6.6.07

Free Image Hosting at allyoucanupload.com

30.5.07

hver gleymdi lopapeysu í afmælinu mínu?
en myndavél?
ég mun setja inn myndir one fine day.
afmælið var yndislegt. ég elska hvað ég á bjútífúl vini. og þegar 40manns syngja 22ára afmælissöngin fyrir mann þá skælir maður krókódílatárum. væl. ég fékk margt og mikið í gjöf. allt stendur uppúr. takk. ég gerði feil þetta kvöld og drakk svolítið mikið. en ekkert um og of eða svoleiðis.. ég var hress og fékk að dansa á amor við afmælissöngin minn sem btw einar ágúst (skímófag) spilaði fyrir mig. takk húrra bingó og bamm!
það verður náttúrlega allir á Akureyri 15júní. annað er ólöglegt.

þá verða RISSSSSSSSA styrtartónleikar fyrir Aflið, systrarsamtök Stígamóta á Capone/1929. böndin sem hafa pottþétt staðfest framkomu sína eru bloodgroup, skátar, brutal princess og svo vonandi og mjög vonandi Reykjarvík! hversu fokking frábært er það?
þessi bönd í ralladralli saman í klessu og plús að vera styrkja fráááábært geim. ég er ótrúlega glöð að þessar elskur eru að samþykkja þetta. það er náttúrlega allt svo upppantað 3ár fram í tíman, öll hótel og gistirúm á Akureyri, þannig að heimli mitt verður undirlagt í real rokkurum þessa helgi. veit ekki hvort Lilli mömmuson og Ringo Star (aka Kisi) eigi nokkuð eftir að taka eftir því þó sveittir rokkarar svettir hér um. heh.
ég fer á morgun á húsavík og dalvík með Stígamótsfólki og Aflskonum að flytja fyrirlestra fyrir mann og annan. ef þú átt leið hjá, kíktu við. svo verða þau líka á Vopanafirði, Höfn og Selfossi. mjög gott.

það er fyndið hvað kostir manns geta líka verið rosalegir gallar manns.
ég er samt alveg ofan í gólf og uppá þak dottin ofan í Glingló.
ég elska hröð lög með íslenskum texta. það er mikið að gerast og ég verð æst. byrja hamast og enda á því að orga eins og úlfur á haug.
þannig er td. Bílavísur.

Ertu að koma?
Já, elskan min góða
alveg hreint á minútunni
hæ - ertu á nyjum bil?

Alveg ertu ágetur
agalega sætur
að etla bjóða mér
það er alveg hreint í stil

En ef að það snjóar
þá eru til nóga
keðjur sem að koma okkur
óhult um alla leið

Elskan hann Dóri
minn sterki og stóri
hann styrir svo vel
þótt gatan sé ekki breið

Ooh!

Ó - Þarna er hann!
já, og flott skal það vera
og Ford model nitjan hundrað
og-ég-veit-ekki-hvað

Uppi hann stig ég
á ástarvangjum flíg ég
og uppi Mosfellssveit
fer í ævintyraleit

Með handþösku stora
ég hallast að Dóra
æ. gormurinn i framsætinu
stakk mig á versta stað!

En það er nú svona
að þreyja og vona
En þetta lagast fljott
Dóri minn sérrum thað

Keðjan er slitinn
og skellur í bilnum
skríddu undur bilinn, Dóri
greyið mitt flyttu þér

Ertu alveg óður?
ó jé minn góður!
þarna reifstu sokkinn minn
álfurinn minn ég fer

Aldrei aftur út med þér
aleinum - ég sver i ég
hef aldrei á æfi minni
ekið um á slikum bil

O núna springur
og í honum syngur
og a endanum stingst
hann í moldar-haug

27.5.07

ég +á fokking mikið afm´æli...
aaaahhhhhhhhh!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
ég etr 22ára!!!!!!!!!!!!!!
FOKKKKKKK

11.5.07

nú er örvænting í hverju horni.
okkur var sendur pakki á þriðjudagin. í honum var eitthvað sem ég kann ekki að skýra frá. tel það hafa verið gleraugnaþurrka eða skraut í jakkafatavasa. það stóð illa á og Lilli mömmuson var öll útí skyrti. ekki var til eldhúsbréf. þannig ég þurrkaði dóttirina með XB klút.
hún hafði ekki meint af því.
mér er fokk sama um júró. ég skil ekki þetta saman safn að trash trúðum. og HUNDDDDleiðinglegri tónlist.
frekar hlusta ég á Vodka Wish. sem er btw nýja lagið.
ahh..
afhverju er bloggið hennar ellý ármanns svona vinsælt. kannski er það svo vinsælt afþví hún er svo drepleiðinleg.
ég spyr mig.
stór frétt um hana í fréttablaðinu.
heimskulegt.
ég fer suður á næsta mánudag. 21maí. flug. já. hmm..
ég hef ekki haft neitt að gera síðan ég fór í frí 26júní2005. ekkert að gera segji ég. alandi upp lítin grísling. en núna er ég verkefnum hlaðin eins og skralli trúður.

oj!

6.5.07

miglangarííafmælisgjöf:
Fashion now
60s fashion
20th century
501 must see movies
the gooddess guide
world art
the worlds gretest art

ég hef aldrei pælt mikið í myndlist. en ég fór að glugga í þetta og komast að því að það er svo margt fallegt til. sem gefur þá auga leið og skemmtilegt væri að skoða.. stundum.
fór semsagt í bókval í gær. keypti liti svo Lilli mömmuson geti krussað útum allt. og étið þá auðvita. maður er ekki maður með mönnum nema kúka grænum vaxlitum.
sá allar þessar bækur. fyndið.. einu sinni hélt ég að bækur og þá séstaklega svona flottar bækur væri svo dýrar, en þær eru það barasta ekki neitt.

langarlíkaí:
Karítas án titils
gjafabréf í klippingu (ógeðis hár.. hvað er það?)
vespu
Volta, nýja diskin hennar Bjarkar
RAUÐAN varalit
líka bara allt sem glitrar og glansar og er smart. hálsmen og eyrnalokka og armbönd og glamúr.

... ég vill bara allir (og allir sem einn) mæti sem ég hef boðið. boðið, eins og í VIP. sem þetta er tottelí.
þetta verður svo gaman.
ég hef haldið mitt loforð, er ekki búin að snerta á mér hárið síðan um jólin og ætla enn ekkert að drekka þanga til á afmælinu.
ég er afmælisveik!!
ég elska þegar ég á afmæli.
hér með viðurkennist það.
það er vandræðalegt að vera svona veikur í afmæli því þegar það kemur einu sinni á ári, þá missir maður það. sem er reyndar fyndið.
heh.
ég er komin í gott djobb hjá Aflinu, systrarsamtökum Stígamóta. vá. ég segi ykkur það kannski seinna.
við mæðgur þrömmum um bæin með barmmerki (segir maður það?) Arna Dís er með eitt í lopapeysuni sinni "Halldór í herin og herin burt" og svo annað í úlpuni sinni "Hugsaðu, það pirrar ríkisstjórnina" og ég er með "Burt með ránfuglin" og þar er sjálfstæðismerkið.
fórum einmitt á kosningarfund áðan hjá vinstri grænum. heiða elskan spilaði og söng og Lilli var on fæer. og ég fæ alltaf sama stelpukjánafílingin þegar ég sé Heiðu (í unun). ég hreinlega elska hana. váts.
æ. þið fattið.
ætla að dansa.. á rassinum.
lagið okkar Stinna er að verða reddí. það er mega hit. algjjörtt. ég læt ykkur líka vita þegar það fer á netið. á mæspeis. væntanlega. váá.
Talandi um afmæli.. Stinni bóner er 24ára í dag á megrunarlausadeginum. það er góður dagur.

4.5.07

allt í einu og ég er ekki manneskjan sem dansar.. þá langar mig að fara dansa. DNAið í líkama mínum er að flippa (sjúklega flippað).
ha?
held að það sé plan að fara ekki á kelduna.
en ég mun samt aldrei segja að það sé ákveðið.
hver veit hvað?
ekki ég.
kannski london í haust..
og ég vill líka vespu.
ég á vespu. já.

* klessubakkaði bílin okkar, já nýju Boruna okkar. takk
* ég meiddist ekki og ekki heldur konan
* ég var edrú á árshátíð á brodway sem var frítt áfengi í
* hvað er það?
* það ætla 40manns+ að mæta í afmælið mitt
* það er sjúklega hresst
* mig langar að plötuspilari verið komin í geimið þá
* vantar nál í hann
* gefðu mér það ammógjöf
* ætla að gera bollu í baðkerið
* dóttir mín hefur erft kúkapissu húmor minn
* gott Viktoría
* er hægt að keyra á vespu hring um ísland?
* er hor hollt?
* er rassadans óeðilegur?
* er ok að kúka á sig og labba svo á línu?
* þið getið kalla mig sikkó mix eftir nokkra daga
* ætliði að koma á tónleika 15júní?

...fokkiði ykkur bara.
ég er að dansa og sendi ykkur draumkenda kjánahugsanir um 91ára gamla fola.
nei kommmmmmmmmmán!
dagfinnur frændi og hekill frændi er á leiðini.............

23.4.07

djöfull fer fólk sem talar stanslaust um sjálfum sig og engan nema sjálfan sig ógeðslega í fokking taugara á mér!!! ég þoli ekki fólk sem er á kaf í sínum eigin skít.
ég fæ gæsahúð af ég hugsa um carrie bradshaw... guð hvað hún talar og hugsar bara um eigið ógeðis rassgat.
annnars er ég sjúklega glö, hamingjusöm og ángæð með allt í heiminum.
það hleðs ofan á mig... MIG.. öll heimsins gleði. hvað efttr annað!
(ég meina þetta ekki í kaldhæðni)
takið 27maí (26) frá..
heheh...

22.4.07



ÉG VEIT EKKERT í heiminum jafn fyndið og þetta.
þetta kallar maður besta vin sinn... þú veist.... æ.
elskan...
hann er svo fyndin.
hann verður bráðum 26ára!

ALLLIR VINIR NÆR OG FJÆR.
tekið 27maí frá (26maí) því þá ætla ég að halda afmælið mitt.
heima.. partí.. allir heimsins vinir eru velkomnir.
ég vildi bara að þið hefðuð tíma til að taka þennan dag frá.
ég mun sameina alla vini.
blö-laugar-akureyri-reykjarvík.... nær og fjær...
það er langt í það.. meira en mánuður.
en allur er varin góður..

3.4.07

ahhh.
ég skil bloggið mitt ekki.
ég get ekki bloggað heima hjá mér.. er það bara ég eða?
ójæja. er á bókasafninu núna. mjög skrítið, hljóðið í stólunum hérna er nákvæmlega eins og hljóðið í vekjaraklukkuni minni.
það eru hjón sem sitja beint á móti mér. þau eru að sækja um eitthvað á netinu og eru að rífast. þau eru mjög pirruð og eru að missa það. ég er að spá í að senda þau út í sóla að viðra sig. það er nefnilega 20stiga hiti á Akureyri right now.
við elías erum ein í kotinu. Lilli mömmuson fór í orlof austur á Vopnaf. í gær. góð með sig. mamma skældi og fór strax að sakna manns. snotri.
við vöknuð í morgun og fórum í sund. það er skrítið að þurfa aftengja sig (dæluna) og srtja tappa í sig þegar maður fer í sund og svoleiðis. fólk horfir. ég var að spá í að segja við eina hvort henni vantaði eitthvað. hún horfði á mig eins og ég væri með 15 bjóst eða 8 rassa.
allt gengur annars mjög vel með dæluna. þetta er nýtt líf. engar sprautur.. nonono! sem er auðvita heldur betur hressandi.

djöfull langar mig ógeððslega á ísafjörð um páskana... vá. ég ætla næstu páska.. daggi og hekill memm? og allir?
jeis.
æ.

það er einhvernig of gott veður og ég er með sumar og sól í hjartanu. í gulum og bleikum kjól og sandölum. það er sumarrr.
ég get ekki verið inni.
ætla í bæin og kaupa popp og tyggjó.
komið í frúnna.
ég er að vinna í dag og á morgun.
sjáumst..

takk fyrir ÖLL kommentin. þau eru egóbúst og ég elska ykkur öll.
ekkert smá æðislegt.

gleðilega páska

13.3.07

jæja.
nýjir tímar framundan... GÓÐIR tímar
þetta er rosalegt.
í dag flutti ég minn fyrsta fyrirlestur með Aflinu (systrasamtök stígamóta) á opnum dögum í MA. það var mikið upplifelsi. að tala út frá minni reynslu og minni sögu. og svona. og bara fá að koma fram og tala fyrir hönd (með þeim Söru & Önnu) Aflsins. ég var svo róleg og þetta tókst svo vel. ég svitnaði ekki einu sinni. minn fyrsti fyrirlestur og fyrsta skipti sem ég tala (í stórum hópi fólks sem ég ekki þekki) sem þolandi kynferðisofbeldis. vá. ég var svo ángæð. svo stolt.
ég er ekki enn komin niður á jörðina. sem er ágætt.
og þetta er ekki það eina.
í gær fékk ég líka í hendurnar dæluna mína (www.sykursjukir.is) þetta er lítur glæisleg út. það leikur allt við mig þessa dagana. og ekki skemmir fyirr að við elías erum að fara suður í viku. förum á morgun. lilli verður í orlofi (þó ekki eins og Stella) hjá ömmu sinni og afa og tuma frænda. það verður eflaust dekur út í geng. heh. við elías höfum líka gott að því að komast saman í smá orlof (aftur.. ekki eins og Stella) við höfum í mestalagi verið ein yfir helgi síðan dísin fæddist. þannig það er gúddd. en dælan er snild. það þýðir að ég mun aldrei þurfa að sprauta mig aftur. í dag sprauta ég mig 5-6sinnum á dag. en nónónó.. með dæluna verður þetta bara á 3daga fresti þá sem ég að skipta um slöngu og svona. vá. það er svoo spennandi allt núna.
ég er herra hressbert dagsins.
enda er það allt í lagi..
líka þegar lífið leikur svona við mann.

jæjaaaah.
góða nótt lömbin mín.

með sól í hjarta og söng á vörum við setjumst niður...
æ kommmmáááán!
nei.
æ.
gaman?
þið vitið..
samgleðjast..
eða? neh

19.2.07

mig langar að fara horfa á sex in the city.
þetta blogger er að raðskíta á sig.
mér finnst bollur vondar.
arna dís er með hita.
ég hata að vinna í 50% vinnu sem stubbur. OJ.
elías verður aðstoðar verslunarstjóri í bónus 1mars.
ég ætla að hætta vinna og fá mér pólskan mann til að þrífa og fara í handsnyrtingu.
er að fara panta far fyrir mig og heklu á kelduna.
ég hlakka til.
það verður gaman.
ójá.
það er of langt í það.
mér finnst það.
það er afmæli hjá krissu um helgina.
ég veit ekki hvort ég kemst.
læðan ringo star fæ pilluna á hverjum föstudegi.
ég sakna dagnýjar og heklu.
ég er að spá í að skeppa til perú í helgarheimsókn.
kemur.
tók stórt skref í gær með stinna.
þetta verður vikulegt hér eftir.
heldur betur kósí.
koma svo.
ætla í VMA næsta haust.
ætla í tónlisarskólan í söngnám næsta haust.
lokaþáttur american next top model er á miðvikudagin.
þá verður sukkað og trallað með sylvíu rún og elín maríu.
JÁH.
ekki segja mér hver vinnur því þá drep ég ykkur.
við fórum á svartan kött.
mjöggg gott.
mig vantar kjól.
og stígvél.
og er búin að gera dauðleit af stórum stórum kriglóttum gleraugum.
langar ofssalega mikið í svoleiðis.
fer vonandi suður sem allra fyrst til að fá insúlíndæluna.
er spennt.
stressuð.
en það verður örugglega mjög svo mikil bylting fyrir mig.
og þá þarf ég ekki lengur að sprauta mig 5+ sinnum á dag.
það verður rosssalegt.

þetta er leiðinlegt.
bæ.
er með 2 stórar rjómabollur í töskuni minni á leið heim.
þær eru ekki handa mér.

koss

6.2.07

if i told you things i did before
told you how i used to be
would you go along with someone like me
if you knew my story word for word
had all of my history
would you go along with someone like me

nei vitiði.. ég held ekki!
skiptir einhverju hvað gerðist eða hvað maður gerði?

24.1.07


What Beatle are you?

John Lennon

You enjoy poetry, painting & a fine wine. A lover not a fighter.

Personality Test Results

Click Here to Take This Quiz
Brought to you by YouThink.com quizzes and personality tests.

18.1.07

aldrei að vanmeta Viktoríu.
ég er búin með 51einingu. geri aðrir betur á 2 árum. heheh.. ég hélt að ég væri kannski búin með 20 eða eitthvað en annað kom á dagin og allt í fríði.
ég ætla í VMA næsta haust. veit ekki alveg með það en það er eina leiðin til að komast í háskóla. hef hreinlega enga þonlinmæði á að bíða til 25ára. langar mest í heimi í guðfræði í háskóla íslands. það væri alveg ótrúlega mega spennandi og þar held ég að ég ætti heima.
hver flytur með mér suður?
en svo er það söngnám næsta haust með skólanum. afar spennandi einning. maður verður að æfa sig að tóna. heh.

spurning um að sleppa kelduni í ár og fara á love showið í las vegas, það væri eflaust ekki leiðinlegt. hver er geim?
þegar ég verð leið þá sekk ég í eitthvað. eins og í grunnskóla var það bubbi morthens sem áttu hug minn allan, þá meina ég vandræðalega allan og svo tóku bítlarnir við í seinni tíð. ekki er verra af hafa selskap af lennon, ringo, paul og harrison. ég væri samt meira til í að vera í las vegas "með þeim". æ. mæli sterklega að þið farið inná mæspeisið mitt og tjékkið á vidjóunum og laginu.. hafdís huld er góð.. ski jumper. ég er líka að elska togga. HOTTÍ.

svo er það brennivín og hákall um helgina á þorrablóti á dósini. hvernig endar það? jah það veit ég ekki en ég veit að það verður skrallandi pallandi stuð. ekki hægt að segja annað þegar eðal fólk mætir sama með sjúkkklega mikið brennivín og sússaða punga. hvað getur klikkað? þegar maður hugsar um það þá er eiginlega meira sem getur klikkað en hitt. en ég held í vonina um að það verði ekkert nema fun fun fun.

mætti inn linkum.. kæróið varð að fá speis.
jæja.. Séra Viktoría kveður.

6.1.07

nýjar myndir

4.1.07

jól og áramót. gleði gleði.
til hamingju með hátíðar og allt það át sem fór fram á þessum stutta tíma. en er þó ekki öllu loluð því þráttándin er eftir og það þýðir eitt. KALKÚNAVEISLA. magin minn er strax farin að væla eftir kalkún og finnst illa af sér vegið að fá ekki að éta eins og hann vill.
ekki það að ég sé súper fitt og sé að passa mataræðið neinei. ekki enn.
en það kemur. einn daginn.
er að fara fá sykurdælu sem er spennandi. þarf þá alltaf að vera með litla tölvu fasta í nærbuxunum mínum, sem er mjög fyndið. eða svona. semí.
jólin voru góð. nema ég er ein eftir. ein eftir spyrjiði.. já. dagný og hekla eru farnar útí lönd að skoða mannlífið. akureyri var greinilega of lítil fyrir okkar þrjár. ég sakna þeirra mikið og veit pínu ekki hvernig ég á að vera. býð eftir að auddi blö hringji í mig og öskri.. TEKIN og þær koma geðveikt hlæandi og pota í magna á mér og allt verður gott. en neihh. má til með að býða í rúmlega 3 mánuði.
ég hef djammað mikið.. kýs að ræða það ekkert frekar. (HÁÁÁ dramatísk) heh. nei. set inn myndir kannski seinna. tók 250 djammmyndir og vitleysu um jólin.
árið var gott hjá mér. alveg frábært.
fyrsta áfall.. pantaði miða og ferð á Hróaskeldu (og já það verður farið aftur í ár)
hélt uppá afmælið mitt..
fór á kelduna.. held að það þurfti ekki að ræða það neitt frekar,
eitt af bestu djömmum sumarsins var garðpartíð góða, gleymist seint..
fluttum úr trölló í skuggó og svo í snæjó og erum hér enn og líkar VEL.
ég hekla og dagný fóru og airwaves og það var í alla staði fráááábært.
arna dís byrjaði að labba og segja mamma og alskonar flottheit.
kynntist helling helling af nýja skemmtilegu fólki.
byrjaði að vinna í frúnni sem er yndislegt.
gerði allan fjandan með dagný og heklu.
29des djammið var líka eitt af þeim betri á árinu.
nei ég djammaði ekki bara þetta ár (þið hneyklunsargjarna fólk) en ég nenni ekki að..
ég fór í bónus
tannlæknis
keyrði í kjarnaskóg
fór í sund
og á flippdegi hjá mér fékk ég mér ís og það í brynju.
æ.. ég veit það eki. þetta var bara frábært ár og ég vona að það nýja verði það líka.
en það er svo sem allt undir mér komið hvernig þetta ár verður, eða það ekki málið?
eitt af því besta ég sem ég lærði á árinu er að gefa fokk í hvað örðum finnst. ég hef svo sem aldrei látið aðra segja mér fyrir verkum eða gefið því aum hvað aðrir segja en ég stóð við það allt árið að láta ekki aðra segja mér hvað mér ætti að finnst eða hvernig ég ætti að klæða mig eða hvað maður má þegar maður er foreldri eða hvað. þannig að ég vona að nýja árið hald eins áfram.
hápuntur ársins var án efa Hróaskelda og Airwaves. og það verðu endurtekið bæði.

æ.. þið vitið.
nýja árið verður gott ef maður vill það.
ætla taka makkarónuna inn úr vagninum og trallast með drall hingað og þangað.
takk fyrir að vera til vinir mínir allir saman.
ég á marga félaga og kunningja. gamla sem nýja og ætla reyna notið árið í að kynnast þeim aftur eða betur. þið skiljið..
ég er orðin væmó og er með flókið hár í gauðgötóttum lopasokkum.
kommmmmmmáááán.

11.12.06

Hvað finnst ykkur um þetta?
pabbi skirfaði frábæra grein um helv. tryggingarsukkið. anskotans vitleysingar.. eins karl faðir minn segir.. þar sem tryggingar snúast um peninga.
Ég á víst von á símtali frá herra. trygginaryfirmanni á morgun.
ég: leggðu bara 200þúskjell inn á mig og málið er dautt og nei ég fer þá ekki með þetta í blöðin.
tryggingarherra: já ok, ég geri það. takk. já. ok. takk. bless. þú ert best viktoría.

4.12.06

ææ.. það eru svo margir flækinskettir sem skoða þessa síðu.
þið hafið ekkert annað að gera.
DO IT!
elsk elsk

1.Nafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?