17.4.05

óóó komiððði sæl.
takk fyrir öll sætu kommentin. takk takk.
lítið að frétt af manni. ég hef það flott. líður vel. nema í fokking morgun. átti að fara á morgunvakt í morgun, vakti í alla nótt útaf helvítis partí í þessari helvítis sudda homma píku blokk.. stál og hnífur, gítarstemma í einni íbúð, búmmbúmmpartí í næstu og þýsk þjóðlaga músík í þeirri næstu eða eh.. %#$%&$&$%&#$%"% semsagt ég stóð ekki undir sjáfri mér í morgun þegar ég vaknaði (eftir smáááá dott) ójæja, það verður víst að hafa það.
annas var þvílíkt af fólki í bænum um helgina. auðvita mætti ellen mín, var með henni alveg helling, (ég var aðððeins farin að sakna hennar, aðeins meira en aðeins kannski) svo kom týndi sonurinn og gladdi aldraða foreldra sína, svo er frú hrafndís með meiru búin að leika við mig í allan dag. semsagt ég hef haft nóggg af félagskap um helgina, ekki slæmt það. og svo var auððvita bæinn fullur af útmignum og útúrdrukknum smákrökkum. ojj. neihh svona segir maður ekki. en nokkri pissu eflaust á sig og voru með skítin uppá bak. allavegna þessar tussuR sem voru í pínupilsum og fleynum bolum í 10stiga frosti með sígó í annari og vúddís í hinni, reimda buffaloskó (reimda þá af mömmum sínum) með útivistarleyfi til 10. víhhhhah.
svo horfði ég á söngvakeppina, fékk pínu slæmt og vond flassbakk, sjitturinn titturinn. en gvöðð hva húsó gjéllurnar voru nettar á því. vefnarkennarinn sigfús. hehehhe ég hló ekkert smá af þeim, eða með þeim.
en það eru komnar feitabollurmyndir
njótið vel og lengi en ekki í buxnastengi.
hva get ég gert til að hefna mín á tussu nágrönnunum?!

10.4.05

Til lukku bæði Eygló frænka og Hanna & Halli með litlu dömurnar. Það er alltaf að gerast í þessum krílamálum hjá öllum. Ég er eiginlega komin á það að ég nenni ekki að bíða í 5mánuði til viðbótar.. heh. Ég á samt örugglega eftir að missa mig á mánud. þegar ég kem hjem á ak og fer og skoða þessi litlu kríli.
Á miðvikd. fórum við Elías í sónar hjá honum Alexsander og þá fengum við í 3sinn að sjá litla dýrið okkar. (ég var alveg eins og Rachel í Friends, skildi ekkert í myndini, nema þegar ég sá hryggin á greiinu hreyfast og þá var litla barnið að fetta sig og bretta. Þegar við vorum komin útí bíl langaði mig mest að fara skæla, afþví ég skildi ekki myndina, en elsku Elías skildi hana auðvita og sýndi mér hana. Það sést svo vel í hausin þarna vinstra megin og svo er stór bumba þarna uppí loftið hægra megin. Mjög skýr mynd ef maður fattar þetta, heheh) Við sögum samt bæði í kór "váá er það orðið svona stórt". Búið að stækka frekar mikið síðan við sáum það seinast. Ég verð í ströngu eftirlitli útaf sykursýkini og svoleiðis, þannig að við förum á 3-4vikna fresti í sónar og svo þegar nær dregur förum við á 2vikna fresti, en það er bara gaman. Hver segir að það sé ekki gaman að fara til læknist og stússast á sjúkrahúsnum? veihh ;/ Þetta er alltaf að venjast, Elías var t.d. ekkert stressaður og spenntur yfir því að vera á sjúkrahúsi, ahha? þetta er allt að koma hjá kallinum. Svo er ég líka komin með ljósmóðir, Elíasbet, hún er meistari. Þar fékk ég líka að heyra fallegasta hjartslátt í heimi, þvílíkt hraður (barnið er með 2sinnum hraðari hjartslátt en ég) og stekur.
bjútí fokking fúl.. heh, renndi alltíeinu yfir þennan pistil. fannst hann eh breyttur því se verið hefir. miss viktoría er ekki horfin þó það sé hún sé ekki kona einsömul, ekki halda það.. neinei, en ætli maður breytist ekki eh. og ég held að rottesen brós hafi haft rétt fyrir sér með "þú getur gleymt því hvernig bjór bragðast, gleymt því hvernig sjallinn lítur út að innan og gleymt því hvernig er að ganga í disel buxum" fyrst þótti mér það nú kannski ekkert alltof seif, en núna.. SÓ FOKKING VOTT!! i dont need beer, sjall or disel. víhh. ég er t.d. búin að gefa 2 af 10 disel buxunum mínum og losa mig við full af bolum sem voru og verða og eru alltof litlir á mig. jújú. ég hef ekki farið í gallabuxur síðan á 5-6viku. ég stækkaði eh svo fljótt. er komin með kúlu. elías þarf að fara mynda bumbuna svo við getum sett myndir inn, er það ekki nokkuð sneddí?

annnnas... var herrmundur elísen að gefa mér eitt
svona blátt kvikindi. ég kom heim á þiðjud.kv. eftir god damh boring kvöldvakt, engin heima. það var miði á borðinu með vísbeningu undir kodda, inní tölvuni var ein, inní spóluhulsti og svo inní glerskáp. ég talaði nottlega þvíííílíkt ótrúlega mikið við sjálfan mig (og kannski dýrisenin okkar) og ég missti saur, þvag, gall og slef.. eitt stykki miniiPod. ég vissi ekki alveg hvað var í gangi. ég hélt honum í lófa mér í svona klukkutíma og klappaði honum, skoaði hann svo aðeins meira og felldi eitt tár. svo kom herramaðurinn minn heim og þá var hann víst búin að vera dunda við þetta í einhvern þvílíkan tíma, panta frá bandaríkunum og redda og vesnast.. hehe.. algjört sugerlove. og auðvita tók ég hann með mér í rútuna á fimmtud. því ég var að koma á blö. mér fannst leiðin vera svona 5mín. ég var með 700lög inná honum og þetta er 4GB. óóóójá. ég er eiginlega alveg að missa í honum. hann er svo fallegur. svo létum við grafa attan á hann. Viktoría og Elías undir. fallegt fallegt.
kidda beibílove átti líka afmæli 7apríl, kjélling orðin 20ára. afmæli í gær, sem ég missti af. sorrí stína. hafði það gott og til lukku með afmælið.
en núna bíður mín kjúlli með meiru hjá mömms and daddy cool.
ak á morgun.
og enn er ég haldin mikilli bítlamania.. búin að finna minn besta bítil.
ringo bjútikvín.

7.4.05

Rjúfum Þögnina!

Arnarhóli 9 apríl klukkan 14:00


Við þekkjum of mörg einhvern sem hefur lifað af ofbeldi. Sum okkar betur en aðrir.

Við bjóðum þér að sýna samstöðu, sýna í verki að við tökum ekki lengur þátt í samsæri þagnarinnar. Ofbeldi þrífst í þögninni!

Komdu á Arnarhól með þinn bol, með eða án texta - við sköffum snúru og klemmur! Við hengjum upp bol fyrir okkur sjálf sem höfum lifað af ofbeldi og ef þú þekkir einhvern sem hefur lifað af ofbeldi getur þú hengt upp boli fyrir þau. Ef þú vilt segja frá einhverju er varðar ofbeldi, lesa ljóð eða stutta sögu, eða bara nafnið þitt til þess að rjúfa þögnina þá verður það í boði. Við styðjum þig í að gera það sem þú þarft til þess að rjúfa þögnina þína og sleppa skömmini sem við festumst í þegar við segjum ekki frá.

Við verðum líka með boli til sölu fyrir 1000 kr ef þið viljið styrkja málstaðinn.
Sýnum ábyrg viðbrögð við öllu ofbeldi - Þú átt valið - Okkar val, Rjúfum þögnina!

Ég kvet alla sem eru steaddir í Rvk og nágrenni að skella sér á Arnarhól 9apríl. Takið þátt og hengið einn bol fyrir mig.
bláttáfram.is

30.3.05


í dag lenti ég í fyndnu atviki. ég var að bíða eftir lyfunni minni.
það standa 4 stelpur á aldrinum 6-10ára og eru líka að bíða.

krakkagrís: áttu heima hérna?
ég: já
krakkagrís: á hvaða hæð?
ég: 8
(svo byrja þær eh að hvíslast á og horfa á mig.)
krakkagrís: ertu með barn í maganum?
ég: já
krakkagrís: hvað ertu gömul?
ég: 19ára að verða 20ára
krakkagrís: það sést geðveikt vel að þú sért með barn í maganum.
..sem betur fer kom lyftan mín loksins og ég komst í burtu frá þessari brjáluðu yfirheyrðsu.
hvað ef ég hefði bara verið búin að gæða mér á stóru og vænu páskaeggi? eða eh..
seisei.. krakkar nú til dags.
ég segi nú ekki annað..
heheheheheh...
en svona er þetta.
það er gaman að lífinu, þó að maður passi ekki í fötin sín og sé illa við morgna og líði stundum einkennilega. þetta er víst stuððððið.
ég elska manninn minn. því hann er langgggg bestur.

27.3.05

páska láskar. til lukku krukku.
við erum stödd á vopnaf. bjarki bró var að fermast í gær og við komum á föstud. langa. erum búin að vera hér í veislutilbúingu og veisluhöldum síðan við komum. ferming gekk vel, ég stóð í eldhúsinu eins og ráðskona (kannski að nafn maginnis) og vaskaði upp hvern diskin og glasið á fætur örðu og borðaði svona aðeins inná milli. svo þegar veislan var búin hjálpuðum við öll að opna pakkana og umslögin, heh. smá flassbakk síðan maður fermdist sjálfur. helvítis, ég fékk 103500kr í fermingagjöf, hvar er sá peningu? haa? einhverrr? það væri alveg næs að fá svona peningagjafir alltíeinu, uppúr þurru. maður ætti að drífa í giftingu. en eftir allt þetta stand var maður orðin dulítið lúin og komin með verki í móbakið og ég lá svo bara með annað augað opið í gærkvöldi. nokkuð gott. ég hef ekki enn smakkað páskaegg, þar sem er þessum páskum, en það gerir lítið til. ég hef hvort sem er ekki list á því. óneinei.
fór já suður þanna um daginn. ég hef aldrei komið eins vel út í sykrinum og allt var frábært. keypti sitt lítið að hverjum og var svo föst inda god damh city. en það var svosem ok.
harpa sæta sæta fitnessdrotting (hún er þanna í blá, nr. 3) var að keppa um helgina. því miður gátum við elías ekki horft á hana en ásgó brós tók þetta allt upp yfir okkur, sem betur fer. hún lenti í 4sæti sem er frábært. hinar sem unnu hafa svo mikla reynslu og þessháttar en harpa beibí kom sá og sigraði. það voru víst allir sammála um það þarna. ég er ekkert smááá stolt af henni. hlakka til á næsta ári þegar kella treður sér á pall og massar þetta upp. þannig ef einhver er með einhvern kjaft þá læt ég ekki pabba minn eða bróðir eða manninn minn eða en svoleiðis berja ykkur þá kemur bara harpa mágkona og kýlir ykkkur í klessu. og ómægod ef ég væri þið þá myndi ég ekki vera með nein kjaft, því kella er HELKÖTTTUÐ. passið ykkur bara. ég hef nefnilega lagt svoleiðis vitleysu á hilluna, í bili. hehehe.

ég er í örðu umhverfi en þegar ég blogga vanalega, þannig að þetta er ekki eins og "mitt".
borrrring as hell.

16.3.05

mér líður nákvæmlega eins og kennslukonuni í billy madison sem át litina. sjitt.
ég fer bráðum eftir smá stund til rvk. eftir klukkutíma ella tvo.
æ. ó.
pastasaltið mitt er gott.

Home alone and happy
Nothing brings me down
Full of wine and steady
Nothing brings me down
What's left of the rain runs down my roof
Nothing brings me down
The night is lush the air is still
Nothing brings me down

The windows are open, the flies are in
Nothing brings me down
The phones are off the music's on
Nothing brings me down

Home alone and happy
Nothing brings me down
My love for you is ready
Nothing brings me down
My love for you is ready

12.3.05

óójáh. ýmislegt er maður að gera sem maður hefur ekki gert áðður. vaknaðu kl. 10 í morgun, eldaði hafragraut og meðððí. fór svo í vinnuna, því ég var búin að plana hana Birnu mína í að setja í mig rúllur. (ójáá rúllur segi ég og skrifa) í fyrstu, þegar ég semsagt kom úr hitnaum og öllu því. þá leit ég alvegggg eins út og amma vikký, ekki leiðum að líkjast en ég var samt eins og dulítill æðardúnungi. konurnar mínar í vinnuni þær köfnuðu og pissuðu í sig af hlátri, ég hefff aldrei séð þær hlægja eins mikið, "ó þú ert svo sæt" "þú ert svo yndileg" "það er svo æðisleg að þú þorir þessu" ..æ þær eru svo dáásamlegar þessar kindur. svo með SMÁÁÁÁÁ hárlakki og vaxi, vatni og krullubursta (sem notað var í stað sléttujárns) þá kom þessi líka svaka galasamkvæmisgreiðsla, sjitt.. ég er svo glæsileg. já ég er það. heh. ég er eins og samkvæmisljónið samúel (sem eflaust var mikið partíljón)
núna er ég eiginlega bara reddí á árshátíð akureyrarbæar. seiseijá. ég þarf að fara tíja mig til hörpu skröpu í vinnuna og hún ætlar að lappa uppá snoppótt fésið á mér, hún er að vinna.. þannig að ein önnur heimsóknin í vinnuna í dag. ég get ekki slitið mig lausa. og svo er herðini feitið að sækja bæði ingu litlu og heklu snót. og svo er það bara djammdjamm. eða étaborðasnæða. það er þvílíkur matseðil, god!
ég er reyndar í smá bobba (obbbobo bíðum nú við?) ég er ein heima og ásgeir og harpa eru hvortugt heima, pési er að rúnta og ég er hálf í kjólnum, ég get ekki rent honum lengra upp.. heh. auli, yes i know! ég er að spá í að banka hjá grönnunum glöðu og biðja þá um að renna kjólnum.. hmm. já. fór niðru til bjarna og dóra.. og elskulegi bjarni rétti mér rennilása hönd. takk.
jæjaaa.. samkvæmisljónið lúlli gamli frá vökuvöllum kveður að sinni.
lofa að koma með myndir á morgun eða hinn.

7.3.05

einu sinni er allt fyrst. og allt verður nú einu sinni síðast. ójáh.
ég skellti mér á djammið um helgina.. EDRÚ! tók heklz með mér. nokkuð magnað. margir reka upp furðuaugu núna, viktoría var edrú í sjallanum.. óójáh. BLÁÁÁÁedrú og alsgáð. ég hef eldrei mætt þarna edrú, og guðð hvað fólk er halló palló svona drukkið. ég er ekki svona, það get ég sagt ykkur, aldrei. og fólk dansar og fílar sig svoo vel en lítur út eins og fávitar. ég meina það. ég setti upp góðan "fyrirlitingarsvip" hélt kúlinu og fór ekki heim fyrr en um hálf4 leitið, ef gott kvæs á bósó sem var búin að væla í klukkutíma eins og stungin fullur grís um að koma heim. fullt fólk er pirrandi, það er nú bara svolleiðis. en ég var með myndavélina meðferðis, tók 105 myndir og setti inn nokkrar myndir. en svoleiðis var það nú.
allt gengur vel. rúmið er frááábært í alla staði og manni líður eins og skýjaglópi í því, ekkert smá næs. sjúkraþjálfunin í góðu standi, ef þið heyrið skaððððræðis óp og skæl og öskur kl. 9 á morgana þá er það bara ég að láta nudda mig.
fer suður eftir 10daga. hlakka til. læknis. svo fer elsku besti dokturinn minn í barneignarfrí og ég verð ein og yfirgefin. nei segi svona. en svo ætla ég að kanna hvort ég finni nú ekki nokkra hluti í IKEA og svona. og í einhverjar fitubollubúðir. seiseijá. var í barbíkú veislu áðan. mamma og pabbi og tumi voru hér. mjöggg gott.
ætla ekki að hafa þetta lengra. vontríhill og sörvævor bíða mín. var á fundi og nágranni minn hann örn jóhannsson tók upp fyrir mig.
grannnar.. allir þurfa góða granna.. lalal.

3.3.05

ekki stoppar hjá manni bítlaæðið. búin að sánka að mér öllum spólum með bítlunum, þáttum, myndum og öllu ruglinu. en það sakar ekki svo.
keypti mér nýjan geisladisk í vikuni, nýja torrini fishermans woman. góður. sammála fréttablaðinu, innidiskur.
ég ætla hér með að hætta að segja, ef einhver spyr mig, ertu í háskólanum eða ertu að vinna eða hvað? þá ætla ég að hætta segja, "ég er bara að vinna á elliheimili". því gvöððð það er ekki svo mikið bara. það er bara helvítis hellingur að vinna á elliheimili. ójá. maður ætti svo að vera með slysa og áhættutrygginu í vinnuni. ég segi nú ekki annað. maður er stundum eins og lurkumlamin boxpúði á góðum degi.
vorum að borða grillmat. kjöt er farið að fara í taugarnar á mér. hef einhverja andstygggð af því þessa dagana. en ég boraði samt helling, hell yeh.
læknir snemma í fyrró. slíp.
ellen er fáviti. ekki spyrja mig afhverju þessi síða er til, ekki spyrja mig afhverju hún gerði þetta og bara.. sjitt. hversu einhverfur og villandi persónuleiku og rúglaður getur maður verið. ellen á toppinn. svona er að búa einn útí rasdsgati, á hólmavík eða einhverjum hólmi, whatt ever!! hún er allavegna á hólminn komin með rassköst og fíflaskap. já elle gunnars. sveii þér og þínum skolla.
ég er með skítin uppá bak í þessu bloggi, hver skollin er að ske? ..ég segi nú ekki annað.

18.2.05

dansandi á nærbuxunum með bítlana í BOTNI.
neita að heyra ef símin hrigir með hótarnir af efri hæð eða neðri. ég hækkkaði bara í botn. heyrði í gegnum penny lane að kókaínhóran á efri var að snugga og nagga stól við gólfið.. það þýðir eitt.. HÚN VILL MEIRA. ég hlýddi og hækkaði uppúr öllu valdi. ó þakka þér binni.
leitdagur. vinna á morgun. búin að vera frá í 2vikur, vegna bólgu í vöðvum. fáum nýtt rúma á þriðjud. ég hlakka svo til að ég get valla sofið (heh, ég hef ekkert sofið lengi lengi vegna verkja en..ég bíð spennt) fáum semsagt IQcare rúm, nasa rúm 180*200 og heilsukodda. djöfull mun ég flatmaga eða baka þar allan daginn út og inn þar til ég mun fá svo stór legusár að ég mun detta í sundur. en bíðið nú við, maður á ekki að geta fengið legusár í nasa rúmi. daddaraa.
fór í göngu, eins og vanalega. var með mp3 spilaran, eins og vanalega. en nokkuð merkilega gerðist í túrnum í dag. ég fékk þrjá rafstrauma í fokking eyrun á leið minni. ég var með 2 hettur á hausnum, þannig þetta var frekar þröngt um hóveðið á mér, og þetta var fjárni fargans vont. ég leit eflaust út eins og sækópeð from hell þegar ég dustaði heddfónana út eyrnum á mér gargaandi góða ræðu af fallegum F-orðum, sjitt.. seinasta spölin hélt ég bara á helvítis dralsinu. ansk.
skrítið.. það er flöskudagur. ég var að enda við að þrífa og það er engin bjór í ískápnum og ég með kerti og reykelsi í tölvuni hlustandi á bítlana í græjunum. hmm.. mikið getur allt breyst á einu andartaki. bara kaaabúmm. djöfull er ég samt orðin rassaleg að setja inn myndir, þið kannski hugsið: er hún hætt að líta á lífið? en svarið er nei. veit ekki afhverju ég á engar nýjar myndir. á kemur bæting, einhvertíman. en ég þarf að fara fara í gengum þetta og láta gera úr þessu real myndir, svoo maður eigi þetta í höndunum. ég held ég eigi um 8375435937534894375784577+ myndir. pælið ef tölvan myndi hrynja og harði diskurinnf
félli í valnum. ógod. þarf að skrifa þetta dót mitt og öll lögin mín og skriferíið mitt og allt. Má til Með að Muna.

Victoria
I know that you love me
you hunt me down and bug me
I don't think you're lovely at all

you're sixty, I'm twenty
you've none and I've got plenty
oh, lord tell me where I can hide

take your time make up your mind
and let me know just where you go
'cuz I won't be there.... I won't be there
take your time make up your mind
and let me know just where you go
'cuz I just won't be there!

I know that you want me
'cuz everywhere you haunt me
I might leave this country for good
I try to escape you
you're begging me to take you
i'd rather be 'hued' by the crowd

take your time make up your mind...

victoria, you're everywhere
I try not to breathe 'cuz you're in the air
victoria: paranoia!
victoria, you're everywhere
I try not to breathe 'cuz you're in the air


..fallega lag, neii ekki svo. bestu vinir mínir þeir frosti og raggi sungu þetta fyrir mig þegar við hittumst fyrst. frosti horfði á mig: heitir í alvöru viktoría? ég bara já. hann leit á ragga og þeir byrjuðu að syngja. ég var akkúrat 16ára og þeir 20ára. heh.. laugar. long time no.. ? heh. þetta er samt svo mikil snilld. eftir þá kamsmír félaga.

En elsku svava mín.. gleðilegt afmæli og til lukku.. lukku.. lukku. skemmtu þér í kvöld og ég verð með ykkur í anda.
þá kveður blacbird sem haldin er mikili og æðisgengini beatlemania.

8.2.05

óðfluga nálast óð.. ætli það sé góðfluga ?!
mamma segir að ég eigi að blogga þá hlíði ég.. svona til tilbreytingar.
en ýmislegt er að frétta af klessukisunum tveim í tröllagilinu, seiseibíjah.
við erum að fara selja rúmið okkar. R.Björnsson rúm, 180 sinnum 200 (þvílíkt stórt) glæný yfirdýna og eh dúll fylgir með, 35þús. ekki sjitt on prikk. en afhverju erum við að fara selja það? jú. þó ég sé rétt 19ára unglamb þá er líkami minn að haga sér eins og 89ára gömul kellingarkind. ég þarf t.d. að fara fram úr rúminu til að snúa mér, sef lítið sem ekkert, væli bæði morgun dag kvöld og allt þar á milli um verki í upphandleggjunum, öxlum og möðm. þetta eru ógeðððslegir verkir og ég myndi jappla á hinu fráábæra íbúfen ef ég mætti, en neinei. helst þyrti ég að vera á snúnigslaki eins og eldgamalt hræ og þá myndi elías snúa mér á kannski 2kls fresti, það væri notalegt. ég ætla að leggja þetta undir kallinn. annas var hann ógurlega sætur í morgun, þegar ég vaknaði um 10leitið þá var elías með gjöf til mín. nuddtíma í abaco.. svít. ég pantaði mér strax á fer á morgun eftir vinnu. hlakkka mjögg til. þarf helst að fara í sjúkranudd. má til með að muna grenslast fyrir um það. annas erum við að fara kaupa nýtt rúm, í svefn og heilsu, reyndar minna en þetta sem við erum í núna, 160 sinnum 200, NASA dýna og læti. djöfull verður það fráábært. hlakka til að leggjast uppí rúm og láta mér líða vel, og að langa fara uppí rúm að kúrast. en eins og stendur.. langar mig ekkert af þessu. en sá tími mun koma, vona að það verði sem fyrst. helst á morgun.
embla var hjá okkur í mat áðan, svo skellti hún sér í bað og ég var eh að þrífa inná baði á meðan, alltí einu byrjar hún að garga eins og stungin grís (sem kemur stundum fyrir) og ég tek hana upp og hún öskrar að það sé pabba í baðinu, ég sé eh ógeð á gólfinu og kalla á karlmennina tvo á heimilu (köttinn stefán og elímund) þeir taka "pödduna" upp og þá kemur það í ljós að þetta er bara rykbolti sem var orðin blautur og leit út eins og padda. en embla var með það á KRISTALtæru að þetta hefði bitið sig og svo gerði hún ekki annað en að gera svona snáka hjóð eftir þetta og var alltaf að segja "hvaða hljóð er þetta þarna frammi" hún að missa sig í snáka hjóðum.. og reyna sannfærast sjálf um að það væri snákur frammi. kannski var hún að reyna hræða mig. óvell sækó kidd.
svo er stefana tekin á vopnócity um helgina. næssss.
en hér komið þetta langgg þráða blogga (mamma og ásgeir) sem allir eru alltaf að væla um.. heh.
RIP, Viktoría. þessa blogg tók um 3tíma. ég er að deyjja í höndinum og öxlunum, eruði sátt núna? ahh?

Og plís horfið á þetta til enda. svona akkúrat fer þetta tekknó ógeðsviðbjóðishorbjóður með fólk. ég hata teknó og júrópopp og allan þennan skít, enda er ástæða til.

25.1.05

var að setja inn slatta af nýjum myndum. þetta eru myndir síðan um helgina, í bónuspartíiunu.. það var fínt. nenni ekki að skirfa. en endilega skoðið.. og þið vitið hvað?
yeahh.. maður er svo útúr jógaður á því að það þýðir ekkert að hanga og eyða orku sinni í tölvusull. neinei.
svo er það dósin here i come um helgina.. tumi, mamma og pabbi. já takk.
góða nótt

17.1.05

við elías skelltum okkur loksins á Oliver
á laugardagskvöldið.. og það ætti að vera skylda hjá ÖLLLUM að fara og sjá þetta stykki hjá þeim. god! ég varð ástfangin.. ólafur egill er mesti snillingur íslands. ég er enn að reyna ná andanum. hann lék "hinn illa" fagin og gerði það svoooo vel að annað eins hefur ekki sést. æ. mig langaði svo að bíða eftir sýningu eftir að hann kæmi út, ná honum, stinga honum í búr eða poka (ég hefði auðvita leyft honum að ráða) og svo hefði ég farið með hann heim og átt hann. en það var víst ekki svo vinsælt, af samferðamanni mínum, saíle. en það verður víst að bíða betri tíma. því samkvæmt mínum útreikninum þá mun kappi dvelja á ak allavegana eitthva fram í nýja árið. og hann á víst heima á hótel KEA á meðan hann dvelur hér. aha? (; mig langar samt svo að fara aftur á þetta.. 3500kr. tjahhh. sjáum til.
en jiii.. gæinn þanna sem lék sjálfan Oliver, hann mátti nú alveg dvelja bara heima hjá sér í eyjafirðum. hann var ekkert séstkalega spes. eiginlega alveg ómögulegur.

en jæja jæja. allt er gott að frétt.
ég er byrjuð í hóp. mér líst bara þónokkuð vel á þetta og vonandi skilar þetta góðum árangri. og svo var ég að skrá mig í joga námskeið og það byrjar á fimmtud. ég hlakkkkka svo til að byrja á þessu námskeiði að ég get varla beðið. þetta er semsagt svona, manni er kennt byrjunarstigin í joga, hreyfingar, slökun og öndun og eftir það getur maður farið í hvaða joga tíma sem er og auðvitað nýtt sér þetta í dagsins önn. mér veitir ekki að þessu.. slökun. já! kannski að slakni eitthvað aðeins á þessar god damh vöðvabólgu minni. sjitt. já þannig að það er allavegana nóg að gera hjá kellu. og svo auðvita vinnan, sem ég vona að reddist, því núna verð ég að vera í frí 3kvöld í viku. ég verð að mæta í þetta allt, alla tímana, má helst ekki, eða eiginlega ekkert helst sleppa einu skipti, í hvorugu.
svo er ein vinkona mín ólétt. það er svo spennó. komin 3mánuði á leið og allt gengur vel. það er svo gaman. leiðinlegt samt að vera svona ógurlega langt frá henni. dæs.
fokking faggar í þessu innlit-útlit. og svo því miður hefur að undanförnu borið á auglýsingum frá "drekkið jarðaberja tomma & jenna og þá veriði ólétt" þættinu.is (brúðar djöfullinn já) og xið hætt. hvert er þetta fjands harðlífi að fara? þið sem þekkir mig, vitið að mér líkar ekki vel við fm95kókstíp.is og ég var eh að keyra í gær, bíllinn lét öllum illum látum og það bætti ekki skapið, svo var stillt á þennan ræflaskít(gruna mágkonu mína sterklega um aðild í því) og það var eh (með nottlega ÓGEÐSLEGA leiðinlegri rödd og viðurstyggð) "ég skil ekki að listamaðurinn nelly hafi ekki verið uppgöfgaður fyrr en 2000" blablabla.. listamaður? sjitt. það var punturinn yfir iið og ég blasaði stelpurokkinu að fullu.. heilræðavísur megasar með heiðu beibílove! thank god. fyrir geislaspilarn í bílnum. en rás2 er nottlega ok. hlustaði aðeins á létt þegar jólin voru, því þá voru það jólasöngvar. og mér líkar ekki við siliendíon og það allt.. allan dagin. neinei. fyrr skal ég dauð liggja, undir grænni torfu en að skutlast einhvert á kagganum með faggagítarhnakkaviðursyggðhelvítisHORBJÓÐisógeðsbörnkókhausaskítbjóðisbuffalóskó tónlist í mínum bíl.. rottur? í mínum bíl? SNÁFIÐI!!!!!!!
þetta er held ég nú í bili. verið samt dugleg að tjékka á mblogginu, því ég er mjög dugleg að blogga inn myndum. ég hef líka ákveðið að láta fylgja eina sögu hérna sem mér þykir ótrúlega vænt um. endilega lesið hana, hún er þess virði.. það kannast margir við þessar tilfinngar. því miður.
„Í stað þess að verða dapur og niðurdreginn yfir því hvernig þú ert,
skaltu hugleiða allt það sem þú getur orðið.“
Ágætis lokaorð. Hugsið vel um ykkur og hættið að væla útaf smáatriðum, því þau skipta svo litlu. Og munið það.. að Pollýana hefur alltaf rétt fyrir sér.. það gæti verið verra.

Púkinn

Ég varð einu sinni fyrir ofbeldi. Hræðilegu ofbeldi. Ég ver grátt leikin og illa farin. Það versta var samt að ofbeldismaðurinn skildi eftir púka inn í mér. Andstyggilegan púka sem hann tróð beint inní fallegt hjarta mitt. Þá hélt ég að hjarta mitt væri ekki fallegt lengur, því það var fullt af þessum ljóta púka.
Ég var ringluð og vissi ekki hvað ég átti að gera. Ofbeldismaðurinn var farinn en púkinn var á þessum stað og vantaði rödd. Svo að ég gaf honum mína. Það hefði ég kannski ekki átt að gera, en það var eina leiðin sem ég rataði þá.
Og púkinn tók til óspilltra málanna. Hann hafði alltaf nóg að segja. Hann gagnrýndi allt sem ég gerði og honum tókst alltaf að benda mér á allt sem miður fór. Ekkert var nógu gott fyrir hann, það var sama hvað ég vandaði mig mikið, hann gerði ætíð stólpagrín að mér og hló þessum ískrandi, illgirnislega hlátri sínum. Hann sagði að ég væri ljót og vond persóna. Hann sagði að líkami minn væri svo afskræmilegur að ég ætti ekki að láta eðlilegt fólk sjá mig. Stundum grét ég þegar hann lér sem verst, en þá hlakkaði í honum og hláturinn ómaði hærra en nokkru sinni.
Púkinn varð hluti af lífi mínu og eina leiðin sem ég kunni til að lifa með hann í hjartanu mínu var að vera hluti af mér og ég leyfði honum að trúa því. Ó hvað ég var eftirlát við þessa andstyggð.Og reyndar ruglaðist ég iðulega í ríminu. Hvað var ég að segja og hvað var hann að segja? Það er reyndar ekkert skrýtið, ég hafði gefið honum röddina mína. Svona leið langur tími. Þetta var tíminn sem púkinn notaði til að tæta mig í sig og honum gekk vel.
Þangað til dag einn að ég tók ákvörðun. Ég tók þessa ákvörðun af því að ég er lifandi.Ég ákvað að lifa áfram, en ég ætlaði að hætta að vera fórnarlamb ofbeldismannsins og púkans. Það var eins og að klífa himinhátt fjall. Fjall sem var fullt af grjóti og hrikalegum skriðum. Oft hrasaði ég svolítið aftur niður, en aldrei mjög langt. Ég stóð alltaf á fæturnar aftur, því upp skyldi ég fara. Púkinn skammaðist og reifst alla leiðina og vissulega hlustaði ég oft á hann. Mér fannst hann vera eins og þungur steinn í hjarta mínu sem æ erfiðara var að burðast með. Ég fann núna að púkinn var sko enginn hluti af mér og hafði aldrei verið. En það var erfittt að sannfæra hann um það, hann heyrði nefnilega aldrei til mín. Hvernig gat ég talað inn í hjartað á mér Púkinn fór létt með að tjá sig, ég talaði alltaf fyrir hann sem fyrr.
Ég fann að hann var að hægja á ferð minni og ég vissi líka að ég kæmist aldrei alla leið með hann inní mér. Ég hugsaði ráð mitt og allt í einu vissi ég hvað ég gæti gert.
Ég lagðist niður í grænt og fallegt gras og fyllti skilningarvit mín öll með lífinu. Þá fór ég með sál mína og leitaði inn í hof mitt. Þar fann ég sterkan vin og horfði á hann þar til hendur mínar urðu logagylltar. Og ég fór inn í hjarta mitt og sá hvað allt var þar fallegt, nema púkinn. Með sólina í höndunum reif ég púkann úr brjósti mínu og skildi aðeins eftir fegurðina. Púkann setti ég upp á öxlina mína, þar sem hann grenjaði af ótta við birtuna. Ég tók af honum rödd mína og hann neyðist til að nota sína eigin.
Þegar ég opnaði augu mín næst, sá ég púkann í sinni réttu myndi í fyrsta sinn. Hann var lítill og horaður. Ræfilslegur og aumkunarverður. Og ég fann að hann myndi ekki segja mér til framar, Hann reyndi nú samt eins forhertur og hann er. En ég svaraði honum fullum hálsi. Rödd mín var sterk og hljómfögur, en hann skrækti bara eitthvað, samhengislaust og mjóróma.
Nú leið mér vel. Upp frá þessu hefur púkinn hangið á öxl minni, hálfmeðvitundarlaus og ruglaður. Hann röflar stundum eitthvað en þegar ég læt hann útskýra sig þá getur hann það ekki og þagnar.
Púkinn má alveg vera á öxlinni, því með sinni eigin rödd segir hann ekki margt sem hlustandi er á . Í hjarta mitt fær hann aldrei að koma framar, ég á það sjálf.
Ég er víst falleg manneskja og ég er líka svolítill sigurvegari.
Thelma Ásdísardóttir, stígamótakona

11.1.05

ég er orðin brettisskíðakappi með meiru þessa dagna. ég fór á sunndu. uppí fjall og happaði þar og brunaði eins og fjalladrotting. datt ekki einu sinni. hah? hversu mikla snilli þar í það? jújú.. viktoríu. er búin að redda mér bretti og það á að mæta á morgun og træ that. sjáum svoo til.
langar enn í i ipot. fór á sígret pleisið mitt áðan.. með mp3spilanar (sóó jersterdei) me and mugison. gott.
tjékkiði ekki reglulega á mbloggginu? fatta núna afhverju það eru alltaf bara myndir af þeim sem mbloggar. fattaði ekki fyrr en ég fór að gera þetta sjálf. heh. bara ég.
verðum 20ára eftir.. jahh ekki svo marga daga.
mikið að spá í að fara á kelduna. láta verða af því í þetta skipti. er það eki málið? held nú það.. kannski taka smá ródtripp í rass fyrir kelduna sjáfa..? hef samt engna memm.. kannski.. hmm.. já. gæti verið.
góða nótt.


Ef þú ert kvalin mörgum pínslum
Illra meina sífelldri nauð
& vondra manna mörgum klækjum
mildri guðs að þú ert ekki dauð

Þá vappa skaltu inn í Víðihlíð
Víðihlíð & Víðihlíð
& vera þar síðan alla tíð
alla þína tíð.

Ef þú kúrir ein í horni
Engin þér sinnir þá græturðu lágt

& fáirðu matinn kaldan & klénan
& kjötið það er bæði vont & hrátt.

Ef börnin í þig ónotum hreyta
Æskirðu liðsinnis buguð af þraut
& ef bóndinn hann segir bless og er farinn
þá búið tekur að vanta graut.

Ef engin þér sýnir samúð neina
En sorgirnar hlaðast að fyrir því
& ef engin hræða til þín tekur
tillit né sýnir viðmót hlý


Í Víðihlíð er veður blíð
Vondir kallar þeir sjást ekki þar
& ótal stúlkur stökkvandi til þín
stefna og færa þér gnótt matar.

Þær votta þér samúð votum hvörmum
& vítur samþykkja á pakkið illt og spillt
& sýna þér góðvild í einu og öllu
& eyrun sperra þá græturðu milt og stillt.


6.1.05

horbjóðis ógeðsheit viðurstygggð.. hva er málið með allt þetta skíta hor? hvaðan kemur það? það er fokking alllstaðar og vill ekki hætt að dropa í þúsundatali niður kinnarana á mér (eða svona) allavegna H O R B J Ó Ð I S dagur og ekki skánar það með hausverk og
hnerrum eins og mér sé borgað fyrir það, og þeirra eru ekki á láum nótum.. ónei og svo auðvita svöðusárin eftir gærmorguin, þannig er nefnilega mál með vexti:
vaknaði kl. hálf 8 (er búin að sofa út síðan fyrir jól einhvertíman, frí og kvöldvaktir) og fór í vinnuna. var í brettaúlpuni minni, sem er ekki stór á mig hún er alllltof allltof STÓR (keypti hana á backindadays á þvílíku skoppara tímabili) og var í stórum snjóbuxum og gúmmitúttum.. stimplaði mig inn og labbaði niður í búingsherbergi, það er stór hrigstigi og ég með minni heppni og list þá tókst mér í 3 seinustu tröppuni að FLJÚGA á hausin.. þar með skaddaðist, olbogin, stökk bólgin og óhreyfanlegur, herðablaðið sem er lemstrar og vitlaust, hnéð, síðan og hausin! vííí.. gaman að byrja svona. ég tautaði auðvita þessi dámsendar ósköp um helvíti, satan og alla þá félaga.. tjéllarnar komu með huggunarorð og svona: þú átt ekki að fara þér hratt, þú verður að halda þér í, þú verður að passsa þig.. blabla. það bætti ekki skapið. ég byrjaði að drulsa hverju gamalmenninu á lappir með mikli list. bara með vistri og helst ekki beyja hnéð eða líta til hægri né visti. tók.. svona, já! svo fór ég í fokking morgunmat. fæ mér alltaf hafragr. tók eina skeið og skýtti hennar aftur oní diskin, því hann var viðbrendur og ógeðððslegur. ætlaði að fá mér ABmjók, opanði fernuna og hellti öllu yfir sokkinn minn, og hún var ekki útrunnin.. nei hún var ÚTRUNNIN!!! 22des. víhh. öll útí ABmjók sem var úldin og ekki batnaði neitt við þetta. þið sem kannskist við mig og mitt skap.. þið vitið hvernig þetta endaði.
en btw.. nú sit ég heima, lemstruð með horbjóð. veii. svaf svo í 15-16tíma í nótt og er auðvita skelfilega stíf og krumpuð eftir það!!!!
já.. væl væl væl væl væl. og það þarf ekki mikið til þess að ég verði eyrðarlaus, því ég er toppur aLS eyðarleysis. þannig.. ég er búin að taka niður allt jólaskraut.. horfa á alla flugelda bæjarins, horfa á spólur (eternal sunshine of the spotless mind, eillíf sólarljós í fleklausum huga) og tölvast eins og villidýr í asíu. og búin að enduraða mjókini í ísskápnum (meðan elías talaði í síman, geissp)
ég er já komin með mblog. það er víst gaman. og ég þoli ykkur ekki.. ég veit að það er alllavegna þúsund manns búin að skoða myndirnar síðan á áramótunum.. en neihh!!! engin sýnir smá kurteisi í að rita eins og einn.. einn staf!!!
farið til hevlítis og rotnið þar. ég ætla að fara gera eh.. eh sem ég er ekki búin a gera í dag, sem er ekkert!!!
sjitt. good will huting.. já horfi á hana með lýsamundi efemínus.
en eitt.. kiddi frændi er útá ítalíu.. og ég efast um að einhver á þessara jörð hafi verið jafn ástfangin og hann right now.. svo sætt. þau eru hérna á webcam! ást ást ást. en ekkert nema gaman og gott. kallinn á það svo sannnarlega skilið.

3.1.05

til lukku með jólin og nýja árið. takk. takk.
búin að setja inn um þúsund nýjar myndir frá áramótunum á dósini og því öllen sammen.
jólin hafa liðið.. væn og góð í skeppu slóð. auðvita fékk ég margt í jólagjöf, eða ég og elías (alltaf þarf hann að troða sér allt) t.d. 3blandara, náttföt, bók, vöfflujárn sem varð að þráðlausum síma, blindsker á dvd, pictionary, ostahnífa, glös, bakka, pressukönnu, peninga, stóran standlampa, handklæði.. aldeils fínt held ég nú bara. me and my ass erum búin að flakka um veröldina heila og endddilega. og höfum ákveðið að stíga ekki útúr koti nema til að ná okkur í kost. en allt hefur farið farsamlega fram og ekkert nema gott um það að segja. bestu setningu áramótana átti lítill vinur minn (kýs að nefna ekki nafn hans hér til að komast hjá ærumeiðingum, þið skiljið) "viktoría, veistu hvað það er gott að vera fullur" ég játaði því og hlóóó að þessu fyrsta fylleríi kappans. dáásamlegt dáásamlegt. áramótin eru alltaf svo loflí djömm.. allir svo djollí og kúl áðí.. kyssast og fanga. líka merkilegt hva fólk er strigilega fullt á þessum mótum. ég sem betur fer komast hjá þeim titli þetta árið en sumir (ég nefni engin nöfn) fengi ekki bara þenna titil heldur átu hann, skeindu sér á honum og ældu honum síðan.. öshhh!! okkur brósó tókst með miklum naumindum að drulsa honum frá klósettinu þar sem hann hafði kúrt í jahh.. 2tíma eða svoo og inní herbergi og úr jakkafötunum og svo var ælt í rúmið en skömmin hún mamma bannaði okkur að ná í videokameruna til að festa þennan líka skemmti atburð á teip. skammið hana. en jæja, allt endaði þetta vel. en við erum
semsagt komin attur á ak og þá tekur hversdagurinn við. mér líkar vel við þennan hversdag.. hversdagsleika. hann er ágætur. því þeir sem þekkja mig, vita að rútína á vel við mig.
ó. svo verð ég að fara standa við þessi loforð mín. skulda djömm út um allt. helst þá í víkini með þessum litlu snuddum. alltaf þegar ég fer í borgina þá stoppa ég í 8tíma, mesta lagi. en núna einhvertíman.. kannski á þessu blessaða nýja ári þá ætla ég að taka helgi í djamm í óttavík. jájá. það er harkan sex. og svo þarf maður nú líka að drullllast á egilst. til hrafndísar og kó.. vona að boðið standi enn um djamm. jájá það held ég nú.
en annas verður þetta ár bara eins og seinasta. vinna á elló. elías í skóló og vinna í bónó og bara.. notaleg heit. djamm hér og djamm þar. en það verður víst engin ellen. hún má líka eiga sig þessi litli svikari. já to hell with her.
setti mér áramótheit.. eða ekki beint samt svona. segi ykkur betur frá því leiter. kannski ég láti verða að því að hringja eitt símatal sem gæti komið þessu af stað.
jæja dudddulingar.
kveð.

19.12.04

Þessi saga er þess virði að lesa hana... Síðasta dag fyrir jól
flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.
Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "Þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði". Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin. Allavegana, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.
Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði "þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan
mín" Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór fljótlega. Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til
hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. "Þetta er dúkkan
sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin. Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana. Ég sagði honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við
mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún en núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo að hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað". Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.
"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana". Hjartað mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði "Ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax. Ég bað hann um að bíða þangað til að ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. "Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo að hún gleymi mér aldrei, ég elska mömmu mína og ég vildi óska að hún þyrfti ekki að fara,
en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni".
Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur.
Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn "en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir nógan pening?" Allt í lagi sagði strákurinn "ég vona að ég eigi nóg" Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og
meira að segja smá afgangur. Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði " Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss um að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín, mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós
handa mömmu,en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka". Sko mamma elskar hvíta rós".
Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði
að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því
að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.
Var þetta fjölskylda litla stráksins?
Tveim dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga
konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti
búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna
og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndinni
af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.
Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin
sem þessi itli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann
dag í dag,erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta
allt frá honum.

Þessi saga er til að minna okkur öll á að jólin hjá mörgum eru ekki bara gleði og hamingja. Það eru svo margir sem einmitt líður verst í kringum jólin. Það eru alveg ótrúlega margir sem taka líf sín einmitt í desember. Það er líka merkilegt hversu vel gamla fólkið (þá meina ég eins og alzermessjúklingar,sem geta ekkert tjáð sig og viðast lítið sem ekkert skilja) finna og vita að það eru að koma jól og þá verða flestir mjög daprir. Ég held að það verði séstök upplifun að vinna á jólnum og finna fyrir þessu. Ég hlakka bara til.
Hann Reginn, fyrrverandi skólafélagi minn og bekkjarvinur framdi sjálfsmorð fyrir 2vikum. Hann var með mér á Laugum. Otrúlega sniðugur gaur. Hann var mikill tónlistarsnillingur, og spilaði á bassa, og gerði vel. Hann spilaði einmitt á 1des einu sinni með Konna litla. Þeir tóku Blink182. heh. Og hann var alltaf í einum rauðum sokk og einum bláum og með bindi og í stuttbuxum. Merkilegur gaur.
Honum þótti líka voða gott að sofa. Það var oft sem við læddumst inn til hans til að ná í hann í tíma. Minngarsíðan hans Regins.
Svona er lífið ljúfurinn og ljósinu fylgir skuggi.


Ég ætla ekki að skirfa nein jólakort í ár. Nenni því ekki. Sorrí. Þið vitið að mér þykir vænt um ykkur öll og sendi ykkur jólastrauma og gleði. En ég vill gjarnan fá jólakort, það er ekki það.
Það varr asskoti gott í rvk. verslaði verslaði verslaði verslaði verslaði verslaði og fór smá í búðir. eyddi eins og bréfberi í des og skemmti mér við það. pénigar sméniingar. keyrði um á drossíuni hennar ömmu og tók ekki feil beyju og lét eins og ég hefði verið leigubílstjóri í rvk í 25ár. doktorinn sagði allt það besta eins og fyrri daginn. 7,2 í langtímasykri sem er FULLKOMIÐ. þannig.. fullkomið. takk.
Djammaði vel í gær. Helvítaðist í Sjallan á Sálan (i knowww, sökker) Þetta er var fínt sko. Ég djúsaði nú samt bara á dátanum með geðsjúkum ellupoppurnum, veiii! Ellen gerði líka góððða hluti (EÐA EKKI)hún komst ekki á ball, alkin litli. hehehhe. Hún er þessi gella sem aldrei fer yfir línun í drykkju og hagar sér líka oftast ágætlega en í gær var línan puntur í hennar augum og hún var ON FIRER! heh.
Hér eru svo myndir síðan um helgina. Gísli Mar, Hrafndís og Halldór Páll komu í heimsókn á laugad. og ég tók auðvita myndir af svona eðal gullum sem mæta í heimsókn. Þvlík besta skinn og myndalegur gæi. Og svo djammmyndir. Gammmmman..
skítt með það.
þar fór það.
lýsi lúsi og sjebbi eru hér að gera allt vettlaust með einhverjjju rugli.
og elsku Birna mín á afmæli í dag. til lukku lukku lukku. ;*
og ólöf birna.. innilega til lukku með útskrifina. þú ert hetja.

13.12.04

nýjar myndir. síðan á föstudaginn seinasta. afmælið hjá ásgó brósó og djamm með stelpunum. gaman að þvííí.
svo er það bara rvk á miðvikud. sef eina nótt hjá ömmu og afa og læknis á fimmtud. og búðaráp og rölt, jólainnkaup og tölt og sollis. égggg hlakka svoo til, ég hlakkkka alltaf svooo til. vonum bara að læknarnir verði ánægðir með mig.
erum að fá 10launaflokka hækkun í vinnuni og bara læti sko. afturvirk í 2ár (ég er búin að vinna í 1ár, þannig) þetta verður glæsó. svo desember uppbótin. þannnig að maður verður sjitt lóded 15des. klippó og þessháttar verður tekið með stæl 15des, kl. 13.00.
tumi bróðir er í heimsókn. mamma er á sjúkrahúsinu og pabbi að vinna og vinna og hann þar einhverstaðar að vera kalllinn. ég flaug rækilega á hausin þegar ég og ásgeir vorum að dandalast eh áðan. gat á buxum og blóð á hönd. nagað bílbetli og étnir geisladiksar. hver segir að það sé ekkkkert mál að hafa hund? gvöðð. jiii.
skítið í ykkur
bæ.

5.12.04

þessum manni gæti ég ekki verið meira sammála! jiii.. þessi útblástni fýsibelgur. fýsibelgur. eins og hvernig hann talar við kvennmennin sem spyrja hann í t.d. kastljósi og íslandi í bítið. mér sem konu, finnst hann koma illa fram, hálf dónalega og líka hjá gísla martein þanna um daginn, þegar birgitta var hjá honum. alltaf að kommenta eh á þær. þú ert svo sæt, kyssuleg og þetta með rauðu brjóstin. æhi. svona menn eiga halda sig heima hjá sér og vera ekki að þvælast svona útí sveit.
snáfaðu.
svooo er það bara lengi lengi lifi freysinn okkar. ég tek þennan mann á orðinu, gullpiss, gullna sprautan og gleðikonur. maður kallar nú ekki allt ömmu sína. heyr heyr. þetta er það sem við unga fólkið viljum heyra. þetta er ógeðslega fyndið og þetta er eins og maður talar.. all day long. ekki hneyklar hann mig. hvern hneyklar hann annan en árna guðmundson tómstundar fulltrúa hfj bæar. þá á hann bara að slökkva á god damh útvarpinu hjá sér og hana nú. kommma svo.

annas var þetta heimskuleg helgi. föstudagurinn var einn sá.. hmm.. ég á ekki orð yfir hann. ég vældi, skældi, vesenaðist og væbblaðir, hótaði að stökkva fram af svölunum heima (8hæð) og þessháttar, því ég get ekki reddað mér á húsavík. já húsavík segi ég. maus voru að spila þar, dáðardrengir, sign og tony the pony. ég fékk vægt lauga sindrom. það langaði öllum, allir voru reddí að koma en engin nennti að keyra. algjör fávitar (jóhann og árni) ég þorði engan vegna að keyra í hálku og myrkri. skítur ég. i know. þeir sem þekkja mig vita að ég elska maus. ég myndi fara á maustónleika þó þeir væri á skagaströnd eða einhverjum álíka stað. ég hef alltaf og mun alltaf elska og dá og dýrka maus. ég kann öll lögin og veit allt um þá. ösh. ég er ekki með réttu ráði. ég hefðu átt að labba. já ég man það næst. en þeir hljóta nú að snáldrast hingað á ak. er það ekki? ég vesenaðir allavegna í þessum "reddingumtilhúsvíkurmausthing" í 6tíma og á endanum gafst ég upp og fór í smá heimsókn til ellen. sem ég hefði betur sleppt því. hehehehehhe..! já hún er hún ellen mín er ekkert lamb að leika sér við. í fyrsta lagi er hún kreisí inda kókónött og svo notar hún einhverja skrítna tækni til að "láta mann drekka" og alltaf fell ég í þessa bölvuðu gildru hennar. allt henni að kenna að ég kom heim þegar menn voru að fara í vinnuna. reyndar kúrði ég mig bara í hjónarúmið hjá þeim ellen og gunna og hafði það ágætt, takk. henni að kenna henni að kenna henni að kenna. það væri aldrei hægt að vera AA manneskja í kringum rassgatið á ellen. glætan.
gerði ekkertt í gær nema fór á greifan og fékk mér steik.
ekki nema 4 helgar í veisuhöld. 2jólahlaðborð, út að borða og svo næsta helgi er afmæli hjá herra ásgeir erni (það er maður sem býr á móti mér, hunddddgamall) heh. hann verður víst 25ára næsta föstud. og þá er veilsa. og mér er boðið. víhh.
vöðvabólgu helvítið er að drepa mig svo ég ætla að standa upp frá tölvuni í smááá (baraaa smá stund) stund.
kv. konan sem kyndir ofnin minn.

30.11.04

er búin að setja inn allar myndirnar frá því um seinustu helgi, bónus jólahlaðborð thing. það var helvíti mikið stuð. góður matur. mikið af jólabjór, og þar fram eftir götunum. og sjittturinn tittturinn hóran og fokking mellan sólstandargæarnir.. jii! endddalaust. fólk fór á kostum þanna (nefni engin nöfn) diddý. sei sei jáh. allavegna þá er maður komin með nýja sýn á þetta bónuslið. gammmman að því. en snildin var líka að master jóhannes the ownerrrr of itttt allll mætti eins og fínn maður með frú (sem leir út fyrir að hafa fengið gríððððarlegan raflost áður en hún mætti) en jæja.

við erum búin að skreyta aðeins hjá okkur. aðððeins. allt að koma.
mamma kemur á morgun. ég er búin að snappa mér rúmlega vikufrí.. vaktarvinna is dah shit. mjöggg gott. ætla að draga mömmsu með á birgittu jóns og svo er spurning? um að kíkja á dósina fram yfir helgi.

moðerrfokkingindahásofpein. nenni þessu ekki.
smashing pumpkins -- christmastime ... gúdd gúddd!