundi. víh.
fór líka í listfléttuna og fékk mér rosalega flotta mynd eftir línu rut. það kom skrítin svipur á elías þegar ég sýndi honum hana, honum fannst hún eh fríkí. heh.
svo er það rvk eftir viku. enn einu sinni. ekki svo mikið stuð, eða jújú. fer 7. og elías fer á iron og ég kem svo aftur heim 9. því ég er að fara til læknis.
talandi um það.. ég ferð á morgun til tannlæknis, svo klippingu,(ég er að verða snarrrrgeðveik á skíta hárinu á mér, langar í eh gott hár, ég er eins og ég hafi verið á sörvævoreyju í 39daga) svo ljósmóðir. (þetta er dagurinn á morgun) fer ég á fimmtud. til ingvar (sykursýkislæknis) og það er eins gott að hann verði ekki með neitt rugl, þoli ekki þegar læknar segja: þetta er mjög gott, en það gæti samt verið betra. stundum veit maður ekki hvað þeir halda að maður sé, einhver vél kannski? ó ég ætla ekki að vera með kjaft.
stundum æsi ég mig svo mikið yfir t.d. helv. tölvuni og einhverju sem ekki virkar að í orðsins fylstu merkiinu held ég að ég missi legvatnið. það væri það, það væri það.
var að setja inn nokkrar myndir.
en annas ætla að fara elda.. gartíneraður steinbítur, besta salatið ala viktoría og karteflur í ofni ala viktoría.
sækkks.
klessukisinn kveður..