19.12.02

Jæja.. ég er alveg crasy!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! öll mín skólaár hef ég sætt mig vel og ágætlega við 2 í einkun, það fannst mér ekkert skrírið að fá, en núna er ég BRJÁLUÐ! ég var að fá einkunirnar mínar.. kay, Stæ193 5 (MJÖG GOTTT) dan193 6 (gáfuðust) Íþr101 7 (auðvita) Fél103 7 (snillingur af guðsnáð) Ísl102 8 (átti að fá 9, en skilaði ekki ritgerð) og svo er það martöð lífs míns, ens102 2 (mér ekkkert nema vel í öllu prófinu og bara.. ég skil þetta ekki) ansk. hafi það! ég er soo að vona að Kristjana hafi litið vitlaust á þetta og bara.. æææ! ég hlít að hafa náð ensku.. anskotinn hafi það! en jæja jæja.. ! ekki eins og ég hafie kki sitið í sama áfanganum tvisvar..!
blehhh.. en ekkert sneddí búið að gerast, sótti Guðrúni Tinnu litlu frænku á leikskólan, var með hana í smátíma, sömdum nokkur jólalög og sugum eins og stungir grísir, svaka stuð, lásum skógarlíf bókin og horfðum á Lion King.. !

Kl. hálf 10 í fyrrmálið fer ég til Rvk. ég er því miður ekki að fara á Coldplay, samt veit ekki, gæti endað sollis ef ég finn mér engin föt, á allvegna peing og marr sér bara til! en aðalega er ég að fara kaupa mér föt, ég á EKKKKERT af fötum og sárvantar föt, annas myndi ég ekki lifa jólin af.. því jólkötturinn tekur jú fólk sem á ekki ný föt, og ekki vill ég lenda í klónum á ketti.. (mín versta martöð) svo ég verð að kaupa mér föt (já elías, ég veit hvað u ert að hugsa, ÉG VERÐ) og soo er ég að fara hitta írisi frænku og ásgeir og emblu og hörpu! og gretti og siggu og kannski konnsantínuz... daaaaaaaaaaaaaa!

im bored!.. heh snilld!
jæja borg óttasn í fyrramálið, ég kveð!

17.12.02

Einhverjir tæknilegir örðugleikar með spjallið en ég er að vinna í því að reyna að laga það....verður komið upp vonandi í kvöld.

Elías

16.12.02

Baldur sæti
Jóhann nagli
takk fyrir takk, þetta fann ég sjálf og gerði sjálf! ...stoltust af sjálfri mér! (:

Hááádííí parners! *japlágrasstrái*
Í dag eru 4ár síðan ég fékk sykursýki! mér finnst eins og þetta hafi gerst í gær, ég man öll smá smá smá smá aðrtiði, stór merkilegt.. (: 100ár í viðbót þá losna ég kannski við þetta, því þá verð ég dauð! Fun Fun Fun..

Takk elsku Elías minn fyrir að setja inn spjallið, eina sem ég geri á þessari síðu er að rita einhverja vitleysu, sem ég veit ekki hvort einhver lesi einu sinni! eða jú ég setti inn linkana hjá Kidda og Ottó.. hehe dúleg! en elskurnar mínar, verið alveg svakalega duleg við að setja inn spjall og kommenta, því það er bara soo gaman!

Ég var í klippingu+strípum.. ég er með klippingu eins og ENGIN annar í öllum geimnum er með og ljósar og rauðar stípur.. fullt af þeim! heh, ég er doltið í því að vera örrvísi en aðrir en þetta er alveg drullu kúl og ég er svaka ánægð með þetta allt saman! og soo mætti ég með nýju fínu klippinguna mína og fór til tannlæknis (hélt samt að ég væri komin til Afríku, ekkert nema blóm og attur blóm og apiköttur á þessari tannlæknastofu) og vitið hvað, ég er með skemmda tönn!!! ): ): og ég gekk með skottið á milli lappana frá tannza, leið eins og óþekkum krakka! *suss&sveii* en það er lítið að gera í því, nema mæta til tannza á fimmtud. kl.10!

ÆÆ, það eru svo margir sem ætla ekki að koma aftur eftri áramót, t.d minn einkasonur (sem ég btw gleymdi að kveðja, ég fékk tár í augun og sting í magan (í alvöru) þegar ég fattaði það) ég veit ekki alveg hvernig ég á að lifa þetta af án hans ;/ ég mun sakan mín meira en allt elsku elsku bestaskinnið mitt! og soo kemur Konnantínuz ekki attur.. the black man is gone!.. *væl* og Ási minn (sem er eiginmaðurinn minn, giftum okkur eina fallega sumarnótt á ircinu, hann er bangsi bestaskinn og er á lausu, og ég mæli með honum, hann er með hendurnar mínar, ég ælta aða uppstoppa þær þegar hann er dáinn) Grétar SPIDERMAN og Jóhann HARÐNAGLI ætla heldur ekki að koma, ææ! *tár* ..ég mun sakna þeirra alveg svakalega mikið, þeir eru uppáhöldin (segir marr uppáhöld?) mín, og ég elska ykkur *kiss&knús* (grétar, nú er ég að segja fallegt um þig) hvað á ég að gera þegar ég hef ekkert að gera? koma til Eskifjarðar.. ? og uppáhalds manneksjan mín verður ekki hjá mér á næstu önn, Maggan mín! *væl&háskæl* og ekki Björgvin! ..fool! hvað er að fólki? Laugar er besta pleis í öllum heimi, svo er ég líka þar? hvað er málið? það er kannski málið.. heh!
Jæja.. spá í að kíkja eitthvert með Jónu.. örugglega í rassgat! víííí..
érr ekki búin að fá einkunar mínar! spá í að tjékka á þeim (:

15.12.02

HOME SWEET HOME!
alltaf er jafn gott að koma á þetta skítapleis, þessa litlu eyðimörk, en þetta er mitt heimili og mér þykur vænt um þetta blessaða pleis! *nammmmi nammmm* var að háma í mig mömmu-pabba kjúlla og franskar og BBQ sósu.. *sadddur* og er með almenntilegt net.. ISDN og fíneríí.
í gær fórum við á ak. það var voðalega nice, versluðum jólagjafir og e-h dótarí og fórum svo á greifan og fengum okkkur betsa mat í geiminum! og elsku engillinn minn var soo sætastur í öllum geimi ;* ...svoltið sniðugt sem gerðist í gær, Baldur og Brói fóru á gömlukalladansiball í mývó, alveg ógissslega boring komu soo á lauga og tóku smá lögguleik.. og fengu 25punta.. MÚHAHAHHAHAHAHHA! samt als ekkert fyndið! (: soo endaði þetta með gilli og kitli á bakið frá nuddmasternum Baldri.. snillld!
érr að spá í að kíkja til önnu minnar uppí sjoppu, hún er víst að vinna! soo er það tanlæknir og klikkpping og minni háttar lýtaraðgerð á morgun kl.9 í fyrramálið.. GOD DAMMHH IT! en hvað gerir marr ekki til að vera sætari en marr er? (þó það sé mjög erfitt í mínu keisi) og btw, elsku elsku elsku Hanna mín, sorry að ég koma ekki til þín að kyssa þig til hamingju með jólin, ég skal senda þér jólakort með full af kossum! :* :* :*

14.12.02

vííííííí prófarassgötin búin!! danskan var tekin með annarri í morgun, létt próf, eins gott að maður nái, býst 98% við því! ég fer heim á morgun, mamma og pabbi koma að sækja mig og eva ætlar að flækjast með. Eins og ég sagði ykkur í gærnótt þá ætluðum við elías á ak. en heimski heimski pétur nokkur kristinsson ætlaði að vera soo elskulegur við okkur og lána okkur bílin sinn, því elíasar bíll er á vopnaf. en neiii.. pétur er núna sofandi inná ak. !!!!! ég er bara mest mesr pirruðust.. en elskulegi valurinn minn er líka á ak og er að verkja pétur núna, hvort sem það skilar árangri eður ei! júújúú, pétur er vaknaður, hehe var að hringja í mig í ruzli.. litla greiið dottaði víst aðeins hjá systir sinni... litla dýrið! og við erum þá að fara á ak. veiii.. (:
þegar ég kem heim í kveld þá neyðist ég víst til að fara horfa á Spiderman, ég fæ víst ekki að fara heim nema að horfa á þessa vesælu mynd.. og sumir eru soo GEÐVEIKIR að halda að þeir séu Spiderman.. hehe, Grétar esskan mín, alls ekki meint til þín (múhahaha) en ég fer heim á morgun og þá get ég bloggað allan sólahringin! gegt mikill munur! (:

Fjórða prófið over.. enskan.. mér hefur aldrei gengið jafn ógisslega vel í neinu prófi eins og enskunni.. vótttz, ef ég fæe kki 15 þá veit ég ekki hvað! hehe.. allavegna pottþétt búin að ná, held ég, vona ég! allavegana, það er komin föstudagur, eða það er föstudagsnótt.. kl. er hálf4 og fyrir skemmtilega tilviljun fattaði ég að netið er enn opið.. FRÁBÆRT.. í dag var ég í engu prófi en vakti samt alla nóttina, fót að sofa kl. hálf 10 í morgun og svaf til 9 í kvled.. hmm, býst við litlum svefni í nótt! en það er seinni tíma vandamál.. því nóttinn er ung elskurnar mínar!
á morgun, laugardaginn 14.des erum við elías að fara á akureyrina að verzla jólagjafir og kíkja á menninguna, hann ætlar líka að vera algjör elska og bjóða mér út að borða.. svaka sætt.. og érr að spá í að kíkja á Svenna frænda, hann er víst á ak. Kiddi frændi var líka að flytja og sonna.. (:
en jæja jæja.. nenni ekki að skrifa.. dönskupróf ettir ettir 4oghálfan tíma.. got u lær somthieng...! já, ásta maría er góð kona! (þetta er fallllegt)

11.12.02

Þriðja prófið over.. mér hefur aldrei gengið jafn illa í einu prófi.. Stæ193 eða e-h.. *susss* rassgatapróf..!
Söddddust... ég var borða hangikjet og ís.. (: bara best, samt ekki jafn gott og heima.. ekkert er eins gott og heima, þetta var samt gott! Ég sofandði ekki fyrr en 5 í nótt.. ekki það að ég hafi verið að læra, talaði örugglega við Ragga í svona 19tíma í nótt og kíkti soo aðeins í bók, en als ekki nógu mikið! Vaknaði so í próf í vesta skapi sem ég hef farið í lengi lengi, vaknaðu samt mjög vel í morgun, við kosssa og kjass frá krúzilíuzi en samt tókst mér að vera í alveg hræðilega vondu skapi, fór í morgunmat og gat ekki hugsað um annað en að komast að sofa attur! æææææ!!! ég fer hvort sem er ekki í núlláfanga attur.. er orðin 18 ettir áramót, WÚHÚ! *hóst*

Ég elska ekkkert meira en stráka sem spila á gítar! mér finnst ekkert skemmtilegra en að sitja og hlutsa á einhvern glamra á gítar, það er líka stórmerkilega að horfa framan í þanna sem spilar, eins og hann Baldur, það kemur stórmerkilegur svipur á hann þegar hann spilar á gítar (hann er svkalega duglur á gítar, kannn næstum allt) hann er eins og pabbi minn, það er engin betri á gítar en pabbi, hann er bestastur á öll hjóðfæri.. SNILLINGUR!
ææ, bored! finna mér e-h að gera! heryumst seinna!

10.12.02

Annað prófið búið.. Íþr.101 gekk ágætlega, ná pottþétt en samt ekki með stæl, en ná, það er fyrir öllu! sofanði eftir próf og var að vakna núna í kvöldmat.. *geisp* aðeins of mikill svefn, en það gerir engum manni neitt slæmt að sofa of mikið!
Afkvæmi guðanan.. er að hlusta á Rigninig á heiðskírum degi, textin er um að hann hefur upplifað rigningu á heiðskírum degi, það er ekki eins og hann vil riginingu! (og já, hann segjir "það er ekki eins og ég vil riginingu") ég fíla rapp, ég er enn með skopparann í mér, losna örugglega aldrei við það, en samt.. Rottweiler koma sterkir inn, ég var líka að skoða Eminam áðan, lag úr nýju myndina hans, 8mile, fínt lag.. en syngur bara so svakalega mikið um sjálfan sig, það er kannski ekki slæmt. En í gær fann ég síðu með Itchy Palms sem er lag með englinum Heru, þetta er soo flott lag, ég hef sjaldan fengið gæsahúð, nema kannski á Bubba (sem er kóngurinn) en þessa líka gæsahúð fékk ég.. ekkert eðilegt sko! ég er samt ekkert að heyra þetta lag í fyrsta skipti, bara fór aðeins að spá í þessu, bara snildin ein!

Í gær komst ég að því að ég er örugglega betri en allt í millu, ég hef auðvita svo skíra og hrein hugsun og það hjálpar mjög mikið til þegar maður er soo ROSALEGA BESTASTUR í millu, millumaster! vildi að ég gæti sagt það sama um Grétar og Jóhann, því þeir sokka big time í millu, ég vann þá hvað erftir annað! greiinnn.. ég endaði með því að hringja í Vælubílinn (113) og hann lagði þá inn! enda ekki skírtið.. en ég hef ekki vitað neinn bitrari mann en Grétar, hann er bara snappkeis, viðkbæmt lítið greii.. samt nagli, en ekki janf mikill nagli.. HARÐnagli og Jóhann (ég og Jóhann erum sko saman í liði, we are a team, lova ya man) ég veit ekki hvað ég á að gera þegar hann fer, ég býst samt við að hann komi eftir hmm.. ég gef honum 13daga til að koma skríðandi aftur til okkur, með krókódílatár í augunum.. (: heheh! en hinn villikötturinn (eins og ég kýs að kalla Grétar þessa dagana) kemur heldur ekki aftur ettir áramót, en samt á hann nú ettir að koma! ég er 100% viss.. ég skil líka ekki hvernig Jóhann á ettir að lifa af ÁN mín, það mun aldrei virka, hver á að segja að hann sé dulegur, hafi bæði metnað og aga.. engin, nema ég! u´r not gone surviv with out me!
..nóg að rugli!

ekkert skemmtilegt í steve the tv! og sætastinn minn á æfingu.. hmm! veit ekki hvað gera skal.. kíkji kannski til.. hmmm! Baldur er pottþétt heim, sofandi alveg örugglega.. Frosti.. yeahh!
Herrrrru, þið megið alveg gefa komment í gestabókina, þetta er ekkert bara gestabók til að segja mér hversu flott síða þetta er.. bara sonna korkur.. eða e-h.. (:
Góðanótt.is p.s neii mamma, ég er ekki klikkuð, u aldir mig svona upp og sonna er ég.. thank u! (:

9.12.02

Fyrsta prófið over, léttasta prófið, íslenska, mér gekk auðvita mjögggggg vel í því og ég er best og villikötturinn minn næst bestur!
ég var að vakna og kl. hálf 3.. letidýr, enda svaf lítið í nótt.. ! prófvikan er merkilegur tími, vaka allir á næturnar, engin svefur nema á daginn, allir eru sísvangir, og súrefnið í matsalnum á morguna er vírd, ég tók ettir því í morgun, allir að drífa sig e-h og læti, kannski var þetta bara ég, samt held ég ekki! því eins og allir vita er ég mjög yfirveguð og róleg týpa, err þaa ekki? júúújúúú það sem ég hélt..
15 dagar, 9 klst, 21 mínútur, og 45 sekúndur til Jóla! ....WÚHÚÚÚÚÚ! mamma verður að vinna hálfa vakt á aðfangadag, en það er sosem ok, því þetta er bara frá 4-8 og soo kemur hún heim, samt örugglega vírd að borða kl. 8 en ekki 6, en það er allavegna betra en að mamma væri að vinna kl.8-12.. þá myndi ég endanlega ganga frá mér, heh, ég þekki einn bitran og sáran mann, heheh, það er hann bróðir minn, hann fær ekki rjúpur á jólunum.. MÚHAHAHHAHAHAHAH! djók, ég vorkenni þér alveg svakalega (: ég er soo sniðug, fyrsta sem ég gerði þegar ég og elías byrjuðum saman, var að spyrja hvað hann borðaði á jólunum og eins og þið vitið þá greinilega voru það rjúpur, því jú, við erum enn saman (: hehe.
Pési læfseifer, reddaði snúri, sem var ekki mikið mál, en samt (: hehehe.. víí, ég er á msn, það er mjöggg gott mál, heimski Konni (tölvukall í þessum skóla) hann vill ekki setja upp msn, litla hóra! en érr í góðum málum núna, er með Karólínuna mína (tölvuna mína) með mús í annarri og rage again the machine í hinni.. komin í góðan gír!
heheheh, sko snildin ein, hitti ég ekki mína bestu bestu á msn, Birnuna mína.. frábært, hún er á bolungarvík núna en er að koma á lauga ettir áramót, þá verður tekin nokkur tripp... WÚHÚ
en koffffítæm

8.12.02

Sunnudagur dauðanz.. fína fína fína fína fína! Laugadagskvöldið endaði ágætlega í gær, ég og elías láum eins og illa gerðir hlutir í allt gærkvöld og gerðum ekki shit! (enda lítið sem ekkert að gera) samt voða nice, Laugasel opnaði ekki fyrr en kl.12 og fórum soo þangað og keytum gotterííí, soo horfðum við á Ice Age.. hehehhe mesta mesta mesta snilld í heimi, hef samt horft á hana örugglega 487278 sinnum, en alltílæ að gera það einu sinni enn! Sid the Slod eða Lúlli Letidýr, þetta er meistara stykki.. (: soo skítugt kvikindi og smámælt í þokkabót, múhahhahah! ég vill eiga hann, ég á reyndar eitt solleiðs, heitir ekki Lúlli, hann heitir Elías, en hann er reyndar ekki smámæltur og skítugur, en samt!
En ég fékk bestu fréttir í heimi í morgunsárið, ég þarf ekki að taka lokapróf í fél. ég er búin að ná því, með 7!!! þvílíkur snilllingur ég! ég meina það, ég var ekki að fara nenna að læra undir þetta drazl, og núna þarf ég þess ekki, víííí! ég vill þakka.. þakka.. hmmm.. SJÁLFRI MÉR fyrir ómældavinnu og dugnað (og kannski pínu Þórdísi, u know) en saman að því, ekkert próf á föstudaginn og ég og Bjarni stefnum á ak. á feitttttttttt fyllllerrrrííí.. en þar sem Konni ponnni þarf að taka lokaprófið, þá kemst hann ekki með okkur! því miður elsku Konni minn, u are SID THE SLOD!!!!!!!!! heheheh, og hann er núna að væla í mér að fá fél. verkefinin mín! IN YOUR DREAM! ok, þarf sem ég er góð kona, þá skal ég gefa lúlla letidýrið hafa þau! jæja Sid the Slod kveður og gengur inní rökkrið.. Rassgata rassgata píka rassgata rassgata píka gervitugl í hausinn vonadi ekki ÞÚ líka

7.12.02

Laugardagur... þetta er eins sú leiðinlegasta helgi sem ég hef upplifað! Flöskudagur í gær, hann lifði ég í eimd og volæði.. fórum uppí Laugasel, bjór, sígó og tipperí á fólki.. ekkert spes, samt old same old! en í dag þessum leiðindar laugadegi, vaknaði ég, fór í mat og niðrí hús að horfa á Man.u-Arsenal.. hvílíkt skíttttttalið, man.u vann arsenal (það er sko liðið mitt) 2-0, alls ekki gott mál! en ætlaði marr geti gert e-h í því, ekki er ég að spila.. ef svo væri, gengi allt miklu miklu betur hjá Arsenalmönnum! blehhhhhhhhhhhhhh..

Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að gera af mér, búin að lesa f. íslensku prófið mitt á mánud. kláraði það í dag.. svaka dugleg, og allir eru e-h so leiðinlegir og heimskir!!!!!!!!!!!!!!! ég er full af einhverjum skrítnum tilfinnginum sem ég losna ekki við, ég skil ekki afhverju ég ræð ekki hvað ég hugsa, ég þoli það ekki! (þú veist hver þú ert, (sem ég meina þetta til) u skilur hvað ég meina) ég átti eitt besta samtal við manneksju (ekki það ég tali mikið við dauða hluti) í gær, við hana Möggu mína, ég get ekki hugsað mér að hún sé að fara! *tár* hún er mest besta manneksjan mín.. æææ!! þetta er eins og þegar maður er þunnur, þá starfar hausinn og maginn á manni ekki alltaf saman, marr er gegt svangur en getur ekki hugsað sér að éta e-h, þetta er eins, hugurinn og hjartað á mér er ekkert að matza saman.. þetta er bara skrítið.. ;( ææ, ég er farin að rugla og bulla! en samt.. sonna er ég! og miklu skrítnari en þetta!
Svona er lífið ljúfurinn og ljósin fylgir skuggi *Dagný gamla* ég kveð, ekki í góðum gír, frekar vírd gír! eða bara engum gír!
p.s Afhverju getur maður ekki fengið allt sem maður vill? svindl ;/

5.12.02

daginn.. allt að gerast! (: nope, als (hvort er það með 1 eða 2 L, baldur segir 2 en frosti 1) ekki neitt, er í tíma..
ég fór á ak. í gær með möggu, helgu og squeek, hehehe.. hann átti að kaupa hóstasaft og nefdropa f. baldur (því hann er sooo fársjúkur) og ég þurfti að hjálpa honum að kaupa það, hann vissi ekki neitt og veit ekki neitt! (: en samt er hann bestur í heimi ;* ég kom samt alveg alveg fullt af hlutum í verk.. kaupti jólapakka handa emblu, smá hanfa mömmu og pabba, kaupti mér ilmvatnið mitt (sem var alveg búið) og e-h af drazli.. en best við þess ferð var að hún magga mín var með mér.. hún er bara mest besta manneskja í öllum heimi.. ég á ettir að sakna hennar alveg svaka svaka svaka mikið eftir áramót, hún er víst að fara í FG *tár* og líka björgvin litla sæta rassgatið mitt sem er btw farin að blogga og líka jói, jói er einn sá allra best í bransanum, hann á heimi við hliðina á mér, hann er besta strákur í heimi og líka ási sem er einmitt 21 í dag, 5des, til hamingju með það esskna mín, ég hef þekkt ása í einhver hmm.. 2-3-4ár (man ekki) við erum gift og honum finnst örugglega ekkert betra en að gilla sjáfan sig á bumbuna, hann er æðilegur strákur.. það er bara hálfur laugaskóli farin að blogga.. ef ég kynni að setja inn linkana hjá ykkur þá myndi ég geri það.
en hafðið pælt í einu.. raunverulegum draumum, mér dreymdi einn sollis draum í morgun, hann var alveg krípí raunverulegur.. *puff* og soo veit marr ekkert hvort þetta gerðist eða ekki en jæja.. þarf að fara í fél103.. (", ) vikkójóóóóóóóóóóó

4.12.02

enn og attur góðandaginn.is! ég er líka á leiðinni á akureyri.. kaupa jólapakka (þó ég harðneiti að gefa svoleiðis, samt þigg ég jólapakka, það er ekki pointið) og fara með filmu í frammköllum og e-h.. ég, Squeek, Magga babe, Helga og Naglinn erum að fara.. þarf samt þá að fara vekja þá tvo, hehe, btw, þakka fyrir lútinn í morgun.. ég fór í "eyðunni" minni og lúrði hjá squeek og grétari, en ég held að grétar hafi sofið mest lítið, ég held.. ég held að ég sé pínu plássfrek og að hann hafi bara lúrt í gatinu milli rúman, en ég svaf, það er fyrir öllu! hehehehe.. djók! sorrry essskan mín! Konnzantínuz, til hamingju með að vera búin með 100bls. ritgerð í vím102 (pælið í rugli, vímuefnafr. sem betur fer búin með það) Jæja nú jæja, þarf að fara vekja dýrin.. heyrumst..!!!!!!!!! blehhhh

3.12.02

Góðan daginn.is! ég er að mæta í fyrsta tíman minn í dag og kl. er hálf3.. (var fárrrveik í morgun) í alvöru, elíasinn minn er með hita og hósta, reminder: sækja hóstasaft og mat f. hann.. MUNA, en ég var í einhverju ansk. sykurfalli svalli.. boring! en annas er allt fínt af mér að frétta, fór ekki sofa fyrr en um 4 í gærnótt, var á Trölla til 2 í heimsókn hjá Naglanum og mr.Sexy (svaka stöðð) Konzantínuz fótskemill var staddur þar líka og hafði ég mjög gaman að því öllu saman, því þetta lið er ekkert nema sýrðasta ppl í öllum heimi! en soo er líka gott að blanda geði við aðra en bara Fjalsbúa.
Ég þarf soo nauðsynlega að komast inná ak. þarf soo að frammkalla filmu (síðan, í sjallanum á Sóldögg, og 1des og laugajamminu) og kaupa 3jólagjafir, handa mömmu og pabba og emblantínuz og elíasi.. ææææ!! jólagjafir, ég nenni ekki að gefa jólagjafir, en ég þigg þær með mikilli ánægju! (: hehe.. ég á nebblegast pening núna.. kannski að marr ræði við Squeek aðþví hann er júú sá allra kynþokkafyllsti.. *blikk* hann er nebblegast soo mikill prins á sínu heimilli að hann fékk bara bílin hjá mömmu sinni og pabba, daginn sem hann fékk bílpróf og fékk hann bara í láni, á lauga! *pufff* dekurgrís (hehe, ég get kannski ekki sagt mikið) en...!
hmm.. guðni, það er stórmerkilegur maður.. hann er nágranni minn og stórvinur minn, hann er alveg svakalega sætur og var kosin kynþokkafyllsti maður skólans, og átti það vel skilið (: en jæja.. kofffítmæ.. heii, allir sem ég þekki (nenni ekki að fá þá sem ég þekki ekki) ef þið viljið setja mig inná msnið ykkar þá er það viktoria936@hotmail.com sæl að sinni! (:

2.12.02

22 dagar, 12 klst, 43 mínútur, og 52 sekúndur til Jóla! WÚHÚÚÚ.. ! yeahh baby yeahh, en jáá, auðvita vaknaði ég ekki í fyrsta tíma en ég vaknaði í annan (allt fokkin elíasi að kenna) en það var samt alltílæ, ég held að sá tími hafi ekki verið, svo var enska og so tók dauðinn við, það var einhver 1des hátíð og ég og Bjarni vorum sjálfskipuð (af Adda Ben og Gunnu) að lesa ljóð, það lengsta sem þau fundu og við þurftum að lesa það! það var hell.. ég skelf ennþá!!! *hjálp* en þetta reddaðist samt.

Sverrir Stormsker um fótbolta!!! [1. desember 2002]
Fótbolti er þvílíkur grenjandi öfuguggaháttur að það er leitun að öðru eins helvíti á þessum hnetti. Menn eru fyrst og fremst í fótbolta til að strjúka rassinn á samherjum sínum þegar þeir hafa skorað. Það er ekki flóknara en það. Stundum eru þessir kúkalabbar orðnir svo kynferðislega æstir þegar ekkert mark hefur verið skorað í langan tíma að loksins þegar einhver skorar þá ráðast þeir á hann slefandi og leggja hann flatann á jörðina og fara að kyssa hann og kjassa og strjúka hann allan hátt og lágt og riðlast á honum í hópum eins og kanínur. Hommakanínur. Þegar andstæðingurinn á aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig þá safna þeir sér þétt saman og halda um slátrið á sér. Hálfvitar. Þeir eru ekki að passa á sér hausinn. Nei, þeir þurfa ekkert á honum að halda í fótbolta. En slátrið þurfa þeir að vera með í lagi ef þeir eiga að geta fengið eitthvað kikk út úr leiknum. Þessir asnasparkarar eru allt saman saurþjöppur fram í fingugóma ættu að fara í lögformlegt umhverfismat. Það má undrun sæta að sjónvarpið skuli vera að sýna frá þessu helvíti. Ég sem góður og gegn borgari, ímynd siðgæðis og tandurhreins hugarfars, ætla að fara fram á það við Sjónvarpið að það hætti tafarlaust að sýna þessar viðbjóðslegu klámmyndir.
Sverrir Stormsker.
Þetta sagði Sverrir Stormsker um fótbolta.. hehehehehehhehehe!!! snillld

En ég hef víst gleymt að segja ykkur frá nýja besta besta vini mínum, það er hann Grétar, hann er eskfiðringur og hann er snilllllingur, þann mann ætla ég að uppstoppa hann þegar hann dey, þetta er soo brilliant gæi! á laugardaginn sátum við einhver staðar og röfluðum og vöktum einmitt til hálf 9 (hann segist ekki hafa drepist (dont belive him) honum var soo illt í haunum, litla greiinu) en hann er bara mesta snild í heimi þessi litli sæti körfustrákur (þá langar manni til að setja hann í körfu og klappa honum) en við komust samt að því að hann er NAGLI og þá meina ég mesti nagli í heimi (bara fyrir þig esskna) passið ykkur samt ef þið ætlið að lúra hjá honum, það er eiginlega ekki hægt, hann er allltof heitur til þess, ég fékk einmitt 19stiga bruna bara að koma við hann! *pufff* og svefnpokin var ekki að gera góða hluti! en vissur það að Squeek er mest mest mest mest mest mest kynþokkafyllti maður í heimi.. *arrrrgg* hann var að spila á laugad. og hann var bara, ég hef ekki einu sinni orð yfir það! ég hef þekkt þetta litla kvikindi í 1oghálf ár eða e-h og hann var alltaf voða sætur en núna er hann kynþokkafullur NAGLI.. hmm.. nó komið að tala um stráka! love ya elías ;*
það fer að koma matur so.. byebyebyebyebyebye og endilega skirfið í gestabókina mína, því það er so gaman!


1.12.02

ÞYNNNNNNKAAAA... *arrrrgg* en það er þess virði, það var alveg ógisssslega gaman í gær og ég vill þakka Halldóri Pál og Bladri fyrir það, Króm var alveg brilliant og ekkert nema gott um það að segja, fyrir utan að öxlin á mér var doltið mikið notuð til að gráta á, það þurfti margir (þó aðalega strákar) að losna við nokkur tár, en það var alltílæ, mér var alveg sama! það var dolrið mikið um læti þanna, en samt engin stórmál, jú frissantínuz fór innná húsó á sjúkrahús með augað í fokki og bílpróf fuku og sonna! en samt, gaman!
1des tókst líka vel og þetta var bara gaman, ég var í stjörnumessunefnd og við drulluðum yfir mann og annan og það var BARA gaman, fínt að vera í stjönumessu, þá verður allavegna ekki drullað yfir mann sjálfan á meðan, enda hef ég ekkert gert til að verðskulda það að vera tekin upp (í alvöru) en jæja, þarf að fara gera e-h að viti, Bubbi í kveld á stöð2 og sjálfstætt fólk.. bara gott í þynnkunni.. skirfa meir seinna!

29.11.02

er í 10mín pásu frá einhverri danskri mynd sem antía smantía er að láta okkur horfa á.. er doltið að sofna yfir henni, en konzantínuz heldur mér á lífi, þakka fyrir það!
1des í kveld.. verður örugglega svaka gaman, þema er litadýrð og váá það var soo fínt skreytt hjá okkur niðrá breiðumýri, svo mikið dútl og dunderí.. allt henni jenný að þakka hehe.. en þetta er alveg rosa flott! svo verður djammmmmað á laugad. WÚHÚÚÚÚ.. það verður doltið svoltið rosa gaman, hlakka mikið mikið til.. allir stútfúllir og fínir, örugglega flestir litlu busarnir á sínu fyrsta eða örðu fylleríi og allir ríðandi eins og kanínur (mamma þetta er ekki dónó, ríða smíða) en það er bara fyndið og ég mæti með kameru og pleisið, get því miður ekki sett inn myndir, eða held ekki, það segir allavegna elías, eða þá þarf marr að borga, og ekki get ég það, enda á ég ekki digital myndavél bara pabbinn minn og skanninn hénna í skólanum virkar ekki en það er önnur saga. Von bráðar fer ég að setja inn jólapakkalitan minn.. þar að segja það sem mig langar í í jólagjöf (STICK TO THE LIST) hehe, djók.. mér er eiginlega alltaf alveg sama hvað ég fæ í jólagjöf, það er hugurinn sem gildir (hvernig kemur þetta út.. jújú, like an angel) Elsku ástin mín, i miss u to, sigga segir að ég sé eins og fimleikastjarna í svefni, ég sé e-h soo plássfrek (það er ekki satt) ég svaf nebblegast við vegginn, that´s not my place.. en aníta er e-h að kalla.. lát kannski í mér heyra á morgun og segi ykkur frá hvernig þetta hafi tekist.. ot somthing ! DANSKAAAAAAAAAAA....

28.11.02

vóóótttz.. það er allt crasy að gera hjá mér núna! 1des er á morgun og allt að vera vitlaust.. alveg 24872974 próf sem þessir útúr spítturðu kennarar eru að leggja fyrir mann núna.. *shit* í alvöru þegar það fer að nálagst desember í í desember þá verða kennararnir bara útæur klikkaðir (eins og útúr spítttaðir hundar) próf hér og þar og allstaðar.. *susss* allavegna nóg að gera! þurfum að skreyta fyrir 1des hátíðina og æfa alskonar dótarí. *væl* ég þarf að sofa ein í 3nætur *táR* elíasinn minn fór heim til sín og er svo að fara suður að keppa í fótbolta.. svakalega duglegur og skilur mig eina eftir heima ): nee annas er gott að fá smá breik (ekki illa meint) verður bara enn skemmtilegra að hitta þig á sunnudaginn elskan mín, Eva ætlar að lúra hjá mér í nótt og halda mér félagskap (takk fyrir það eve mine) eve er goð kona..
en heii, var ég búin að segja ykkur hvað ég ætla svkalega fín á 1des, ég ætla í svartbleikum glimmer kjól, ógisslega töff.. kjóllinn minn er fínastur.. en jæja jæja.. ég nenni ekki meir.. love ya all.. kiss&rass vikkoz pie!

27.11.02

Góðan dag! Þvílíkur dýraðardagur.. það eru 3 kennarar veikur (veiiiiiiiiii) og ég er hjá þeim öllum í tímum, þetta eru meira segja 3tímar sem liggja saman, þannig að ég er búin í skólnaum núna, 11.30 + það að ég fékk að fara fyrr úr stæ. tíma því ég var soo duglega og ég gerði meira að segja nokkrar auka blaðsíður, ég er aðeins að kafna úr stolti! *geisp* spuringin um að fara bara í hádegismat og borða e-h svakalega gott (því það er jú miðvikudagur) og fara svo uppí herb. og leggja sig, júúbbbz góðð hugmynd!
Það ég kom í skólanum í morgun sá ég að ég átti bréf, þá var þetta ekki nema 16bls bréf frá Portúgal frá honum Svabba mínum,
kl.9 í morgun las ég semsagt 16bls bréf með tekexi og vatni voða nice.. vitið hvað, ég eignaðist líka leikfang í morgunmatunum, Gunnar Bragi (hin góði) gaf mér kello´s leikfang.. ég var í doltið vondi skapi þegar ég mætti í morgunmat og hann gladdi mig með dóti, takk gunni.
en vóó ég fékk næstum hjartaáfall í morgun, ég þurfti ekki að fara í fyrsta tíma hjá Adda Ben (umsjónartímar) og ég varð ekkert vör við að elías hafi farið, svo vaknaði ég, allt dimmt, klukkurnar á 100 og engin elías! ég varð hrædd.. *skjálf* en þá fattaði ég að kl. var korter í 9 og ég varð að drífa mig!

Stjörnuspáin mín í dag er svo hljóðandi: Tvíburarnir (21. maí-21. júní)
Þú færð á þig gagnrýni sem þér finnst óréttmæt. Þú skalt þó ekki láta á neinu bera. Það er best í stöðunni.
ég skil þetta ekki alveg, en það kemur kannski í ljós í dag. Ég hef alltaf´, frá því ég lærði að lesa (sem var í 3-4.bekk, og já btw, ég er mj-ög skirf og lesblind) þá hef ég lesið stjörnuspána mína.. finnst þetta afar merkilegt, en ég fatta þetta samt ekkert alltaf, ég les líka alltaf dánarfregnir, í alvöru, frá því ég byrjaði að vinna uppá sjúkrahúsi (sem er sumarvinnan mín) þá er ég háð þessum dánarfergnum, eins og eina vikuna í sumar, þá dóu gegt fáir, mér fannst það bara leiðinlegt og mikið svindl, því hvað átti ég þá að lesa? ekkert.. *puff* svonna er marr skrítinn.
Ég var að tjékka inná edda.is ætlaði að gá að einhverjum bókum sem mig myndi langa í í jólagjörf, rakst á nokkur próf, tók plebbapróf, þá kom það í ljós að ég er pleddi og bent vinsamlegast á að kaupa mér plabbabókina eftir Jón nokkurn Gnarr og svo tók ég próf til að gá hvort ég væri sigurvegari og þá kom í æjós að ég er hörð en þó engin nagli *puff* netið lýgur! ég er víst nagli (: heh, ok samt..
Binni sminni, nennir ekki að skoða bloggið mitt og vill bara skirfa í gestabókin, þykist upptekin (er að skoða klám og snjósleða á netinu) rassgat í bala *suss*

Loksins ný bók um besta vin bókaormanna!
Bók fyrir aðdáendur Einars Áskels og grúskara á öllum aldri.
þá er ég komin með gjöf fyrir Emblu litlu Blöndal (eða sko, ég gef henni bókin en pabbi hennar á eftir að einorka hana algjörlega) ef ásgeir hefði eignast strák þá hefði hann alveg örugglega heitið Einar Áskell Ásgeirsson.. hehe það hefði þótt mjögg vinsælt, hehe, ég er farin að sakna þeirra soo mikið, litla skæruliðans, hún verður örugglega alveg eins og ég, litla emblan mín! óóóóóó... sweetypie, þetta er einn sá allra dúllulegasta krakki sem ég hef augum litið, og líka einn sá mesti skæruliði í heimi en það er auðvita bara FYNDIÐ, ætli hún hafi það ekki frá pabba sínum og systir hans (sem er ekki ég, hehe)
það nennir engin að lesa svona langt, so ég ætla setja puntin hér.