Bara tvær vikur þangað til við flytjum á Akureyri.. úúú (: mikið hlakka ég rosalega til. Fáum reyndar ekki íbúðina fyrr en 28. þannig að það stefnir í nokkra heimilslausadaga hjá okkur.. nehh kannski ekki, ætli þaa, við fáum bara að vera hjá ástkæra bróðir mínum og hans co.
Ég á ekki svo lítið sem tvær vaktir ettir í þessari holu and then im gone *líktoghversupíbíhleypurhratt* þarf að fá breytingu á vaktini á næsta laugard. því það er kvöldvakt og ég nenni sko ekki fyrir minn litla rass og vera á kvöldv. á laugardegi enda erum við mellumúsin ein heima þá og við vorum að spöggulera íðí að gera e-h okkur til skemmtunar (; pottþétt djúsa allavegna, grilla, gítar, rósir og vín, eða e-h.
Vóóttz, þvílíkt hvað maður getur verið formlegur og fallegur e-h þegar maður sækir um störf. Var að fylla út nokkrar umsóknir á netinu, á meðan skrifinu stóð hjá mér var ég með englabaug líkt og þegar ég hringji og sæki um störf: "Góðan dag, Viktoría heiti ég Jóhannsdóttir og ég var að spá í hvort það væru einhver laus störf hjá ykkur fyrir mig *brosígengumsíman*" stundum gæti ég ælt af sjálfri mér, ég er heppin að engin hefur heyrt í mér í þessum samtölum.
á laugardaginn skruppum við á Egilsstaði ettir 4tíma svefn hjá mér. Þar var hin geyssssi vinsæla Bylgjulest á ferðinni. Ég keypti mér tvo boli, einn disel bol og einar disel gallabuxur.. ég var mjöggg hamingjusöm með þau kaup. Hommakrúttið keypri sér búddabol og gegt ógó töff jakka, mega sakí í honum. Reyndar á ég alveg eins gallabuxur og ég keypri mér en ég vildi kaupa mér minni, ég var í einhverju skrítnu skapi þegar ég keypti hinað og keypti þær 4 númer of stórar og vildi hafa þær svoleiðist, þá. Þegar ég var búin að ganga ofan á þeim í langan tíma og þurfti alltaf allavegna 10 belti við þær þá dóneitaði ég Lee nokkrum Tiger þær, enda er ég búin að vera með einar disel buxur sem hún "á" (mjög langt því frá að hún eigi e-h í þeim lengur, því ég er búin að klippa þær og kjassa) í nokkur ár og þær eru líka UPPÁHALDS buxurnar mínar. Minnir mig á það, Lee Ann kom heim í dag, hún var að spóka sig útí Bretó hjá föður sínum og akkúrat þegar asnaprikið var þar var auðvita mesti hiti sem mældur hefur verið í London! pæliðiíðí.. 37stiga hiti á nóttuni, þá er nú betra að vera hénna á vopnó með þokuna í rassgatið og rigninu í lofinu! húrrra.
Ég er að fucking missa mig í aðsækjaumstörf thing.. vóóttz, ég er bún að senda svona 25-40 mail bara í nótt á alla staði á akureyri! ég vissi ekki einu sinni að það væru til svona margir staðair í þessum bæ, en svona er lífið.. já svona er lífið maður.
Litla hommakrúttið mitt er alveg FÁRveikt.. alltaf veikur þessi kall. Hann er með hita, beinverki, kvef og hnerra og hósta og svita og allan pakkan!
Heh, sætt þetta hommakrútt og mellumús (",) enda erum við tvö líka baarrrrra sæt.
Allavegna, héðan í frá vill ég bara verið kölluð miskunsami samverjinn , ég var að spjalla við hana Laufey vinkonu mína og þegar hún áttaði sig á hvað ég héti (þó ég hafi sagt það við hana á hverjum degi í allt sumar) þá sagði hún að ég væri miskunsami samverjinn ég kýs að trúa því og mun nú halda á spor hins miskunsama samverja
takk fyrir pent.
Viktoría miskunsami samverjinn
11.8.03
9.8.03
Ég vill byrja á því að þakka mínum ÁSTkæru aðdáendum og öllum þeim sem hafa stutt mig og staðið við bakið á mér í öll þessi ár í bloggbranzanum. Að taka við þessum verlauðum sem efnilegasti og jafnframt BESTI bloggari sögurnar (þá er betu & katrin.is skotið ref yfir sveittan rass) er eins og að fá góða flóaða mjólk fyrir lítin sem langan dúr/lúr/napp/svefn/sund/tanntöku (kúl, rímar) Ég þakka.
Vaktin er over.. búrið bíður, rúllupilsan sem ég kaupti í bónus er líka búin svo það krefst hugsunar hvað skal leggja sér til muns.. minnir mig á það, fallegi frændi minn
Ást&Friður
5.8.03
Má til með að spyrja, er það einhver þarna úti sem les þessa síðu?!?
Semsagt bekktútheeríaletí *dæs*
Helgin er búin að vera mjöggg góð, þakka ykkur kærlega fyrir! Var á næturvakt á fimmtudagsnóttina og við lögðum bara af stað strax ettir hana, ég vakti í rúma 30tíma á fimmtudag-föstudag. Við kíktum aðeins á kontrí á föstud. þá alltíeinu mundi ég það hvað ég hata skagga mikið *hrollur* ég meina það, þetta er séstakur "þjóðflokkur" sem god knows what hvað ég hata mikið, ég byrjaði bara að svitna eins og göttótt múrmeldýr og vissi hvorki upp né niður þegar ÉG keyrði inná staðinn. Ég var semsagt driver með hommakrúttið, Íju gömlu (kommmon, anna var klædd í leggins, göttóttpils, dreifbýlisbomsur, vindjakka og íþróttabol, hvað getur maður annað sagt?) Grétu og Vóva.. fórum í sökkes partí eins og við var að búast á skagaströnd, kíktum á Bakkan þar sem e-h var að liði, betra liði en á skagast. því þar voru staddir dósarar.. sem alltaf er gaman að hitta!
Á laugardaginn var VEISLA.. shitafucka! Grillaður humar, lambasteik og læti.. Jón reddaði langferðabíl á ströndina (dont ask me) pabbi mætti með gítarinn og þessu má lýsa sem "MEGA STEMMARA".. svo bara bakkinn og endaði með alltof miklu áfengi, hommakrúttið farið hjem, ég ein.. þurfti að labba marga marga kílómetra heim.. EIN ég bölvaði allan tíman og lá svo allan sunnudaginn í vesæld, reyndi að keyra uppí essó en hommakrúttið mitt tók við af mér! ég var ekki að meika linan skít.
Litla skaðræðisskepan mín offurstin Emblantínuz var í BANANANstuði alla helgina, elskar Elías sinn enn meira en um páskana og er bara í góðum gír.
GUÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐÐ það er langt síðan ég hef orgað svona úr hlátri. Á popptíví í 70mín voru þeir þessir þroskheftur gæar að endursýna vinnustaðahrekkina sína.. þetta bara mun bjarga vikuna hjá mér.. mér er illt í maganum bara! Þetta eru nokklega SKAÐræðisskepnur en alveg helvíti ansk. fyndnar skepnur! Svo komst ég líka að því að Auðunn Blöndal (STÓR frændi minn) og Sverrir Bergmann búa saman.. sweet mama!
Allavegna.. mellumúsin kveður og hlakkar meira en mest til að komast í bælalælið sitt og lúlla af sér eyrun.. btw, þá er ég með legusár á báðum eyrunum! *fusss&sveiii*
Hvar vast þú um versló?
Ég var allavegna á dósini..
1.8.03
Barasta einn klukkutími ettir.. INDÆLT!
Við erum að fara heim á ettir, ætlum okkur að leggja af stað um hálf 9, þannig að ég lúri bara í bílnum! Það verður eflaust massa umferð.. ææ, það þýðir lengi á leiðini, enn lengra þangað til ég hitti, Emblu og co! Þurfum að stopppa á Ak, ég þarf að skirfa undir fullt af blöðum í Petro myndum, Centro, Blómaval, Rúmfatalagernum og e-h. Var að sækja um á þessum stöðum og gullt fleirum, ég átti bara að koma og sýna mig og sjá aðra. Og svo var marr auðvita að fá útborgað og við ætlum að reyna eyða einhverjum péning í föt og e-h.. auðvita er það bara gott mál.
Má til með aðð senda Kristjáni nokkrum Blöndal sms, því hann má til með að muna að taka jakkan hennar Birnu sem er búin að vera "týndur" heima hjá honum síðan söngvakeppnishelgina frægu!
djöfull langar mig samt á Ak núna. Gítarstemmari, tjald, sjóarabuxur, lopapeysa og eitt gott tígó í hárið..
Farin á dósina!
Skirfið mér e-h sætt og fínt...
28.7.03
Jelllóóó..
Maður var mættur í Höllina klussan 8 í morgun, þar var enn sæmilegt geim.. dauði hér og þar AÐALEGA þar samt en mæónsið orðið gult og Halli og co komnir í bleyti. Dýrið sem ég pikkaði upp var orðið svooo blindhaugapissstjörnufullt að það var ekkert normal, tók innan við ekki neitt að drepast.. ég náði nokkrum gullfallegum myndum af Spenalingnum í slefi sínu og þær verða sýndar hér við gott tækifæri, MÚHAHAH! Hann man ekki einu sinni ettir að ég tók þær.
Ég var að skoða ný uppfærða síðu hjá Kidda sæta frænda og fann þar myndir af famelínu minni.. suss (: t.d af pabba, Rúnsa & Ásgeiri & hér er hún amma mín & pabbi mættur með gítarinn og Rúnsi að syngja heh.. þetta er snarrruglað lið en samt besta lið.
Svo fann ég nokkrar myndir af Baldrinu, dance baby, and.. og líka eina af honum elskulega Ásgrími mínum.
Ég hef lítið sem ekkert að gera og er bara að ráfast e-h. Nenni ekki að blogga meira, spá í að klára það litla sem ég á ettir og halda svo áframa lesa í rauðu seríu bókinni minni, Ást sem endurgjald.. spennó!
Bæjó
27.7.03
Vopnaskak á enda.. ekki að það sé einhver sorg eða leiðindi mín vegna.
Ég fór í gær á ball með Í svörtum fötum, það var skít fucking sæmó! Nehh.. þetta var fínasta fínatsa dansiball. Ég var bláedrú, gerði samt heiðarlega tilraun til að dettaíða en það tókst ekki, spitir engu máli samt! Einherji tók Sindra í þurrt rassgatið á föstudagskveldið, 4-1 og ég hélt að gellurnar í bílnum hjá mér myndi algjörlega missa sig þegar Stefáni nokkrum GULL var skipt inná.. heh, naglinn bara mættur fremst (Rut mín, hann er æððiber) teiti hjá Bidda og ball.. dansaði allan tíman við Massan sjálfan, við komumst að því ettir ballið að fólk fékk örugglega ælupest af okkur (: en það er þá bara alltílæi, ædóntker! Kíktum aðeins í Höllina þar sem var aragrúii af fullt af fólki í öllum kvikindis líkjum! Af gefni tilefni skal taka framm að vera edrú þýðir að maður endað í að "slökk elda allover the place" hugga mann og annan og gefa ráð um hitt og þetta & on & on & on! ég veit ekki hvað hefur hlaupið í mig.. að verða bara ekki fúllur, þetta þekktist ekki hénna í den.. jújú, jájá! Nóttin endaði í göngutúr heim, sammara, jarðaber og kringlu.. klóstferð og áður en Spenalingurinn var komin í bælið var litli dýrið sofnað en ég kveikti bara á New guy og lúrði yfir honum!
En ég var að skoða myndir á hrapp og ég sé að gellurnar á dósini kunna enn að dettaíðafáséraðríða.. Anna beibí, Sylvó sæti, Annza & Elva, Vóvi komin VEL í glas, Tigerinn & THE guy heh uu.. Jáá, Jóna! Æææ.. ég hefði svo vilja vera þanna, en maður getur víst ekki verið allstaða! God.. Lee fyllibytta sumarins 2003 var að hringja, bjálað partí heima hjá tigernum og ég hér! og fucking vopanfirði.. ansk. það voru allir þanna! heh.. snild samt.
Ég hlakka svooo til að fara hjem um næstu helgi.. dásamlegt alveg hreint. Veit enn engin neitt um hvort e-h verður í Miðgarði um versló? haaa?
Ásgrímur sakaði mig að skrifa aldrei neitt skemmtilegt, þetta er náttúrlega bara kjaftæði í drengum, enda veit hann ekki skít, sagði mér að blogga e-h um grettuna mína hérna úti við áðan, Ásgrímur.. þetta var bros hjá mér (:
Núna eru menn orðnir allverulega þreyttir og pirraður! Brjálað geim í höllini núna and im working! HATE IT
Smelly Cat, Smelly Cat,
What are they feeding you?
Smelly Cat, Smelly Cat,
It's not your fault
23.7.03
Suss.. lufsulegt blogg hjá mér í gær.. enda var þetta hálf lufsulegur dagur!
Reyndar var næturvaktin í gær frekar spúkí, það var rafmagslaust á öllu ladinu í gær í einhvern hálftíma og ég var auðvita á næturvakt.. ég og Gunna frænka fengum nett (sumir kjósa að kalla það meira en nett) tauga-hjartaáfall.. ljósin byrjuðu að blikka og öll kerfinu í húsu fór í gang og við vissum ekki asshle hvað við ættum að taka til brags svo við hringdum bara í Laufey frænku, enda kom kjélling og reddaði málunum.. við búnar að kveikja á kertum og gera þannig allt sem í okkar valdi stór til að bjarga málunum.
Ég svaf í 16tíma í dag eða e-h, allavegna svaf ég frá 8 í morgun til 7 í kveld, fót á hundleiðinlegan fótboltaleik og Elías fór á Djúpavog að horfa á strákana í fóbó, hann mátti ekki vera með því hann fékk rauða spjaldið á föstudaginn í leiknum geng Hetti, sonna er þetta dýr.. heví fighter bara!
Jæja, nú er marr samt bara mættur í glamúrlífið, ég setti inn mailið á MSN hjá mér hjá meistara Betu og svo var alltíeinu bara komin Beta með bláa tugnu og byrjunin á vaktinu hjá mér fór í að ræða um Sigurjón Kjartans og diss frá hinum og þessum.. ég lofa að fá munnræpu næst esskna! Ívar trúi nú ekki að þetta væri sjálf Beta, hélt að þetta væri einhver að skirfa fyrir hana! heh.. þetta er nú bara litla ísland sem er nú samt ekki alveg eins og Hollywood, en samt líkt því.
Næsta helgi á víst að vera einhver massa helgi, en ég hlakka nú ekkert ógó til.. ég þarf einhver skemmtilegan til að djamma með, þetta pakk hér er ekkert súper skemmtilegt. Elías getur ekki djammað með mér, því hann er að fara keppa í fóbó á laugardaginn, BÖMMMER! og engin af strákunum og stelpurnar.. hmmummpp? dunno.
Það er endalaust hvað ég get ráfað og skoðaða og baukað á netinu! Ég kem sjálfum mér á ávart með þessari snild og gramsi mínu, susss *eins&SveppisegjirviðEið* þetta eru snilllldar auglýsingar.
Mig langar að vera heima sofandi við hliðina á maga massa naglanum mínum! Hann kom til mín í heimsókn í vinnuna í nótt og ég held að hann hafi dottað aðeins á þvottavélini, enda líka levg obbóslega þreyttur litla skinnið *blikk*
Ææ.. þreyta og nennikkke.
Helga Sverris er 19ára í dag & Inga Birna er 22ára.. gleðilegt ammæli!
22.7.03
Góðan og blesssaðan!
Var ekki einhver með kubb á dansiballinu á dósinni um helgina? ég barasta verð að sjá myndir að þessum ósköpum, ææ, ég hefði svo vilja vera þanna hjá ykkur! En það var var fínt stuð á Zanzibar (held að þetta sé skrifað sonna, hef samt ekki glæran gumma um það) allavegna mývó var fín fín fín í fríi í kína.. samt gerðist ekkert mikið, bara fun jamm, hefði samt miklu frekar vilja vera á dósantínuzunum!
17.7.03
3tímar ettir að þessari vakt.
Ég er eiginlega ekki neitt þreytt, enda svaf ég frá 12 í dag til 6.. þannig að það er kannski skiljanlegt að ég sé ekkert að deyja úr þreytu.
Ég hef skynjað mikla reiði og biturleika í henni Perlu minni.. en gleðifréttir fyrir ykkur þanna í Egilstaðar city, ég held að planið sé að koma á föstudaginn og horfa á einhvern fúsbol geim og fá sér meibí einn, tvo, þrjá, fjóra, fimm, átta, sextán bjór? haa? Held að það sé ágætis plan (: ég lofa samt ekki að ég eyði nóttu þarna en í nokkra kls skal mín viðvera standa! Stöööððð.. Hvernig líst þér á það elskan? Við þurfum að komast attur í bílinn góða, þar sem við eyddum öllu sleðaballinu í að tala um stráka, fyllerí og heimskupör.. heh, do u rember Perloz? stupit we, en það er hollt og gott að tala um þessa hluti.
Allavegna, þá held ég að þetta írafárarara bannsetta ball verði ekki en mér er alveg sama, því við Peter North ætlum nú bara samt í mývatnsveitina og kíkja á þennan líka fína bar (sem er ekki búið að taka nema kannski 8mánuði eða e-h að komast í gang) þar er stafsfókið alveg eðal.. t.d Birna nokkur Hjaltalín, maður hennar, RagnarB sæti Jónsson, eðalnaglinn Frosti Sigurðarsson.. yeahh og e-h lið! allavegna, jamm í mývó.. fari írafár til helvítis!
Gleði.. fullt fullt sem ég get dundað mér við að lesa á ettir hjá stórkvendinu Betu gleði&hamingja.. hehe ég er fullkomlega sammála henni með þessa dásamlega sorglegu manneksju ææ, það á kannski ekkert að vera gera grín af henni.. er hún ekki þekktust fyrir þessi rifrildi sín á netinu við hina og þessar bloggara?.. what ever! SAD segji ég og skrifa! heh.. samt Beta rokkar, ég sé það alltaf meira og meira! Hörku gella.
Núna er klussan orðin 5 yfir 7.. þannig að það er lang ettir að þessum degi, spá í að fara heim, fá mér kókópuffs, spritten mæ self og setja friends eða bíða til 9 og horfa á glæstar.. hmm?
Já fyrir utan hvað Pétur elskan mín og yndi er ótrúlega kynþokkafullur og gull af manni þá er hann alveg ægilega sætur og hefur allt sem góðan mann ber að hafa! Vill einhver eiga hann? Ég set sjálfan mig í veð uppá þetta allt saman.. hann er æðiber í boru, ég meina það! 10fingur upp til Seifs! Talið bara við mig ef einhver kærir sig um þennan yndissvein.. Ég er líka með myndir af honum.. MÚHAHAHAHHA, love ya hon ;*
14.7.03
Góðan daginn! Aðeins einn klukkutími ettir að þessari næturvakt, svo er ég á morgunvakt á miðvikudaginn og næturvakt og also næturvakt á fimmtudag og á morgunvakt á föstudaginn og þá er ég komin í frííí. Var að kíkja á Promo og þar stendur að það sé Ýdala ball með Írafár.. kay kay kay, Ási, við erum semsagt á leiðinni í Ýdali um næstu helgi!! vííí & veiii! Reddum driver og þá er málið leist! Guð, ég hlakka svo til að fá Ásantíuz heim, sakna hans alveg obbbbóslega, eigum við ekki að taka Peter North (Kristins, hver er munurinn) með oss? Æææ.. nú er ég farin að hlakka til og það er bara mánudagur *dæs* Vona að þetta verði ekki eins og seinustu tvö skipti, heh.
Ég þarf samt að gera ýmislegt (það verður samt að skipta þessum verkefnum niður á daga, like Joey do) fara í klipppó, mig vatnar soo strípur í hárið, nenni ekki að vera sonna dökkhærð lengur! Svo þarf ég að senda e-h bréf í bankan á dósinni og fara í apótek. Ég pant ekki sofa lengi í dag, ætla að vakna e-h um 3, ef Elías pelías gleymir ekki að vekja mig.. nehh, trúi því ekki uppá kallinn!
Yeahh.. ritaði svo mikið í gær að ég get ekki neitt núna!
Allavegana, hver hefur áhuga (eða ætti ég kannski að spyrja, hver hefur ekki áhuga) á að koma með mér og Ása kúreka á djúserí um næstu helgi? (",)
Kveðð, bye!
13.7.03
Núna er allt að gerast. Cokkiesið er farið (því ég er jú snillingur) og ég get loggað mig inná blogger og komist á hotmailið mitt.. gaman gaman! Ég var alveg búin að skirfa alveg heilan helvítis helling hénna áðan en neiii, þá klikkaði þessi helvítis druzla.
Þar sem það eru 11dagar síðan ég ritaði stakan staf í þetta guðslifandi fallega blogg mitt þá hef ég margt að segja, efast samt um að ég hafi orku í það allt, því klussan er nú bara 06.04 að morgnu til..
Well Well Well.. við rassbjúgun Elías erum búin að keyra hringinn á 3dögum! Lögðum af stað á seinsta þriðjudag, stoppuðum á fásk til að spila one footballgame, keyðrðum svo í gengum þúsund firði sem ég man ekkki hvað heita, Stöðvafjörður, Breiðdalsvík, lúrðum á einhverjum sveitabæ með konu með alvarlegan klofinpersónuleika (að við höldum) & fuckings þremur köttum (sem btw, öskruðu þegar Elías ætlaði að klappa þeim, og ég með mína kattarfóbíu þá þurfti ég að gera það sem ég er mest hræddust við það að snúa baki í kött *hrollur* það var slæm tilfinng, *suss*) og einum hundi og einum sleða, sem var þúsund tonna hundur. Svo fórum við til vin hans Elíasar í litlu essó sjoppuni á Höfn, hann gaf litla greinu 2 stimpla í essó bókina sína og uppfrá því var hann besti vinur hans Spena (: þvílík hamingja! Borðuðum á Kirkjubæjarklaustri, vírd.. ég sá enga kirkju þar eða klaustur, sko enn og attur er maður narraður! Og það var engin sól.. Veðurstofukallinn á gufunni segir alltaf að það sé súper mega gott veður þar (heii, pælið ef þessi gamli kall eða kona sem les alltaf veðurfréttirnar myndu segja, súper eða massa gott verður á Fagurhólsmýri eða e-h) yeahh.. hvað vita þessir veðurfræðingar, ekki jack shit. Þaðan keyðrum við allavegna á Selfoss.. og mættum þar beint í ammælispakkakaup handa Aroni Frosta, Sváfum í sumarbústað rétt hjá Selfossi og fórum svo á fimmtudeginum 10.Júlí í 2ára ammæli hjá litla dýrinu (: við keyptum alveg heilan helling handa honum, skó, bol, markmannshanska, e-h að dóti, boxera og e-h.. svo keyrðum við á Dósina (paradís á jörð) þar hitti ég fyrir nokkrar beibsur t.d Lee Ann nokkra Maginns, Jónantíunz ((again Tigerinn)) & auðvita meistara Önnu og heiðursmanninn Sylvó.. það var annas helvíti gott að komast aðeins heim, þó að þetta hefði verið bara ein nótt. Síðan fórum við á Ak, verluðum í drottins himnaríki Bónus og svo á Mývó, hittum þar Frosta nokkurna Sigurðarsson nýyýý komin hjem fra Roskilde (djö. er marr sleipur í dönskunni *usss*) og settum svo í fluggírin sem er víst á þessari elsku og beint á Vopnafjörðin þar sem Spenlingurinn átti að spila fúsbol leik um kveldið en neii, honum var frestað ég það gleymist að láta slíkan lykilmann í liðiu eins og Elías vita! Sveiii attan.. snáfaðu þarna, fuglar/rottur/mýs/grís í mínum bíl!
Þetta var semsagt massaferðalag, ég t.d keyðri á þjóðveginum landsins í fyrsta skipti (fyrir utan eitt skipti með Selmu ökukennara til rvk, en það endaði ekki vel, því ég sofnaði undir stýri rétt hjá Staðaskála, kommmon.. klussan var 10 að morgni til ((yeahh, það eru 2ár síðan)) maður var óreyndur driver þá) heheh.. ég var meira að segja svo góður driver að Elías sofnaði strax og ég tók við.. semsagt smúúððð og góður driver.
Næstu 3helgar eru svo djamm, enda hef ég ekki djammað í 2helgar.. það er komið að uppsöfnðu jammi, Um næstu helgi eru það ýdalir (: yeahh yeahh yeahh! Eina ferð í viðbót. Svo um þarnæstu eru í svörtum fötum á Vopnafiðri, ég á að vera að vinna en kjéllingarnar vorkendu mér svo mikið að komast ekki á ball að þær ætla að reyna að redda þessu einhvernig fyrir mig. Svo helgina ettir það er Versló.. jibbí jeii jibbbí jeiii, þá erum við að spá í að kíkja á Dósina. Mamma og pabbi lokkuðu Elías með því að segja að hann fengi grillaðan humar og fleira góðgæti og þar með erum við mætt. Litli skæruliðinn og faðir hennar ætla líka að mæta og Kántríið hefur staðið fyrir sínu í nokkur ár og það gerir það eflaust aftur. Faðir minnn tilkynnti með með aðdáun að Brimkló tæki saman ettir þúsund ár og spiluðu á Kántrí.. svo maður er víst mættur á Brimklóarball eins og fínn maður og svo er það eflaust Miðgaður. Anna og Sylvía verða heima um verlsó, en Tigernn er að fara í menningarferð til London, heimsækja pabba sinn og e-h. Er ekki líka bara Miðgarður um versló, veit einhver það, hvort það verði samkunta í Central park um versló.. Speni hefur aldrei komið þanagað og má til mað að testa það.
Það eru ekki svo margar mínótur ettir af vinnun og ég á ettir að lesa heilt mannlífsblað.. gotttttt2go!!
Elska ykkur og ég verð massadúleg núna aða rita e-h blessunarlega skemmtilega vitleysu, hvernig líst mannfjöldanum á það? *fagnaðlætinbrjótastút*
2.7.03
Loxins loxins loxsins!!
Ég hef saknað ykkar.. í alvöru! Tölvan í vinnuni vill ekki logga mig inn og það er ekkert módel í minni tölvu, allt Elías "reddara & ekkert mál" kenna. Hann var að formata hana fyrir ca.3 vikum eða e-h oh það er víst ekki enn komin inn, en er samt alltaf á leiðinni.
Ég var að fá útborgað í dag, fékk e-h doltið yfir 100þús, það er fínt. Ég er á Ak núna (er í tölvunni hans KIdda frænda) komum í dag og förum á morgun, fórum á skíta mynd áðan heimskur heimskari enn meira e-h harry meet im carrey.. man ekki hvað hann hét, Jóndi e-h! Ég sofnaði í bíóinu.. skítur! Ég ætla að kaupa mér föt á morgun, þarf jakka og bolI og ýmistlegt fleira.
Mamma og pabbi ætla að koma á Vopanfjörð um næstu helgina, það verur mjögg gott, ætlum að gera e-h, veit samt ekki alveg hvað það verður, e-h skemmtilegt, long time no see.
Ég, Elías og Björgvin nokkur Möggukall ætlum að búa saman í haust. Við verðum í íbúð sem mamma og Kalli hennar Möggu darlig eiga, það verður örugglega fínt.. allavegna ætlum við að láta reyna á þetta. Annas efast ég um að hann Björgvin verði með e-h vesen, eða kannski.. hann er meibí sonna leyni-vesenisti, eða neehh, Magga væri eflaust búin að segja mér að (: Og þetta allt saman þýðir að maður býr nánast með Möggu.. LOVELY! Það verður skrítin en mjögg góður draumur.
Ég hitti Sigríði ráðskonu áðan, ætla að hitta hana á morgun! Ég sakna allra.. ég sakna allra! Ég vildi að ég gæti búið til eitt land með bara uppáhaldgellunum og gæunum mínum, það væri helvíti sneddí! *dæs* Hlakka mikið mikið til næsta haust!
Skrifa meira á morgun, verð að nýta mér að horfa á SKJÁEINN.. auðvita er ekkert sollis á Vopnó! Sorry Elías,
gelgjabarnalegvælahhyeahh
Back.. ég skirfaði greinilega yfir 00.00 í gær, þannig þetta kemur allt saman, WHAT EVER!
Sváfum bara helvíti vel, þökk séé Kristjáni nokkrum Blöndal og hann á allt gott skilið. Vöknuð samt kl.9 við einhver gáfumenni "falsa-fúlsa-fansla" húsið að utan.. það sagði Elías allavegana.. allavegna þeir voru með háþrýstidælu og voru að taka gömlu mállinguna af.. mikil læti og vesen! En við sváfum það af okkur til 11, það var fínt. Hugsuðum bæði það saman í morgun.. bakarí. Þetta er farið að hræða mig, við erum með tvo heila (það held ég allavegnana) og við notum alltaf bara einn.. hugsum það saman! Hommar við bara.
Stefnd verður á Írafár 19.júlí í Ýdölum. Veit að margir eru að hugsa núna "HVERN ANSKOTAN ÆTLAR HÚN AÐ GERA Í ÝDALI, ER EKKI KOMIÐ NÓG AF ÞVÍ" og neii, ég ætla að gera ein tilraun enn, ef það fer til helvítis í þriðjaskitið þá bara hætti ég þessum Ýdalaferðum mínum, deal? heh, þetta er náttúrlega ekki sniðugt.. god.
Ási minn er að fara til útttlanda í dag, og Bölvuzinn og félgar.. afhverju í anskotanum pantaði ég mér ekki ferð til úttlanda í sumar. Ég er að fara vinna í vetur og hef ekkert arfara við péninga mína að gera en að fá mér VISA (veit að mamma, pabbi og Speni fá í magana við að sjá mig tala um VISA) og bara.. ROCK´ON. Ég hefði líka svooo átt að fara á Kelduna, víst of seint að hugsa um það núna ): afhverju get ég ekki átt sonna hugunarvél.. haa? þá væri ég sko EKKI hér! suss&sveiii.. langar til úttlanda.. vill einhver koma með mér? Heh, tek Bjazzalinginn með, hvernig væri það?
Jæja.. allavegna, ætla kaupa mér fullt af fötum (eða allavegna reyna það) eins og ég sé í úttlöndum (: vííí.. Skirfa meira.. later! Þið allavegna vitið að þessu ástandi (ekki þó að ég sé ólétt ettir kana) hjá mér með tölvumálin!
Kveðja, Viktoría sem lýsir hér með parner til úttlandanaa!!!
16.6.03
Kl. er rétt að verða næturvakt búin, bara 3tímar eftir. Á 25tímum (semsagt 3vöktum um helgina) er ég í mestalagi búin að setja í sonna 8-9 vélar, það er alls ekki mikið en mér skilst að þetta sé svona um helgar.. gaman gaman.
Ég var að bæta inn nýjum linkum og taka gamla linka út, eins og þið sjáið þá hef ég lítið að gera (: það er svosem ágætt time of time (eins og ég sé alveg ógurlega busy allan liðlangan daginn, oftast bara sofandi)
En jáá, ég er hætt við að fara á Stuðmannaballið á Egilsstöðum! Ég á engana péning og ætla að reyna draga það útí yrstu æsar (jújú maður kann sína tungu) að fá mér yfirdrátt og svo nenni ég líka ekki. Elías er í fríi á 17Júní og við ætlum að reyna að gera e-h skemmtilegt þá, nenni heldur ekki að vera þunn og eiginlega bara nenni ekkert á þetta ball hvort sem er. Samt er ég er að fara í pínu road trip á morgun, ég ætla nebblegast að fara til Seyðisfjarðar (sem ég hef ekki glæran Gumma hvar er) að horfa á Einherja strákana keppa í fótbolta.. það verður eflast áhugavert og skemmtilegt. Ég, Ási beibí og Nenni ætlum og ég held kannski bara líka Guddi, svo ætla ég bara með Elíasi heim.. ævintýri á Seyðisfirði (ég læt þetta hljóma eins og þetta eigi ettir að vera hinn mesta svaðilför, enda efast ég ekkert um það)
Áðan fórum við Elías og Ási í sund.. það var fucking skít sæmó, neenee það var fínt. Samt fannst mér strákarnir leggja mig í einelti! *skítastrákar*
Elías var að fotmata tölvuna og ég komast að því enn einu sinni hvað þetta baddn er viðbjóðaslega þrjóskt.. heh!
Mig langar í litabók og liti eða perl eða e-h.. pússl kannski, allavegna e-h dund. Ég var að byrjuð á Napóleonssjölunum eftir Arnal Iðriða.. lofar góðu, var að klára Í gengum eldin sem er einhver sjálfsvorkunarbók um dópista.
Vááátttz, það er geggjað veður hérna, spegilssléttur sjórinn og sól! Ohh.. enn og attur kemur tjaldlúll í hausinn á mér í svona yndilegu veðri!
Allt er nú til snildar síða!
Þá var ekið yfir par í tjaldi um áttaleytið í morgun. Stúlka á tjaldsvæði í bænum hugðist ræsa bifreið við tjald parsins með þeim afleiðingum að hún ók yfir þau. Parið var fast undir en lögreglu tókst að koma því undan. Betur fór á en horfðist því parið slasaðist ekki alvarlega. Pilturinn kvartaði engu að síður undan eymslum í baki og stúlkan var aum á brjóstkassanum. Fólkið sem kom við sögu er innan við tvítugt og er kunnugt hvort öðru.
Æææ.. þetta gerðist á Ak um helgina! Ég tek það SKÍRT fram að ég var á Vopnafirði alla helgina! Ég kom ekki nálægt þessum atburði.. heh.
15.6.03
Þá er þessi næturvakt senn á enda!
Það er ekkert búið að vera gera hjá mér í nótt, djöfull leiðist mér þegar það er EKKERT að gera, svo þegar það er mikið að gera þá leiðist manni það enn meira og nennir ekki að gera skít, jáá maður er skrítin. Þegar það er gott veður þá kvartar maður yfir OF góðu veðri svo þegar það er vont veður þá grenjar maður og vælir, það er aldrei hægt að gera manni til geðs.
Ég svaf til kl.6 í dag og ég fékk alveg ægilega gott grill.. ef ég á ekki ettir að fitna eins og feitur aligrís (Sigríður mrs.Loud) í sumar þá veit ansktoin ekki hvað, ég er SÍÍÍétandi, yeahh sem er fínt. Ekkert markvert gerðist þennan dag. Jú við Elías horfðum á Afmælisstelpuna með Nichole Kidman, hún fær * af *** mögulegum. Elías tók líka af mér valdið "velja-spóluvald" Kommon, það er ekki eins og þetta sé einhver MEGA videoleiga og að maður geti bara valsað og ranglað á rétta kassettu, og ég veit pottþétt hvaða mynd við horfum á næst.. Gúrú eða e-h! Einhver fríkí mynd sem Elías getur ekki hætt að hugsa um! *sad*
Ég stend mig enn að því að skoða síður sem ég þekki fólkið ekki jack shit og alltaf finnst mér ég vera jafn sag, heh! Ég stend í þeirri trú að ég sé að leita af einhverjum sem ég þekki sem gæti verið að blogga, en aldrei finn ég neinn.
Það er svo gott veður að mig langar að vekja alla og fara í sund og þetta er sonna nótt fyrir útilegu fyllerí.. ohh, mig langar í VATNAHVERFI 2003 (í Vatnahverfi 2001 þá gargaði Böðvar nokkur Valgeirs þessi frægu orð svo hátt og stolt) mig langar í útilegu djamm. Maður er enn ekki búin að fara í þenna pakka að bjóða sumarið nógu velkomið með útilegu rugli.. Svind&skömm!
Ég hef líka komist að því að Dósinn er nafli alheimsins og paradís á jörð, með þessum fallegu orðum kbeð ég ykkur í morgunsárið (sem er btw opið) Vic THE chick!
And.. hvar er allt fólkið sem ætlar að mæta á Stuðmenn.. Skráið ykkur!!! (",)
14.6.03
KL. orðin 7 og það er bara kls ettir að vakt.. ég verrrrððð ósköp fegin því að komast heim að lúra. Við grillvuðum ekki í gær, veit ekki afhverju en gerum það kannski í dag, veit ekki! En nú hef ég gleðifréttir að færa, mín ástkæra móðir og faðir ætla að koma kannski á Vopnafjörð um næstu helgi! víííí.. það verður mjöggg gott ;* ég sakna þeirra alveg gasssssalega. En heii, ætla einhverjir sem ertu að lesa þetta NÚNA að fara á Stuðmannaballið á Egilsstöðum á Mánudaginn.. ? Mér finnst það alveg bloddy god damhh sneddí hugmynd, ég væri alveg til í að fara á ball á Egilsstöðum, hitta kannski EskifjarðarPAKKKIÐ.. haa? Mæta? Allla? Það er allvegana tilkynningarskylda hérna í MESSAGES *Dont be a menis* Hverjir ætla?.. marr þarf að dombla Pésa Trist að koma! Ég er að vinna 3 næturvaktir í röð og á svo frí í 2, þá get ég farið á ball.. ball ball ball.
En og attur stend ég mig að því að skoða og skoða og tjékka á síðuna hjá BetuRokk.. ææ!
ææ.. hálftími í svef! Fuck érr á bílnum, ég er tæörd og það þýðir enn minni hæileiki til að keyra.. þetta endar ekki vél
12.6.03
Þessi fucking síða er að fara til helvítis!
Elsku elskurnar mínar, sko.. ég er komin með allar myndirnar af útskirftarhelgini, helvíti skemmtilegar myndir, en ég er bara ekki búin að hafa tækifæri til að komast almennilega í tölvu til að setja þær inn og sollis, t.d þá er ég núna á Bókasafni Vopnafjarðar (jibbbbbíí) þannig að þið verið að sýna aðeins meiri þolinmæði og bíða bíða.
Annas er lítill skítur að frétta af mér, var í fríi í gær og í dag og fer ekki að vinna fyrr en um nóttina á morgun. Á morgun æltum við að grillva, ég, Speni og Sölvi.. veit ekki alveg enn hvað það verður en það verður e-h gott. Speni segir allavegna að Böluzinn sééé þvílíkur grillmaster og ég skal bara trúa því, mig langar í e-h ógisslega gott, t.d mat hjá mömmu og pabba, en ég verð víst bara að redda þessu sjálf, er að láta pabba senda mér einhverjar gómætar uppskirftir.
Var að taka að mér extra vakt á morgun frá 8-12, það er ágætt, þá hef ég e-h að gera.. vinna vinna, skeina mata og blehhh!
Þið sem hafið verið atvinnulaus eða iðjulaus eða e-h laus.. hvað geriði á daginn? God! Ég veit ekkert hvað ég á mér til dragaðs að taka.. sauma? neehh, mig langar að baka eða e-h. Ég ætla allavegna að fara útí búð að kaupa snúð og e-h, æm höngrí! (: og svo að sækja Spenólínóz. Tjáááá ;*
10.6.03
ég nenni ekkert að skirfa.. nenni þessu ekki lengur! er búin með alla mína vinnu, búin að þvo alllan þvottinn og er bara að bíða eftir að kl. verði 8.
Ég fann mynd af Ástu ægilega sætu & sæti sæti og sæta ásta jújú!
Æææ.. guðð hvað mig leiðist endalaust! *Aaaarrrrggg* nenni ekki að vera hér, langar að vera heima að kúra hjá Elíasi ;/
Ég sakna Emblu.. og mömmu og pabba og Ásgeirs, núna eru þau heima og þau dýrin verða í 2vikur og ég bara hér.. á Vopnalopnasmiðir.. shit a fucka! Ææ.. bye
6.6.03
Litli elsku sonur okkar á afæmli í dag, hann er orðin 18ára og núna má hann allt, hann á aææmli í dag.. núnkjkjaasjaaakk! Til hamingju elsku ástin okkar og þú veist ekki hvað við söknum þínum endlaust mikið. Kosssar og knús til þín frá okkur! ;*
Næturvaknt #5
Leiðindi.. ég er búin að komast að því að þessi þvottmennzka á ekki við mig! Þetta frí sem ég fæ núna í 3nætur er kærkomið, enda hef ég hugsað mér að eyða því vel.. t.d með því að skella mér í Ýdali á morgun. Þetta verður svaðilför. Me & Peter Kristins ætlum að fara um kvöldmatarleytið á morgun í Mývó og hitta hyskið og ruzlapakkið þar, enn veit ég ekki hvar partíIÐ (the) verður, Hildur mín kæra Hildur.. *blikkblikk* hint.. hvar verður djúsað fyrir ball? Ef þú ert þar.. þá verð ég þar!! heh.. með nýþvegna og fína bjórinn minn og pabbi þinn fær ekkert að þessum bjór mínum, í þetta skiptið.. nee annas, marr þyrfti að kíkja á kallinn og bjóða honum svona almennilega einn bjór.. samt kommon, ég var bara að geyma hann þanna í þvottvélini! (: Þetta verður magnað dansiball, vúbbbjúúíííó.
En þetta var doltil sorgar dagur í dag, í fyrsta lagi léts heimilsdýrið á heimili foreldra minni, blessuð sé minning Tuma tvö *smá þögn og sign* & svo fékk ég lítið bréf í dag með ökuskrítieinu mínu.. allt gott um það að segja nema.. ÉG BAKKAÐI Á Í DAG!!! Ég var með Ása mínum (sem hefur btw, bjargað mér úr ýmsum prísundum, förum ekki nánar útí það) í ríkinu og svo var ég bakka út, leit voða voða voða vel í kringum mig en yfirsást GREINILEGA bíll. Bíllinn sem var fyrir mér skemmdist ekki neitt en aðeins minn bíll, ekki mikið samt! Þá er bara yfirdráttur tekin fyrir viðgerðum.. guð! Ég hélt að ég myndi bara eyða mínum pénginum í fyllerí og för, en nei. Elsku Elías minn var ekkert reiður við mig, ég hélt kannski að hann myndi lemja mig go berja yfir þessu, því jújú.. hann er vanur því, en auðvita tók hann þessu eins og pollrólegur gæi.
4.tímum síðar.. Ég er búin að vera þvo og þvo, það var helvíti mikill þvottur í nótt! *púfff* ..Núna eru bara 2tímar í lúll&legg!
Jáá, ég fór líka í golf í gærkvöldi, eða ég labbaði með og horfði á Elías, Villa og Gæa í golfi.. Villi hafði afsökun fyrir öllum sínum mistkum í golfinu (sem voru allmörg) samt notaði hann það eiginlega bara að ég hefði þessi áhrif á hann.. að hann gæti ekki neitt, vírd, þegar ég var ekki að fylgjast með honum þá dúndraði voða fínt einhver lengst í rétt átt.. sonna er marr, POWERFUL! Elías var samt helvíti seigur, en þeir voru auðvita bara heppnir að ég var ekki með (ég var á svo lélegum skó sko) en ég er auvðita BEST í golfi, heh. Ég held ég hafi misst Tetres hæfileika mína, ég komst í 3 & 4 sæti á top score listanum á leikur1 í tetres..! geri aðrir betur.
Jæja þá kveður næturdrottingin með sóma & sæmd, ég mæti aftur til leiks þegar mér hentar (",)
2.6.03
Næturvakt #3
Kl. er 05.43, ég er fyrst að finna fyrir smá þreytu núna. Þetta er fyrsta nóttin mín alein, seinustu tvær nætur hef ég haft konu til að hjálpa mér og kenna. Mér gengur ágætlega allavegna, ég held það.. það kemur þá í ljós á morgun þegar kéllingarnar mæta í vinnuna. Það er alveg stórmerkilegt hvað sumar af sonna sjúkrahús kéllingum geta verið smámunasamar og stundum bara leiðinlegar.. en ég er ekki búin að lenda í neinni leiðinlegt hérna! Sem er mjögg gott.
Allavegnan Ýdalir um næstu helgi. Ég er alveg til í sonna tjald-grill-partíí-gítar.. mig langar að sofa í tjaldi með kassagítar! Hverjum langar það.. eigum við ekki að reyna fá fólk til að mæta á THE tjaldstæðið og tjalda og kassagítarast og sonna? Það er soo miklu betra yfir okkur, so fucking boring að keyra heima um nóttina, koma seint seint um morgunin og sonna! Miklu meira stemmari í því að tjalda.. haaa? Ég og Ási erum allavegna til í þenna pakka.. will you joing us??
Það var víst ekkert ægilega skemmtilegt á þessu balli þanna í gær.. fegin er ég! heh.. neeee segji sonna!
Kl. er núna orðin 05.41.. Ég var að byrja á einhverri bók og það er að klárast eitt teppi í vélinni og smá drazl í þurrkaranum og svo er þvotturinn búin!
blehhhh