jæja menn, konur, börn og gamalmenni og allt hitt pakkið sem les þessa blessuðu síðu. þá er það ákveðið *hendurnar mínar sylvós og önnu slá saman* við ætlum til krítar í ágúst.. jájájá, margir hugsa kannski: "jáá enn eitt london beibí dæmið" en nei nei nei.. við Æ T L U M!! við höfum eina viku til að safna saman góðum hópi. við sylvó ákvöðum það að vika væri hámark, svo verðum fundur hjá félaginu okkar (ég, anna, sylvó erum í þessum klúbb en erum enn ekki búnar að finna nafn á það, það kemur eflaust í ölæði á krít) én já, fundur á næsta sunnud.kv. og þá verða allir sem vilja koma með.. (hver vill ekki koma með 3 æðiiislegum gellum til útlanda) við erum ekki að djóka, hver vill í alvöru koma með? ef þú ert góðhjörtuð/aður, péninga góð/ur, falleg/ur og lítur vel útí bikíní eða lítur illa út í kjól á pinnahælum *dæs* þetta verður gegggggjað ..en hver vill koma með? þið hafið viku til að ákveða. sendið mér mail á viktoria936@hotmail.com eða tjáið ykkur á síðun eða hringið einfaldlega í mig, 8663523 ( ekki vera feimin, letttttsss go! ohh við munum eflaust dansa húll og tangó við litla jóhannesa (eins og sylvó kallar grikkina) þetta verður rossslega. B O M B AAAAA
annnnas, þá var ágætt á vopnaf. ekkert að gera, ekkert líf og lítið gert. gaman.
var í bíó í kvöld, god god god god god god, fórum á gothika, og hún er verulega obbóslega hrikalega skerí og hættuleg. það var ekki vægðar logn í sekóntu alla helvítis myndina, taugaþanin, með hvítar neglur af blóðleysi, orðin hás af gargi og öskri, illa lyktandi af svita.. steig maður útí riginguna á akureyri (ef ég ætti ekki að leggja fyrir mig ritlistini, þá veit ég ekki hvað) öss.. þetta var hrikalegt og ég mæli sko með þessari ræmu.
svefn. æfing í fyrramáli. gn.
16.2.04
13.2.04
jæja érr að fara leggja íann á fjörðinn sem kendur er við vopna. verið dúleg að skrifa e-h fallegt til mín meðan érr í burtu (: mér þykir þið öll ágæt með ágæti.
kveðja, THE Leoncie *blikk*
11.2.04
Embla litla spons fór í smá pössun til Kidda góða frænda í vikuni og þar lærði konan að segja "áfram liverpool og beckham hommi" heheheh.. pabba hennar til miklar gleði. snild snild snild snild.
heh.. Olga María minnsta frænkan mín, hún er algjör rassgat og henni finnst ég ekkert smá merkileg og skemmtileg. hún sagði mér það. eðða ekki. en samt.
múhaaahhhaaahha thíhíhíhíhíhíh heheheheh hahahahahaahhhaa Leoncie var í 70mín og gvöðð hamingjam og hjálpi mér, hún er mesta frík sem ég hef vitað um! öss öss öss.. dómínos að slá í gegn, skal ég segja ykkur. auglýsingar með ottó trölla og pétur jóhann sigfússon í dónímos fíling í molli í útlöndum. þarf að senda mail til þeirra kalla í 70mín. nauðsynlega.
9.2.04
öss.. núhh eru menn ferskir og sælir! var að koma úr plebbaræktini og líður eins og fysi (það er orð) hreinsi segir (og allt sem hann segir er satt) að öll fitan mín sé að breytast í vöðva, og ég trúi því auðvita. mér líður hreint frábærlega. langar ógurlega til útlanada.. er eiginlega að deyja. við anna og vóvi ætlum ekki til london beib? ): kjéllingarnar eiga ekki péninga, péningar skipta engu máli, neii péningar skipta öllu máli *dalalíf* vill einhver koma með mér til útlanda? H R A F N D Í S!! jáhh.. bíðum þanga til í ágúst, heii, hún kemur með mér til eyja? (: nýbökuð móðir í eyjum.. húrrrrra.
skil ekki enn paradísar hótel þáttinn. fer til borgarinar með flúvél 18. til læknis. þá á svabbi gamla frænka ammæli, kjéllingin verður 20. öss. ætlar að halda ammælið á gauk á stöng með í svörtumfötum. það er bara veldi á minni sko. og ég kemst ekki.. plæliðíðí ég er rosalega vond frænka. érr að vinna. éhh lofa að bæta kónuni þetta upp seinna.
ég bú með kjéllingu. elías er kona.. vissuðu þaa? þetta er agalegt. bósó er á laugum. við erum tvö. ætlum á vopnaf. um næstu helgi. í slagtogi með beggu ömmu og gunnari afa. gaman gaman.
ég klippti hárið á mér í gær. hver einn sem þekkir mig veit að það grípur mig oft mikið mikið mikið mikið mikið eyrðarleysi og þá er ekki mikið sem heldur mér niðri. en í gær ákvað ég, frú viktoría að klippa á sér hárið. semsagt komin með verulega stutt að framan og virkilega sítt að attan (því ég sá ekkert aftur fyrir mig) og ég fyllt vaskinn af hárum.. ég er vannnnnngefinn! en þetta er ágætt. á reyndar eftir að fara í sjáver og sjá það þá! efast um að þetta sé a lúkka og efast líka um að það sé einhver annar alveg svona, veit þó ekki. konana mín leyfði mér ekki að klippa sig. amma á að gera það!! blehh. blablablabla. trönuberjasafi er góður.
var að koma úr sjáverpáver, og hárið er ekkert ofur breytt, held ég. enn sé ég ekki að attan?. eða já það er doltið styttra að framan.
sko.. setja tannkrem á allar bólur sem lauma sér á skinnið á manni og klippa sig sjálfur, össs.. gott er það.
jájajája.. taka til nesti f. vinnuna og koma sér á stað.
þakka góðar stundir og bið oss vel að lifa
5.2.04
pabbi sæti að kenna gamla fólkinu á tölvur.. öss kallinn er bara að meika það á dósini.
mamma var að fara heim :( verlsuðum doltið í dag, heilsusamlegt brauð og rúgbrauð, það er eins og nammi, algjör æði!!! er að smjatta á því núna, kerti, eldhúsrúllustand, hinn var ekki alveg að gera góða hluti og e-h.
ætla að sofa allan daginn á morgun, engin vinna og engin æfing.. vííí, frí. okkur dúsalúlsa langar að hitta þau hjón dúnhildi löfe og brómund gutt, það er alltaf gott og gaman. og við bróus spiluðum saman um daginn og það gekk bara svona helv. vel. held að það hafi samt bara verið afþví hann vann riskið á sonna 10mín. heh, við vorum ekkert komin í neinn ham (:
fundur eftir 40mín.. gott. gaman. fínt. frábært.
mamma sá gegt frægan áðan, önnu katrínu! heh.. gegt alveg hreint. ég spurði mömmu hvað hún myndi gera ef hún sæi jóa og simma (það eru sko idolinn hennar, gvöðð) hún sagðist missa saur, moðerfokkinginahásofpeinmarrhhmissirbrasaurhénnainni! *svínasúpa* dámsamlegt. höfðar til allra. yndilegt.
óvell
hvaða hvaða koRn í laugardalshölllini 30maí.. öss!!! nú lætur maður verða að því!!!
4.2.04
elsku litli sonur minn sem ég sakna alveg ógurlega mikið. ;/
mamma er á akó, mjögg gott. gengur vel í ræktini. fer í fyrramáli, það verður gott. popptíví er komið á akó, er að horfa á paradísar hótelið, skil þetta ekki. ekki gaman. fattar ekki neitt. getur einhver skýrt þetta út fyrir mér?
mikið hlakkar í mér að komast og vera bara ég og elías, ein. alltaf. engin annar. bara ég og hann. gott gott gott gott. engin annar að pirrast yfir ruzli nema bara okkar. biðjum öll til guðs að við fáum inní stútentagarðana, en annas förum við bara e-h annað. finnst þetta ekki ganga! langar ekki að vera hér um helgar, nenni ekki. ekki illa meint. bara. þið skiljiði. bara vill vera
einn með sínum. einn. einn. einn. það er svo gott. einn, tveir (;
blehhhh
vottafokk.. púngsi að skæla í hótelinu! öss, er ekki að fatta geim.
31.1.04
hmm.. tók út bloggið síðan í gær! var á úlensku og mjög kjánalegt líka sem ég var að blogga um, er bara fegin að þetta var ekki lesanlegt.
allavegana.. ég er að standa mig eins og mörður í ræktini. búin að léttast um 3kg á viku, haa? nokkuð gott. en það þýðir ekkert að missa sig í 3kg.. nú á þetta að fjúka (: ég er voða voða ánægð og ég er að standa mig. en pælið, 3kg á viku, í 3mán.. heh, say godd bye with viktoria NOW! neinei. naflahringur og bikíní í sumar, húrra. sundsundsund.. stíblast.
vér erum að fara til bróðir vors og elda fisk, og kiddólfur úlfaldi ætlar að vera memm. kónur.. hvað erru þið að spá, kiddi er sigúl og gerir bestu pizzur í geimi.. öss. skil þetta ekki.
sigga mín er að flytja til mín á ak.. er þaa ekki? jú jú jú jú jú.. nehh hún er sonna að fara spá í að koma sér frá borg óttans í menninguna á ak. mér líst vel á það. mjög vel meria að segja. ætla að hafa augun galopin eftur íbúð eða herbergi fyrir frúnna mína, þýðir ekkert annað. en þanga til er hún að negrast á kentökkí. komdu sigga komdu, hlauptu forest hlauptu.
kósíkvöld með krúsa í kvöld. H Ú R R A
22.1.04
21.1.04
STÓRT skref tekið í dag. ég hringdi útí vaxtarrækt og fékk nr. hjá einkaþjálfara (hreini hringsyni) og fór svo og hitti hann í dag og ég á bara að mæta á fimmtud. kl. rúmlega 4!! ég er nú doltið stolt af mér fyrir að hafa tekið þetta skref. ég er bara komin með leið á mér og mínum matarvenjum og sukki í mat hjá mér. í seinsustu viku lét ég eins óg ég væri bara ekki með sykursýki, hvað átti það að fyrirstilla? öss. ég hlakka bara mikið til og ég ætla að standa mig. þetta kostar mikin mikin péning og mikin tíma og MIKLA vinnu og ég ætla að leggja þetta allt á mig og miklu meira en það. heh. mér hefur samt alltaf þótt svo ógurlega plebbalegt að fara í ræktina, veit ekki afhverju. en nú verð ég plebbi. kannski að maður kóroni þetta og éti boozt í öll mál og fái sér bara vatn á djamminu.. hehh, dont worry, ég ætla ekki að breytast einhverja grænmetisætu með vaxtarræktar geðbilun.. neineinei.
við vorum að negla uppá veggja fullt af myndum, alla ækonana mína og englana og þetta dót, gera smá kósí, aðeins meira en hann er. annas erum við að fara sækja um á stúdentagörðum fyrir sumarið, nennum ekki að vera í þessu lengur. samt ekki það að maður sé að flýja furulundinn, hann er æðððði, bara.. æhh, vesen.
ég sá ljósið áðan, ég sver það. var að setja á mig fótmaska inní stofu.. lala voða gaman, fór svo inná bað í sturtuna og ætlaði að þrífa hann af, steig í sáverið og rann svona 25metra og rétt náði að grípa í sturtustaungina!!! össs og guð og jesú sko, ég sá líf mitt renn fram hjá eins og byssukúla. fór samt e-h í bakinu. en ég datt samt ekki (til að forðast allan misskiling)
ég er víst að fara fá e-h nudd.. ahhh, munur að eiga svona góðan mann (:
18.1.04
sveii atttan, ég er orðin rúm 280kg, ég og frú sigríður ráðskonurass erum um 635 samtals, komust að því áðan!
núhh er maðu að missa sig í að dánlóda.. öss! Því það er ókeypis um helgina, það er friends og attur friends, semsagt friendsVEISLA í furranum það sem eftir er (hah, fyndin ég að kalla lundin furra.. hahah) svo er ég líka að ná í sugerbabes lag, hita mig upp fyrir tónleikana, kommon.. maður mætir ekkert og kann ekki lögin, neineinei.. það gengur ekki.
ég jammaði ekki í gær og mun ekki djúsa í kveld, veit ekki hvernig þetta er orðið með mann. þetta gengur ekki svona. allir á ædolfylleríi í gær en ég var heima að horfa á mít thee parents, en það jafnast ekkert á við djamm! fyrst fann ég æðar mínar þrengjast og svo hætti blóð að streyma í hausin á mér, þá varð mér allri lokið og fékk mér snjó í bjórglas! náði uppp smá stemmara.
leiðist núhh.. heimski popppuntaþáttur! skömm af þessum njólum.
er að hlusta á muse, plug in baby, ohh svo gott. heyrði þá taka það í höllini, var ég búin að segja ykkur það? frosti hringdi í mig þegar muse tóku uppáhaldið mitt.
er að lóda lagi með courtney love, allavegna reyna það.. nýja lagið með hole, heyrði það í ljósum í gær og fannst gott.
hlakka svo til að fara til útlanda. anna guð er en ekki búin að ná áttum á hvenær páskarnir eru. þá fáum við og sylvó að hitta gino, hörrra! og topshop.. shitaaaafuck!
við pési og elías sitjum hér eins og illa gerðir hlutir, öll með sitt hvora tölvunar.
anna né sylvía svara mér ekki.. hörru núhh mig? þær eru kannski bara farnar til útlanda án mín.. nehh gín
ég ætla að ávarpa alla með öllum nöfnum, eins og ef ég ætla að tala við elías þá segi ég elías björnsson og ef ég myndi kannski ætla aæ segja pési, þá segi ég pétur kristinsson, vill samt kalla elías, elías örn.
12.1.04
jæja.. fyrsti dagurinn í nýju vinnuni búin. svaf í 2 og hálfan tíma í nótt (hef ekki gumma akkuru, elías segir að ég hafi verið stressuð) allavegana, vakanði svo í morgun.. hrökk framm út, skóf bílin eins og dóri múss og félagar væri á leið inní hann og lagði af stað. leist ansk. vel á þetta þanna.. eins og ég segi, öll elliheimilavinna er eins, fólkið heitir bara annað og er stafsfólkið annað, semsagt back to same old same old, sem er ekkert slæmt sko.
mjög langt síðan ég hef verið svona god damhh þreytt. það er ljúft.
lærði risk í gær. spilaði með pésa, elíasi og bósó.. endaði með að ég varð svo illa tapsár og moðerfokkinginahásofpein fúl að ég var hætt að anda, strákarnir urðu hræddir. elías "fyrirsátursbýrtilsínareiginreglurplaner" vann, það var slæmt. ég átti samt góðan góðan leik, náði að fá mörg hatursfull og ljót orð frá pésa. missjonið mitt var ÖNPOSSIBOL.. asia! kommon.. how? össs.. núhh er pési að kenna sinni konu spilið og stefnt er á riskerí á næstuni.
ég ætla að fara kúra i hausinn á mér!
good night, sleep tight anf dont let the BIG bugs bite.
7.1.04
Kveldið kveldið..
érr að deyja úr seddu, var að borða uppáhaldið þessa dagana, 2 brauð í ofni, m. slatta af tómatsósu, osti (miklum) og köð & grill kryddi, og það verður að vera pínu brent, SWEEEET MAM
vorum á lord of the rings.. hún var svakaleg!!! reyndar á ég (eins og svo margir sem þekkja mig vita) svo svakalega erfitt með að sitja kyrr í smá tíma, og hva þá 3&hálfan tíma, þannig að það var pínu að eyðileggja fyrir mér en myndin var frábært. það var á tímapunti sem ég ætlaði virkilega að labba út og sagði það hátt og snjallt, en það varð sem betur fer ekkert úr því.. ég hélt að ég myndi verða vitni að MEST krappí enda í geimi en svo betur fer fór það sko.
I AM NO MAN! massa góða lína.. sannar enn einu sinni hversu mikilir naglar við tjéllingarnar erum.
en annas, mjög gott að vera back á akó, EKKKKI að það hafi verið e-h slæmt heima, það var best, sýni það kannski á skrítin hátt en það var það, það heitir víst blönduósskap þetta skap sem ég var í þanna, fyndið, við ásgeir rífumst ALDREI hénna á ak, en á blö var það fyrsta sem við gerðum.. heh. vildi bara að mamma og pabba myndi bara flytja á ak *blikkblikk* held að það sé á 50ára planinu hjá þeim gömlu. það varð ósköp hljótt og rólegt hjá þeim þegar við öll vorum farin, tæsi líka.. ohh sakna hans svo, ætla biðja pabba að senda mér myndir, þá get ég sýnt ykkur dúlluna.
en byrja ekki að vinna fyrr en 12. þannig að það er tími til að snúa sólahringum við (YEAHHH!!!) leika sér í tölvuni og safna meira spiki.. óóhh ljúfa líf.. óhh ljúfa líf, þetta lag minnir bara á sódóma, mögnuð ræma.
kiddi frændi var að henda inn fullt af myndum úr áramótagleðini á sunnubrautini.. úff (: þetta var draumur. æðislegur matur og bara frááábært. bróðir vor í miklum gír með rósavínið í annari.
érr alveg orðin les sjúk, hlakkar alltaf til þegar ég vakna að fara uppí rúm um kvöldið að lesa! betri helmingurinn af mér er samt ekkert sáttur með þetta, þolir ljósið svo illa, skiljiði? heh.. lítil pjásan.
planið um páskana er að fara til london beibí með önnu og sylvó þetta verður sonna makalaus verslunardjammstelpudjúseríferð.. veii, hvernær eru páskar? er einmitt að horfa á london friends þættina núna.. búa mig undir þetta! ohh annzi er búin að lýsa topshop búðini þanna, ÓMÆGOD æmgonalúsmæself viððða vísakort! vúúbbbííí
jæja ætla að fara að lesa ferðbæklinga (á samt enga) ætla að fara lesa bridget jones, hún býr í london, fæ innblástur, hún er reyndar í tælandi núna í djélinu. össs.
4.1.04
2.1.04
til lukku með hátíðarnar..
mögnuð jól og æðisleg áramót.. mikið djamma og djús og mikið borðað og held ég enn meira sofið.
érr búin að setja inn myndir og full fleiri á leiðini, fer eftir því hvað púkinn er dúlegur! förum heim á akureyrina á sunnud. á morgun er massívasta veisla í geimi í þessari famelíu.. 14kg kalkúnn verður matgreiddur og um 20 manns mundu rífa hann í sig! shitafucka.. græðgin að drepa alla sonna rétt eftir jól.. nehh bara gín. svo er það bara yfirdráttur from the mr. og mrs. banki.com.. verð að eignast digital myndavél.. sorry! og byrja að vinna 12.jan.. húrra og jöss jöss jöss!
tæsi er enn hér.. núna sest hann til borðs með okkur og sefur á milli mömmu og pabba (: hann er mættur á topp skaftsins.. ef það var þá einhver tíman skaft!
25.12.03
við erum núhh doltið sæt
þetta eru myndirnar sem snillingurinn Trausti tók af okkur fyrir jólin (:
23.12.03
Ég er andvaka andvaka andvaka.. kannski er það samt ekki málið, ég fór að lúlla kl.3 seinustu nótt og vaknaði e-h um 3 í dag, þannig að ég er kannski bara ekki komin á tíma, með svefn alltsvo.
Jólin koma á morgun! Ég er alltaf að sjá það betur og betur að jólin koma alveg þótt maður geri ekki hreint hjá sér, skirfi ekki 100 jólakort (og helmingurinn af þessum 100 eru kannski til einhverja sem manni þykir ekkert vænt um langar ekkert að skirfa til jólkort) kaupi ekki um 50 jólagjafir (og 40 af þeim til hverjum sem maður hefur ekki crap áhuga á að gefa nokkurn skapaðan hlut) og þar fram eftir götunum.. jólin koma bara samt!!
Ég er allavegna búin að fá minn jólakjól, þannig að ég fer ekki í jólalunda þetta árið.. keypti mér ÆÐÐÐISLEGAN korsilettu kjól í mótor, svartan með bleiku skrauti, alveg gegggjaður. Ég fór semsagt í borgina kl. 8 á sunndagsmorgunin.. það var slæm tímasettning hjá karli faðir mínum! Ég kom heim rúmlega 6 um morgunin, svaf í 2tíma, vaknaði full, klæddi mig í sömu föt og í var í um kveldið, tók 2 kodda og lagðist aftur í bílin og dó. Í borgó vaknaði ég.. fékk mér 3ísmola og fannst ferðin vera vel heppnuð, ældi svo í bílin, á mig og teppið mitt (thing god að þessi líka massa trefill sem móðir vor var að kaupa sér SLAPP) fór í klippó til systir Hörpu, fékk tremma, svitaköst og sofnaði og endaði með ælu!! En það var ókei, fékk flotta fína frábæra klippingu og liti í skallan var var voða ánægð.. mætti svo í MÚGSEFJUNA sjálfa (þetta orð er bara notað f. minn ástkæra bróðir) verslaði mér, náttföt, og jólabrækur og glingur og bol og e-h drúsl, hitti Frú Sigríðu ráðskonurass og boraði kjét hjá ömmu&afa, fór heim og hélt mér vakandi (næstum alla leið) því pabbalingnum finnst leiðó að keyra með sleppíhead sér við hlið.
Tyson eða eins og ég kýs að kalla dýrið, vælikjóahnoðróttandásemdardekurhana er enn á lífi, think god en skepana er farin að færa sig uppá skaptið.. núhh dugar ekki að hann sé í sófanum eins og hann eigi hann og maður hlýðir honum í einu og öllu þegar hann klessir sér uppí kjöltinu á manni og LÆTUR mann baka sig, heldur er það ekkert annað en hann er í þessum skirfuðu orðum inní herberginumínu á sérsmíðaðri moppu og hrýtur.. Elías babí, hann er komin til að vera, það er bara annahvort að þegar Elías kemur þá sofi hann inní forstofu eða kúri með okkur Tæsa inní herbergi, ætli það verði ekki það síðar nefnda.. hann saknar mín svooo mikið (: ekki það að ég sakni hans e-h minna *dæs*
Mig langar svo í rauð stígvél, ég get ekki sofnaðu útaf því! Víí fann ástæðuna! Mamma Önnu pönnu bakkaði frama á bílin hennar mömmu, en það mölaðist bara ljósið, drossían er enn á lífi. Frosti osti á ammæli í dag er 22ára, eða 23! Man ekki, skiptir ekki.. allt það saman, til lukku með það jólakallinn minn.
Var að klára Bridgets Jones 1 og var að taka bók nr. 2 áðan á bókó.. ætla að fara lúlla hjá Séra: Tæsa ofur skutlu! grr
Bang bang, he shot me down
Bang bang, I hit the ground
Bang bang, that awful sound
Bang bang, my baby shot me down
Seasons came and changed the time
When I grew up I called him mine
He would always laugh and say
Remember when we used to play
Music played and people sang
Just for me the church bells rang
Now he's gone I dont know why
Until this day, sometimes I cry
He didn't even say goodbye
He didn't take the time to lie
Nancy Sinatra
18.12.03
tyson babí er mættur. við er um að passa svartan stóran labrador í 2vikur.. hann er æððði. svo krúttlegur og hlýðin og bara, mig langar í hund! þessi er reyndar ekkert mikið til að hnoðast með, um sonna 30kg en samt var ég að lúlla með honum áðan, svolitill kjáni að koma sér fyrir í sófanum, svo hrýtur dýrið eins og móðir og faðir til samans.
á morgun fer ég til ak, ég ætla að knúsa og kyssa elías í heilan sólahring!
fær maður ekki heilahinubólgu í löppina..? ekki í heilan..
17.12.03
Well.. þá er maður enn einu sinni mættur á dósina! veit ekki hvað skal segja um þaa. fer á ak á morgun eða fimmtud. og suður á laugard. á klippó tíma á space í smáró á laugd. og ætla að kaupa mér jóladress.
ég var vissulega mjög svekkt yfir endana á survivor, auðvita ÁTTI jonní minn ferplei að taka þetta en svosem var sandra 100 sinnum betri en lil, því hún er skítaskessa, hehe érr að lesa á cbs.com e-h um jonna babí, hetjan hans er hugh hefner, áhugamálin hans er stelpur og hann á ammæli 11mars 1974, fyrir péning ætlaði hann að kaupa mellu f. ömmu sína! kommon.. hann er brill.
hvernig dansar marr við skúter? hoppar maður eins hátt og maður getur og eins hratt og maður getur? ..þaa segja sumir, jahh maður spyr sig.
ææ.. nenni essu ekki! eitt skal ég samt segja ykkur..
rut vinkona var að vinna hálf millu í úttekt hjá BT og IcelandExpress, pæliðíðí.. ég lét hana vita að mér þætti gott að fá eina digital myndavél.. ég meina, bara svo hún viti það! haa? (:
mamma var að baka, gaman að því!
ég sakna elíasar.. hann er æði, æðiber í boru! vi ætlum út að borða, á love mynd og vera rómó og ástfangin fyrir jólin, hann fær svo humar þegar hann kemur eftrir jólin til okkar.. það þykir honum best.
12.12.03
yeahhh baby
Viktoría VS. Camembert
djamm í kveld.. jahh er þaa ekki?
11.12.03
..ég sef alltaf með hendina undir kodda
..ég hata þegar það er snjór og hann fer í skonna mína
..ég tók fyrstu hamóbeygjurnar mínar í gær
..mér finnst betra að vera kalt en heitt
..mér finnst gott að vera ég sjálf, næstum alltaf
..ég hef borðað snjó síðan ég man eftir mér
..ég sleikti alltaf fótboltana þegar ég var lítil, útaf saltbragðinu (svitanum)
..ég boraðaði/borða lambello, og finnst gott
..ég gæti ekki lifað án ísmola
..mig langar í handryksugu
..ég er tuddi í fótbolta
..mig langar að vera til í gamla daga
..ég kann ekkert a mála mig
..ég ætla að kaupa mér jólakjól
..ég borða, því miður ekki afganga
..núna er ég að lesa bridget jones diary
..þegar ég tala í síman, þá segji ég oftast ekki bæ, skelli bara á
..ég er reið við fólk sem kannski veit það ekki og ég veit ekki afhverju ég er reið við
..ég þoli ekki þegar fólk horfir á mig í tölvuni
..það fer ósköp margt í taugarnar á mér
..gallúp hringdi í mig áðan og ég svaraði fullt ag spurningum
..ég er ekki að safna neinu, það finnst mér leiðinlegt
..ég þori ekki að kvarta í búðum eða sjoppum
..mig hlakkar til jólana
..það er ekki búið að ákveða hvað á að vera í jólamatin hjá okkar
..ég á engan uppáhalds mat
..ég er ekki sjúk í neitt
..netið er alltaf í einhverju fucki hjá okkur
..ég er ægilega háð tölvuni minni
..mig langar svoo í digital myndavél
..mér finnst venjulegur bjór ekki góður
..það má skrifa á ísskápin minn
..einu sinni fór ég ekki í sturtu í viku
..16 des er ég búin að vera með sykursýki í 6ár
..ég bý í S íbúð
..í dag er ég með skítugt hár
..ég þoli ekki matrix
..ég á mörg lög sem minna mig á fullt af góðu og slæmu
..ég vildi að ég gæti séð inní framtíðina
og ég græt söltum tárum.