er búin að setja inn allar myndirnar frá því um seinustu helgi, bónus jólahlaðborð thing. það var helvíti mikið stuð. góður matur. mikið af jólabjór, og þar fram eftir götunum. og sjittturinn tittturinn hóran og fokking mellan sólstandargæarnir.. jii! endddalaust. fólk fór á kostum þanna (nefni engin nöfn) diddý. sei sei jáh. allavegna þá er maður komin með nýja sýn á þetta bónuslið. gammmman að því. en snildin var líka að master jóhannes the ownerrrr of itttt allll mætti eins og fínn maður með frú (sem leir út fyrir að hafa fengið gríððððarlegan raflost áður en hún mætti) en jæja.
við erum búin að skreyta aðeins hjá okkur. aðððeins. allt að koma.
mamma kemur á morgun. ég er búin að snappa mér rúmlega vikufrí.. vaktarvinna is dah shit. mjöggg gott. ætla að draga mömmsu með á birgittu jóns og svo er spurning? um að kíkja á dósina fram yfir helgi.
moðerrfokkingindahásofpein. nenni þessu ekki.
smashing pumpkins -- christmastime ... gúdd gúddd!
30.11.04
25.11.04
kvæsandi hvalurinn dæsti þegar gluggakistan góða gekk í hlað. kvæsandi hvalurinn leist ekki á blikuna, en andaði að sér fersku prumpulyktina af valtý. valtýr er hundurinn S E M prumpar. svei týra, svei!
ég er að fara á annað jólahlaðborð um næstu helgi. sjitturinn. er verið að reyna fita mann. og svo æliði að éta mig? er það plottið og planið? ha? allavegna var æðððislegt á seinasta föstud. á jólahlaðborðinu. mættum í teiti til kollu og þar var boðið uppá heimabruggað rósavín, sem var asskoti áfeng. sveif á mann við fyrsta sopa. en það var gott. svo mætti manni, graflax, skelfisksalat, kalkún, lundi, grafið lamban, innbakaðir nautalundir og sitt hvað fleira. og þetta var allt geððveikt gott. svo skellti ég mér í sjallan, og auðvita kom ellen sugerbabe með mér (ég fer ekkert nema tjéllling komi með) og það var gaman. nenni ekki að setja inn myndirnar. þær er ekkert spes. blehhh. tek margar myndir um næstu helgi og set þær inn. af næsta jólhlaðborði með bónus.. húrra!! crasy ppl inda bónuscity.
en ég var samt að setja inn myndir af okkur elíasi sem trausti tók af okkur í fyrra fyrir jólin. voðððða gaman. doltið breytt. við bæði með mjög sítt hár og svöl. núna erum við bara svöl. gvöðð hvað við mundum aldrei missa þetta bléssaða kúl okkar.
enn er ekki ákveðið hvar skal halda áramótin og taka á móti árinu 2005. jii, það er svo stutt síðan við héldum "bekkjarpartí" þegar aldamótin voru. ég ein að drekka, eða lee með mér, man ekki. fór á áramótaballið. mátti það nottlega ekki, var of lítil. mamma var á ballinu. ég labbaði heim. heh. skemmtilega saga, viktoría.
allavegna.. vopanfjörður, akureyri, blönduós! það reddast allt saman. við elías verðum allavegna saman. er það ekki málið? held það nú.
ég fór í dag og keypti piparkökumót og dót í aðvetnukrans. jól jól jól jól. ég er nú samt ekkert voððalegt jólabarn. bara svona melló. en það þýðir ekki að ég hafi ekki gaman að fá pakka.. pakka.. pakka.. pakka. og mat.
en gaman hvað allir þekkja mig vel. var að gera svona próf. það klikkuði samt allir eiginlega á hvað ég elska mest.. nú auðððvita maus. og ég sprauta 5 sinnum á dag og fór á koRn tónleika í summer. jepp.
tók út helvítis messages dæmið.. bara crap. nú kvet ég alllla til að rita nokkur fögur orð í nýju gestó hjá kjéllingunnnni.
með fyrir fram þökkum.
ó jæja.. prumpuhudurinn valtýr kveður.
jólabókin í ár.. prumpuhundurinn valtýr!!
14.11.04

kveldddiððð.
ég sit á mínum venjulega stað, í stólnum mínum við gler eldhúsborðið mitt, sé á sjónvarpið og út um gluggana. mitt sjónarhorn er prittí möst það sama, all day long. en það er ekkert verra fyrir það. það gerir það bara betra. með hlustaran minn (heddtón) og tónlistina mína í góði umli og allan þennan snjó sem er að hellast yfir allt og alla. hér slappa ég af. mér finnst það svo notalegtast. kveikt á kertum og dimmt. og svo hef ég auðvita tölvuna mína. ég held að það sem mig sárrrrvanti sé ipod. god ó god! þá væri ég einhverstaðar, what ever, ein með sjálfri mér og minni tónlist. ég er búin að tilkynna m+p að mig langi í ipod, það féll ekki í góðan grunn. ég mun eignast ipod fyrr eða síðar. ó seisei jáh.
var að horfa á edduna. ég hafði lúmst gaman að þessu. ég er nottlega sjení í íslenskum myndum og íslensku stöffi. ég aldist upp með stellu í orlofi og með allt á hreinu. alveg endalaust og alltaf horfði ég á þessar myndir. sama hvaða dagur var, sumar, vetur, haust eða vor. whattt everr. sumir eiga uppeldissystkini eða eh svoleiðis, en þetta eru mín systkini (já og svo ásgó brósó) heh. ég kann þessar myndir ekki bara utan af, heldur innan af og framan af. ótrúlegt. og bara, íslenskar myndir. ég hef séð þær allar. alveg satt.
ég er mikill íslendingur. já.
eins og með tónlist. ég hlusta eiginlega voðalega mikið á íslenska tónlist. bæði gamla og nýja. ég hef eiginlega ótrúlega gaman að komast í gamla íslenska tónlist. eins og á elló, þá er nottlega hellingur af gamalri tónlist og mikið rosalega hef ég gaman að gramsa í henni. og gvöðð hvað ég kann líka öll þessi gömlu lög. ég kenni móðir minni alfarið um það. þar sem gufan góða var mikið túnuð í botn þegar mamma réð radíóinu. en ég greinilega ekki haft neitt sérlega slæmt af því.. eða?
en annas.. ég er að fara á jólahlaðborð um næstu helgi með vinnuni á fiðlaranum. aha? doltið magnað. þetta er víst svaka partí. eh um 150manns og bara partyy on. mig langar svo að kaupa mér kjól í perfect. ef þið sjáið hann, þá finnst ykkur hann pottþétt viktoríulegur. ef þið þekkið mig þannig. hann gæti þá líkið verið jólakjóllinn minn. æhh.. óhh.. það væri svo fínt að fara í honum inda dinner. hmm.. útborgað á morgun. uhh. jepp! hann er geððveikur. mig er líka búið að dreyma hann í nokkur skipti. ha? það er alveg merki um að ég EIGI að kaupa hann.
vóhh. falling away from me með koRn. var næstum búin að gleyma. twist/chi.
vinna í fyrró kl. 7. sjitturinn. sofa.
góða nótt.
Þér skilst að allt sé þér skylt.
Og skuldin hún léttist ef þú hlærð.
Þú færð ekki allt sem þú vilt,
og vilt ekki allt sem þú færð.
9.11.04
óóóóvelllllllllll.
helgin búin, er að henda in eh að þessum 130myndum sem ég tók. heh. bæði á föstudagskvöldið, þar sem við svava kíktum á bakkan, það var 2fyrir1 af bjór. svava fékk sér nokkra en ég hélt mig í kaffinu og vatninu og svo auðvita á aðal dansiballinu á laugadaginn og já, má til með að muna að láta gunnar fá batteríin sín aftur. jepp. allavegna. enjoy! en samt. mér til miklar skammar og skelfingar. þá sé ég að þetta eru bara myndir af sama fólkinu aftur og aftur.. heheh. ég veit ekki afhverju. ég er dorkur. i know. en mér finnst svo leiðinlegt að skoða myndir af einhverjum sem maður þekkir ekki. þannig að ég tók bara myndir af þeim sem ég þekkti. en gvöðð, ég hlít samt að hafa þekkta fleiri en þessa þanna. en what ever. ég veit að ég er nölli í holi sem má setja mold yfir. mold, takk.
það er samt byrjað að leka aftur inn til okkar. greni segi ég greni!
en allt gengur vel. ræktin er gullsígildi eða eh og bara.. lala.
allt er gott sem endar vel.
þess vegna ætla ég að enda þetta núna!!!
2.11.04
fokk that.
blehh..
nýjar myndir
dósini um næstu helgi.
ældi biggg tæm í ræktini í morgun.. hahaha. samt ekki fyndið meðan á því stóð. en.
ég er ekkert viss um að nenna á þetta styrtarsjóðsball. sjáum til.
er voða þreytt þessa daga.. langar að sofa til eilífaðaðaða nóns.
langar ógeðslega og ætla pottþétt á mínus 12nóv í sjallanum. held að það sé skilda. og langar líka á egó og svooo auðvita á qurashi, það er skylda. og ef allt gengur að óskum verða allavegna 2 sem ég þekki í hr. norðurland. heh. ó já. maður þekkir fallega kallmenn. það vantar ekki.
það eru 40manns inná msninu hjá mér núna en ég nenni ekki að tala við einn eða neinn. ég er ein heima og ætla að njóta þess. dásemd. gimsteinn. himnasendir.
bless.
29.10.04
Fimmtán ára kasólétt
Það er fúlt og ógeðslegt
Ég vild´ég væri Pamela í Dallas
Þessi krakki hann er slys
Í maga mínum eins og blys
Ég vild´ég væri Pamela í Dallas
Aumt eiga óléttar
Rétt einsog ég
Með ermarnar uppréttar
Í uppvaskið fer
Full fíflið stakk svo af
Hvað heitir hann, hvað um það
Ég vild´ég væri Pamela í Dallas
Króinn fæddist þriðja des
Mér finnst krakkinn ekkert spes
Oh ef ég væri Pamela í Dallas
Gaf svo krakkan, ansi heppin
En hún mamma fór á kleppinn
Ég vild´ég væri Pamela í Dallas
26.10.04
nú er maður að misssa sig í heilsurækt og hollustu. og djöfull er það gott. sjetturinn. mér líður vel. en öllu má of gera og engin er hættan á að það gerist hjá mér. en einkaþjálfunin er í fullum gangi og ég skauta um því ég get ómögulega beygt legg né lið, hvað þá tannbustað mig, skeint mig, klætt mig í og út. ó nei ó nei. en þessir strengir og vesen fer að hverfa. eða? aha.
en það er bara fínt að frétta héðan út trölló. allt gengur svo sem sinn vana gang. cosmo gæi kíkti í heimsókn til okkar um helgina og hafði það gott á milli þess sem hann kyssti lovegúró"mellu" (já jói minn, mellu segi ég mellu, hahah) og eldaði fyrir okkur kjúklingarétt. sem var helvíti góður. við erum einmitt búin að bjóða nágrönnum okkur, hörpó sæm, embló blöndó og ásgó örn í mat í og æltum að gera kjúllarétt ala cosmo. með dönskum kjúklingabringum. húrra.
btw.. ég vill ekki sjá hálfan gest í 5-6mánuði núna. bróðir hans elías, bjarki, var hjá okkur alla seinsustu viku og svo kom jói sama dag og hann fór.. þannig gestir? nei takk. fyrir utan nokkra vel valda.
finnst ykkur ekki gott að vera bara ein heima hjá ykkur og dúlla ykkur, hanga í tölvuni, horfa á friends, lesa, hlusta á tónlist og bara snöflast eh. mér finnst það allavegna mjöggg mjöggg gott. éggg elska það.
næsta helgi er vinnuhelgi. morgunvaktarvinnuhelgi. og svo kemur styrtarsjóðsballhelgi heim á dósini húrrahelgi. veit ekki afhverju mig hlakkkkkar svona ógurlega voðalega svakalega til að komast á blönduós. eða jú ég veit það alveg. það er svo gott. ég fer sjaldan og þá verður þetta enn betra í þau skipti sem maður fer. ég tala nú stundum við Tuma bróðir í síma, finnst ykkur það kjánalegt? mér finnst það ekki.
ójæja.. nú er komið kvöld. búin að borða. allt heppnaðist voða vel.
en núna ætla ég að fara gera pastasalt ala mamma. og ég ætla sko að gera fyrir
heilan her. þannig að næstu mánuði verður pastasalt í matin. takk fyrir takk. hah.
var að setja inn nýjar myndir.
ég var að gerast áskrifandi af Veru. vera er blað um konur og kvenfrelsi, sem er snild. ég hef oft svona flett í gengum þessi blöð, hér og þar. og ákvað bara að gerast áskrifandi. og ég fæ líka snilllldar disk með. stelpurokk. sem er t.d. með dúkklísnum (sem eru bara bestar, algjörir töffara. ég fór á konukvöld í seinustu viku og þær voru að spila, og sjetturinn tetturinn, þær eru ofur kúl) og grýlnum og á túr. hlakka bara til að fá þennan disk. blasta stelpurokki og lesa veru. gæti það verið betra! víí.
svarthvíttta hettttjan mín, hvernig ertu í lit?
ps. má til með að muna að vera ekki að sjóða pasta með heddfón á eyrunum í botni og heyra ekki þegar suðan kemur upp og láta allt fara útum allt!!!! ekki það að þetta hafi verið að gerast akkkúrat núna. heheheh hahahahha.
19.10.04
er í vinnuni.
teljarinn minn er ekki alveg alltaf í lagi. en hann var í lagi í gær. ég hef aldrei fylst með því hversu margir kíkja hérna við.. en í gær voru það um 45manns eða 45 heimsóknir.. hvað er málið? það Á að skilja eftir sig spor. og nú krefst ég þess að það verði gert.
jæja.
hringdi í hreinsa hrings í gær og ætla að byrja aftur hjá kallinum. á mánuð eftir og ætla að nota hann vel! (; semsagt einkaþjáfun í mánuð og svo sjáum við til. hlakka eiginlega bara ógisslega til að byrja hreyfa mig aftur. það verððður gott gott gott.
þannnig að rææææææktin here III comeeee (",) það held ég nú.
deildarfundur hjá okkur og ég að stelast í tölvuni. er að passa skógó. þannig að þetta er í lagi.
óvell.
pælið samt í því að ég og elías erum búin að vera saman í 3ár í dag!
sjitturinn titturinn..
til lukku herramaður á lækjarbakka. húllumhæið verður lattter.
óvell.
bye
18.10.04
þá er því lokið.
segiði? allt á kafi í snjó og óreiðu hér. engin komin á vetrardekk. ég var ekki nema 20mín að keyra í vinnuni í gær dag.. það kostaði einn hjólkopp og stans og skaut milli kanta og svo sá ég líf mitt renna fram hjá í nokkrar sek. en það var ok.
mér er alveg sama þótt það sé komin snjór. eiginlega finnst mér það bara gott. en ég á enga úlpu. henni var stolið í vinnuni hjá mér. pælið í því. flottu zöru úlpuni minni og SELLÚFFUNUM mínum. sjitt hvað ég sakna þeirra og topshop húfuni minni. helvítis nörður og fávitar. hata stelurassgöt. heh. buffalo skór.. ásta maría? hah.. ég skilaði þeim.. hafði svo sem ekkert við þá að gera. hahahah. samt fyndið. en allavegna þarf samt úlpu. mamma var að prjóna húfur á okkur, ætlar að senda þær í dag. svo þarf ég líka vettling. EN jæja.
var að kaupa mér geððveika nikita peysu. hún gladdi mig.
ég var líka að setja inn myndir síðan um helgina. gaman að því. djammaði doltið á föstud. annas bara róleg.
erum að fara á vopnaf. um næstu helgi og helgina eftir það er ég að vinna og svo helgina eftir það (5-7nóv) þá er styrtarsjóðsballið á dósini og við ætlum þangað. húrrra.
óbless.
12.10.04
hann átti eitt sinn fjöskyldu, já bæði bíl og hús, bakkus tók það frá honum, nú er þeir tveir dús. og fólki er svosem sama þótt róni spræni í brók. og stoltið var það fyrsta sem hann bakkus gamli tók. þó er það svo afstætt hver er aumingji og svín á dómsins æðsta degi drekkur rómin máske vín.
satan bakkus. húrra fyrir magga eiríks.
yes sir. hvað segiði? er allir búnir að gefast uppá bloggleisinu í mér.. neinei.
í dag á baldrið afmæli.. til lukku litli kall. og svo á morgun er dagurinn. sjitturinn.. frú Blöndal á 3ára afmæli. það er allt að verða kreisí inda breinhás þanna á hinum enda gangsins. línu kaka, marens, takkó og tilheyrandi. þetta verður semsagt standandi partííí á morgun. hlakka til. við erum líka búin að kaupa dágóðan pakka handa kjéllinguni þannig að það er eins gott að krásir og þessháttar verði gott og gilt. ég efast ekki um það því mágkona mín er snillingur í þeirri deild.
svo koma líka mamma og pabbi og tumi. hann ætlar að fá að lúra á mínum bæ á meðan partíið er hinu megin. hann er orðin svo dannaðir (kommon hann fer í skóla á hverjum sunnudegi.. hahahah, og það er ekki grín) og kann sig ekki í svona "tjökkítís" barnafmælum.. þannig að beðið var um leifi fyrir bróðir vor í 804.
annas er lítið að frétta. ég er farin að vinna doltið í mér. vinna í sjálfri mér. með hjálp, auðvita. ég borga manni 6000kjéll á tíman til að hlusta á mig tala. vel af sér vikið? já það er það. maður hefur eflaust gert margt heimskulegra en það við péningana sína.. heh. held það nú. og veitir ekki af að taka til í mér.
well I heard there was a secret chord
that David played and it pleased the Lord
But you don't really care for music, do ya?
Well it goes like this :
The fourth, the fifth, the minor fall and the major lift
The baffled king composing Hallelujah
Hallelujah Hallelujah Hallelujah Hallelujah...
Well your faith was strong but you needed proof
You saw her bathing on the roof
Her beauty and the moonlight overthrew ya
And she tied you to her kitchen chair
She broke your throne and she cut your hair
And from your lips she drew the Hallelujah
(Yeah but) Baby I've been here before
I've seen this room and I've walked this floor, (You know)
I used to live alone before I knew ya
And I've seen your flag on the marble arch
and love is not a victory march
It's a cold and it's a broken Hallelujah
Well there was a time when you let me know
What's really going on below
But now you never show that to me do ya
But remember when I moved in you
And the holy dove was moving too
And every breath we drew was Hallelujah
Maybe there's a God above
But all I've ever learned from love
Was how to shoot somebody who outdrew ya
It's not a cry that you hear at night
It's not somebody who's seen the light
It's a cold and it's a broken Hallelujah
6.10.04
kaldarkveðjur héðan from akureyri. sjitturinn tittturinn kuldin og skíturinn. maður bara vaknar með grýlukerti í nösunum. hvað á það að þýða? júh, við erum nýflutt í G L Æ nýtt hús og þakið lekur. ég er ekki að djóka. það er allt ömurlegt hérna. nei kannski ekki allt en sonna. jah. það lekur inn í horngluggan hjá okkur (sem snýr í norðaustur, jamm ég tala eins og ekta akureyringur, norður austur suður og vestur.is) og það var allt á floti í stofuni eftir riginuna og slubbveðrið í vikuni. haldið að það sé nú? svo erum við búin að hringja og sami kallinn er búin að koma 2 og búin að kítta e-h að utan en ekkert virkar. fíbbbl!!!!!
what ever.
djammaði vel og mikið á seinasta föstud. hellings fullt af liði að djúsa og þetta var helvíti skemmtilegt jamm. fórum í sjallan á dj. pál óskar. og þið vitið hvað það þýðir.. ójáh!! ég missti mig. hann er nottlega bara kúl áðí og ég dansaði villtan trylltan dans við allt sem hann setti á fónin, og líka skúter (ég skammast mín en mr. páll óskar blastaði því og því er vert að hlíða) kom heim í fyld dóra. gott að deila taxa með einhverjum. það er lúxusin að búa í blokk. og það er eini kosturinn.
jii ég er að missa mig að senda nínu elskuni einhver lög frá hinu og þessu tímabili í lífinu.. gramsa í öllum þessum lögum. mikið hvað tónlist getur sagt til um hvernig persóna maður er. maður getur alveg lesið fólk út frá því sem það hlustar á, það finnst mér allavegna.
msn7 er crap. mæli ekki með því. áður en allt fer í rúst hjá mér ætla ég að hætta nota það. það er ekki save. ónei.
jæja farin í sjáver páver og svo að lesa. er að lesa gegt góða bók, villibirta eftir lisu einhverja svíasakamáldrottingu. mjög gott. tumi bróðir er reyndar búin að naga hana mikið og vel þannig að ég er að lesa nagaða og bitna bók.
ohh jáh. ég skrapp aðeins yfir til öbbu (sem var btw ekki heima) og auðar áðan og þar er hún elsku hrafndísini mín og gíslaingurinn til húsa. ég var að hnoðast aðeins með hann og ég held að eggjastokkaklingjið í mér hafi heyrst allllla leið til ísafjarðar, eða norge? ásta heyrðir e-h? heh. en allavegna hann fær örugglega tröllamjólk því hann er stæðilegur gaur og hefur það bara helvíti fínt.
sleeeeeeeeeeeeeeeeep!!
26.9.04
ó þvílíki sunnudagur.. dásemdar góði dagur.
helgin er búin og það er alltílæ.
á föstud. fórum við á hárið.. sjitt þetta var algjörtt æði. elías sá hvað ég iðaði í skinninu í sætinu mínu, mig langar svoo að vera með. kunni öll lögin, söng með öllu (samt ekkert sérlega hátt) þetta var bara allt frábært. við keyptum okkur svona árskort í leikhúsið.. á 4sýningar 8miða.. þannnig að við vorum frekar menningarleg í vetur, sem er gott. við eigum eftir að fara á svik, pakkið á móti og óliver. það er svo gaman í leikhúsi. ég fann aftir köllun mína að verða leikkona. þegar ég var yngri ætlaði ég sko ALLTAF að verða leikkona, en ekki hvað? eftir sýninguna skuppum við svo til dúnu og bróa og spiluðum risk. ágætt ágætt.
á laugd. tók við ein sú almesta sjálfvorkun og volæði sem ég hef lent í. það var engin heim til að leika við. elías var að vinna og fór svo í óvissuferð. ég var ein!!! mig langar heim á dósini en það fór engin rúta og ég nennti ekki að keyra ein.. væl væl væl væl.. ég reddaði engu. nennti engu og gat ekkert. ég var svo langt leidd að ég skrapp rúnt á lauga! veiii.. það var samt fínt. fékk mér að borða í laugóseló, svona uppá old time og tók svo nokkrar lessur og dívur með mér tilbaka.
það kom e-h fólk hénna heim. vorum svona 8-10 manns. tónlistin í lægðsta og allir killer chillaðir. kl. 11.55 var hringt í heimasíman og mér hótað og bölsokkast yfir látum og stanslausu partístandi. ég stóð á öndini.. vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða skæla. og þessi kona (sem vildi btw ekki segja mér hver hún væri, því það kom mér ekki við) sagði að við vildum ekki vita hvað hún gerði ef þetta héldi áfram. 20mín seinna er dinglað.. ég fer til dyra. þar stendur lögreglan í herklæðum. ég býð þeim inn og þeir segjast vera tjékka á ástandinu því það hefði verið hringt og kvartað. þeir ganga í bæinn og með það sama hrökkast þeir út og biðja okkur innilegra afsöknunar á ónæðinu og bara afsaka sig í bak og fyrir. og segjast auðvita sjá að hér er ekkert að eða nein leiti eða neitt yfirleitt. pælið íðí? hversu illa líður fólki.. fokk!!!!! ég varð svo pirruð. ég ætla að fara upp á eftir, því ég hef smá hugmynd um hver þessi geððsjúkingur er. og ég ætla ræða við hana. svona fólk á auðvita ekki að búa í blokk. en kommmmon!!
ójæja.. við fórum á oddvitan, það var ekkett séstakt. fórum heim um 3leitið.
ætla að fara elda.. kjúlla og franskar..
síja
24.9.04
ég skil ekki þessa villimennsku og bjálæði sem ríkti hérna í den. var að horfa á cold mountain. að við skulum standa uppi.. við konurnar sko. hvernig var hægt að fara svona með okkur? ég fæ bara hroll. stóð upp og neitaði að horfa á endan. hún er brútal þessi mynd og ljót. og alltaf kemst maður meir og meir að því hversu mannkynið er grimmt og slæmt. hvað er að okkur??? ojbara.
ég hef lítið annað að segja. ég er hrærð og leið yfir þessu. en um fram allt stolt af því að vera uppistandandi kona í dag. (þetta er samt ágæt mynd)
ÉG ER SVO STOLT YFIR ÞVÍ AÐ VERA KONA..
við erum að fara sjá hárið á morgun. mig og mér og ég hlakka til.
ég ætla að fara hlunkast í bælið.
því ég er feit læða.
það er nýja nafnið á mig. ég er eins og læða. hlussutuskupokarotta.
ég hóstaði tvisar í röð.. það boðar ekki gott.
ég dey eflaust í svefni.
og hei, ég sá 6 hrafna, snemma í ágúst.. pælið í því?
hef sem betur fer ekki séð svartan kött nýlega hlaupa yfir götu..
sjitt, þá væri mér allri lokið
23.9.04
var að setja inn myndir síðan um versló.. tjékk it.. og líka síðan um seinustu helgi og e-h..
skrifa meira í kvöld!!!
21.9.04
17.9.04
hvaaaaððððða!!!
látum okkur sjá.. ég er á lífi. en vefheimurinn hefur ekki látið sér lynda við kauða seinustu vikur.. jah mánuði kannski. makkaddesssan mín er í vinnslu hjá háskóla skíta pakkainu og þetta er ekki að gera sig. ég bíð sallrólega og nota þá netið hjá herra bróðir.is á móti. það er ok. ég sakna heldur ekkert sérlega að vera ekki með netið heima. ég hef svo margt að gera. liggja t.d. í nýja sófanum mínum.. gramsa í gömæu og nýju dóti og taka til.. mér til skemmtunar allt svo. og svo er elíasar tölva biluð.. hahahahha!!! á ég að segja ykkur akkuru.. hann er svo mikil auli. hann skellti henni svo fast að harði diskurinn eyðilegðist og hún er niðrí tölvulista núna í lagfæringu. eins og ég hef margt oft sagt, þá á ekki að láta ofstopa menn og crazy ppl fá ferðatölvur.. það hef ég alltaf sagt. svona er hann. C R A Z Y !! reyndar ætluðu mamma og pabbi ekki að leyfa mér að kaupa mér ferðatölvu fyrir 2-3 árum því þau voru svo lifandi hrædd við það að ég tæki hana og grýtti henni í gólfið í einu af mínum "tölvureiðiköstum" en enn hefur það ekki gerst. 7 9 13.
ég var að koma úr klippó og litó. jájá.. ég er alltaf í klippingu og blablablabla. só?! jahh ég get allavegna sagt að ég hef ekki verið svona venjuleg í langan tíma. er að reyna láta hárið síkka (skirfar maður þetta svona) hinu megin.. stutt á öðrum kantinum og sítt í hinum.. en það er víst í móð. allavegna hjá frú vikku chick.
siggan mín átti ammæli 15. og stendur til að halda gleði á morgun.. skella sér á egó og hittast og júsa jamzla e-h.. hver veit? egó kallar í sjallanum og menn héðan og þaðan að mæta. gæti ekki verið betra. semsagt djamm á morgun og allt sem því fylgir.
ég var fyrir sunna í gær. fót til læknis og allan pakkan. fótaaðgerðafr. næringarfr. og augnlæknis. allt í kayinu. langtímasykurinn var í 7,3 sem er pörfikt. ég er nottlega pörpikt. og allir voru voða ánægðir með mig. súper gatt.. já þú ert æði. blah. ég fór líka til spámiðils. ólafs e-h. það var fínt. sagði mér ýmislegt. mikið af því vissi ég svosem. en umfram allt sagði hann mér að að þó ég væri í ungum líkama og væri ung þá væri ég gömul (aldagömul) og þreytt sál. það er rétt. og eins og karlotta hinn miðill sem ég hef farið til sagði að ég ætti eftir að ferðast eins og mófó.. útum allt. það segir þetta fólk. held að það gæti verið doltið satt. en. og að ég þyldi ekki ef einhver ætlasði að ráðskast með ig og sjónra.. hah, það er satt. og að ég þyrfti að vera minn eigin herra. og ég þyrfti að fara skapa og gera e-h með list.. hanna eða e-h. hvað þýðir það? jæja jæja.. og hann lýsti elíasi alveg eins og hann er. heh. og að ég væri ævintýramanneskja (: og þetta reddadt.. seinna. en ef að mér dytti e-h í hug þá ætti það að gerast N Ú N A!!! og helst fyrir viku (: jæja jæja.
ætla að fara kaupa mold og bjór..
lengi lifi kátir kallar og áfgengi skal hafa um hönd inní helgiina.
LENGI LIFI PÖNKIÐ!!!
ég kveð samt með bítlunum. (elska þig ástan mín maría og þig siffó)
Blackbird singing in the dead of night
Take these broken wings and learn to fly
All your life
You were only waiting for this moment to arise
Blackbird singing in the dead of night
Take these sunken eyes and learn to see
All your life
You were only waiting for this moment to be free
Blackbird fly
Blackbird fly
Into the light of a dark black night
Blackbird singing in the dead of night
Take these broken wings and learn to fly
All your life
You were only waiting for this moment to arise
You were only waiting for this moment to arise
You were only waiting for this moment to arise
31.8.04
jahh.. hver er ekki að skíta á sig þessa dagana.. með skít uppá baka alla ævi. ég er að missa mig í að hafa ekkert að skirfa. ég er í tölvuni hans elías (sem btw er eiginlega ekki til lengur vegna skíta bónus.. ösh) og þetta er kjánlegt lyklaborð.
við erum flutt. það er æði. gaman. erum samt ekki búin að koma okkur alveg fyrir. það eru samt 2vikur síðan við fluttum. jáh, leti. nei. sófaleisi. ikea er að redda málunum.. einhvertíman. langar samt að fara gera mig alveg reddí. nenni þessu ástandi ekki. 5daga frí eftir mv á morgun. spurningum um að skreppa á dósina, réttir og sonna. mamma að kúka á sig í sumarfríi.. hefur ekkert að gera og biður mig að koma hjem, er það ekki? júbb. svo talaðai ég við tuma bróðir í símanum í gær og hann gólaði e-h um að ég ætti að koma heim.
djöfull er leiðinlegt að fá þenna ógeðslega visa reikning.. sjitt.. það var lítið gaman. og að borga hann.. ojjts.
er að grúfast í gömlum lögum sem ég á tölvuni. hehehhe. mamma er crasy. vitiði hvaða lag ég sofnaði með sem vögguvísu, rónin með magga eiríks.. snild. ég vissi nú ekki hver þessi bakkus var og afhverju hann tók frá honum bæði hús og bíl og svo pissaði þessu róni á sig og bjó undir gömlum árabát. mamma er góð á því bara. heh, en ég er ekki svo sködduð. eða er þa? neih.
og myndirnar mínar allar.. var að skoða dk myndirn, einu sinni enn. frábært.
mamma kemur á morgun. hlakka til.
er farib að sakna pabba og tuma míns.. ég fer þá bara til þeirra á föstud. þegar mamma er búin að vera hjá mér.
jæja.. ætla að poppa einn x tveir popp (gamaldags pottapopp) blessó og góða nótt.
12.8.04
ég að missa mig í stemmara kl.6 um morgun um versló með tinnoz og miss kissoz, .fyndast er ég var ekki full þanna.. hah! .eins og sólskinsbarn, .við og sigga mín, nettar, .doltið spúkí mynd, .kl. orðin 8 á sunnud. um verlsó, þarf að segja meira?
þetta var í boði steinars litla ponsjús.com
ójæja..
Tvíburar eru oft lágvaxnir, grannir og líkamlega veikbyggðir. Helsta auðkenni tvíburans er að hann gerir margt í einu, talar mikið og gjarnan með miklu handapati. Fólk í tvíburamerkinu er mjög forvitið og hefur mikla þörf fyrir að skiptast á skoðunum og hugmyndum við aðra, enda er algengt að tvíburar vinni við fjölmiðla eða sem sölumenn. Tvíburar eru fljótir að hugsa, einkum í öllum tjáskiptum. Þeir eiga það þó til að vera óáreiðanlegir, kaldhæðnir og fljótir að gleyma loforðum. Tvíburar fá mikið af hugmyndum en hrinda sjaldnast meirihluta þeirra í framkvæmd.
10.8.04
æm alæf!!! yes sir. við lifðum danaveldið af. hver er ekki feginn? (; ójæja. ferðasögu?.. í stuttumdrætti: elías snappaði yfir vísakortinu, talaði við bankan í klukkutíma meðan ég hló að honum. hann var nærrum hættur við að fara til útlanda en allt er gott sem endar vel og ég náði að tala kallinn inní danaveldið aftur. við brunuðum á dósina og mættum þar í læri og svefn. sváfum til miðnættis og héldum svo ferðini áfram. hvorugt okkar gat sofið á leiðini vegna spennu. ég keyrði frá borganesi og var tekin af lögguni þegar við komum í bæinn. var spurð um teinið en gat með góðri samvisku sagt löggukonuni að það væri undir örbylgjuofninum uppá ísskápnum í furulundi 10s á ak. hún var elskuleg og bauð okkur bara góða ferð til dk. mjögg heppin ég. pikkuðum upp elskulegasta sigurvinin okkar og dóran okkar dragon. fyrsti bjórinn opnaður um 6leitið í flugstöðini. sátum dágóðan tíma með siffa og spjölluðum. e-h fór bjórin og skotin vel onfan í sonin okkar (enda var litla greiði orðið illa spenntur og flughræddur og allur pakkinn) þannig að við kvöddum sonin okkar (aðeins íðí, en bara góður áðí) og héldum í dollunum sem átti víst að heita flúgvélin okkar áleiðis.is. við vorum sett alveg fremst í vélina (sem var gott til að byrja með því ég hafi frétt það að ef vélin hrapaði þá værum við seinust að drepast, veit samt ekki afhverju, en það nægði mér) og sátum við fyrst bara tvö þanna.. voða kosí. en neineineinei!!!!! þegar vélin var alveg orðin nett óþolimóð og flugstýrunar farnar að vappa um alla vélina og tjékka á öllu því sem hægt er að tjékka á, þá mætti loxins mætti seinasti farþegin. og var hún sett við hliðina á okkur. og ekki fokking nóg með það að hún var skítpissstjörumellutussu fokking drukkinn (svona klukkan hálf8 á miðvikud. morguni) þá sárvorkenndi hún okkar svo að hún pakkaði mér inní 2 teppi og vildi ná í farangurinn sinn til að ná í sokka handa mér og e-h þvílíkt. svo bauð hún okkur endalaust í glas. og ef við hefðum verið illari en við erum þá hefðum við svo léttilega getað féflett þessa kjéllingu. svo þegar við lentum þá bað hún okkur um að fylgja sér og e-h rugl og við baara jájá, en um leið og vélinn stoppaði og freyjuflugkonan var búin að opna þá hlupum við (og ég meina það, H L U P U M) og hún náði okkur ekki.. en við vorum með í maganum um að hún myndi ná okkur, en neinei. við fundum hótelið (sem btw var á ístegate, sömsé fullt að mellum hórum og tattústofum og klámbúllum) en fínasta hótel. verluðum, villtum og sváfum og auðvita burger fokking KING! fórum svo í tívolíð þar sem ég lét nærrum því lífið og dó og grét og prumpaði á mig í þessum viðbjóðslega rússíbana.. B A N A! elías endaði einn í turninum meðan ég passaði bjórinn. fórum svo alveg voðalega fínt út að borða. svo var verlsað og elías fékk sér lokk inda núppúl (: frekar svalt. og svo verluðum við aðeins meira og fórum í siglingu og vaxmyndasafnið og dýragarðinn og kirkjuna sem mettimarid og félaginn giftu sig. gáfum vesalingum pénina. verluðum. líka þegar við vorum þanna úti þá var svo mikill hiti að það var ekkki fyndið. ég skaðbrann og gekk í skugga í 4daga. djöfull er mér illa við sól (hlakka endalaust til að fá snjó og mykur aftur.) fórum endalaust flott út að borða. fórum á veitinastaðinn sem var valinn besti veitingarstaðurinn í dk 2003 og fengum okkar krabba og önd í forrrétt. spreyttum okkur mis mikið í ensku eða dönsku. alltaf þegar ég var spurð að einhverju á annhvort ensku eða dönsku, þá hummaði og ég jánkaði e-h. elíasi fannst það afar sniðugt. tókum stætó uppá danskavísu og borðuðum dankar puslur og kirsuber og jarðaber. tókum 254 myndir og ég held að við séum búin að finna stað til framtíðar. þegar elías er búin með skólan (eftir 2ár) þá er það bara danmark city here we come! samt, þegar maður fer sonna til útlanda. þá finnur maður það virkilega hvað við íslendingar erum mikil sápukúluþjóð.. það er alveg merkilegt. össh. en svo fór sunnudagurinn hjá okkur í algjört fokk! held ég hafi aldrei séð elías minn svona stressaðan og pirraðan og leiðan. því þá var visakortið hætt að virka og debetkortið líka, og við áttum eftir að borga hótelið og sollis. en tengdó redduðu okkur pening. þannig að það reddaðist. en gvöð hvað við hötum visa eftir þessa ferð. algjör helvítis drasl. fokk visa. en eins og ég segi, allt er gott sem endar vel. við redduðum þessu. ferðin heim gekk vel. ég var eins og ofvirkur geðsjúkingur og elías boraði doríos. elsku elsku elsku jói cosmo kom sörpræs og tók á móti okkur. algjört yndi. ösnuðumst svo til að halda að við værum superman og ætluðum að keyra eftir 10000ferkílómetra ferðalag á ak! jéræt. við vorum bæði orðin stjörf og farin að sjá ofsjónir í mosfelsbæ. komum kl 4 um nóttina á dósina og sváfum þar til hádegis næsta dag og héldum þá áfram.köttur útí mýri, setti uppá sig stýri, úti er ævintýri
vorum líka að fá góðar fréttir.. flytjum eftir viku! lets start pakking pakking!! húrrra. hlakka mikið mikið til.
byrja að vinna eftir 3vikna sumarfrí á morgun *æl* en það þýðir líka að sumarið er að verða búið og þá kemur vetur sem er alltaf gott og gaman. hlakka til. þegar kemur snjór og kalt og maður þarf að klæða sig vel og myrkur. ohh það er svo kósí. og nýtt hús. víííí.
æðiber í boru.
en núna kveð ég og við ykkur vel að lifa og býð bjútífokkingfúl nótt.
btw: set inn myndir seinna. elías þarf að redda myndagalleríi.
3.8.04
danmörk beibí eftir ekki einu sinni sólarhring.. sjitt (; ég kem engu í verk.. er búin að pakka sprautunum og því öllu sammen og svæflinum.. er það þá ekki komið? hélt það.
en ég hlakka bara ógeðslega til. tek auðvita myndavélina með.
versló leið hjá.. það var fínt. mikið djamm.. lítið sofið.. rugl og fyllerí. en gaman samt. tók 99myndir.. set þær inn.. later.
komin með nýtt hár.. ef ég hef einhvertíman verið pönkararokkara e-h.. þá er það ekkert meðan við núna.. heh. mjögg gott. það labbaði strákur að mér um helgina "ég þekki svona artífartíhippogkúltípur eins og þig" ..neikvætt, jáh mér finnst það. þetta var nottlega eskfiðringur, þannig hann veit ekkert. sem er gott.
jæja.. elías fer að koma hjem. þannig að ég verð að fara leggja e-h í verskuna mína. verð að hafa samt pláss fyrir allt dótið sem ég ætla að koma með til. og nei ég ætla ekki að kaupa pakka handa öllum sem ég þekki.. NEINEINEINEINEI!!!!
en vó, djöfull er ég mikil kappi. ég var að drepa massa bústin geitung. sjittt!!! hann fór inní glasskáp og ég með ilmsprey (tekílasönræs) þetta er 650ml brúsi og ég spreyaði svona helmingum af honum.. össssh! sjittt.. ég er samt með geðððveikan hroll. finnst hann vera allllstaðar.. á mér..ojjjjj.. jiiii. neyðist samt til að taka öll glösin okkar og þrífa þau.. þau eru asskoti spreyjuð. ojjjh.
elías is coming homeee!
og við á leið í DK ævintýri.
sjáumst seinna..
óskið mér góðs gengi.
VISA LENGI LIFI..
húrra húrra húrra (;