12.1.04

jæja.. fyrsti dagurinn í nýju vinnuni búin. svaf í 2 og hálfan tíma í nótt (hef ekki gumma akkuru, elías segir að ég hafi verið stressuð) allavegana, vakanði svo í morgun.. hrökk framm út, skóf bílin eins og dóri múss og félagar væri á leið inní hann og lagði af stað. leist ansk. vel á þetta þanna.. eins og ég segi, öll elliheimilavinna er eins, fólkið heitir bara annað og er stafsfólkið annað, semsagt back to same old same old, sem er ekkert slæmt sko.
mjög langt síðan ég hef verið svona god damhh þreytt. það er ljúft.
lærði risk í gær. spilaði með pésa, elíasi og bósó.. endaði með að ég varð svo illa tapsár og moðerfokkinginahásofpein fúl að ég var hætt að anda, strákarnir urðu hræddir. elías "fyrirsátursbýrtilsínareiginreglurplaner" vann, það var slæmt. ég átti samt góðan góðan leik, náði að fá mörg hatursfull og ljót orð frá pésa. missjonið mitt var ÖNPOSSIBOL.. asia! kommon.. how? össs.. núhh er pési að kenna sinni konu spilið og stefnt er á riskerí á næstuni.
ég ætla að fara kúra i hausinn á mér!
good night, sleep tight anf dont let the BIG bugs bite.

7.1.04

Kveldið kveldið..
érr að deyja úr seddu, var að borða uppáhaldið þessa dagana, 2 brauð í ofni, m. slatta af tómatsósu, osti (miklum) og köð & grill kryddi, og það verður að vera pínu brent, SWEEEET MAM
vorum á lord of the rings.. hún var svakaleg!!! reyndar á ég (eins og svo margir sem þekkja mig vita) svo svakalega erfitt með að sitja kyrr í smá tíma, og hva þá 3&hálfan tíma, þannig að það var pínu að eyðileggja fyrir mér en myndin var frábært. það var á tímapunti sem ég ætlaði virkilega að labba út og sagði það hátt og snjallt, en það varð sem betur fer ekkert úr því.. ég hélt að ég myndi verða vitni að MEST krappí enda í geimi en svo betur fer fór það sko.
I AM NO MAN! massa góða lína.. sannar enn einu sinni hversu mikilir naglar við tjéllingarnar erum.
en annas, mjög gott að vera back á akó, EKKKKI að það hafi verið e-h slæmt heima, það var best, sýni það kannski á skrítin hátt en það var það, það heitir víst blönduósskap þetta skap sem ég var í þanna, fyndið, við ásgeir rífumst ALDREI hénna á ak, en á blö var það fyrsta sem við gerðum.. heh. vildi bara að mamma og pabba myndi bara flytja á ak *blikkblikk* held að það sé á 50ára planinu hjá þeim gömlu. það varð ósköp hljótt og rólegt hjá þeim þegar við öll vorum farin, tæsi líka.. ohh sakna hans svo, ætla biðja pabba að senda mér myndir, þá get ég sýnt ykkur dúlluna.
en byrja ekki að vinna fyrr en 12. þannig að það er tími til að snúa sólahringum við (YEAHHH!!!) leika sér í tölvuni og safna meira spiki.. óóhh ljúfa líf.. óhh ljúfa líf, þetta lag minnir bara á sódóma, mögnuð ræma.
kiddi frændi var að henda inn fullt af myndum úr áramótagleðini á sunnubrautini.. úff (: þetta var draumur. æðislegur matur og bara frááábært. bróðir vor í miklum gír með rósavínið í annari.
érr alveg orðin les sjúk, hlakkar alltaf til þegar ég vakna að fara uppí rúm um kvöldið að lesa! betri helmingurinn af mér er samt ekkert sáttur með þetta, þolir ljósið svo illa, skiljiði? heh.. lítil pjásan.
planið um páskana er að fara til london beibí með önnu og sylvó þetta verður sonna makalaus verslunardjammstelpudjúseríferð.. veii, hvernær eru páskar? er einmitt að horfa á london friends þættina núna.. búa mig undir þetta! ohh annzi er búin að lýsa topshop búðini þanna, ÓMÆGOD æmgonalúsmæself viððða vísakort! vúúbbbííí
jæja ætla að fara að lesa ferðbæklinga (á samt enga) ætla að fara lesa bridget jones, hún býr í london, fæ innblástur, hún er reyndar í tælandi núna í djélinu. össs.

4.1.04

fleiri myndir komnar.. lala. érr komin á akó.. laterr

2.1.04

til lukku með hátíðarnar..
mögnuð jól og æðisleg áramót.. mikið djamma og djús og mikið borðað og held ég enn meira sofið.
érr búin að setja inn myndir og full fleiri á leiðini, fer eftir því hvað púkinn er dúlegur! förum heim á akureyrina á sunnud. á morgun er massívasta veisla í geimi í þessari famelíu.. 14kg kalkúnn verður matgreiddur og um 20 manns mundu rífa hann í sig! shitafucka.. græðgin að drepa alla sonna rétt eftir jól.. nehh bara gín. svo er það bara yfirdráttur from the mr. og mrs. banki.com.. verð að eignast digital myndavél.. sorry! og byrja að vinna 12.jan.. húrra og jöss jöss jöss!
tæsi er enn hér.. núna sest hann til borðs með okkur og sefur á milli mömmu og pabba (: hann er mættur á topp skaftsins.. ef það var þá einhver tíman skaft!

25.12.03

við erum núhh doltið sæt
þetta eru myndirnar sem snillingurinn Trausti tók af okkur fyrir jólin (:

23.12.03

Ég er andvaka andvaka andvaka.. kannski er það samt ekki málið, ég fór að lúlla kl.3 seinustu nótt og vaknaði e-h um 3 í dag, þannig að ég er kannski bara ekki komin á tíma, með svefn alltsvo.
Jólin koma á morgun! Ég er alltaf að sjá það betur og betur að jólin koma alveg þótt maður geri ekki hreint hjá sér, skirfi ekki 100 jólakort (og helmingurinn af þessum 100 eru kannski til einhverja sem manni þykir ekkert vænt um langar ekkert að skirfa til jólkort) kaupi ekki um 50 jólagjafir (og 40 af þeim til hverjum sem maður hefur ekki crap áhuga á að gefa nokkurn skapaðan hlut) og þar fram eftir götunum.. jólin koma bara samt!!
Ég er allavegna búin að fá minn jólakjól, þannig að ég fer ekki í jólalunda þetta árið.. keypti mér ÆÐÐÐISLEGAN korsilettu kjól í mótor, svartan með bleiku skrauti, alveg gegggjaður. Ég fór semsagt í borgina kl. 8 á sunndagsmorgunin.. það var slæm tímasettning hjá karli faðir mínum! Ég kom heim rúmlega 6 um morgunin, svaf í 2tíma, vaknaði full, klæddi mig í sömu föt og í var í um kveldið, tók 2 kodda og lagðist aftur í bílin og dó. Í borgó vaknaði ég.. fékk mér 3ísmola og fannst ferðin vera vel heppnuð, ældi svo í bílin, á mig og teppið mitt (thing god að þessi líka massa trefill sem móðir vor var að kaupa sér SLAPP) fór í klippó til systir Hörpu, fékk tremma, svitaköst og sofnaði og endaði með ælu!! En það var ókei, fékk flotta fína frábæra klippingu og liti í skallan var var voða ánægð.. mætti svo í MÚGSEFJUNA sjálfa (þetta orð er bara notað f. minn ástkæra bróðir) verslaði mér, náttföt, og jólabrækur og glingur og bol og e-h drúsl, hitti Frú Sigríðu ráðskonurass og boraði kjét hjá ömmu&afa, fór heim og hélt mér vakandi (næstum alla leið) því pabbalingnum finnst leiðó að keyra með sleppíhead sér við hlið.

Tyson eða eins og ég kýs að kalla dýrið, vælikjóahnoðróttandásemdardekurhana er enn á lífi, think god en skepana er farin að færa sig uppá skaptið.. núhh dugar ekki að hann sé í sófanum eins og hann eigi hann og maður hlýðir honum í einu og öllu þegar hann klessir sér uppí kjöltinu á manni og LÆTUR mann baka sig, heldur er það ekkert annað en hann er í þessum skirfuðu orðum inní herberginumínu á sérsmíðaðri moppu og hrýtur.. Elías babí, hann er komin til að vera, það er bara annahvort að þegar Elías kemur þá sofi hann inní forstofu eða kúri með okkur Tæsa inní herbergi, ætli það verði ekki það síðar nefnda.. hann saknar mín svooo mikið (: ekki það að ég sakni hans e-h minna *dæs*
Mig langar svo í rauð stígvél, ég get ekki sofnaðu útaf því! Víí fann ástæðuna! Mamma Önnu pönnu bakkaði frama á bílin hennar mömmu, en það mölaðist bara ljósið, drossían er enn á lífi. Frosti osti á ammæli í dag er 22ára, eða 23! Man ekki, skiptir ekki.. allt það saman, til lukku með það jólakallinn minn.
Var að klára Bridgets Jones 1 og var að taka bók nr. 2 áðan á bókó.. ætla að fara lúlla hjá Séra: Tæsa ofur skutlu! grr

Bang bang, he shot me down
Bang bang, I hit the ground
Bang bang, that awful sound
Bang bang, my baby shot me down
Seasons came and changed the time
When I grew up I called him mine
He would always laugh and say
Remember when we used to play
Music played and people sang
Just for me the church bells rang
Now he's gone I dont know why
Until this day, sometimes I cry
He didn't even say goodbye
He didn't take the time to lie

Nancy Sinatra

18.12.03

tyson babí er mættur. við er um að passa svartan stóran labrador í 2vikur.. hann er æððði. svo krúttlegur og hlýðin og bara, mig langar í hund! þessi er reyndar ekkert mikið til að hnoðast með, um sonna 30kg en samt var ég að lúlla með honum áðan, svolitill kjáni að koma sér fyrir í sófanum, svo hrýtur dýrið eins og móðir og faðir til samans.
á morgun fer ég til ak, ég ætla að knúsa og kyssa elías í heilan sólahring!
fær maður ekki heilahinubólgu í löppina..? ekki í heilan..

17.12.03

Well.. þá er maður enn einu sinni mættur á dósina! veit ekki hvað skal segja um þaa. fer á ak á morgun eða fimmtud. og suður á laugard. á klippó tíma á space í smáró á laugd. og ætla að kaupa mér jóladress.
ég var vissulega mjög svekkt yfir endana á survivor, auðvita ÁTTI jonní minn ferplei að taka þetta en svosem var sandra 100 sinnum betri en lil, því hún er skítaskessa, hehe érr að lesa á cbs.com e-h um jonna babí, hetjan hans er hugh hefner, áhugamálin hans er stelpur og hann á ammæli 11mars 1974, fyrir péning ætlaði hann að kaupa mellu f. ömmu sína! kommon.. hann er brill.
hvernig dansar marr við skúter? hoppar maður eins hátt og maður getur og eins hratt og maður getur? ..þaa segja sumir, jahh maður spyr sig.
ææ.. nenni essu ekki! eitt skal ég samt segja ykkur..
rut vinkona var að vinna hálf millu í úttekt hjá BT og IcelandExpress, pæliðíðí.. ég lét hana vita að mér þætti gott að fá eina digital myndavél.. ég meina, bara svo hún viti það! haa? (:
mamma var að baka, gaman að því!
ég sakna elíasar.. hann er æði, æðiber í boru! vi ætlum út að borða, á love mynd og vera rómó og ástfangin fyrir jólin, hann fær svo humar þegar hann kemur eftrir jólin til okkar.. það þykir honum best.

12.12.03

yeahhh baby
Viktoría VS. Camembert
djamm í kveld.. jahh er þaa ekki?

11.12.03

..ég sef alltaf með hendina undir kodda
..ég hata þegar það er snjór og hann fer í skonna mína
..ég tók fyrstu hamóbeygjurnar mínar í gær
..mér finnst betra að vera kalt en heitt
..mér finnst gott að vera ég sjálf, næstum alltaf
..ég hef borðað snjó síðan ég man eftir mér
..ég sleikti alltaf fótboltana þegar ég var lítil, útaf saltbragðinu (svitanum)
..ég boraðaði/borða lambello, og finnst gott
..ég gæti ekki lifað án ísmola
..mig langar í handryksugu
..ég er tuddi í fótbolta
..mig langar að vera til í gamla daga
..ég kann ekkert a mála mig
..ég ætla að kaupa mér jólakjól
..ég borða, því miður ekki afganga
..núna er ég að lesa bridget jones diary
..þegar ég tala í síman, þá segji ég oftast ekki bæ, skelli bara á
..ég er reið við fólk sem kannski veit það ekki og ég veit ekki afhverju ég er reið við
..ég þoli ekki þegar fólk horfir á mig í tölvuni
..það fer ósköp margt í taugarnar á mér
..gallúp hringdi í mig áðan og ég svaraði fullt ag spurningum
..ég er ekki að safna neinu, það finnst mér leiðinlegt
..ég þori ekki að kvarta í búðum eða sjoppum
..mig hlakkar til jólana
..það er ekki búið að ákveða hvað á að vera í jólamatin hjá okkar
..ég á engan uppáhalds mat
..ég er ekki sjúk í neitt
..netið er alltaf í einhverju fucki hjá okkur
..ég er ægilega háð tölvuni minni
..mig langar svoo í digital myndavél
..mér finnst venjulegur bjór ekki góður
..það má skrifa á ísskápin minn
..einu sinni fór ég ekki í sturtu í viku
..16 des er ég búin að vera með sykursýki í 6ár
..ég bý í S íbúð
..í dag er ég með skítugt hár
..ég þoli ekki matrix
..ég á mörg lög sem minna mig á fullt af góðu og slæmu
..ég vildi að ég gæti séð inní framtíðina
og ég græt söltum tárum.

9.12.03

ansk. helv. djöf. ég er alveg að snappa út hénna...!!! ok, við fórum í bónus.. lala gaman gaman að kaupa í matinn. svo var ég inní mjólkukæli og var að rángla eftir hammarasósu og koktelsósu.. svo alltíeinu fékk ég FUCKING HELVÍTIS 3 kassa FULLA af fucking kammelbert osti í helv. hausin!!!!!! ég var ekki í góðu skapi áður þetta gerðist en eftir þetta, þá... jááá, ég varð ekkert sáttari! svo kom einhver homma strákur og sagði "ææþannaþanna.. við biðjumst afsökurnar á þessu" ég blótaði bara af mér skottið og svo blótaði ég aðeins meira yfir þessu og langaði mest að stappa oná öllum þessum mygluskítaostum og sparka í þennan skítstrák, en lét það ógert og keyti franskar. mér finnst núh lámark að maður fái afslátt eða jafnvel ókeypis ef svona "slys" (ég veit svosem að þetta var allt fyrirsátur hjá þessum illgjörnu úlfum og gömmum þanna) kemur fyrir.. but NO, ég fékk ekkert nema að borga f. minn snúð!!! mér er drullu illt í hausnum og er enn pirraðir og jafn vel doltið reið..
jájá frú móðir og herra faðir ég veit að þið eruð að spá í hvar ég lærði öll þessu ljótu orð en þau eru nauðsynleg í þessu riti!!!! finnst ykkur ekki?

7.12.03

Jólin jólin jólin koma brátt.. snjórinn snjórinn snjórinn hlýi mér svo grátt!
Vóó.. auka þáttur af Survivor, og svo lokaþátturinn 15.des (érr að deyja úr spenning) annas veit ég alveg hver vinnur, mér sýnist lesendur mínir líka vera með þaa á hreinu *blikkblikk*
Þessi helgi er búin að vera róleg og góð. Við vorum heilbrigðasta fólk á jarðríki. Fórum til Bróa og Dúnu og spiluðum, undir jólatónum, smákökur og kaffi var í massavís innbirt. Ég skil ekki hvernig ég var næstum alveg búin að gleyma hversu viðurstyggilega hræðilega tapsár ég er.. og hversu djö. mikið ég svindla í spilum, múhahha.. kommon ég aldist upp við að spila með bróðir mínum og Rut! Grjóni Gutt fékk að kenna á því, við Sigurjón eru erum eins, sem er kannski ekkert of gott að spila saman.
Í dag fórum við í smá jólapakkaundirbúing (við fáið að sjá allt heila dæmið, seinna.. lofffaaa) keyptum líka tvær jólagjaftir í dag og öll jólkortin og allt þaa.
Eins og svo marga sunnudaga vorum við frænkurnar að vesenast í labbitúr og búðarápi, þá rekumst við á fullt af brjáluðum börnum og móðursjúkum foreldum og svo auðavita blessuðu jólasveinana niðrí bæ, við göngum með þeim niðrá
torg, þar voru grillaðar pylsur (þaa kom doltill sumar fílingur í mann) og kók í bauk, okkar frænkum þótti þetta heldur heppilegt og hryfsuðum í okkur heilar 4 pulsur og einum bauk.. og fannst þaa gott.
Hverjir ætla að fá jólkort frá okkur Elíasi???
God.. Björgvin smjörgvin er fíbbl.. hann er í ps2 í grandetátó og ég vill horfa á maður á mann, en hann vann sig upp með að segja að myndin af mér þanna sem bleikur sygurpúði væri flott.. finnst ykkur þaa ekki? (:
Ég ætla á dósina næstu helgi, þá ætla ég að fara alfara frá ak, ef allt vinnuvesenið og þaa verður allt komið á hreint, vííí!
Séiiiséii í bráð því þá mun jáhá, nást! óólééé.. DaDaDa

2.12.03

ok ok ok.. ég var að horfa á "heilidarmynd" um Kurt Cobain & Courtney Love.. úfff, mjög mjög einfalt, hann drap sig ekki, svo leiðinlega/skemmtilegt er það! annað hvort drap þessi druzla hann og við erum þá að tala um með fucking berum höndum eða hún fékk einhvern til þess!! sésnin bensin að ég eigi eftir að sofna í nótt.. núh á ég eftir að missa mig í þessu öllu saman, hugsa um ekkert annað en þennan mann eins og hénna um bubba forðum, þá var maður ungur. Nú er tölvan að fyllast af nirvana tónum, þannig að það er fínt gott og ágætt.

vaknaði of snemma í morgun, þannig að ég held að ég fari í stórt legg breik núna!
ég veit að þetta lúkk á síðunu er alllls ekki ég.. en gaman að gera e-h nýtt, fara eftir listanum sínum og "gera hlutina með opnum hug" hef aldrei þolað bleikan, á ekki nein bleik föt eða neitt.. þannig best að hafa bloggið sitt B L E I K T.. svo er maður soddan tík. svo er ég búin að þvo henduru e. hverja ferð á klóstið í dag, klappklapp f. mér.

Son of Gun
Up up up and down
Turn turn turnaround
Round round roundabout
And over again
Gun gun son of a gun
You are the only one
Makes any difference what I say

1.12.03

ÉG ÆTLA
..hætta að bora í nefið
..hætta að reyna alltaf að fara auðveldu leiðina í öllu
..reyna vera dugleg að rækta mig og mína
..að djamma minna
..reyna að missa ekki sambandið við vini mína
..vera jákvæð
..að gera hlutina með opnum hug
..reyna að muna að þvo mér alltaf um hendurnar e. klósferðir
..reyna keyra eins og maður
..blogg oftar
..skirfa mörg jólakort
..vera með dósurunum mínum mikið mikið um jólin
..ekki að gráta um jólin því ég sakna elíasar svo mikið
..að eignast barn innan 2-3 ára
..að fá mér music með maus
..og líka að gefa hann í gjöf
..að fá mér nickname (einhverjar tillögur?)
..að láta tölvuna og gemmsan minn skipta mig minna máli (jéræt)
..fara elda fiskinn sem við elías veiddum
..kaupa eldspýtur eða kveikjara á morgun
..vera stoltari af mér og mínum
..hætta þessu bulli!
..nefna Gumma gæa oftar í blogginu mínu

Hvað finnst ykkur um Jon í Survivor?
Sko, let´s face it, hann er að spila þennan leik, NÁKVÆMLEGA eins og maður myndi gera það (allavegna ég) hvernig á maður annas að vinna? Málið er að vera eins mikil naðra og eins mikil djöfull og maður getur, stinga sem flesta í bakið, helst að vera doltið leiðinlegur og gera lítið, vera latur og heimskur.. en samt ómissandi (: hann er sá sem ég vill að vinni, heh.. Jon THE Naðr (stytting á Nöðru)

.. Af mér er annas þetta bara fína í kína að frétta. Það er farið að örla fyrir jólaperu á víð og dreyf um hýbýli mín, jafnvel aðventuljósum (sem btw, amma svava kom með færandi hendi, heppin ég að eiga svona góða ömmu) svo keypti ég í dag tvo sæta jólakalla sem ég setti á basthillinu mína í stofinu.. ógggurlega sætt allt saman.. hægt og rólega ætla ég samt að bæta við jólaljósum og jólasveinum, snjóköllum og jóladruzli, það er svo gaman, eins og Kristján frændi minn Blöndal kemst svo skemmtilega að orðum "það er nú fínt að birta aðeins til með jólaseríum svoan í svartasta skammdeginu" heh.
Svo fékk ég kannski næstum alveg vinnu í dag, samt ekki alveg skothelt en mjög líklegt. Á elliheimilinu Hlíð, alveg hugers hrukkuheimili og mér leist bara svona alveg helvíti vel á það, fyrsti og eini staðurinn sem ég er búin að fara á, ekki slæmt það, jáhh.. þetta nottlega segjir manni það hversu aðlagandi og fallegt ungmenni maður er (ég er ekki sú eina sem finnst það) bwhaha.
Þessi ritning hér í kveld hjá mér er farið að leysast útí vitleysu.. back 2 the reality *dæs*

30.11.03

...Jólasnjór
Jólasnjór
Jólaskíðasnjór,
gaman er að renna sér í jólaskíðasnjó!!

23.11.03

er aÐ SPÁ í að stofna leyniblogg..
er að naga á mér rassgatið og horfa á maður á mann, mér finnst sigurmundur ernir naga hamstur, hann er lélegur spyrill og spyr heimskulega spurninga, hvernig geðveik var mamma þín? blabla.. eigum við að skella oss á pöbbarölt, við massívan bindindismann.. ? hann er skítkall þessir ernir smernir.. en þráinn minn félagi bertilsson, finnst hann nokkuð magnaður kall.
sonur oss er byrjaður að blogga!
embla svaf hjá okkur í nótt, það er gaman í mömmuleik, keypti ottó stal jólnum, en grís neitaði að líta á það, "é hædd" þá var það útrætt.. heh, borðaði pulsu og fór í bað, lestrarstund og söngur.. ljúft.
déskotin og satan í holdsins klæðði, ég þarf að skíta í þessari búð í allavegana í viku í viðbót, það er dauðinn og djöfull, það er ekkert grín sem er að gerast þanna.. fólk stendur og slefar í hrigi og nagar á sér leggina (eins og við speni vöknuðum við í nótt.. að embla var að sjúga á sér leggina eins og pela) þetta er brjálæði.. soo bara vísa á allan pakkan.
ég nenni ekki að blogga meira, aldrei??

20.11.03

myndirar frá útskirftnni á laugum hehe, hún var í maí, en betra er seint en aldrei.. ekki satt? hvað finnst ykkur?

18.11.03

mikið geta sumir dagar verið langir og leiðinlegir!
ég er ógeðslega þreytt og langar mesta að fara sofa, en ég geri það ekki. hef ekki gumma afhverju ég geri það ekki.. kannski afþví judging amy er í kvöld, samt svo seint og líka því ég þarf hvort sem er að vakan e-h í kringum 12 til að sprauta.. væl&vesen! ég er að lesa svo geððveikt góða bók (synir duftsins, e. arnald indriða) að ég get aldrei farið að sofa á kveldin, les bara og les eins og gamall grís.
afhverju langar manni alllltaf og endlaust í allskyns sælgæti og gotterí þegar keeperinn er í heimsókn? hvurs vegna gerist það? hafa verið gerðar rannsóknir á þessu? endilega látið mig vita ef þið vitið um einhverja rannskókn á þessu, allt er nú rannsakað og þykir það afar mikilvægt!
mig langar að lesa svo margar bækur, auðvita bettý, eftir minn yndislega arnald indriða, væri eflaust mjög spennó að lesa ambáttina, um stelpu sem var þrælað út eins og skepnu og e-h ógeð, ohh.. svo dætur kína.. maður á eflaust eftir að skæla og væl yfir henni, einhvers konar ég, ævisaga þráins bertilsonar, geðveiki, drykkja, einelti, þuglyndi og þesshátar.. greii kallinn, maður verður núh að klára dæmið fyrst maður er byrjaður, harry fucking potter og fönixreglan, eflaust jafn mikil spenna og skemmtun og eins og hinar fjórar, og ævisaga lindu pé, sá hana í sirry og það vakti athygli mína, maður að nafni dave, ég hélt að þessi maður væri búin að segja allt sem segja þarf, en hann hefur víst miklu meira að segja.. vííí, eflaust væri mjögg gott að glugga doltið í súpersex, annas lifi ég svo góðu og miklu súper kynlífi að ég veit allt sem stendur í þessari bók *smile*.. þetta er sonna jólabókalistinn minn, langar samt ekkert að eiga allar þessar bækur en langar að lesa þær.
ææ.. ætla bara að fara sofa, sturta, takta út vélini og sofa! good plan.
heii jáhh, gleymdi næstum, þetta er seinasta vikan mín í vinnuni og ég verð ekkert að vinna í des. ætla að slappa af, lifa lífinu, fara í sund, mæta á fundina mína (tek skýrt fram að þetta eru ekki AA rugl fundir) og einbeita mér að sjálfri mér og öllu þessu yndislega fólki mínu, ætla kannski snemma heim í jólafrí og vera heima.. hjá pabba og mömmu! ;*

Love, viktoria bókaormur & í atvinnuleyt (en það er slæmt að vinna, það segjir atvinnnnu, atvinnnumaðurinn)

13.11.03

hate kristen!!!! dammhhh... she´s a real bitch.
missyi míg í bridget jones diary í gær, var næstum.. NÆSSTUM búin að gleyma hvað það er góð mynd, heh.. sóó fönnní, held að allar piparjónkur séu sonna, allavegana þær alvöru, og það er fyndið.. kúl, doltið turn on.
fór á fysta fundinn minn í dag, mjög gaman og gott. enduðum með að knúsast (: þetta verður afar merkileg og góð reynsla, hef gott af þessu. hlakka til að fara aftur, húrra fyrir mér, hetjunni miklu!
svo eru bara 2dagar í fyllerí og deit með jónsa
*ei skal láta dreng í sófa hugsa* ala vikks jones