*dæs* crap crap..
Ég er búin að vera með ælupest í 2daga! Mjögg slæmt ástand á manni hénna í Lundinum.
Ég er ekki búin koma niður matarbita í þessa daga, hef semsagt ekki mikla orku eða þol núna, rétt gat labbað upp stigan hjá Ásgeiri og Hörpu í dag, það er ástand á manni.
Ég veit ekki alveg hvað málið var með seinasta bloggið mit.. 04.25, það skýrir e-h ? ;/ dunno. Ég fór semsagt að djúsa á laugard. Á Oddvitanum með Douglas Wilson, sonna meira surprise djús, helvíti gaman sko (;
Um næstu helgi er árshátíð hjá öllum Samkaup verlsunum á norðurlandi, nettó, samkaup, strax búðum.. það verður eflaust megnað stuð. Alveg þvílíkur matseðill, reyktur og grafinn lax, fordrykkur, ostafylltur lambahryggsvöðvi með einhverri kórónu og m something sósu, heimlagaður ís með karamellu gljáuðum ávöxtum.. og e-h fleir, man ekki. Ég er að spá í að ræna dragt af Birnu og veit ekki með skóbúnað, veit ekki, kann eiginlega ekkert að vera e-h GALA fín.
Hef ekki orku í meira skrifarííí, þarf að fara reyna bíómiða f. 2 á leit.is á einhverja mynd, þarf bara að vinna 1500 stig í tetris, og jájájá.. ég er tetris master!
1.10.03
28.9.03
24.9.03
Wild en snyrtimennskan í fyrirrúmi.. shit a fuck!
Mér dauðleiðislegt að vera stelpa, plokka á sér augnbrúnirnar.. ojj bara vont vont vont vont og það vens ekki, ekki smekklegt að vera með hrjúfar og slitnar og ljótar neglur: naglalakk og púss og dót; BORING, alltaf er maður með þurra húð útaf haustkomu og þurru vatni á Akureyrinu, uss.. krem krem krem hér og þar og allstaðar og þau eru heldur ekki gefins þessi bannsettu krem, manni blæðir í viku, en reyndar koverar álfabikarin góði það flóð sem er kannski ljós puntur á annas vestu tímum mánðarins, höfuðverkur sem lætur manni verða illt mjög svo illt ef maður talað, það er slæmt (ég var á barmi málleysi í dag) ææ.. lífið er er erfitt svona í skammdeginu! ég segji nú ekki annað, thíhí, ég hjóma samt svoo eins og einstæð móðir með 4 börn (á aldrinum 1-7ára) en konur þanna úti, þiðð vitið að þetta er dagsatt! en bíðið bíðið.. svo er vinnan mín líka alveg skítleiðinlegt, ég byrja nú ekki að tala um það.
Ennn af mér er allt fínt af frétta. Fjölskyldan í Furulundinum dafnar og dvelur vel.. allir hafa afmarkað bætt á sig um 20-25 kg, en það er nú ekkert til að væla undan. Við borðum alltaf eins og við höldum að við fáum aldrei mat aftur en maturinn kemur alltaf allltaf aftur. Við erum alveg svakalega dugleg við að elda. Svo er maður svo mikill nútíma maður að maður fær sér ekkert annað en boozt á hverjum degi í nýja fína fína töfrasprotanum okkar, hann er meistarastykki, sonna eins og Siggi Hall notaði einu sinni alltaf í gamla daga í þáttanum sínum, en ég mæli samt ekki með því að reyna hakkast í gengum 4 ísmola og 10 gaddfreðin jarðaber, það gengur ekki, því miður.. þannig maður verður að vera þolinmóður og dúllast við þetta eða setja eitt í einu, but god knows að ég er ekki sú týpa.
Jáá marr, við fórum heim um seinustu helgi, það var mjögg fínt að koma heima, lúlla lúlla lúlla og borða. Ég fór í göngur og geng núna eins og fucking Birgitta Haukdal (semsagt með hest á milli lappana) en það var algjör ævintýri eins og alltaf, afhverju gerir maður þetta ekki oftar? hestar eru snild. Elías var ekkert of mikið á sömu skoðun og ég, hann vildi ekkert prófa þessar skepnur, var bara með pabbi og nestinu í bílnum á eftir öllu stóðinu, skemmti sér vel með tengdó (; heh. Nehh, þetta var alveg geggjað. Það sem stendur uppúr þessa helgi "kvarrr er kvarrr er kvarr er kvarr er STROH-ið mitt kvarr er STOH-ið mitt" heh, Rúna var góð í þessum hluta. Mikið drukkið af kakó og massa miklu af STOH-i en bara gaman. Alltaf eru líka mammza mín og pabbzi janf mikil æði, elska þau ;* Svo kíktum við líka á stóðhestaball.. var alltílæ, kallinn svolitið fullur, en það var bara fyndið, ældi og allan pakkan, hehehhe.
Ég er á hættustigi.. ég er fucking MÖNZ fíkill, eflaust eins og margir aðrir en guð! Það líður ekki á löngu þar til ég mun vera
sonna þetta er ekkert grín.
Og jájájá, ég er komin með magnaða klippó og fínheit, á engar myndir af mér sonna.. hmm, nope, þannig að þið þarna úti verið bara að kveljast, getið ekki séð mig! heh (",)
Það er örugglega klukkutími síðan minn sæti sæti sæti fór að lúlla og ég veit að hann saknar mig örugglega þanna undir heitu og góðu sængini okkar í stóra stóra stóra rúminu okkar.. hann er BESTUR! það er engin eins miki æði æði og hann.
Well.. góða nótt og passsið ykkur á risa rottunum.
Þarf að taka úr vélini, full full full vél af gallabuxum.. ojjj! Blautar gallabuxur.
16.9.03
Nú er maður fárrrrveikur á leið til vinnu, HARKAN í manni er endalaus! Hósta eins og vesti reykingarmaður, hnerra eins og ofnæmissjúklingur og æli eins og múkki, geððslegt það, en Getttóið þarfnast mín víst.
Ég er í fríi um helgina, og við ætlum að lets go á dósina. Ég er að spá í að skella mér í göngur og smala eilítið af hestum. Þetta tekur ALLLLLLLAN daginn og það verður eflaust skrautlegt að sjá mig dagana á eftir, geng örugglega eins og ég sé með hest milli lappana. Það á að skíra hjá Rönnu og Rúnsa á sunnudaginn, ég held að pabbi hennar hafi ekkert verið að plata þegar hann sagði að hún myndi eflaust bara heita Regína rotta, það væri cute nafn. Semsagt HOME SWEET HOME um helgina.
Ég fann þessa líka gullfallegu mynd af Ottó bingólottó.. hmm? Hvernig finnst ykkur?
Núú er klussurassgatið orðin 20 í 10 og það er víst mál að fara fara. Ég sit hénna heima hjá mér í 20stiga hita í úlpu, með trefil og húfu og Elías er undir þykkkku þykkkkku mjúkisteppi.. er ég veik? Jááá.. ég er veikkk.. það lak hor á lyklaborðið, sko það lekur stanslaust úr trýninu á mér.. Hver vill kí hver vill versla hjá koma í Nettó og versla viððð miggg? yeahh.. ENGIN, því það vill engin versla matinn sinn hjá veikri kassakonu.. Hvers vegna er ég að fara til vinnu? ?.. veit það ekki, hreint barasta veit það ekki!
Kveðja.
Jááá, Thosssi rokk á ammæli í dag, er orðin 20ára, gleðððilegt ammæli hr. Þórir ;*
11.9.03
Ég er enn ekki búin að finna mér góða klippó.. er samt enn að leita mér af hjá frú kelly. Elías er doltið hræddur að ég sé að leita að klippingum á síðuni hjá Kelly.. usss! píkustælar í honum, ég verð fín með eina af hennar klippingum *draumurídós* haldiði að ég vilji bara vera eins og hún? *hux* kannski vill ég það bara því ég get það ekki.. hún er bara hún, ekki eins og neinn og annar, þá get ég bara verið ég og verið ekki eins og einn annar! Væri samt ekki stúbit að finna góða mynd af flottri klippó af henni, fara með hana á klippóstofu og biðja um að láta klippa mig sonna? ..en þá er ég að brjóta öll lög, þá er ég að vera eins og hún? kannski er það ok, því hún er ekki eins og neinn annar.. vó, flókið. Ég held að það sé miklu erfiðar að vera örðvísi en aðrir en að vera eins og allir aðrir og sú hugmynd mín gerir mig sorgmædda ;/ ææ.. ég vildi að ég gæti bara akrabradapsz verið örðvísi, mér finnst ég alltof lík öllum þanna úti.. *suss* slæmt mál, en það er stundum ágætt að vera bara einn af öllum, maður er það kannski alltaf, það er ágætt.
Ég er búin að vera í frí í allan dag, fór í sund og í búð.. keypti pasta og súrmjolk og auðvita beyglur með kanil og rúsínum (sándar vírd en er mjögg gott) kíkti til Birnu, þau hjón eru búin að fjárfesta (fengi kvikindið reyndar ókeypis, þannig að þau festi það bara) í villidýri, semsagt ketti *hrollur* virðulegt nafn samt sem dýri heitir, Sesar. Við erum alltaf á leiði að kaupa nýjan fisk, sá að heita Tínutumi eða Tumatína, í sama nafni já!
GVÖÐÐÐÐ hvað ég þarf að fara komast í Topshop! ég fæ næstum tár í augun við að hugsa um hversu langt er síðan ég hef komið þangað og eytt péningum, þetta er sorglega staða sem ég er komin í.. mig vantar nýja klippó og föt! ég bara lítil vesalingur.. meira út í lítið grei :( ég er samt að spá í að fara stunda joga, hvernig líst ykkur á það? losa um alla spennu, róa mig doltið niður og láta mig svífa? haa? kúl?
Mamma mín er að koma til mín á morgun, hún ætlar að koma með dótarí sem mig vantar hingað og sonna, elda mat og vera hér hjá mér.. pabbi er að vinna svo mikið og er svo mikil bóndakall að hann kemst ekki, er að fara í göngur, smala laxárdalinn og svo er hann farin að kenna í skólan á dósinni, er e-h AÐAL (hann er alltaf aðal) tölvukallinn þanna og er að kenna á tölvudótið og það allt saman, auðvita gerir hann það þegar ég er búin með grunnskólan og er farin.. sonna kallar.
ææ, búin að röfla nóg.. wait, þið vitið að það eru Paparnir í Sjallanum um helgina *svitnadæs* við á heimili erum að spá í að skella oss, einn meðlimur famelínar er að fara vinna í Sjallanum sem þrífauppæludyravörðurmiðasölumaður eða e-h, þannig að það er bara kúl.
En COSMO í hvaða mail á maður að senda þér ezkan? láttu mig vita þá get ég farið að senda þér dirty mail.. ertu ekki einmanna og saknar mín ekki þanna í útlandinu? i miss u ;/
Gn
10.9.03
ég er að meina, hvort segjir maður: Þú setur mér enga afarkosti? eða, Þú setur mér enga aðalkosti?..
SVARIÐ ezkurnar mínar.. (",)
Núna er ég búin að vinna heila 3daga í gettóinu.. og á morgun er frí hjá mér, ég veit ekki hvort þetta er kurteisislegt thing að segja: Já, þú færð fríi á morgun *hóst* ÞÚ ERT DREKINN!!! allavegana fannst Ásgeiri það líklegast, en ekki mér því Guð einn veit það að ég er starfsmaður mánaðarins næstu árin, því jújú ég MUNNNN vinna í gettóinu þangað til það fer á hausinn og mun ekki gerast.. húrra fyrir Hermínu. Nee annas, þetta er enn ágætt þanna en ég býst við að vera gerð að yfirforstjóra þanna innan minnst mánuðs. Ég er samt í fríi á morgun og ætla að nota það vel, kannski í klippó, mig langar það.. fá mér einhverja víraða (eins og sonur minn mundi segja) klippó.. ?? hmm, er einhver með hugmyndir? Ég ætla að tjékka á síðuna hjá Kelly nokkri Osbourne og gá hvort hún lumi ekki á nokkrum víruðum klippóingum. Allavegna er til síða sem heitir coolhaircut.com mæli ekki með henni samt.. ææ ég finn enga síðu með flottum klippóum, ansk.
Litla lúsinn mín er steinsofnuð hérna við hliðina á mér.. með lion king sæng og snakk í hárinu. Lee Ann var að elda hjá okkur í kvöld, eldaði þetta líka góða góða lasanía og allar græjur, mjöggg gott, érr eiginlega enn södd.
Hershöfðinginn minn er mættur í leikskóla standið.. það líður ekkert langur tími örugglega þar til hún á orðið þennan leikskóla. Þegar ég eignast barn þá ætla ég að hafa það eins og Emblu, því hún er pure WONDER fucking BABY, kann allt, skilur allt og getur allt, like i said: WONDERBABY.
Mér finnst dagskráinn á skjáeinum sökka, allavegana á mánud. og þriðjud. og ég fyllist gremju og ergelsi yfir því, því jú.. við erum ekki með stöð2 eða neitt annað. Við horfðum reyndar á stöð1 áðan, það var e-h "lifanditækniogvísinid" þáttur sem Lee fannst afar áhugaverður, hún sagði að hún hefði ekki gaman að honum en sénsinn bensinn að ég trúi kellu, hún er sú sem heldur þessum þáttum gangandi, ef það væri ekki þetta 00000000000,1% af þjóðini (sem Lee er) þá væru sonna þættur-blöð-myndir ekki til.. svo þakkið/kennið henni um þetta allt saman.
Við Elías erum alllltaf á leiðððini að fara breyta síðuni minni e-h, það hlítur samt að fara gerast bráðum, því nú erum við jú komin með ADSL og það er semsagt von á breytingum.
Ein spurning að lokum sem við hérna á heimilinu erum búin að vera rífast um: Hvort segir maður afarkostir eða aðalkostir? Svarið þessu í MESSAGES thingið.. plísss! Þá er kannski hægt að droppa þessum umræðum.
Klussan er orðin seint, samt má ég lúra framm ettir *gottgottgottgottgottgott*
Góða nótt & Sweeeeet dreams Asssholes
Núna er ég búin að vinna heila 3daga í gettóinu.. og á morgun er frí hjá mér, ég veit ekki hvort þetta er kurteisislegt thing að segja: Já, þú færð fríi á morgun *hóst* ÞÚ ERT DREKINN!!! allavegana fannst Ásgeiri það líklegast, en ekki mér því Guð einn veit það að ég er starfsmaður mánaðarins næstu árin, því jújú ég MUNNNN vinna í gettóinu þarnga til það fer á hausinn og mun ekki gerast.. húrra fyrir hermínu. Nee annas, þetta er enn ágætt og ég býst við að vera gerður að yfirforstrjóra þar innan minnst mánuðs. Ég er samt í fríi á morgun og ætla að nota það vel, kannski í klippó, mig langar það.. fá mér einhverja víraða (eins og sonur minn mundi segja) klippó.. ?? hmm, er einhver með hugmynd? Ég ætla að tjékka á síðuna hjá Kelly nokkri Osbourne og gá hvort hún lumi ekki á nokkrum víruðum klippóingum. Allavegna er til síða sem heitir
Litla lúsinn mín er steinsofnuð hérna við hliðina á mér.. með lion king sæng og snakk í hárinu. Lee Ann var að elda hjá okkur í kvöld, eldaði þetta líka góða góða lasanía og allar græjur, mjöggg gott, érr eiginlega enn södd.
Hershöfðinginn minn er mættur í leikskóla standið.. það líður ekkert langur tími örugglega þar til hún á orðið þennan leikskóla. Þegar ég eignast barn þá ætla ég að hafa það eins og Emblu, því hún er pure WONDER fucking BABY, kann allt, skilur allt og getur allt, like i said: WONDERBABY.
Mér finnst dagskráinn á skjáeinum sökka, allavegana á mánud. og þriðjud. og ég fyllist gremju og ergelsi yfir því, því jú.. við erum ekki með stöð2 eða neitt annað. Við horfðum reyndar á stöð1 áðan, það var e-h "lifanditækniogvísinid" þáttur sem Lee fannst afar áhugaverður, hún sagði að hún hefði ekki gaman að honum en sénsinn bensinn að ég trúi kellu, hún er sú sem heldur þessum þáttum gangandi, ef það væri ekki þetta eina % af þjóðini (sem Lee er) þá væru sonna þættur-blöð-myndir ekki til.. svo þakkið/kennið henni um þetta allt saman.
Við Elías erum alllltaf á leiðððini að fara breyta síðuni minni e-h, það hlítur samt að fara gerast bráðum, því nú erum við jú komin með ADSL og það er semsagt von á breytingum.
Ein spurning að lokum sem við hérna á heimilinu erum búin að vera rífast um: Hvort segir maður afarkostir eða aðalkostir? Svarið þessu í MESSAGES thingið..
Klussan er orðin seint, samt má ég lúra framm ettir *gottgottgottgottgottgott* Góða nótt & Sweeeeet dreams Asssholes
6.9.03
Long time No see!
Ég neyddist til að kveðja atvinnuleysið í gær, því ég byrjai að vinna í gettóinu (nettó.. hah) frá 10 til 7 var ég á kassa og segði lítið annað en góðandaginn.is og fleira? poka? 7345.kr eða 911kr.. FUN FUN FUN. Þetta var samt ágætt, samt held ég að þetta verði ekkert ágætt til lengdar, kannski doltið leiðinlegt til lengdar.. en ég veit það samt ekki, ætla ekkert að ákveða.. vera jákvæð og sæt.
Var að djúsa í gær.. byrjuðum bara heima að tefla uppá tekíla staup (og ÞVÍ MIÐUR tapaði ég illilega) og þar með fór það eins og það endaði.. heh! mæli ekki með tafl-tekíla-keppni.
Veit ekki hvert planið er 2night en það er víst e-h dansiball með Douglas Wilson (Stebbi Jak og co) á Oddvitanum (og jáááá bjórinn er á 300kr) vi ikke samt. Er eiginlega í engum stemmara fyrir neitt djamm & djús *dæs*
Veit eiginlega ekki skít hvað ég á lengur að skirfa í þetta dásemis blogg mitt.. við erum komin með ADSL og tölvan og netið er alltaf í gengi og endalaust downloadað.. afar mikilvægt að notfæra sér allan þann kost sem hægt er.
GOD, ég nenni ekki meiru, Magga talað svo mikið og er reið afþví ég svara ekki ;/ og Björgvin GULLgáfaði hélt að það væri ok að háma í sig heila kókosbollu og fá sér síðan bjór.. fattaði ekki að það gerist það sama og þegar marr borðar kók og bollu.
gaman.
2.9.03
verið velkomin í heimsókn til okkar.. massa sættt hús og erum búin að gera heví kósí.. erum að setja upp ADSL og þá verður bloggað að krafti en þangað til ;/
oggg jááá ég er komin með vinnu í nettó glerártorgi, ég vænti þess að sjááá allllla sem lesa þessa síði og líka alla hina þar, alla daga.. alltaf! (:
lífið er yndislegttt.. sjáðu, það er rétt að byrja HÉR (",)
gottt mál, allan hriginn í heilu lagi.. wúhí
28.8.03
fáum íbúðina á morgun.. vííí.
var í sundi er með tonn af freknum, dont know why. er eiginlega pottþétt komin með vinnu í nettó. skímó á laugardaginn, ammælisveisla á morgun fyrir kidda frænda sem á btw ammæli í dag, það verður massa veisla og drykkja (: húrrra, alcohol alcohol here i come. var líka að framkalla myndir síðan í sumar, eiginlega bara myndir af henni lindu rós minni, en það er ekki verra.
rúnar og ranna voru að eignast litla prinsessu, 53,5 m og 16,5 merkur.. vííí gaman gaman.
magga mín og björgvin koma á laugardaginn og þá byrjað geimið 4real.
ljós og ríkið
26.8.03
uuu... jáhá!
löt.. nenni ekki, seinna. erum komin á ak. fáum íbúðina á föstudaginn og ég er örugglega komin með vinnu í nettó.
gamna gamna.. laterrrr
11.8.03
Bara tvær vikur þangað til við flytjum á Akureyri.. úúú (: mikið hlakka ég rosalega til. Fáum reyndar ekki íbúðina fyrr en 28. þannig að það stefnir í nokkra heimilslausadaga hjá okkur.. nehh kannski ekki, ætli þaa, við fáum bara að vera hjá ástkæra bróðir mínum og hans co.
Ég á ekki svo lítið sem tvær vaktir ettir í þessari holu and then im gone *líktoghversupíbíhleypurhratt* þarf að fá breytingu á vaktini á næsta laugard. því það er kvöldvakt og ég nenni sko ekki fyrir minn litla rass og vera á kvöldv. á laugardegi enda erum við mellumúsin ein heima þá og við vorum að spöggulera íðí að gera e-h okkur til skemmtunar (; pottþétt djúsa allavegna, grilla, gítar, rósir og vín, eða e-h.
Vóóttz, þvílíkt hvað maður getur verið formlegur og fallegur e-h þegar maður sækir um störf. Var að fylla út nokkrar umsóknir á netinu, á meðan skrifinu stóð hjá mér var ég með englabaug líkt og þegar ég hringji og sæki um störf: "Góðan dag, Viktoría heiti ég Jóhannsdóttir og ég var að spá í hvort það væru einhver laus störf hjá ykkur fyrir mig *brosígengumsíman*" stundum gæti ég ælt af sjálfri mér, ég er heppin að engin hefur heyrt í mér í þessum samtölum.
á laugardaginn skruppum við á Egilsstaði ettir 4tíma svefn hjá mér. Þar var hin geyssssi vinsæla Bylgjulest á ferðinni. Ég keypti mér tvo boli, einn disel bol og einar disel gallabuxur.. ég var mjöggg hamingjusöm með þau kaup. Hommakrúttið keypri sér búddabol og gegt ógó töff jakka, mega sakí í honum. Reyndar á ég alveg eins gallabuxur og ég keypri mér en ég vildi kaupa mér minni, ég var í einhverju skrítnu skapi þegar ég keypti hinað og keypti þær 4 númer of stórar og vildi hafa þær svoleiðist, þá. Þegar ég var búin að ganga ofan á þeim í langan tíma og þurfti alltaf allavegna 10 belti við þær þá dóneitaði ég Lee nokkrum Tiger þær, enda er ég búin að vera með einar disel buxur sem hún "á" (mjög langt því frá að hún eigi e-h í þeim lengur, því ég er búin að klippa þær og kjassa) í nokkur ár og þær eru líka UPPÁHALDS buxurnar mínar. Minnir mig á það, Lee Ann kom heim í dag, hún var að spóka sig útí Bretó hjá föður sínum og akkúrat þegar asnaprikið var þar var auðvita mesti hiti sem mældur hefur verið í London! pæliðiíðí.. 37stiga hiti á nóttuni, þá er nú betra að vera hénna á vopnó með þokuna í rassgatið og rigninu í lofinu! húrrra.
Ég er að fucking missa mig í aðsækjaumstörf thing.. vóóttz, ég er bún að senda svona 25-40 mail bara í nótt á alla staði á akureyri! ég vissi ekki einu sinni að það væru til svona margir staðair í þessum bæ, en svona er lífið.. já svona er lífið maður.
Litla hommakrúttið mitt er alveg FÁRveikt.. alltaf veikur þessi kall. Hann er með hita, beinverki, kvef og hnerra og hósta og svita og allan pakkan!
Heh, sætt þetta hommakrútt og mellumús (",) enda erum við tvö líka baarrrrra sæt.
Allavegna, héðan í frá vill ég bara verið kölluð miskunsami samverjinn , ég var að spjalla við hana Laufey vinkonu mína og þegar hún áttaði sig á hvað ég héti (þó ég hafi sagt það við hana á hverjum degi í allt sumar) þá sagði hún að ég væri miskunsami samverjinn ég kýs að trúa því og mun nú halda á spor hins miskunsama samverja
takk fyrir pent.
Viktoría miskunsami samverjinn
9.8.03
Ég vill byrja á því að þakka mínum ÁSTkæru aðdáendum og öllum þeim sem hafa stutt mig og staðið við bakið á mér í öll þessi ár í bloggbranzanum. Að taka við þessum verlauðum sem efnilegasti og jafnframt BESTI bloggari sögurnar (þá er betu & katrin.is skotið ref yfir sveittan rass) er eins og að fá góða flóaða mjólk fyrir lítin sem langan dúr/lúr/napp/svefn/sund/tanntöku (kúl, rímar) Ég þakka.
Vaktin er over.. búrið bíður, rúllupilsan sem ég kaupti í bónus er líka búin svo það krefst hugsunar hvað skal leggja sér til muns.. minnir mig á það, fallegi frændi minn
Ást&Friður
5.8.03
Má til með að spyrja, er það einhver þarna úti sem les þessa síðu?!?
Semsagt bekktútheeríaletí *dæs*
Helgin er búin að vera mjöggg góð, þakka ykkur kærlega fyrir! Var á næturvakt á fimmtudagsnóttina og við lögðum bara af stað strax ettir hana, ég vakti í rúma 30tíma á fimmtudag-föstudag. Við kíktum aðeins á kontrí á föstud. þá alltíeinu mundi ég það hvað ég hata skagga mikið *hrollur* ég meina það, þetta er séstakur "þjóðflokkur" sem god knows what hvað ég hata mikið, ég byrjaði bara að svitna eins og göttótt múrmeldýr og vissi hvorki upp né niður þegar ÉG keyrði inná staðinn. Ég var semsagt driver með hommakrúttið, Íju gömlu (kommmon, anna var klædd í leggins, göttóttpils, dreifbýlisbomsur, vindjakka og íþróttabol, hvað getur maður annað sagt?) Grétu og Vóva.. fórum í sökkes partí eins og við var að búast á skagaströnd, kíktum á Bakkan þar sem e-h var að liði, betra liði en á skagast. því þar voru staddir dósarar.. sem alltaf er gaman að hitta!
Á laugardaginn var VEISLA.. shitafucka! Grillaður humar, lambasteik og læti.. Jón reddaði langferðabíl á ströndina (dont ask me) pabbi mætti með gítarinn og þessu má lýsa sem "MEGA STEMMARA".. svo bara bakkinn og endaði með alltof miklu áfengi, hommakrúttið farið hjem, ég ein.. þurfti að labba marga marga kílómetra heim.. EIN ég bölvaði allan tíman og lá svo allan sunnudaginn í vesæld, reyndi að keyra uppí essó en hommakrúttið mitt tók við af mér! ég var ekki að meika linan skít.
Litla skaðræðisskepan mín offurstin Emblantínuz var í BANANANstuði alla helgina, elskar Elías sinn enn meira en um páskana og er bara í góðum gír.
GUÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐ það er langt síðan ég hef orgað svona úr hlátri. Á popptíví í 70mín voru þeir þessir þroskheftur gæar að endursýna vinnustaðahrekkina sína.. þetta bara mun bjarga vikuna hjá mér.. mér er illt í maganum bara! Þetta eru nokklega SKAÐræðisskepnur en alveg helvíti ansk. fyndnar skepnur! Svo komst ég líka að því að Auðunn Blöndal (STÓR frændi minn) og Sverrir Bergmann búa saman.. sweet mama!
Allavegna.. mellumúsin kveður og hlakkar meira en mest til að komast í bælalælið sitt og lúlla af sér eyrun.. btw, þá er ég með legusár á báðum eyrunum! *fusss&sveiii*
Hvar vast þú um versló?
Ég var allavegna á dósini..
1.8.03
Barasta einn klukkutími ettir.. INDÆLT!
Við erum að fara heim á ettir, ætlum okkur að leggja af stað um hálf 9, þannig að ég lúri bara í bílnum! Það verður eflaust massa umferð.. ææ, það þýðir lengi á leiðini, enn lengra þangað til ég hitti, Emblu og co! Þurfum að stopppa á Ak, ég þarf að skirfa undir fullt af blöðum í Petro myndum, Centro, Blómaval, Rúmfatalagernum og e-h. Var að sækja um á þessum stöðum og gullt fleirum, ég átti bara að koma og sýna mig og sjá aðra. Og svo var marr auðvita að fá útborgað og við ætlum að reyna eyða einhverjum péning í föt og e-h.. auðvita er það bara gott mál.
Má til með aðð senda Kristjáni nokkrum Blöndal sms, því hann má til með að muna að taka jakkan hennar Birnu sem er búin að vera "týndur" heima hjá honum síðan söngvakeppnishelgina frægu!
djöfull langar mig samt á Ak núna. Gítarstemmari, tjald, sjóarabuxur, lopapeysa og eitt gott tígó í hárið..
Farin á dósina!
Skirfið mér e-h sætt og fínt...
28.7.03
Jelllóóó..
Maður var mættur í Höllina klussan 8 í morgun, þar var enn sæmilegt geim.. dauði hér og þar AÐALEGA þar samt en mæónsið orðið gult og Halli og co komnir í bleyti. Dýrið sem ég pikkaði upp var orðið svooo blindhaugapissstjörnufullt að það var ekkert normal, tók innan við ekki neitt að drepast.. ég náði nokkrum gullfallegum myndum af Spenalingnum í slefi sínu og þær verða sýndar hér við gott tækifæri, MÚHAHAH! Hann man ekki einu sinni ettir að ég tók þær.
Ég var að skoða ný uppfærða síðu hjá Kidda sæta frænda og fann þar myndir af famelínu minni.. suss (: t.d af pabba, Rúnsa & Ásgeiri & hér er hún amma mín & pabbi mættur með gítarinn og Rúnsi að syngja heh.. þetta er snarrruglað lið en samt besta lið.
Svo fann ég nokkrar myndir af Baldrinu, dance baby, and.. og líka eina af honum elskulega Ásgrími mínum.
Ég hef lítið sem ekkert að gera og er bara að ráfast e-h. Nenni ekki að blogga meira, spá í að klára það litla sem ég á ettir og halda svo áframa lesa í rauðu seríu bókinni minni, Ást sem endurgjald.. spennó!
Bæjó
27.7.03
Vopnaskak á enda.. ekki að það sé einhver sorg eða leiðindi mín vegna.
Ég fór í gær á ball með Í svörtum fötum, það var skít fucking sæmó! Nehh.. þetta var fínasta fínatsa dansiball. Ég var bláedrú, gerði samt heiðarlega tilraun til að dettaíða en það tókst ekki, spitir engu máli samt! Einherji tók Sindra í þurrt rassgatið á föstudagskveldið, 4-1 og ég hélt að gellurnar í bílnum hjá mér myndi algjörlega missa sig þegar Stefáni nokkrum GULL var skipt inná.. heh, naglinn bara mættur fremst (Rut mín, hann er æððiber) teiti hjá Bidda og ball.. dansaði allan tíman við Massan sjálfan, við komumst að því ettir ballið að fólk fékk örugglega ælupest af okkur (: en það er þá bara alltílæi, ædóntker! Kíktum aðeins í Höllina þar sem var aragrúii af fullt af fólki í öllum kvikindis líkjum! Af gefni tilefni skal taka framm að vera edrú þýðir að maður endað í að "slökk elda allover the place" hugga mann og annan og gefa ráð um hitt og þetta & on & on & on! ég veit ekki hvað hefur hlaupið í mig.. að verða bara ekki fúllur, þetta þekktist ekki hénna í den.. jújú, jájá! Nóttin endaði í göngutúr heim, sammara, jarðaber og kringlu.. klóstferð og áður en Spenalingurinn var komin í bælið var litli dýrið sofnað en ég kveikti bara á New guy og lúrði yfir honum!
En ég var að skoða myndir á hrapp og ég sé að gellurnar á dósini kunna enn að dettaíðafáséraðríða.. Anna beibí, Sylvó sæti, Annza & Elva, Vóvi komin VEL í glas, Tigerinn & THE guy heh uu.. Jáá, Jóna! Æææ.. ég hefði svo vilja vera þanna, en maður getur víst ekki verið allstaða! God.. Lee fyllibytta sumarins 2003 var að hringja, bjálað partí heima hjá tigernum og ég hér! og fucking vopanfirði.. ansk. það voru allir þanna! heh.. snild samt.
Ég hlakka svooo til að fara hjem um næstu helgi.. dásamlegt alveg hreint. Veit enn engin neitt um hvort e-h verður í Miðgarði um versló? haaa?
Ásgrímur sakaði mig að skrifa aldrei neitt skemmtilegt, þetta er náttúrlega bara kjaftæði í drengum, enda veit hann ekki skít, sagði mér að blogga e-h um grettuna mína hérna úti við áðan, Ásgrímur.. þetta var bros hjá mér (:
Núna eru menn orðnir allverulega þreyttir og pirraður! Brjálað geim í höllini núna and im working! HATE IT
Smelly Cat, Smelly Cat,
What are they feeding you?
Smelly Cat, Smelly Cat,
It's not your fault
23.7.03
Suss.. lufsulegt blogg hjá mér í gær.. enda var þetta hálf lufsulegur dagur!
Reyndar var næturvaktin í gær frekar spúkí, það var rafmagslaust á öllu ladinu í gær í einhvern hálftíma og ég var auðvita á næturvakt.. ég og Gunna frænka fengum nett (sumir kjósa að kalla það meira en nett) tauga-hjartaáfall.. ljósin byrjuðu að blikka og öll kerfinu í húsu fór í gang og við vissum ekki asshle hvað við ættum að taka til brags svo við hringdum bara í Laufey frænku, enda kom kjélling og reddaði málunum.. við búnar að kveikja á kertum og gera þannig allt sem í okkar valdi stór til að bjarga málunum.
Ég svaf í 16tíma í dag eða e-h, allavegna svaf ég frá 8 í morgun til 7 í kveld, fót á hundleiðinlegan fótboltaleik og Elías fór á Djúpavog að horfa á strákana í fóbó, hann mátti ekki vera með því hann fékk rauða spjaldið á föstudaginn í leiknum geng Hetti, sonna er þetta dýr.. heví fighter bara!
Jæja, nú er marr samt bara mættur í glamúrlífið, ég setti inn mailið á MSN hjá mér hjá meistara Betu og svo var alltíeinu bara komin Beta með bláa tugnu og byrjunin á vaktinu hjá mér fór í að ræða um Sigurjón Kjartans og diss frá hinum og þessum.. ég lofa að fá munnræpu næst esskna! Ívar trúi nú ekki að þetta væri sjálf Beta, hélt að þetta væri einhver að skirfa fyrir hana! heh.. þetta er nú bara litla ísland sem er nú samt ekki alveg eins og Hollywood, en samt líkt því.
Næsta helgi á víst að vera einhver massa helgi, en ég hlakka nú ekkert ógó til.. ég þarf einhver skemmtilegan til að djamma með, þetta pakk hér er ekkert súper skemmtilegt. Elías getur ekki djammað með mér, því hann er að fara keppa í fóbó á laugardaginn, BÖMMMER! og engin af strákunum og stelpurnar.. hmmummpp? dunno.
Það er endalaust hvað ég get ráfað og skoðaða og baukað á netinu! Ég kem sjálfum mér á ávart með þessari snild og gramsi mínu, susss *eins&SveppisegjirviðEið* þetta eru snilllldar auglýsingar.
Mig langar að vera heima sofandi við hliðina á maga massa naglanum mínum! Hann kom til mín í heimsókn í vinnuna í nótt og ég held að hann hafi dottað aðeins á þvottavélini, enda líka levg obbóslega þreyttur litla skinnið *blikk*
Ææ.. þreyta og nennikkke.
Helga Sverris er 19ára í dag & Inga Birna er 22ára.. gleðilegt ammæli!
22.7.03
Góðan og blesssaðan!
Var ekki einhver með kubb á dansiballinu á dósinni um helgina? ég barasta verð að sjá myndir að þessum ósköpum, ææ, ég hefði svo vilja vera þanna hjá ykkur! En það var var fínt stuð á Zanzibar (held að þetta sé skrifað sonna, hef samt ekki glæran gumma um það) allavegna mývó var fín fín fín í fríi í kína.. samt gerðist ekkert mikið, bara fun jamm, hefði samt miklu frekar vilja vera á dósantínuzunum!