12.8.04

ég að missa mig í stemmara kl.6 um morgun um versló með tinnoz og miss kissoz, .fyndast er ég var ekki full þanna.. hah! .eins og sólskinsbarn, .við og sigga mín, nettar, .doltið spúkí mynd, .kl. orðin 8 á sunnud. um verlsó, þarf að segja meira?
þetta var í boði steinars litla ponsjús.com
ójæja..

Tvíburar eru oft lágvaxnir, grannir og líkamlega veikbyggðir. Helsta auðkenni tvíburans er að hann gerir margt í einu, talar mikið og gjarnan með miklu handapati. Fólk í tvíburamerkinu er mjög forvitið og hefur mikla þörf fyrir að skiptast á skoðunum og hugmyndum við aðra, enda er algengt að tvíburar vinni við fjölmiðla eða sem sölumenn. Tvíburar eru fljótir að hugsa, einkum í öllum tjáskiptum. Þeir eiga það þó til að vera óáreiðanlegir, kaldhæðnir og fljótir að gleyma loforðum. Tvíburar fá mikið af hugmyndum en hrinda sjaldnast meirihluta þeirra í framkvæmd.

10.8.04

æm alæf!!! yes sir. við lifðum danaveldið af. hver er ekki feginn? (; ójæja. ferðasögu?.. í stuttumdrætti: elías snappaði yfir vísakortinu, talaði við bankan í klukkutíma meðan ég hló að honum. hann var nærrum hættur við að fara til útlanda en allt er gott sem endar vel og ég náði að tala kallinn inní danaveldið aftur. við brunuðum á dósina og mættum þar í læri og svefn. sváfum til miðnættis og héldum svo ferðini áfram. hvorugt okkar gat sofið á leiðini vegna spennu. ég keyrði frá borganesi og var tekin af lögguni þegar við komum í bæinn. var spurð um teinið en gat með góðri samvisku sagt löggukonuni að það væri undir örbylgjuofninum uppá ísskápnum í furulundi 10s á ak. hún var elskuleg og bauð okkur bara góða ferð til dk. mjögg heppin ég. pikkuðum upp elskulegasta sigurvinin okkar og dóran okkar dragon. fyrsti bjórinn opnaður um 6leitið í flugstöðini. sátum dágóðan tíma með siffa og spjölluðum. e-h fór bjórin og skotin vel onfan í sonin okkar (enda var litla greiði orðið illa spenntur og flughræddur og allur pakkinn) þannig að við kvöddum sonin okkar (aðeins íðí, en bara góður áðí) og héldum í dollunum sem átti víst að heita flúgvélin okkar áleiðis.is. við vorum sett alveg fremst í vélina (sem var gott til að byrja með því ég hafi frétt það að ef vélin hrapaði þá værum við seinust að drepast, veit samt ekki afhverju, en það nægði mér) og sátum við fyrst bara tvö þanna.. voða kosí. en neineineinei!!!!! þegar vélin var alveg orðin nett óþolimóð og flugstýrunar farnar að vappa um alla vélina og tjékka á öllu því sem hægt er að tjékka á, þá mætti loxins mætti seinasti farþegin. og var hún sett við hliðina á okkur. og ekki fokking nóg með það að hún var skítpissstjörumellutussu fokking drukkinn (svona klukkan hálf8 á miðvikud. morguni) þá sárvorkenndi hún okkar svo að hún pakkaði mér inní 2 teppi og vildi ná í farangurinn sinn til að ná í sokka handa mér og e-h þvílíkt. svo bauð hún okkur endalaust í glas. og ef við hefðum verið illari en við erum þá hefðum við svo léttilega getað féflett þessa kjéllingu. svo þegar við lentum þá bað hún okkur um að fylgja sér og e-h rugl og við baara jájá, en um leið og vélinn stoppaði og freyjuflugkonan var búin að opna þá hlupum við (og ég meina það, H L U P U M) og hún náði okkur ekki.. en við vorum með í maganum um að hún myndi ná okkur, en neinei. við fundum hótelið (sem btw var á ístegate, sömsé fullt að mellum hórum og tattústofum og klámbúllum) en fínasta hótel. verluðum, villtum og sváfum og auðvita burger fokking KING! fórum svo í tívolíð þar sem ég lét nærrum því lífið og dó og grét og prumpaði á mig í þessum viðbjóðslega rússíbana.. B A N A! elías endaði einn í turninum meðan ég passaði bjórinn. fórum svo alveg voðalega fínt út að borða. svo var verlsað og elías fékk sér lokk inda núppúl (: frekar svalt. og svo verluðum við aðeins meira og fórum í siglingu og vaxmyndasafnið og dýragarðinn og kirkjuna sem mettimarid og félaginn giftu sig. gáfum vesalingum pénina. verluðum. líka þegar við vorum þanna úti þá var svo mikill hiti að það var ekkki fyndið. ég skaðbrann og gekk í skugga í 4daga. djöfull er mér illa við sól (hlakka endalaust til að fá snjó og mykur aftur.) fórum endalaust flott út að borða. fórum á veitinastaðinn sem var valinn besti veitingarstaðurinn í dk 2003 og fengum okkar krabba og önd í forrrétt. spreyttum okkur mis mikið í ensku eða dönsku. alltaf þegar ég var spurð að einhverju á annhvort ensku eða dönsku, þá hummaði og ég jánkaði e-h. elíasi fannst það afar sniðugt. tókum stætó uppá danskavísu og borðuðum dankar puslur og kirsuber og jarðaber. tókum 254 myndir og ég held að við séum búin að finna stað til framtíðar. þegar elías er búin með skólan (eftir 2ár) þá er það bara danmark city here we come! samt, þegar maður fer sonna til útlanda. þá finnur maður það virkilega hvað við íslendingar erum mikil sápukúluþjóð.. það er alveg merkilegt. össh. en svo fór sunnudagurinn hjá okkur í algjört fokk! held ég hafi aldrei séð elías minn svona stressaðan og pirraðan og leiðan. því þá var visakortið hætt að virka og debetkortið líka, og við áttum eftir að borga hótelið og sollis. en tengdó redduðu okkur pening. þannig að það reddaðist. en gvöð hvað við hötum visa eftir þessa ferð. algjör helvítis drasl. fokk visa. en eins og ég segi, allt er gott sem endar vel. við redduðum þessu. ferðin heim gekk vel. ég var eins og ofvirkur geðsjúkingur og elías boraði doríos. elsku elsku elsku jói cosmo kom sörpræs og tók á móti okkur. algjört yndi. ösnuðumst svo til að halda að við værum superman og ætluðum að keyra eftir 10000ferkílómetra ferðalag á ak! jéræt. við vorum bæði orðin stjörf og farin að sjá ofsjónir í mosfelsbæ. komum kl 4 um nóttina á dósina og sváfum þar til hádegis næsta dag og héldum þá áfram.köttur útí mýri, setti uppá sig stýri, úti er ævintýri

vorum líka að fá góðar fréttir.. flytjum eftir viku! lets start pakking pakking!! húrrra. hlakka mikið mikið til.
byrja að vinna eftir 3vikna sumarfrí á morgun *æl* en það þýðir líka að sumarið er að verða búið og þá kemur vetur sem er alltaf gott og gaman. hlakka til. þegar kemur snjór og kalt og maður þarf að klæða sig vel og myrkur. ohh það er svo kósí. og nýtt hús. víííí.
æðiber í boru.
en núna kveð ég og við ykkur vel að lifa og býð bjútífokkingfúl nótt.
btw: set inn myndir seinna. elías þarf að redda myndagalleríi.

3.8.04

danmörk beibí eftir ekki einu sinni sólarhring.. sjitt (; ég kem engu í verk.. er búin að pakka sprautunum og því öllu sammen og svæflinum.. er það þá ekki komið? hélt það.
en ég hlakka bara ógeðslega til. tek auðvita myndavélina með.
versló leið hjá.. það var fínt. mikið djamm.. lítið sofið.. rugl og fyllerí. en gaman samt. tók 99myndir.. set þær inn.. later.
komin með nýtt hár.. ef ég hef einhvertíman verið pönkararokkara e-h.. þá er það ekkert meðan við núna.. heh. mjögg gott. það labbaði strákur að mér um helgina "ég þekki svona artífartíhippogkúltípur eins og þig" ..neikvætt, jáh mér finnst það. þetta var nottlega eskfiðringur, þannig hann veit ekkert. sem er gott.
jæja.. elías fer að koma hjem. þannig að ég verð að fara leggja e-h í verskuna mína. verð að hafa samt pláss fyrir allt dótið sem ég ætla að koma með til. og nei ég ætla ekki að kaupa pakka handa öllum sem ég þekki.. NEINEINEINEINEI!!!!
en vó, djöfull er ég mikil kappi. ég var að drepa massa bústin geitung. sjittt!!! hann fór inní glasskáp og ég með ilmsprey (tekílasönræs) þetta er 650ml brúsi og ég spreyaði svona helmingum af honum.. össssh! sjittt.. ég er samt með geðððveikan hroll. finnst hann vera allllstaðar.. á mér..ojjjjj.. jiiii. neyðist samt til að taka öll glösin okkar og þrífa þau.. þau eru asskoti spreyjuð. ojjjh.
elías is coming homeee!
og við á leið í DK ævintýri.
sjáumst seinna..
óskið mér góðs gengi.
VISA LENGI LIFI..
húrra húrra húrra (;

29.7.04

                 
þetta er nýju litli sæti bróðir minn. Magnús TUMI (; hann er besta besta mesta skinn. er hann ekki æði? (; ég er allavegna voða skotin í honum.
jæja allavegna. við skruppum á vopnaf. fínt að koma þangað. það var ekkert sérlega skemmtilegt á þessum dansleik (puffff) en allavegan, við sváfum í 12tíma og borðuðum. það er fyrir öllu. heh. svo fór ég á dósina á mánud. bara rétt að kíkja á pabban minn og Tuma. keyrði ein, algjör hetja og allt gekk vel, fór ekki upp fyrir 140 og endaði með að setja upp gleraugunum mín til að ná fókus á leiðini heim (ekki alveg að fúnkera) en ég komst heil heim. og það var auðvita gott að koma heim á dósina. allt gott.
en á ég að segja ykkur. ég er að fara vinna um versló á vegum stígamóta, eða aflið eins og það heitir hérna á ak. við verðum að rölta um bæinn og fólk getur komið niðrí gömlu dinheima, því þar verðum við til húsa. svo á maður bara sýna sig og sjá aðra. þetta verður fínt. á morgun byrja ég 12 á miðnætti og til 12 að hádegi daginn eftir, helvíti löng vakt en það verður fínt. og svo á sunnud. frá 12 á hádegi til 18. 
ég ætla nú samt að djúsa e-h. það er alveg pottþétt. það verður eflaust gaman að sjá útihátíð frá þessu sjónarhorni. áhugavert. en við skulum nú samt vona að það verði ekkert að gera hjá okkur. það væri óskandi. Ó S K A N D I. þannig að hagið ykkur. ..:ÁTT ÞÚ BARA SJÉNS Í DAUÐAR STELPUR?.:  nei ég hélt ekki.
við elíoz ætlum í klippó og snyrtó á morgun. ég nenni ekki að hafa þetta minn háralit og verðð hreinlega að fá e-h nýtt. þoli ekki lengi við það sama. heh. maður verður víst að vera hipp og kúl fyrir versló.. því annas fer maður í verlunarmannahelgar köttinn, eða það hef ég heyrt. og ég trúi því.. trúi því herra atvinnumaður.
jæjaaaa.. þarf að tuska fifanördið hér vip hlið mér til og setja the whole ten yards í.
að horfa á video er góð skemmtun.
blesssóóó og sjáumst öll hress og kátúr á akó city um versló pití.  ætla annas ekki allir hingað? hah?
og eitt.. 6 fokking dagar í fokking dk beibí.. WÚÚÚÚHÚÚÚÚ!!!!!!!!!!!
 


24.7.04

aumjar.. fávita.. skítamelluhórur.. var búin að skrifa helling.. en neihh!!!!!!!!!! brundsköggull..
myndirnar eru komnar inn frá gærkveldinu..
erum farin á vopnaó city..

23.7.04

Þá er tjéllingin komin í sumarfrí!!! ég veit eiginlega ekkert hvernig ég á að haga mér, svo ég læt bara eins og blindur köttur. það er ágætt líka. ég verð semsagt í 3vikur og inní því er versló, dk og sonna.. þannig að þetta verður mjögg gott og gaman.
á morgun er djamm hjá okkur gellunum í vinnuni. við ætlum að hittast og drekka af okkur rassgatið, eða e-h í þá áttina (; þetta verður eflaust fyndið og auðvita tek ég myndavélina með. jáhh auðvita. hlakka til að djamm með dagný the master og nín of york.. víííí.
við elíasoz vorum á shrek. hún er fyndin. ó. ég pant vera donnkí, hann er bestur.
ég hef svo ekki rasssgats sjitt að segja. blehh blehh.
vér erum also að spá í að skeppa á vopnaf. á laugad. sjáum til.
og svo er ég að spá í að kíkja á dósina eftir helgi og kíkja á litla bróðir.. heh, Tuma litla. hann er örugglega algjör meistari.
þetta er ömurleg fræðsla.
blessó, góðó nóttó

19.7.04

Jæja félagara.. ég var að fatta að ég geti skirfað með litum og sonna. gamann. en það sem er ekki gaman það er það að við vorum á spiderman2!!!!! gvöðð ég hélt að þetta væru mín seinustu andartök og minn seinasti klukkutími.. gvöðððððððððð hvað hún er LEIÐINLEG.. nenni þessu ekki. ætla að njóta þess að hafa lifað þessa bíóferð af.
god!

14.7.04

nýtt lúkk á síðunu ferð að líta dagsins ljós.. allt að koma.. allt að koma beibí.
og var að bæta inn nýjum myndir. myndir frá öllu og engu. undir folder í tölvuni hjá mér sem heitir "listin mín" veit ekki afhverju. þetta eru doltið fucked up myndir en samt.. bara e-h. ég ákvað að skrifa ekkert við þessar myndir. túlkið þær og skoðið eins og þið viljið.
skoðuðum íbúða í dag.. okkur líst vel á hana. tryggingin verður borguð á fimmtud. ví.
og auðvita auðvita.. hrafndísin mín eignaðist gísla sinna 13.júlí kl. 19. 17merkur og 54cm. og hikst ég heimsækja þau mæðgin á morgun. húrra. til lukku elzkan mín.
sleep.

12.7.04

hversu slæmt getur það verið? will smith (hommanegrarassgat) og the man show (viðbjóðslegthelvítisandstyggilegurdjöfull) eða endursýndur kastljósþáttur (rúvrotttur) sjitt og svo er american next topmodel kl. 2, það er alltof seint yfir litlu stírurnar í mér. hver veit e-h um Adrianne?

ówell. AÐAL FRÉTTIN: við elías nokkur björnsson vorum að panta okkur ferð til danmark city 3-8ágúst (; ég fékk semsagt visa kort (upphafið að endinum) í dag og við bara snöruðumst í þetta og lets go!! jiii, ég er farin að hlakka svo til. vakna á morgana, fara í bakarí eða english breakfast og bara chillast allan daginn, tívolí og strikið og bara.. ógod. 22daga beibí 22. rómó köbenhaven ferð.. ekki slæmt það.
og önnur alveg meiriháttar frétt: við erum að fá inní nýjustu stútendagarðana (tröllagil) alveg æðislegar íbúðir og nottlega alveg glææææænýtt. ekkert rugl. með öllu og bara.. geggjað. og það besta er að við erum á 6hæð og ásgeir, harpa og embla eru á 8hæð, þannig að það verður ekki langt að fara (: þetta verður eflaust þvílíkt party.
svo vorum við nottlega að koma að sunnan. þar sem við vorum í 3ára afmælinu hjá aroni frosta. þetta gekk allt líka svona glimrandi stjörnu vel að það var ekki hægt að biðja um neitt meira. hann tók okkur eins vel og hægt var að óska og þetta var bara allt mjög gott. við tókum auðvita 10000 myndir , endilega tjékkið á því.
og pabbi er loksins búin að festa kaup á litlum lambrador hvolp. svatur eins og tyson elskan og á væntanlega að heita tony amdams, sem er gott. ég fékk mynd af nýjatsa fjölskyldumeðlimnum og hann er algjört krútt. heh. loðin eins og heibaggi.

jiseús.. talandi um heibagga. sjitturinn tittturinn hóran og rottan. bændur, whatthefuck? hvað er málið með þanna ættbálk? við elías pirruðuðumst mikið yfir þessu í vikuni. ójæja ég skal ekki byrja að rífa mig.
fuck that. farin í legg. með harry. elíasox er sofanaður í bælinu.
gúdd natt.
ég þarf að fara æfa mig í útlensku. nauðsynlegt.

6.7.04

í hávaðaroki og vettttleysi from akó city!
jahh svei.. hendi út þvott eftir að blessaði þvotturinn hjá bósó þornaði á innan við 5mín.. skellti öllu í vél og hendi út. ég sat í mestu makindum í símanum var að chatta við binnsó, neinei, haldiði að þvotturinn minn fjúki ekki bara í allar áttir, hingað og þangað! hvaðahvaða.. í dag var 23stiga hiti og sól, en núna.. vindur og vetttleysa. ekki líkar mér það. setti þvöfaldan herðunarbúnað á allar flíkurnar og settist róleg. vona að þegar ég fram í fyrramáli að allar disel buxurnar og bolurinar mínir verði ekki hofnir e-h í rassgatabelg. já við skulum vona og biðja í senn. amen.

ég er sömsé að fara í borg músefjunar og ruglháttar á morgun. á flug um 6 eða 7 og brynjar nokkur mar ætlar að koma og sækja mig á airportið. og við ætlum að húkka grettir gamla með okkur í einhverja vitleysu. hlakka til.
fór í famelíu ferðlag með yfirskriftina "AFHVERJU AÐ FARA EITTHVERT ÞEGAR ÞÚ GETUR BORÐAÐ NESTI ÞITT HEIM" mjögg gaman. ég er að setja inn myndir frá þessu líka geimi.. múhahaha.
ég er að missa mig í placebo!!! ég verð í bænum á morgun, placebo líka (; ég gæti farið á hljómleika með þeim.. en? það er e-h.. mér vantar parner. hver vill vera memm og placebo? ohh.. yndisleg lög. snökt yfir öllu sammen.
tæm í legg?
já.
takk.
óskið mér góðs lengis austur fyrir heiði.
sviti
tár
blóð
viktoria ozzy mcgreogory kveður.

30.6.04

ég byrja öll blogg á ó. hafiði tekið eftir því. sökkes.
mér leiðist ógurlega. elías sofanaði kl hálf 10. svikari. sofandi svikari. heh. ég rölti útí videobúð og leigði mér eina sígilda, pretty woman. ég hélt kúlinu og táraðist ekki.
nú fer að líða að suðurferð. elías fer 4 og ég flýg suður 7 og læknir 8 (allt breytt) og svo förum við á hellu í 3ára afmæli og læti. þvílíkt geim. hlakka eiginlega bara til. vona að þeir feðgar geti sótt mig saman í bæinn (; æði.
ég er búin að vera í allof löngu fríi. 4daga. néhh kannski ekkert of löngu en það er alltílæ að fara vinna aftur. svo þegar maður byrjar að vinna aftur. þá langar manni í fríi. það er ekkert of gott sem maður hefur. það er alveg bókað.
ég veit hvað bíður mín á morgun. þrífa og taka til í allri íbúðini. og jii hvað ég nenni því ekki. ég var ekkert heima í dag því rykkögglarnir og ruslið var orðið það mikið að það var annahvort að anda að sér loðboltum og hósta þeim svo útúr sér eins og chandler með leisergönnið eða vera úti og ég valdi sko úti. eins og máltækið segir: á morgun segir sá lati.
um helgina er útilegu geim. með mömmu, pabba, emblu, hörpu og ásgeiri. planið er að fara eftir vinnu hjá mér á laugad. og fara í vaglaskó með tjald undir hendi og grill og eflaust nóg að bíta og brenna ef ég þekki þessa famelíu rétt. það verður sömsé kósíheit og æðislegt sveit.
ég lofaði betu að koma í búðina til hennar og sjeik hör hend. spuring um að láta verða af því. haah? kurteisi já.
ég ætla að viðbjóðast í legg og taka airportheadið með mér. ég er komin á blaðsíðu 500 eða e-h.. hún er assskoti slúngin þessi galdradrengur.
ogg endilega tjékkið á nýju myndunum
því þetta er nottlega bara ógurlega fyndar myndir. heh.
jiiiii, kidda flýgur út aðra nótt. engin kidda í mánuð. díkræst. );

djöfull er þetta blautbellis leiðiinleg skítttta færsla hjá mér! éttu skítin úr mér sveitta svínið þitt. sjitturinn venúrrr! ojj.

28.6.04

okeii okeii okeii.. ég læt sem ég fá fullt af viðbröðum við blókinu hér að neðan. mér sárnaði pínu að fá ekkert.. ekkert. en ég held ótrauð áfram (;
ég er búin að setja inn 1000 myndir síðan um seinustu helgi. ég lenti á smá örlitlu djammi. fór til siggu og lenti þar á fylleríi. sjallinn og bara.. game on. við systur lentum í ævintýri með lóuna.. öss segi ég öss. hún var rosaleg þetta kvöld. hún t.d. mætt í geim með jónsa í black fötum og hún var bara alllstaðar. jæja. skoðið endilega myndirnar. þetta er magnað. magnað. magnað. (;
érr farin að sofa.

22.6.04

nýjar myndir.. ég var reyndar með svo fár nýjar, þannig að það er nokkrar brúðkaupsmyndir enn inni.
en eins og sést á myndum, þá er þetta eiginlega bara myndir af mér (það er nottlega bara afþví ég elska sjálfan mig svooo mikið) en það er eignlega bara afþví að myndavélin var í annara manna höndum 16júní. ég grunta að siggó og steinar hafi verið að verki. en jæja jæja.. segið svo að ég setji ekki slæmar myndir af sjálfum mér inn.
heh, ég mæli ekki með hnetu-gulrótabuffi frá útúrkóluðu sollu á hassgrænum hóli þanna.. gvöðð, þetta bragaðist eins og gamal skósóli (og hef ég oft bragað þá, því þeir eru ágætir í ástandinu) en þetta er veðððurstigggð. ég segi það satt. en ég ætlaði mér að smakka þetta og það tókst.
góða nótt

20.6.04

góðða kvöldið góðða kvöldið.
hva er fólk að eipsjitt á þessu rugli hénna hjá kjéllinginu á kantinum! ég blogg þegar ég nenni og ekki orð um það meir.
hmm, ég man ekkert að því sem drifið hefur á my days. þar sem ég man rétt símanr. hjá mér og man valla endana á kennitöluni. og það þarf að tyggja hlutina oní mig, ef þeir skipta einhverju máli og ég á að ná þeim, annas segi ég bara já, ég er voððða góð í því. heh. ójæja.

við fórum á ælon á 16. það var ágætt. ég söng með heiðu í unun ekki ælon textan.. og svo var ég með plott, að narra þær niður af sviðinu, það tókst ekki! páll óskar var góður. við, sigga, kidda og steinar fórum í teitólf til tinnu. þar mætti ég með tekíla í svísbottúl og sítrónu í poka, érr svöl, i know i know. ég drakk e-h temmilega of mikið og það þótti víst skemmtilegt. ég skældi inná klósti, fékk hugg frá siggu og kiddu (bestastar) og sprautaði victoriu strumpa ópalslykt á allan pakkan og setti skellti svo óhóflega mikið að glimmeri á kinnarnar. fór heim um 4 með dauðan mann á öxlini. tókum taxa fyrir 18manns og borguð eftir því. rip off.
ég keypti mér hjól. hjólaði 10km og er enn að ná mér. er með sætismar á rassGATINU. gott gott.
fórum á dósar cityið í gær. það var fínt, stoppuðum í stuttan tíma, en góðan. mamma er “flutt” suður í verknámið í sjúkraliðanum. hún verður í 2mánuðu (og fyrir þá sem ekki vita þá eru það 8vikur)
ég er að fara suður til læknis 29. og ætla að vera aðeins hjá mömmu. er í fríi. svo á aron frosti afmæli 10.júlí. (og dúna nottlega) elías fer suður 4.júlí á tónleikana og fer svo beint til pjakksins og verður þar. en ég er að vinna. er í fríi svo þá helgi, þannig að það er spurning um að fljúga suður í 3ára afmæli. mér var meira að segja boðið í 4ára afmæli í dag, hjá herra driða diskó (king gonzales) en ég lét mig vanta. ég ætti nottlega að skammast mín. já ég skammast mín. ég geri það (atvinnumaðurinn)
jæjajja....
Við verðum að finn aðra plánetu til að halda partíinu gangandi.

12.6.04

laugadagurinn síkáti. það er vinnuhelgi (morgunvaktarhelgi) og mikið péningaleysi.. þannig að það er legið með tásur útí loft og horft á skjámyndina. skemmtilegt það! en á þriðjud. fæ ég útborgað. gvöðð hvað það verður gott. á pantaða klippó time á miðvikud. og ætla að láta laga lubban. heimskulegt að fá bara lubba örðu meginn. heh. ekki alveg að virka. en svo er það víst heví leví djamm og djús 16. það er víst dj. páll óskar (sem er béstúr) og gervilimirnir í ælon, hvað er það? palli er alveg nóg, einn og sér.. jiii! en það verður öruggglega ofsa gaman. eitt sem skyggir á geimið, sigríður mín mun ekki vera meðal vor. það þykir mönnum sárt og mun ég vinna HÖRÐUM höndum í að redda því. vinna vinna vinna. össs!! ég meika sjálf ekki að djamma og fara svo á mv. það er barasta ekki séns í hell. annað ef ég væri að vinna í bónus eða einhverstaðar það sem maður þarf ekki að kafa í skít og drullu og þarf að vera óælandi og vel á sig komin og vésen. en ég munnnnnnnnn fá hana með mér. ég fer ekki fet nema þú komir meðððð.

mammma og pabbi voru hér í gær. voru að koma úr ferðalagi á kárahnjúka. þau voru e-h að reka á eftir mér með að setja inn myndir. spurning um að drulla inn þessum myndum. er með fulla kameruna.
var að ráfa í gengum batman og fann þetta video af þessum líka svaðalega töffara, er hann að grínast eða what?
ég tók einhverja fjandans mynd. after sex. gömul mynd.. tók svo monster ekki HF (hah) hlakkkar gegt til að sjá hana. eflaust mjöggg góð ræma.
svo var hún harpa ezkan að koma hjem frá köben og var svoo æðislega æðisleg að færa mér síðbúin afmælispakka. 2 ógeðslega flottie bolir, einn pólóbolur og svo grænan bol með gróðri á, og 4 nærbuxur, snúbí og eina alveg magnað með typpagati, og sokka og body slash. hún er nottlega bara best. það er það skemmtilegasta í geimi að fá pakka frá hörpu. það hef ég allltaf sagt.
elías er líka e-h að missa sig yfir óslegna grasinu hérna fyrir utan. hann var mikið að spá í að fara út með handrygsuguna okkar og skæri. honum er víst farið að verkja í puttuna, því honum langar svo að komast að slá, hvað er það? öss, ekki skil ég það.
ég fór áðan og tók bensín á bílin og sollis, og keypti sonna bílaþvottakort og er að fara sækja elías og fara í þvottahúsið með bílin. það er voða ævintýri. siggu fannst ég nú e-h stúbit þegar við vorum í þessu júniti í gær. heh. en núna kann ég. og veit líka að ég á að taka 95 á bílinn en ekki disel eða 98, þetta sjálfssafgreiðsludæmi er nottlega ekki alveg í rassgati.
ég er búin að setja inn alllar myndirnar nýjar myndir nýjar myndir!!

7.6.04

TVÍBURAR 21. maí - 20. júní
Í kvöld verður venus á milli sólarinnar og tunglsins í fyrsta skipti í 122 ár. Þetta gerist í tvíburamerkinu og því mun það hafa sérstaklega mikil og jákvæð áhrif á nánustu sambönd þín.

3.6.04

óóóvíka vaka venur.
þá er ég búin að eiga afmæli, orðin 19 og ekkert er breytt, ég bjóst við þvílíkum breytingum, en ekkert gerðist. svindl. fékk samt pakka frá elíasi. dolce & gabbana ilmvatnið og litla ástarbók og morgunverð. svoo sætur. bestur. svo er ég búin að fara í æðislegt brúðkaup, það var alveg milljón, set inn myndir af því öllu saman. og svo fórum við auðvita á koRn.. og gvöðð jisús og allur pakkinn, það var geððveikt. þeir eru sæðislegir. vorum svo doltið í víkini og elías missti sig í búðarrugli. ég keypti mér mest lítið. 2notuð gömul pils í illgresi, komst að því þegar ég kom heim að annað þeirra er svunta. heh. en það er alltílæ. bara kúl. ekkert smá sjó hjá þeim og bara, kreisí inda kókónött. ójæja.
ýdala ball á morgun. langar doltið. langar að fara í ródtripp með siggu og kiddu, ennn neiii, buddan þarf að vinna, vinna? haa? vinna, það er e-h minna. ég er á mv. og morgun og kv. á laugard. þannig, að ég gæti vel farið. en hef engan að fara með. ellllen!!!! hvar ertu þegar maður þarf á þér að halda? öss. ási var að hringja, spurning um að draga hann með, hann var að spá í að keyra.. kúl smúl.

*hva er að verða um ísland í dag? ógeðððslegu píkurslefsurnar í ælon (HAHAHAHAHHA) eru búnar að troða sér inní tv mitt og munu verða þar næstu þúsund miðvikud.kveld og jiii allt að verða bjál hjá bjóstgóða grínsum og davíðsama skæruliðanum. ef ísland verður ekki komið til helvítis 2051, þá veit undirrituð ekki hvaðððð! og bensínið að hækka eins og nýúrskrifaður flugþjónn, hva er málið?
hva er málið með "garnaverk í hjartstað" örðum orðum hjartslátt.. hallærislegu píur og hommalegu gæar. jiiiiiiiiii!!!! ísland í dag, helvíti í dag, hver er munurinn?
buddan og systir lefsan var að hringja og ætla að draga mig út á skinnselagærutútttum.
blesssó í biló (",)

27.5.04

ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG..ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG..ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG..ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG..ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG..ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG..ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. ÉG Á AFMÆLI Í DAG.. gleðilegt afmæli viktoría, takk viktoría (",)

25.5.04

jæjajæja eins og skáldið sagði.
alltaf lærir maður og heyrir e-h nýtt. gvöðð. FÓLK ER FÍBBL!!!!!! það er sannað mál.. gvöðððð!
óvell. fór í hríseyjarferðina. hehehe. snild. drakk doltið af söngolíu, sko við sigga (: hehe.. þetta var helv. skemmtilegt. og þessar tjéllingar sem ég er að vinna með eru bestar. algjör snild. við sigga fórum svo á amor og elvis sjálfur hékk í fokking rassgatinu á okkur það sem eftir lifði nætur. gvöðð. hann er fokking fáviti.
annas á ég bara ammæli á fimmtudaginn.. ÉG Á AMMÆLI FIMMTUDAGINN, jáhh þú lest rétt kæri minn. 270585 fæddist ég, það gerir mig að 19ára tjéllinga tusku. heimskulegt að vera 19ára. en ég vænti mikilar veislu og stanslausra gleði, já ég segi veislu, það er eins gott gott gott að það verði e-h. ég veit að mín elskulega mákona ætlar að baka og bíð ég spennt (; og svo er það bara vindóscity á föstud. brúðkaup á laugad. og koRn á sunnud. gegt plan hjá mér.. öss. reyndar þarf ég að fara til tannsa á ammælisdaginn minn og fara í e-h voðða hreinsun og e-h rugl. allavegana svona 100þúskjéll, en hver dregur það ekki uppúr örðum rassgatavasanum sínum.. hmm, allavegana ekki ég. en ég neyðist víst til, það segir mamma allavegna, annas fæ ég falskar tennur fyrir 20ára. það væri ekki gott. nei segi ég og skrifa. ég hef bustað nógu margar falskar tennur. en anns, talandi um gamalt fólk. ég fór á kráarkvöld (bjórkvöld) í vinnuni í kvöld (það er ekkert nema fylleríi á þessum kjéllingum) en þetta var reyndar gamla fólkið að skála í bjór, sjerrí og koníki og appelsíno. afabandið lék fyrir dansi og ég dansaði vals og tangó við gamla menn, bæði í hjólastól og á loppunum. húrrra fyrir mér. þetta var svakkkka stuð.
en annas var ég að setja inn nýjar myndir úr hríseyjarferðini.

20.5.04

búin að pútta inn afgangnum af myndum og allt orðið í lægi og fínheit. endilega tjékk it át.. NÝJAR MYNDIR, NÝJAR MYNDIR!!